Morgunblaðið - 11.07.1998, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 11.07.1998, Blaðsíða 50
50 LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ Vatnsskírn jafningja Jafningjafræðslan stendur fyrir svoköll- uðum Flakkferðum fyrir unglinga. Geir Svansson var sjanghæjaður um borð í gúmmífleka og látinn flakka niður beljandi jökulfljót í stríðum straumróðri en ljósmyndari Morgunblaðsins fór með flökkurum á bólakaf í Keflavík. Mikíð úrval af vörum og framleiðendum. Sjón er sögu ríkari! ÞlN FRlSTUND - OKKAR FAG BllDSHÖFÐA - Bfldshöfða 20 - Slmr 510 8020 Flekanum okkar fylgdu tveir öryggis- kajakar en íyrirliðinn Raj, eða Rajendra Ba- hadur Gurung, er at- vinnumaður í „rafting" í heimalandi sínu Nepal og hefur margra ára reynslu að baki. Þetta er annað árið í röð sem hann stjómar Morgunblaðið/Halldor ferðum á jökulsám 1 UNDIR yfirborði. Skagafirði en hér dvel- ur hann á meðan Monsúnvind- ar geisa í Nepal. Hann kom í þetta sinn með tvo samlanda sína og einn Svía sem allir hafa mikla reynslu í straumróðri. Ferðin niður ólgandi fljótið í hrikalegu gljúfri var í einu orði sagt æðisgengin. Raj stjómaði okkur ræðumnum og gekk furðan- lega vel. Eftir að verstu flúðunum sleppti og byrjendaskrekkurinn Meindl island herra- og dömuskór Gönguskór úr hágæða leðri. Gore-tex I innra byrði og góð útöndun. Vibram Multigriff sóli. -góöir ílengri göngulerðir. -ferðin gengur vel á Meindl ÚTILÍF GLÆSIBÆ • SÍMI581 2922 MÉR leist satt að segja rétt þokkalega á verk- efnið: að flæmast niður ólgandi og ískalt jökul- fljót á gúmmífleka með reykvísk- um unglingum á flakki. Eftir þriggja klukkustunda volk, sem reyndist alls ekki jafn kuldalegt og ég hafði búist við, eram við, ég og hinir flakkararnir sem hlutu þarna sína jökulsárskím, dús og meira en til í að endurtaka leikinn. Jökulsá austari er talin ein al- besta og jafnframt erfiðasta áin fyrir það sem kallað er á slettulegri íslensku „rafting" en væri kannski nær að kalla flúðaróður eða straumróður. Framkvæmdastjóri Ævintýraferða, Pétur Helgason, sem skipulegg- ur bátaferðir á Jökulsán- um vestari og austari og Blöndu, tjáði mér að Jök- ulsáin austari væri metin á 3-4,5, eftir því hvað hún er vatnsmikil, á mæli- kvarða sem hefur hæst sex en hámarkið þýðir að fljótið sé ófært. Það er því fullt tilefni til að taka svona fljótaferð með fullri alvöru þótt öryggi og búnaður allur hafi verið til fyrirmyndar. Fyrirliði frá Nepal ;«r v Á X FOLK I FRÉTTUM EKKI aftur snúið. Morgunblaðið/Björn Gíslason BJÖRN Knútsson undirbýr Ásdísi Maríu Rúnarsdóttur. KATRIN Inga Jónsdóttir loftar um augun áður en farið er í kaf. KAMPAKATIR áður en lagt er í hann; Magnús Birgisson, Indriði Ingi Stefánsson, Konráð Davíð Þorvaldsson, Geir Svansson blaðamaður, Rajendra Bahadur Gurang, Sigurbjörn Gunnarsson (aftari röð); Kristinn Magnússon, Baldur Freyr Einarsson, Man Kumar Gurang (fremri röð). ALLIR á sama báti. var horfinn gerðu bátsmenn sér að leik að varpa hver öðram fyrir borð. Búningamir héldu mönnum skraufþurrum og flestir vildu helst vera sem lengst úti í og engum varð meint af því að fara á kaf í grámóskulegt ísfljótið. Köfunarferð var farin til Kefla- víkur skömmu eftir flúðaróður. Að sögn Magnúsar Birgissonar, um- sjónarmanns og fararstjóra Flakks, fengu þeir fimmtán flakk- arar sem tóku boðinu hver um sig að kafa í 25 mínútur eftir að hafa horft á myndbönd og fengið úr- valsleiðsögn hjá Bimi Knútssyni hjá Sportköfunarskóla íslands. Þátttakendur voru allir sem einn á því að köfunarferðin hefði verið einkar skemmtileg og lærdómsrík. Með jafningjum Jafningjafræðslan, sem hefur að- setur í Hinu húsinu í Reykjavík, hef- ur staðið íyrir skemmtilegu Flakki í þijú sumur, eða frá því að hún var stofnuð á vegum Félags framhalds- skóla vorið 1996. Jafhingjafræðslan hefur þann megintilgang að fræða sem flest ungmenni landsins um skaðsemi fíkniefna og sýna þeim fram á að lífsins er hægt að njóta án Á BÓLAKAFI. vímuefiia. Hún skipuleggur fræðslu- fyrirlestra í skólum en til að vera ekki „bara orðin tóm“, eins og Hild- ur Sverrisdóttir hjá Jaíhingja- fræðslunni, komst að orði, eru Flakkferðimar hugsaðar til að stefna þeim saman sem vilja njóta náttúra og skemmtana án vímuefna. Ungu fólki gefst tækifæri á að fara í ferðir og prófa ýmiss konar ævintýri á kostakjörum. Meðal þess sem boðið er upp á í sumar, fyrir utan köfun og straumróður, er þythokkí, snóker, svifflug, þotu- skíði (jet-ski) fallhlífarstökk, út- reiðartúr, fjallgöngur og æfinga- flug. Auk alls þessa gefst þeim sem farið hafa a.m.k. tvær Flakkferðir innanlands kostur á einkar ódýram utanlandsferðum, m.a. til London, Rimini á Ítalíu, Benidorm og íbiza. Allir á flakk! Það er full ástæða til að hvetja ungt fólkt til að nýta sér Flakkferð- ir Jafningjafræðslunnar. Fólkið sem að henni stendur stundar ekki forpokaðan hræðsluáróður heldur býður upp á vímulausa valkosti sem alltof lítið er af á íslandi. Vert er að hafa í huga að einskis af því sem boðið er upp á er í raun hægt að njóta til fulls undir áhrifum nema þeim einum sem líkaminn framleið- ir sjálfur í vellíðan og ánægju.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.