Morgunblaðið - 23.07.1998, Síða 23

Morgunblaðið - 23.07.1998, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1998 23 LISTIR Miklabæjar-Solveig1 frum- sýnd í Þjóðleikhúsinu PJOÐLEIKHUSIÐ frumsýnir í október nýtt leikrit um Miklabæjar- Solveigu og séra Odd Gíslason. Höfundur er Ragnar Arnalds rithöf- undur og alþingismaður. Leikstjóri verður Þór- hallur Sigurðsson en með hlutverk söguhetj- anna fara Vigdís Gunn- arsdóttir og Þröstur Leó Gunnarsson. Aðrh- leik- endur verða Pálmi Gestsson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Sigurður Skúlason, Baldur Trausti Hreinsson, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir Ragnar Arnalds og Hjalti Rögnvaldsson sem fer með hlutverk Hólabiskups. Saga Odds og Solveigar á Mikla- bæ í Blönduhlíð í Skagafirði er kunn úr þjóðsögunum. Árið 1786 týndist Oddur milli bæja að vetri til og fannst aldrei. Var þar kennt um kvendraugi nokkrum sem Solveig hét er verið hafði vinnukona séra Odds meðan hún lifði. Er sagt að hún hafi fengið á honum ást mikla og þegar prestur svaraði ekki ást henn- ar sturlaðist hún og skar sig loks á háls. Eftir það sótti hún að Oddi hvar sem hann var einn á ferð og mest þó í myrkri. Ragnar segir atburðina á Miklabæ nærtækt yrkisefni, þar sem hann sé búsettur handan við Héraðsvötnin, í Varmahlíð. Þá séu þessir atburðir Skagfirðingum enn ofarlega í huga en skammt er síðan settur vai- kross á leiði Solveigar í kirkjugarðinum í Glaumbæ. Ragnar kvaðst fýrst og fremst hafa stuðst við þjóðsög- una við skrif sín enda sé ekki ýkja mörgum öðr- um heimildum til að dreifa. Ragnar hóf skrifin að eigin frumkvæði en Þjóðleikhúsið festi kaup á leikritinu fyi-h- um tveimur árum. „Það er nú þannig með okkur leikiútahöfunda að við verðum að velja okkur yrkisefni og sjá svo til hverjir vilja sýna. Þjóð- leikhúsið keypti leikritið á sínum tíma en þar sem löng röð leikrita hefur beðið þar sýningar hefur ekki orðið af því fyrr en núna að það er fært upp.“ Samlestur á leikritinu hófst í vor en æfingar hefjast af fullum krafti 24. ágúst næstkomandi. Ragnar hef- ur hug á að fylgjast grannt með æf- ingum og líst ákaflega vel á það hvernig að uppsetningunni er staðið. Þá hlakkar hann til að vinna á nýjan leik með Þórhalli Sigurðssyni en hann leikstýrði öðru leikriti Ragn- ars, Sveitasinfóníunni, hjá Leikfélagi Reykjavíkur veturinn 1988-89. Var það sýnt í 101 skipti. Leikrit um Jörund hundadagakonung Oddur og Solveig eru ekki einu persónurnar aftan úr öldum sem eru Ragnari hugleiknar um þessar mundh’ en hann er nú að leggja loka- hönd á leikrit um Jörund hunda- dagakonung, sem réð ríkjum á ís- landi í skamman tíma árið 1809. Er leikritið unnið upp úr kvikmynda- handriti sem Ragnar skrifaði fyrir kvikmyndafélagið Umba um árið en ekki hefur enn tekist að fjármagna myndina. Margir hafa glímt við þetta sögu- efni áður, meðal annars skrifaði Jónas heitinn Arnason að mati Ragnars frábæran söngleik um Jör- und. En Ragnar kveðst á hinn bóg- inn taka viðfangsefnið allt öðrum tökum. Hann dregur upp raunsæja mynd af Jörundi í verkinu en allt frá því hann beið ósigur á sínum tíma hafa Islendingar litið á Jörund sem hálfgerða skopfígúru. „Þótt ágætt sé að nýta sér hinar skoplegu hliðar sögunnar legg ég þó megináherslu á hina raunsæislegu hlið hennar.“ Að mati Ragnars var Jörundur hinn merkasti maður og áform hans í alla staði jákvæð. „Hann gerði ekki byltingu sína í eigin þágu held- ur íslendingum til hagsbóta og hefði hann komið áformum sínum fram, sem ekki munaði miklu að tækist, hefði hann getað orðið far- sæll en það sem vantaði mest á Is- landi fyrh’ tvö hundruð árum var verslunarfrelsi - það var fátt sem fór eins illa með íslensku þjóðina og einokunin. Staðreyndin er því sú að Jörundur var ekkert fífl og sú stjórnskipun sem hann var að reyna að koma á hér á Islandi var nútíma- legri en þekktist í öðrum löndum Evrópu á þeim tíma. Hann var því töluvert á undan sinni samtíð. Það er þetta sem skírskotar til mín sem stjórnmálamanns." Ódysseifur besta enska skáldsagan Los Angeles. Reuters. ÓDYSSEIFUR eftir James Joyce hefur enn einu sinni verið valinn besta enska skáldsaga aldarinnar. Að þessu sinni var það svokallað Modern Library hjá Random Hou- se-bókaútgáfunni bandarísku sem tók saman lista yfir 100 bestu skáld- sögur 20. aldar ritaðar á ensku. Hefur listinn vakið hörð mótmæli, ekki síst kvenna, sem þykir skáld- konur bera skarðan hlut frá borði. Sú þeirra sem hæst kemst er í 15. sæti. Skáld á borð við Toni Morrison komst ekki á listann og hefur kvört- unum, mótmælum og fyrirspurnum rignt yfir Random House eftir að listinn var birtur, vegna þeirra sem ekki eru á honum. Himinlifandi yfir umræðunni Tíu manns eiga sæti í nefndinni sem tók saman listann og er for- maður hennar, Chris Cerf, himinlif- andi yfir umræðunni og deilunum sem valið hefur vakið. „Engir tveir munu nokkurn tíma vera sammála um lista yfir 100 bestu bækurnar á enskri tungu en okkur hefur að minnsta kosti tekist að fá fólk til að ræða um bókmenntir að nýju,“ seg- ir hann. Kvörtunum hefur rignt yfir Random House og era athugasemd- irnar af ýmsum toga. Eins og áður segir sakna margir lesendur Toni Mon-ison af listanum, svo og einnar vinsælustu sögu allra tíma, „Á hveif- anda hveli“. Þá era margir bók- menntaunnendur ósáttir við að ekki er að finna verk frá Indlandi, Afríku og Ástralíu á listanum og margir sakna bókarinnar „Nightwood" eftir Djuna Barnes, en T.S. Eliot hélt því fram að hún væri besta skáldsaga allra tíma. Flestir þeiira sem kvört- uðu við bókaforlagið virtust þó sakna „To Kill a Mockingbird" eftir Harper Lee. Af þeim sem sæti áttu í nefndinni má nefna rithöfundana Gore Vidal, A.S. Byatt og William Styron. Faðir nefndarformannsins, Cerfs, var á sínum tíma helsti hvatamaðurinn að útgáfu Ódysseifs í Bandaríkjunum, en bókin var bönnuð á sínum tíma, þar sem hún þótti ósiðlegur lestur. í öðra sæti lenti bók sem einnig sést oft á vinsældalistum, „The Gr- eat Gatsby“ (Hinn mikli Gatsby) eftir F. Scott Fitzgerald, og í þriðja sæti varð önnur bók eftir Joyce, „A Portrait of the Ai-tist as a young Man“ (Mynd af listamanninum sem ungum manni). Fjórða besta bókin að mati nefndarmanna var ekki síð- ur umdeild er hún kom fyrst út, „Lolita" eftir Vladimir Nabokov. FJögur verk Conrads Besti kvenrithöfundurinn þótti Virginia Woolf, en „To the Light- house“ (Að vitanum) þótti fimmt- ánda besta bókin. Aðeins átta konur komust á listann en einn höfundur, Joseph Conrad, hins vegar í fjór- gang. Af núlifandi höfundum má nefna að „Miðnæturbörn" Salmans Rushdies lenti í 90. sæti en þekktasta verk hans, „Söngvar Satans", hlaut ekki náð fyi’ir augum dómnefndarinnar. Morgunblaðið/Ásdís PÍANÓLEIKARINN Árni Heimir Ingólfsson, sem nú er við doktors- nám í tónvísindum við Harvard-háskóla, tekur við styrk úr Minning- arsjóði Jean Pierre Jacquillat úr hendi formanns stjórnar sjóðsins, Árnar Jóhannssonar. Minningarsjdður Jean Pierre Jacquillat „Hvatning til að halda áfram á sömu brautu ÁRLEG styrkveiting úr minning- arsjóði Jean Pierre Jacquillat fór fram sjöunda sinni í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í gær, mið- vikudaginn 22. júlí. Styrkhafi er Árni Heimir Ingólfsson píanóleik- ari sem nú stundar doktorsnám í tónvísindum við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum og nemur styrk- urinn sem fyrr hálfri milljón króna. Árni Heimir segir styrkinn fyrst og fremst hvatningu til að halda áfram námi bæði í píanóleik og tónvísindum og er afar þakk- látur þeim skilningi og stuðningi sem honum og öðru ungu tónlist- arfólki er sýndur með þessu. Árni Heimir hefúr stundað nám í píanóleik frá 7 ára aldri, fyrst við Tónmenntaskóla Reykjavíkur og síðan hjá Jónasi Ingimundar- syni við Tónlistarskólann í Reykjavík. Hann lauk stúdents- prófi af tónlistarbraut Mennta- skólans við Hamrahlíð vorið 1993 og tók virkan þátt í tónlistarlífi skólans á námsárunum, söng bæði í Kór Menntaskólans við Hamra- hlíð og í Hamrahlíðarkórnum og lék á píanó með kórunum bæði innan lands og utan og með Sin- fómuhljómsveit æskunnar undir stjórn Paul Zukofski. Framhaldsnám ýpianóleik og tónvísindum sótti Árni Heimir við Oberlin-tónlistarskólann í Ohio í Bandaríkjunum hjá pró- fessor Lydiu Frumkin. I B.Mus- ritgerð sinni, Jón Leifs and the Organ Concerto; Genesis, Ana- lysis and Reception, fjallaði hann um orgelverk Jóns Leifs og í framhaldi af þeim rannsóknum hefur íslenska tónverkamiðstöð- in falið Árna að ritstýra fyrstu bindunum í heildarútgáfu á verk- um Jóns Leifs sem kemur út eftir nokkra mánuði. Menntamála- ráðuneytið hefur veitt honum styrk til að rannsaka feril Jóns Leifs í Þýskalandi og verða nið- urstöðurnar kynntar á ráðstefnu í tilefni aldarafmælis tónskálds- ins í maí á næsta ári. Þá hefur Landsbókasafn/Háskólabókasafn falið Árna Heimi að gera fræði- Iega úttekt á tvísöngslögum í ís- lenskum miðaldahandritum og verður sú vinna kynnt á fyrir- lestri í Skálholti næstkomandi laugardag, 25. júlí. Arni Heimir hlaut fjölda viður- kenninga og verðlauna bæði sem píanóleikari og fræðimaður við útskrift frá Oberlin í maí 1997. Sama haust hóf hann svo doktors- nám í tónvísindum við Harvard- háskóla en í doktorsritgerð sinni hyggst hann fjalla um norræna tónlist og þá sérstaklega viðtökur nasista á norrænni tónlist. Árni Heimir hélt einleikstón- leika hér á landi sl. sumar og við Harvard-háskóla í vor. í sumar hefur hann komið fram á þrenn- um tónleikum hér á landi. Styrkumsóknir í minningar- sjóðinn voru 24 að þessu sinni. Tilgangur sjóðsins er að styrkja efnilegt tónlistarfólk til að afla sér aukinnar menntunar og reynslu á sviði tónlistar auk þess að halda á lofti nafni Jean Pierre heitins Jacquillat og því merka framlagi sem hann lagði til ís- lenskra tónlistarmála sem fyrr- verandi aðalstjórnandi Sinfóníu- hljómsveitar Islands. Góð tækni, hreinn og fallegur tónn TOMJST Listasafn Si-gurjðns Ólafssonar KAMMERTÓNLEIKAR Hildigunnur Halldórsdóttir og Orn Magnússon fluttu verk eftir Svein- björn Sveinbjörnsson, Jean Sibelius og Edward Grieg. Þriðjudaginn 21. júlí. OFT hafa tónlistarmenn leitt að því hugann, að við niðurröðun vei’k- efna geti það haft áhrif ef tónteg- undastaða tónverka er í ómstríðri innbyi’ðis afstöðu. Á þessum tón- leikum var tóntegundastaðan ein, þ.e. að öll þrjú viðfangsefni tónleik- anna voru í F-dúr. Þrátt fyrir að mjög fáir hafi svonefnda „asbolút" tónheyrn er það hins vegar stað- reynd, að hinar ýmsu tóntegundir eru hvað tónblæ snertir mjög mis- munandi, sem m.a. má rekja til hinnar tempruðu stillingar píanós- ins sem myndar oft sterka and- stæðu við hreina tónskipan söngv- ara og strengjaleikara. Þetta mátti heyra í miðhluta annars þáttarins í fiðlusónötunni eftir Grieg, þar sem brá fyrir árekstrum á milli píanós- ins og fiðlunnar, sem stafaði í raun af tempraðri stillingu píanósins. Tónleikarnir hófust á fiðlusónötu í F-dúr eftir Sveinbjörn Svein- björnsson, og er merkilegt hversu langan tíma það tekur að sætta fólk við tónverk, sem með einhverjum hætti eru andstæð sínum tíma, og fyrir okkur Islendinga er tónlist Jóns Leifs sérlega gott dæmi. Þetta aldamótaverk, sem er nær klassík að tónskipan en þeirri krómatísku útfærslu er var að mestu ráðandi um aldamótin síðustu, fær ekki „uppreisn æru“ fyrr en nærri því hundrað ár eru liðin frá gerð þess. Þá fær það stimpilinn „sögulega merkilegt" tónverk og „ótrúlega vel samið“. Þessi skringilega afstaða er mjög áberandi á Norðurlöndunum um þessar mundir og eru frændur okkar í óða önn að draga fram verk eldri tónskálda og kemur þá í ljós, að sumir þeirra vora býsna góð tón- skáld. Flutningur Hildigunnar var mjög vel útfærður og samspil hennar við Orn allt hið besta. Að vísu verður að segjast eins og er, að sónatan er ekki stór í sniðum, en þegar best lætur eru einfaldar „sönglínur" verksins áferðarfallegar í hljóman og víða má heyra skemmtilega kontrapunktískan samleik radda, er var mjög skýrlega mótaður af flytj- endum. I rómönsunni í F-dúr, op. 72 nr. 2 eftir Sibelíus, er hin streymandi lína ráðandi og var þetta fallega „lag“ mjög vel flutt, en þar naut sín syngjandi fallegur tónn fiðlunnar. Meginviðfangsefni kvöldsins var fiðlusónata op. 8 eftir Grieg. Grieg samdi þrjár fiðlusónötur og er op. 8 sú fyrsta og samin 1865. Sagan seg- ir að Grieg hafi heimsótt Franz Liszt og sýnt honum þessa sónötu og þegar Liszt hafi gert sig líklegan til að spila verkið hafi Grieg boðist til að leika fiðluröddina, sem Liszt hafnaði. Hann lék sjálfur bæði pí- anó- og fiðluröddina og þar sem hann náði ekki yfir söng hann, en Grieg hlustaði undrandi á snilling- inn leika sér með verk hans. Við einn sérstakan hljóm spratt Liszt á fætur og hrópaði „snilldarlegt" og settist síðan aftur og hélt áfram að leika. I raun er þetta verk það fyrsta er vekur athygli á Grieg, en Liszt sagði um Grieg, að hann hefði til að bera „kraft, rökfestu, hug- myndaauðgi og stórkostlega hæfi- leika til tónsköpunar". I heild var sónatan vel leikin, og þótt nokkuð gætti á stundum óró- leika og jafnvel togstreitu um hraða, sérstaklega í lokakaflanum, var heildaráferðin góð. Hildigunnur Halldórsdóttir er góður fiðluleikari, hefur á valdi sínu góða tækni og sérlega hreinan og fallegan hljóm. Samspil hennar og Arnar Magnús- sonar var oft vel mótað, þótt stund- um væri píanóið einum of sterkt í nokkrum átaksköflum í Grieg- sónötunni, og hætti Erni þá til að halda í við tempóið. Jón Ásgeirsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.