Morgunblaðið - 11.07.1998, Blaðsíða 24
MORGUNBLAÐIÐ
24 LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1998
LWK
“rgeirsson eru enn að fJs e,,ln
MÁLTÆKIÐ segir að eft-
ir höfðinu dansi limimir
en á Pollamóti Þórs á
Akureyri um helgina,
þegar rúmlega 600 knattspymuhetj-
ur frá aldrinum 30 ára og uppúr
reyndu að láta það ganga eftir, var
erfitt að átta sig á inntakinu í fyrr-
greindum málshætti. Að vísu var al-
veg víst að höfuðið vissi alveg hvað
ætti að gera og hvemig bera ætti sig
að við hinar ýmsu knattspyrnukúnst-
ir, líkt og pollarnir höfðu séð á heims-
meistarakeppninni í sjónvarpinu.
Vandamálið lá hinsvegar í því limim-
ir og skrokkurinn voru ekki í stakk
búnir til að fylgja skipunum að ofan
eftir. En það verður að taka viljann
fyrir verkið og fyrir vikið gerðu
menn góðlátlegt grín að öllu saman -
sjálfum sér og öðrum - svo að úr
varð stórskemmtileg knattspymu-
helgi með iðandi skemmtilegu mann-
lífi þó svo að syði reglulega uppúr.
Tíu ár eru síðan Aðalsteinn Sigur-
geirsson, Benedikt Guðmundsson og
Bjarni Hafþór Helgason sátu í sturtr
unni eftir „old boys“ æfingu hjá Þór
og hugmynd um að halda 7 liða
knattspyrnumót fyrir 30 ára og eldri
laust niður í koll þeirra. Þeir létu
ekki þar við sitja, Bjarni Hafþór
samdi Pollamótslagið og Aðalsteinn
og Benedikt, báðir fyrrverandi for-
menn Þórs, hófu undirbúning að 16
liða knattspyrnumóti fyrir polla 30
ára og eldri. Nú tíu árum síðar er
mótið enn við lýði en liðin orðin sex-
tíu og komast færri að en vildu - um-
fangið má varla vera meira enda
nálgast fjöldi knattspymukappa
ásamt fylgdarliði annað þúsundið.
Norðangarri eða
sólarströnd
I mörg horn þurfti að líta, til
dæmis huga að dagsetningu, því
brugðið getur til beggja vona með
blíðuna á Akureyri - norðanáttin
getur verið nöpur en í sunnanáttinni
er oft blíða, sem gefur Spánarströnd
lítið eftir. Því var haldið til Veður-
stofunnar og beðið um tölur um veð-
urlag á Akureyri, hitastig og vind-
hraða, frá því mælingar hófust til að
sjá hvenær viðraði best til móts.
Eftir úttekt á þeim tölum kom í ljós
að fyrsta helgi í júlí hafði í gegnum
tíðina verið hagstæðust og undanfar-
in tíu ár hefur það sjaldan svikið.
Og ekki sviku veðurguðimir á
fimmtudag. Mannlífið var iðandi,
fólk hópaðist á svæðið, margir höfðu
komið oft áður og hittu fyrir gamla
kunningja, sem höfðu att við þá
kappi auk þess, sem eiginkonur og
börn höfðu einnig bundist vináttu-
böndum. Ýmist bjó fólk í tjöldum á
svæðinu eða hafði leigt sér húsnæði
á Akureyri eða nágrenni en margir
panta að ári við brottför að móti
loknu.
Öllu til tjaldað
Föstudagurinn rann upp bjartur
og fagur. Leikir hófust klukkan níu
að morgni en þá þegar voru margir
mættir - höfðu mætt upp úr klukkan
átta til að hita upp og svoleiðis en
fólkið í mótsstjóminni sagði að þetta
væri alltaf svona, karlamir væro svo
spenntir fyrir leikina og hlakkaði svo
til, sum lið lékju færri leiki en aðrir
og þeir vildu njóta hverrar mínútu
Sveittir og
þreyttir en
afar einbeittir
Pollar, margir með grátt í vöngum og sýni-
lega velmegun um sig miðja, spreyttu sig í
knattspyrnu á Pollamóti Þórs á Akureyri
um helgina. Stefán Stefánsson fylgdist
með iðandi mannlífínu, mörgum vel meint-
um tilþrifum og hreifst með.
Svona svipað og á hinu
fótboltamótinu
BRÆÐURNIR Magnús og Jó-
hannes Bárðarsynir léku úr-
slitaleikinn í lávarðadeildinni
hvor með sínu liðinu, Magnús
með Þrótti og Jóhannes með
Vfldngum. „Eg er alltaf að
segja honum til því hann er jú
yngri en ég,“ sagði Magnús,
sem hafði betur í leiknum.
Hemmi Gunn
og rækjurnar
endalausu
HERMANN Gunnarsson, knatt-
spyrnuhetja og skemmtikraftur,
mætti á Þórssvæðið til að fylgjast
með en vegna mikillar Ieik-
mannaeklu var hann settur á
leikmannamarkaðinn hvort sem
honum likaði betur eða verr. ís-
firðingar þóttust heppnir og
buðu í Hermann en samningar
náðust ekki fyrr en þeir buðu
honum endalausar rækjur. Þá
sagði Hemmi já.
Isfirðingar geta verið slyngir í
samningum og sumir þeirra
sögðu - öðrum en Hermanni - að
þeir ætluðu að taka nokkrar
rælqur og skera af þeim endana
og þá fengi Hermann sínar enda-
Iausu rækjur. Hermann spilaði
einn leik, hélt sig mjög framar-
lega á vellinum en þar sem ís-
firðingar voru frekar uppteknir í
vamarleiknum fékk hann aldrei
boltann og gaf sér meðal annars
tíma til að Ieyfa Valtý Birni Val-
týssyni á Stöð 2 að taka við sig
viðtal inni á vellinum. Samning-
um var því rift eftir leik en það
fréttist að Hermann væri falur á
ný og þá fyrir majones og egg -
hann langaði í rækjusalat.
Hófst þá atið. Hart var barist og
oft vantaði nokkra metra upp á
sprett eða boltinn fór ekki alveg
áætlaða leið. Mönnum hitnaði í
hamsi en voru yfirleitt fljótir til að
fyrirgefa því nota þurfti orkuna í
annað. Á milli leikja skroppu kapp-
arnir inn í Hamar, hið glæsilega fé-
lagsheimili Þórs, til að sjá aðra
kappa sparka tuðro því úrslitaleikir
heimsmeistarakeppninnar voru í
fullum gangi á stórum skjám. Þegar
í næsta leik kom voro menn því oft
fullir af hugmyndum um hvemig
leikkerfum skyldu gerð skil og
hvernig væri best að bera sig að við
listina. Allt tók þetta sinn toll og er
leið að kvöldi fór að draga úr þrótti,
andinn var að sönnu reiðubúinn en
skrokkurinn síður. Hinsvegar er
ljóst að margir sofnuðu bæði fast og
snemma því að laugardagsmorgni
voro síðustu leikir í riðlum og loks
úrslitaleikir. Á laugardagsmorgni
minntu veðurguðimir ó hver það er
sem ræður og létu Kára blása kulda
að norðan svo að það reyndi á þolrif
eiginkvenna og barna, sem mætt
voru kappklædd til leiks. Lið féllu úr
leik eitt af öðru og flestir voro sáttir
við sitt. Eins og við var að búast
hafði það allt sínar skýringar,
Lóvarðar sögðust vissulega leika ró-
lega knattspymu en lékju þess betur
og ekki þyrfti að endursýna hægt frá
þeirra leikjum - ekki væri hægt að
KRAKKARNIR á Þórssvæðinu söfnuðu mörg hver flestum myndum
Fylkismanna því flatbaka í verðlaun heillaði.
fara öllu hægar og þá gall við í son-
arsyni: „Já, þetta er ýkt hægt.“
Fylkir persónu-
leiki mótsins
Lokahóf mótsins fór fram í
íþróttahöllinni að laugardagskvöldi.
Þar var meðal annars tilkynnt um
niðurstöðu kosninga um besta varn-
armann, sóknarmann og markvörð
auk markakónga. Að auki útnefndir
Skaphundar Pollamótsins, sem
keppendur höfðu kosið úr hvorom
flokki en hvorugur sá sér fært að
mæta á samkomuna. Öllu meiri veg-
tylla var titfllinn Persónuleiki Polla-
mótsins og kom hann í hlut Bjarna
Sverrissonar úr IR-a í yngri flokkn-
um. Persónuleiki Lávarðadeildar var
lið Fylkis í heild sinni en þeir tóku
sig til og gáfu út leikmannamyndir
fyrir mótið en þeir, sem náðu að
safna öllum 36 myndunum gátu unn-
ið sér inn flatböku. Að auki lituðu
þeir á sér hárið í Fylkislitum. Var
mál manna að þeir hefðu hresst upp
á grínið í mótinu og aðrir mættu
fylgja í kjölfarið til að glensið og
grínið yrði áfram mikilvægur þáttur
á þessu móti. Og úrsht, Þróttui- vann
Víking í Lávarðadeildinni og Ökkli
sigraði KR í yngri flokknum.
Morgunblaðið/Stefán Stefánsson
GÖMUL „International" dráttarvél fékk nýtt hlutverk og hefur eflaust verið sátt við það.
spenntir í fínum búningum með allar
græjurnar á hreinu. Viða var greini-
lega fátt til sparað, flestir voru með
nýmóðins orkudrykki - sögðust að
vísu ekkert endilega hafa mikla trú á
mætti auglýsinga en nú þurfti að
tjalda öllu tíl. Markverðir margir
voru í skrautlegum búningum með
alvöromarkmannshanska af nýjustu
gerð og skómir í öllum regnbogans
litum - svona rétt eins og á heims-
meistarakeppninni. Treyjurnar voru
flestar fallegar þó að þær væro
margar fullstrekktar að framan. Inn
á milli voro þó miklir íþróttagarpar,
sem höfðu greinilega haldið línunum
eins og þeir vilja hafa þær en baráttu-
gleðin einkenndi þá alla.
FYLKISMENN voru líflegir á mótinu og lituðu meðal annars á sér
hárið í stfl við lit félagsins. Þó að Kjartan Björnsson segðist vera með
náttúrlegt slíkt rautt hár kom það fyrir lítið - einn fyrir alla og allir
fyrir einn - og Birgir Vagnsson dró fram litabrúsann.