Morgunblaðið - 11.07.1998, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 11.07.1998, Blaðsíða 42
42 LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ Grettir BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sírai 569 1100 • Símbréf 569 1329 Verður skattsvik- ari forseti borg- arstjórnar að ári? Frá Guðrúnu Helgu Theodórsdóttur: NÝLEGA lauk hrossakaupum flokkanna sem standa að R-listanum við skiptingu embætta, nefnda og ráða í borgarstjórn. Ótvírætt virð- ingarmesta staðan sem var til út- hlutunar er embætti forseta borgar- stjórnar. Er það tvímælalaust mikil- vægasta embætti borgarkerfísins að m og væri að öðru leyti vei til fallinn að gegna slíku virðingarstarfi.^Nú hefur hins vegar komið á daginn að eftir harða baráttu innan R-listans um embætti forseta borgarstjórnar hyggst meirihlutinn í Reykjavík gera hinn nýkjörna borgarfulltrúa, Helga Hjörvar, að forseta borgar- stjórnar að ári. Verður að telja það afar hæpna fyrirætlun svo ekki sé meira sagt. Er það ekki fyrst og fremst vegna þeirrar staðreyndar að Helgi er þessa dagana að setjast í borgarstjórn í fyrsta skipti og að ekki er vitað til að hann hafí neina reynslu sem geri hann sérstaklega hæfan til að takast þetta starf á hendur. Mun alvarlegra er, að ferill Helga er þess eðlis, að afar vafa- samt er að fela honum eitt allra virð- ingarmesta embætti borgarkerfís- ins. Þverbrotin skattalög Eins og flestum er nú að verða Ijóst, hefur Helgi Hjörvar mörg undanfarin ár þverbrotið brýn ákvæði virðisaukaskattslaga með því að draga árum saman að skila ríkinu þeim virðisaukaskatti sem honum bar. Er þetta meðal annars rakið í nýlegri blaðagrein eftir Sól- veigu Bachmann héraðsdómslög- mann. Kemur þar fram, að lág- marksrefsing við broti Helga, er sekt sem nemur tvöfaldri þeirri upphæð sem ekki var skilað. Má sektin jafnvel vera tífóld upphæðin og sé brotið stórfellt getur refsing numið allt að sex ára fangelsi. Heigi sjálfur hefur sagt að hann hafí ekki greitt skuldina fyrr en í maí, nokkrum dögum fyrir borgarstjórn- arkosningarnar. Menn geta velt því fyrir sér, hvort hann hefði séð ástæðu til að skila skattinum ef hann hefði ekki verið kominn í framboð og viðskiptaferill hans kominn í hámæli. í janúar síðast- liðnum skuldar hann hundruð þús- unda króna í skatta en í stað þess að greiða skuldirnar ákveður hann að hella sér út í kostnaðarsamt próf- kjör með tilheyrandi auglýsingum og bæklingaútgáfu. Segir það ef til vill talsverða sögu um það hvaða augum Helgi Hjörvar lítur sína eig- in skattskyldu. Það verður að telj- ast furðuleg ósvífni við borgarbúa ef aðrir borgarfulltrúar R-listans láta verða af því að ári, til þess eins að komast hjá sundrungu, að fela Helga Hjörvar eitthvert allra virðu- legasta embætti borgarinnar. Það eru sérkennileg skilaboð þeirra til borgarbúa ef borgarfulltrúar R-list- ans telja feril Helga Hjörvar sér- stakra verðlauna verðan. GUÐRÚN HELGA THEODÓRSDÓTTIR, Reykási 16, Reykjavík. Hana-nú í 15 ár ij „Morgunroðinn vætir“ Kannski var þetta bara smáskúr... Frá Sigurbjörgu Björgvinsdóttur: ÞEIR SEM átt hafa leið um miðbæ Kópavogs á laugardagsmorgnum og gengið fram hjá Gjábakka, félags- heimili eldri borgara, hafa séð mann á vappi fyrir utan. Maðurinn er kím- inn, dökkur yfirlitum, oft klæddur gráum frakka og stundum með rauða prjónahúfu. Ef þessi maður er spurður hvað sé títt gæti hann sagt: „Það er allt andstyggilega gott.“ Þetta er að sjálfsögðu „Krummi garmurinn" eins og hann sjálfur kýs að kalla sig meðal vina en heitir Hrafn Sæmundsson. Hrafn þéssi Sæmundsson er hugsrhiður og ein stærsta og merkilegasta hugsmíð hans er Hana-nú. Um þessar mundir eru 15 ár síðan fólk með framtíðarsýn kom saman í Kópavogi. Þetta fólk hafði það lang- tímamarkmið að það vildi vera búið að átta sig á hvað það ætlaði að taka sér fyrir hendur þegar það hætti að mæta í vinnuna á hverjum morgni. Þetta fólk vildi hafa hlutverk í ell- inni og taka ábyrgð á sjálfu sér. Þetta fólk vildi eiga möguleika á að vera skapandi einstaklingar alla ævi. Þetta fólk var ákveðið í að storka elli kerlingu eins lengi og kostur væri. Þetta fólk kaus að kalla sig Hana-nú og trúir því að Hana-núið í mann- eskjunni sé manneskjan sjálf - það að vera maður með mönnum. Hana-nú er enn, fímmtán árum síðar, lausbeislaður áhugamanna- hópur sem sækir styrk til félaganna sjálfra og ekki síður til iðandi mann- lífs og menningarviðburða samfé- lagsins. Þú getur hitt Hana-nú fé- laga á ferðalagi norður í landi eða að kynna sér Hæstarétt, sitjandi á bjór- krá eða á spjalli við forsetann á Bessastöðum, hlustandi á fyrirlestur um skótau eða gangaridi á góðviðris- kvöldi í Elliðaárdalnum. Það eru engin félagsgjöld í Hana- nú og þar er enginn formaður né stjórn. Til að verða félagi þarftu að- eins að vera orðinn 50 ára Kópa- vogsbúi. Höfðingi Hana-nú, Ásdís Skúladóttir, guðfaðirinn, Hrafn Sæ- mundsson og Hana-nú félagar. Til hamingju með Hana-nú í 15 ár. F.h. félags- og tómstundastarfs eldri borgara í Kópavogi, SIGURBJÖRG B JÖRGVIN SDÓTTIR forstöðumaður. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í uppiýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.