Morgunblaðið - 23.07.1998, Síða 18

Morgunblaðið - 23.07.1998, Síða 18
18 FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR UR VERINU Grill- sósur MARGIR grilla ávallt lambakjöt, aðrir eru hrifnari af svínakjöti eða nautakjöti, sumir vilja bara fá kjúl- ing og enn aðrir fisk. Með grillmatn- um er auðvitað hægt að bera fram kartöflur, brauð og alls konar salöt og grænmeti, en góð sósa er ekki síð- ur nauðsynleg. Hér koma nokkrar uppskriftir að góðum grillsósum. Sumar tekur nokkra stund að útbúa, en á móti kemur að þær er hægt að gera með nokkurra daga fyrirvara ef ástæða er til. Grillsósa á Tandoori-vísu Morgunblaðið/Júlíus ELÍAS Andri bar sig fagmannlega að grilleldamennskunni í vikunni. Morgunblaðið/Sigurgeir ÞORSKAFLINN jókst um 26% í júní miðað við sama mánuð í fyrra. 1 msk. grænmetisolía 2 tsk. paprikuduft i/2 tsk. mulið kúmen 1/4 tsk. muldar kardimommur 3/4 tsk. mulinn engifer i/8 tsk. cayenne-pipar 1/4 bolli hrein jógúrt 2 msk. nýkreistur sítrónusafi 1 stór hvítlauksgeiri, saxaður Hitið olíuna, paprikuduftið, kúmenið, kardimommur, engifer og cayenne- pipar í litlum potti við meðalhita þar til blandan fer að krauma og sjóðið síðan í rétt rúma mínútu. Hrærið vel á meðan. Hrærið önnur hráefni sam- an í skál, smakkið til með salti og hrærið síðan kryddblöndunni úr pottinum vel saman við. Gott með lambi og kjúklingi. Hlynsírópssósa 2 stórir laukar, saxaðir smátt 2 i/2 msk. grænmetisolía 2 i/2 msk. Worcestershire-sósa 1 msk. Dijon sinnep 11/4 bolli tómatsósa 2 i/2 bolli kjúklingasoð 3/4 bolli eplaedik 1/2 bolli og 2 msk. hreint hlynsíróp. Setjið allt hráefnið í stóran pott og látið suðuna koma upp. Hrærið af og til og látið krauma í um 50 mín- útur, eða þar til blandan hefur soðið niður í um 3 1/3 bolla. Þessa sósu er hægt að gera með allt að viku fyrirvara og geyma hana í lokaðri skál í ísskáp. Notið hluta sósunnar til að pensla á grill- kjötið og berið afganginn fram með matnum. Hún er frábær með kjúklingi, en fer líka mjög vel með öðrum grillmat. I stað kjúklinga- seyðis má þá nota grænmetisseyði. „Heit“ grillsósa 2 msk. grænmetisolía 1 meðalstór laukur, smátt saxaður i/3 bolli saxað sellerí 1 msk. hvítlaukur, smátt saxaður 1 msk. paprikuduft Kúrekaborg’arar BANDARÍKJAMENN eru sjálfsagt allra þjóða iðnastir við að grilla, þótt íslendingar nái þeim kannski miðað við höfðatöluútreikninginn fræga. En Bandaríkjamenn hafa stundað þetta lengur og þegar þeir grilla hamborgara, þá eru það engir „barnaborgarar". Hér birtist banda- rísk uppskrift að „kúrekaborgara". Vt bolli nýmabaunir úr dós '/i kíló nautahakk 6 msk. „hickory" grill sósa 4 tsk. piparrótarmauk 4 tsk. smátt saxaður hvítlaukur 'á tsk. salt 'Æ tsk. pipar Látið renna af niðursoðnum nýrnabaununum, maukið þær og mælið fjórðung úr bolla af maukinu. Blandið öllu hráefninu saman og bú- ið til fjóra hamborgara. Skellið ham- borgurum á meðalheitt grillið (Kan- inn spreyjar gjarnan steikingarolíu í úðabrúsa beint á hamborgarana fyr- ir steikingu, svo þeir loði ekki við gi-illgrindina. Agætt ráð). Grillið hamborgaranna í ca. 4 mínútur á hvorri hlið. Grillið einnig fjórai- væn- ar sneiðar af rauðlauki, í um 5 mínút- ur á hvorri hlið. Hamborgararnir og rauðlauks- sneiðamar fara svo í hamborgara- brauð, sem gott er að skella aðeins yfir grillið. Að sjálfsögðu er svo bara betra að skella líka salatblaði á milli, eða öðru grænmeti. Frami frá Ragnheiðarstöðum 91187750 verður til afnota að Ragnheiðarstöðum seinna gangmál. B: 8,36 H: 8,12 — Aðaieinkunn 8,24 — Kynbótaeínkunn 128 Allar uppl. í símum 568 4240 og 486 3366 Bráðabirgðatölur Fiskifélags Islands 6% aukning í aflaverðmæti 1/2 tsk. cayenne-pipar 3/4 bolli tómatsósa i/2 bolli bjór 1/4 bolli eplaedik 1 msk. Worcestershire-sósa Hitið olíuna í meðalstórum potti við meðalhita. Setjið lauk og sellerí út í og hrærið þar til það hefur mýkst upp, í um 5 mínútur. Bætið út í hvít- lauk. paprikudufti og cayenne-pipar og hrærið í eina mínútu. Setjið loks tómatsósu, bjór, edik og Worcesters- hire-sósu út í. Lækkið aðeins undir pottinum og látið blönduna krauma í opnum potti þar til sósan hefur soðið aðeins niður, eða í um 30 mínútur. Hrærið í af og til. Þessa sósu má hæglega gera með viku fyrirvara. Hún er sérstaklega góð með svínakjöti, en stendur svo sannarlega fyrir sínu með öðrum grillmat. Penslið matinn ríkulega með sósunni þegar þið grillið. Nyjar leiðir í framköllun HANS Petersen hf. býður nýja þjón- ustu fyrir þá sem vilja nota myndirn- ar sínar í tölvunni eða koma betra skipulagi á myndasafnið. Þegar filma er sett í framköllun getur viðskipta- vinurinn valið um hvort myndirnar verði settar á diskettu, geisladisk, á yfirlitsmynd og síðan sendar heim til eiganda í tölvupósti. I fréttatilkynningu kemur fram að á einum disklingi rúmist 40 myndir ásamt forriti. Auðvelt sé að yfirfæra myndirnar í helstu forrit í PC- eða Mac-umhverfi. Hægt er að velja um að setja stakar ljósmyndir eða filmur á geisladisk. Myndirnar er svo hægt að skoða í 5 mismunandi upplausn- um á disknum, frá smámynd upp í 18 mb mynd. Boðið er upp á að allar myndir á filmunni séu settar á eina yfirlitsmynd til hægðarauka við eft- irpantanir og stækkanir á myndum og við skipulagningu myndasafns. Viðskiptavinir geta fengið sendar myndir í tölvupósti. Annaðhvort heim til sín eða til þeirra sem senda á myndirnar. VERÐMÆTI fiskaflans í heild fyrstu sex mánuði þessa almanaksárs hefur aukist miðað við sama tíma í fyrra um 1.850 milljónir króna. Þá varð verðmætið um 29,3 milljarðar, en er áætlað upp á 31,2% milljarða króna fyrri helming þessa árs. Verð- mætaaukningin nemur því á heildina litið um 6%, samkvæmt bráðabirgða- tölum Fiskifélags íslands. Þar af er verðmæti þorsksins um 10,6 milljarðar og verðmæti botnfisks í heild um 22,3 milljarðai- króna. Verðmæti uppsjávarfiska er um 5,4 milljarðar króna og verðmæti skel- og krabbadýra 3,5 milljarðai- króna. Verðmæti botnfiskaflans eykst um 3,2 milljarða króna eða um tæplega 17%, en aukning í magni er um 6%. Verðmæti þorskaflans eykst um 2,9 milljarða eða um 38% enda aukning í magni um 16%. Verðmæti uppsjávar- fiska dregst saman um 200 milljónir sem er rétt rúmlega 3%. Samkvæmt tölum Fiskifélagsins var fiskaflinn í júnímánuði um 195 þúsund tonn sem er meira en tvöfalt meiri afli en á síðasta ári, en þá var júníaflinn um 71 þúsund tonn. Aðal- ástæða þessa eru veiðar á síld og UNNIÐ hefur verið að þvi að fegra svæðið við höfnina í Grundarfirði. Svæðinu hefur verið skipt í þrennt. Stór skífa með höfuðáttunum fjórum hefur verið sett á eitt plan, hellulagt verður í kringum loðnu, annars vegar byrjaði loðnu- vertíðin íyrr en vanalega, eða hinn 20. júní í stað 1. júlí, og svo veiddist mun meira af norsk-íslensku síldinni í júní í ár en síðasta ár. Þá var aðal- veiðin í maí. Loðnuaflinn í mánuðin- um varð um 41 þúsund tonn og síld- araflinn um 100 þúsund tonn, sam- kvæmt bráðabirgðatölum Fiskifélags íslands. Þorskaflinn jókst um 26%, út- hafskarfaaflinn enn meir og stein- bítsaflinn jókst mest eða um 42%. Hins vegar varð verulegur samdrátt- ur í ýsu, ufsa, grálúðu og skarkola. Athygli vekur að hörpudisksaflinn í júní í ár er nærri þrefalt meiri en í júní í fyrra eða 191 tonn í ár á móti 66 tonnum í fyrra. Öðru máli gegnir hins vegar þegar fyrri helmingur þessa árs er borinn saman við fyrstu sex mánuðina í fyrra. Þá kemur í ljós að aflinn í ár er orðinn liðlega ein milljón tonna sem er um 300 þúsund tonnum minni afli en á sama tíma í fyrra og þýðir 23% samdrátt. A sama tímabili hefur botnfiskaflinn aukist um tæp 6%, en uppsjávarveiðin hefur dregist saman um 31% milli áranna. skífuna. Einnig verður bekkjum komið fyrir. Stóri; svæði verður þökulagt og bflastæði malbikuð. Notað er grjót við hleðsluna. Starfsmenn hjá Eyrarsveit; hafa unnið við að fegra svæðið. Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson Hafnarsvæðið fegrað Grundarfirði. Morgunblaðið. Bragðið gildir - en hvað gerir Gilde svona bragðgóðan? - Bragðið Gilde 10 góðir saman Bestu kaupin! Á 10 góðum stöðum '&VUtentt JféttUT' 1/ Artjguft/ Finndu svarið: http://come.to/gilde.info Akureyri, Borgarnes, Egilsstaðir, Eiðistorg, Hannover, Holtagarðar, (safjörður, Mjódd, Selfoss, Stuðlaháls

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.