Morgunblaðið - 23.07.1998, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1998 25
ingarsalarinns og salurinn hlýtur
því að teljast kjörinn til sýningar á
stærri myndverkum. Og þær eru
stórar og kraftmiklar eins og
skepnurnar sjálfar, myndir
Baltasars af hestunum sem hann
sækir í upplifanir sínar á ferðalög-
um vítt og breitt um landið. Við
sín hvorn endaveginn standa svo í
römmum líflegar olíuskissur lista-
mannsins af sama viðfangsefni.
David Hebb er ungur banda-
rískur myndlistarmaður sem
einnig hefur dvalið um mánaðar-
tíma í gestavinnustofu Gilfélags-
ins. A þeim tíma vann hann inn-
setningu fyrir Ljósmyndakomp-
una er stendur ofan við Ketilhúsið
við hliðina á Galleríi Svartfugli.
Veggurinn óendanlegi eða Infinity
Wall er heiti verksins þar sem
listamaðurinn veltir fyrir sér
skynjun okkar á ljósmynd og
veruleika. „Er ljósmyndin á
veggnum eða er veggurinn á ljós-
myndinni? ... Hvort er raunveru-
legra veggurinn eða ljósmyndin?“
spyr David m.a. sýningargesti
sína. Svörin reyndi hann sjálfur að
nálgast á meðan hann vann að
gerð verksins inn í rými Ljós-
myndakompunnar í vikutíma og
grandskoðaði möguleg áhrif litar
og áferðar í rýminu. Sýningunni
lýkur 31. júlí. Sýningu Kristínar
Þorkelsdóttur á málverkum og
vatnslitamyndum í Galleríi Svart-
fugli í næsta húsi lýkur 26. júlí. I
Listasafninu á Akureyri stendur
yfir frá 18. júlí til 22. ágústs
samssýning á verkum eftir Alan
Johnston, Franz Graff og Kristján
Guðmundsson sem nefnist Ground
en um hana var fjallað í síðustu
Lesbók.
„Hlutir eru ekki alltaf það sem
þeir virðast"
Menningarrúntinum um höfuð-
stað Norðurlands lýkur í Galleríi
+ við Brekkugötu 35 ofan við
Ráðhústorgið. Þar stendur yfir
síðasta sýning gallerísins þetta
sumarið og óvíst er um framhaldið
þar sem aðstandendur þess halda
utan til ársdvalar í haust. Lista-
maðurinn að baki sýningunni
Finna hlut er jafnframt annar að-
standandi gallerísins, Joris Jó-
hannes Rademaker, ásamt Pálínu
Guðmundsdóttur. Markmiðið með
Gallerí + er að vera vettvangur
fyrir tilraunir í listum og nýjum
listformum. Pálína segir að þó að
ekki hafi verið tekin ákvörðun um
rekstur sýningarrýmisins þegar
þau hverfa af landi brott sé a.m.k.
ein sýning til viðbótar fyrirhuguð
næsta sumar og er það sýning
Magnúsar Pálssonar myndlistar-
manns sem þá mun dvelja í gesta-
vinnustofu Gilfélagsins.
Sýning Jorisar er óvenjuleg að
því leyti að hún er þrískipt og
stendur yfir þrjár helgar í röð, sú
síðasta hefst nk. laugardag, 25.
júlí, og heitir Leit að vatni. Fyrsta
sýningin nefndist Safnarinn en tit-
illinn skýrir leiðarstef sýningar-
innar sem eru hlutir sem Joris
hefur safnað í gegnum árin frá
ýmsum stöðum og færir nú í nýtt
samhengi listrænna objekta.
„Hlutir eru ekki alltaf það sem
þeir virðast," bendir Joris á. „Fyr-
ir mér eru þessir hlutir sem ég hef
safnað eins og ljóð, - minningar
um staði, reynslu og upplifun.
Þegar hlutir eru búnir að þjóna
okkur fara þeir að lifa eigin lífi.
Eg legg áherslu á hvernig hlutirn-
ir eru samsettir, þeir fá nýtt líf og
nýja merkingu. Og þegar allt
kemur til alls þá er reynslan það
eina varanlega sem fylgir mannin-
um alltaf í gegnum lífið.“
Sú næsta bar titilinn Ópið eftir
frægu málverki Munchs og fjallaði
um grunntilfinningar manneskj-
unnar. í síðustu sýningu sinni vis-
ar Joris til sálfræðinnar og eilífs
skilningsþorsta mannsins. Hann
leggur áherslu á að verkin séu
ókláruð, að það sé áhorfandans að
Ijúka við verkið, ljá þeim sína
merkingu og sínar minningar.
Sjón gerir söguna ríkari.
„Það er
spurning“
LEIKFÉLAGIÐ Hallvarður Súgandi
á Suðureyri er sýna þessa dagana
leikritið „Það er spuraing". Um er
að ræða sakamálaleikrit með gam-
ansömu ívafi. Handritið er skrifað
af tveimur félögum í leikfélaginu
sem jafnframt fara með tvö helstu
aðalhlutverkin. Leikarar í sýning-
umú eru alls 15, en auk þess koma
að sýningunni 10 sviðs- og tækni-
memi.
Leikfélagið Hallvarður Súgandi
hefur sofið þymirósarsvefni síðasta
áratuginn. Það er hinsvegar dríf-
andi ungt fólk á staðnum sem á veg
og vanda að uppsetningu þessa Ieik-
rits. Leikstjóri er Óðinn Gústafsson.
Verkið hefur sýnt tvisvar við góðar
undirtektir áhorfenda. Fleiri sýn-
ingar eru væntanlegar.
F ^ H
iBÍ I ‘T,,, -.H [■ í'.H • 1 1 rJ
í' M
- ■■/? 1 * ' ™
V, M
«■ W ;l ynIH sppin t \ ■flk. |
í! :-|py r ' ypf > LÆL.
% 'A ppij / HBriw ,
V.' WWkr M jflfl ■ ■ - 1
ilpr f ý í M iJSl
Morgunblaðið/Sturla Páll Sturluson
LEIKARAR og aðstandendur leikritsins „Það er spurning“.
BALENO SEDAN
ALFELGUR - HEILSARSDEKK - FJARSTYRÐ SAMLÆSING - GEISLASPILARI
Vökva/veltistýri • Rafmagn í rúðum og speglum
2 loftpúðar • Aflmikil 16 ventla vél • Dagljósabúnaður
Styrktarbitar í hurðum • Samlitaðir stuðarar
Hæðarstillanleg kippibelti • Upphituð framsæti
^ I SUMAk
BALENO
SEDAN EXCLUSIVE
1.265.000
$ SUZUKI
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
Heimasíða: www.suzukibilar.is
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf„ Laufásgötu 9, sími 462 63 00. Egilsstaðir: Bíla- og búvélasalan hf„
Miðási 19, simi 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Eliasson, Grænukinn 20, simi 555 15 50. Isafjörður: Bilagarður ehí.Grænagarði, simi 456 30 95. Keflavík: BG
bilakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Selfoss: Bilasala Suðurlands, Hrísmýri 5, simi 482 37 00. Hvammstanga: Bila- og búvélasalan, Melavegi 17, simi 451 26 17.
www.mbl.is