Morgunblaðið - 23.07.1998, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1998 27
LISTIR
Dillandi gálgahúmor
Sumartón-
leikar í
Skagafírði
RAGNHILDUR Pétursdóttir
fiðluleikari og Sólveig Anna Jóns-
dóttir píanóleikari verða með tón-
leika fóstudaginn 24. júlí kl. 20.30. í
Miðgarði, Varmahlíð. Flutt verða
verk eftir Ludwig van Beethoven,
Fritz Kreisler, Þórarinn Guð-
mundsson, Sigfús Einarsson, Atla
Heimi Sveinsson, Sigvalda Kalda-
lóns, Karl 0. Runólfsson, Jules
Massenet og Vittorio Monti.
Ragnhildur Pétursdóttir stund-
aði fiðlunám við Tónlistarskóla
Reykjavíkur og síðar í Minnesota.
Árið 1992 útskrifaðist hún frá The
Manhattan School of Music í New
York. Það sama ár hlaut hún Thor
Thors styrkinn frá Tme American
Scandinavian Fountation til að
stunda einkanám í New York.
Ragnhildur hefur tekið þátt í tón-
leikahaldi, tónlistarhátíðum og
spilað fyrir útvarp viða. Hún er nú
fastráðin fiðluleikari í Sinfóníu-
hljómsveit Islands.
Sólveig Anna Jónsdóttir er fædd
og uppalin á Akureyri og stundaði
píanónám frá átta ára aldri, fyrst á
Isafirði en síðan á Akureyri,
Reykjavík og Texas Bandaríkjun-
Nýjar bækur
• LEIFTUR hins liðna er úi"val
ljóða eftir Vilhjálm S.V. Sigurjónsson
og er bókin gefin út í tilefni af 80 ára
afmæli höfundarins fyrr á þessu ári.
Vilhjálmur Sveriir Valur Sigur-
jónsson er fæddur í Reykjavík, en
ólst upp á Akranesi. Hann lærði
prentiðn og vann við það fag um
nokkurra ára skeið, en lengst af
starfsævinnar starfaði hann sem
leigubifreiðastjóri og ökukennari í
Reykjavík.
Vilhjálmur stundaði söngnám hjá
RAGNHILDUR Pétursdóttir
fiðluleikari og Sólveig Anna
Jónsdóttir píanóleikari verða
með tónleika á föstudaginn í
Miðgarði, Varmahlíð.
um. Hún hefur einnig sótt einka-
tíma hjá Willem Brons og Onnu
Málfríði Sigurðardóttur.
Sólveig Anna starfar við tónlist-
arkennslu og píanóleik í Reykjavík
og Garðabæ og hefur m.a. leikið
með Sinfóníuhljómsveit Islands,
Kammersveit Reykjavíkur og ýms-
um smærri kammermúsíkhópum.
Sigurði Bh'kis og söng í fjölmörgum
kórum og kvartettum um langt ára-
bil. Hann kom einnig fram sem ein-
söngvari á ýmsum samkomum og
skemmtunum. A seinni árum hefur
Vilhjálmur tekið virkan þátt í kór-
starfi eldri borgara í Kópavogi en
þar hefur hann búið í tæp 40 ár.
Mörg Ijóða Vilhjálms eru ort við
þekkt sönglög og margir hafa einnig
gert lög við ljóð hans. I bókinni eru
rúmlega 80 ljóð, þau elstu frá ung-
lingsárum Vilhjálns en þau yngstu
frá allra síðustu árum.
Bókin er til sölu, bæði innbundin
og í kiljuformi og hjá höfundi.
TONLIST
Hafnarborg
KAMMERTÓNLEIKAR
Verk eftir C.P.E. Baeh, Hiie,
Copland, Misti Þorkelsdóttur, Saint-
Saéns og Taktakishvili. Magnea
Árnadóttir, flauta; Deborah DeWolf
Emery, pfanó. Hafnarborg, þriðju-
daginn 21. júlí kl. 20.30.
MAGNEA Árnadóttir heitii' ungur
flautuleikari með nýlega meistara-
gi'áðu frá háskólanum í Boston upp
á vasann sem kom fram í fyrsta sinn
á höfuðborgarsvæðinu á þriðjudags-
kvöldið var með dyggri aðstoð
bandaríska píanóleikarans Deborah
DeWolf Emery.
Efnisski'áin var fjölbreytt og
skemmtileg og benti til að fordómar
sumra um að flautan sé of einlitt
hljóðfæri fyi-ir langa dagskrá mótist
frekar af of einhæfu efnisvali. Elzta
verkið var Sónata í G-dúr W. 86
(1755) eftir „Berlínar-Bach“, Carl
Philipp Emanúel, samin á Potsdam-
árum hans hjá frægasta flautuleik-
ara stjórnmálasögunnar, Friðriki
mikla. Mótar þegar í fyrsta þætti
fyrir þeim „tilfínninganæma" píanó-
stfl Emanúels sem síðar varð Vínar-
meisturunum hvatning, enda þótt
hljómborðsmeðferðin sé enn greini-
lega hugsuð fyi’ir sembal. Virtist
það ekki henta meðleikaranum eins
vel og seinni verkin, ef marka mátti
þann vott af stirðleika sem stundum
brá fyrir í vinstri hönd. Annars sótti
DeWolf Emery brátt i sig veðrið,
svo e.t.v. var hér einungis um upp-
hitunarmál að ræða.
Sónatan var að öðru leyti vel valið
verk og gott, þrátt fyrir tímamóta-
blæ þess sem kom fram í skondinni
blöndu af barokkstíl og frumklassík,
og mátti í 2. þætti t.a.m. heyra eitt
af fyi-stu dæmum um þann
„trommubassa" sem átti eftir að lifa
góðu lífi allt fram á Napóleonstíma.
Leikur Magneu var frá upphafi ör-
uggur og þokkafullur.
Af einhverjum ástæðum virðast
Frakkar hafa lagt meiri rækt við
flautuna en flestir aðrir síðustu hálfa
aðra öld, og því kom varla á óvart að
finna tvo franska höfunda á dag-
skrá. Fantasian fyrir flautu og píanó
frá 1913 eftir Georges-Adolphe Hué
(1858-1948) bar ekki með sér að höf-
undur skuli nú að mestu gleymdur,
því hún var lipurlega samin og
furðufersk tónsmíð í síðrómantísk-
impressjónískum anda sem tniandi
væri upp á stærri spámann; sérlega
vel flutt af þeim stöllum, er kórón-
uðu stykkið með perlandi
scherzandó- niðurlagskafla er leiddi
hugann að flöktandi fiðrildum í
blómlegum garði.
Aaron Copland (1900-1990) lagði
sig fram um að skapa eitthvað sem
kalla mætti „þjóðlegan" stíl úr
marglitum tónlistararfi innflytjenda
frá öllum heimshornum. Að honum
skuli hafa orðið nokkuð ágengt er þó
e.t.v. ekki síður að þakka
Hollywood; a.m.k. ber tónlist
Coplands sterkan keim af vestri og
víðáttu frumbýlingsára, þó að ef-
laust hafi hann haft meiri áhrif á
kvikmyndatónskáld en þau á hann.
Tærleiki náttúrunnar og orkufrekur
pilsaþytur hlöðudansenda í Dúói
Coplands frá 1971 komu vel fram í
fjörugum en öguðum samleik þeirra
Magneu. Verkið hófst á nk. „ris-
málaóði" einstaklings í gervi flaut-
unnar, er svipaði nokkuð til einleik-
strompetsins í eldra verki Coplands,
Quiet city (1940), þar sem stein-
steypueyðimörk stórborgar hefur
leyst öræfin óspjölluðu af hólmi.
Efth' hlé lék Magnea Krumma-
vísu Mistar Þorkelsdóttur fyi-ir
flautu án undirleiks, samda sem út-
skriftargjöf frá höfundi 1996. Verkið
er unnið frjálslega upp úr þjóðlaginu
Ki-ummi svaf í klettagjá og kom fyr-
ir sem nk. pastorölsk hrollvekja, jiar
sem flautan er snarlega rifin úr
hefðbundnum hugmyndatengslum
sínum við arkadíska sveitasælu yfir í
öllu hranalegra umhverfi með flatt-
erzunge-kuldahrolli, draugalegum
glissandóum, nístandi tvíhljóma-
blæstri, gaddfreðnum hátíðniískrum
og fordæðukenndum meðsöng við
blásturinn sem krydd við hina tón-
rænu úrvinnslu. Samt var í öruggri
og innlifaðri túlkun einleikarans sér-
kennilegur þokki yfir verkinu, líkt
og bregður fyrir í dillandi gálga-
húmor barnagælanna um Grýlu.
Camille Saint-Saéns átti heiður-
inn af hinni fallegu Rómönsu íyrir
flautu og hljómsveit Op. 37 frá 1871,
sem hér birtist umsamin fyrir flautu
og píanó og naut sín vel þannig í
mjúkum píanóleik DeWolf Emerys
og velmótuðum flautublæstri
Magneu Ái-nadóttur. Loks var
flautusónata frá 1968 eftir Georgíu-
tónskáldið Otar Taktakishvili
(1924-1989), er að mörgu leyti hefði
getað verið samin hálfri öld fyrr,
eins og oft á við um sovézk tónskáld,
og stundum méir af nauðsyn en
vilja. En hjá Taktakishvili verkaði
afturhverf tjáningin hvorki nostal-
gísk né uppáneydd, heldur fullkom-
lega eðlileg. Þríþætt sónata hans var
bráðskemmtileg áheyi'nar, iðandi af
andríkum útsaumi í 1. þætti, skáld-
lega fáguð í 2. og leiftrandi fjörug í
þeim þriðja; persónuleg blanda af
nýklassík og impressjónisma með
þjóðlegu ívafi, ásamt hnífsbroddi af
kankvísi Prokofievs í spígsporandi
mars-tríói fínalsins.
Þetta var velheppnað debút. Leik-
ur Magneu var ágætlega mótaður,
nákvæmur og agaður, enda tæknin
augljóslega á hreinu. Þegar
flautuleikarinn fer að sleppa fram af
sér beizlinu með aukinni sviðs-
reynslu, má ugglaust vænta að
skerpist á því skapi sem hér var
haldið í bakhönd, enda skynsamlegt
í stöðunni. Frágangur tónleikaski'ár
var til fyrirmyndar, upplýsandi án
málalenginga.
Ríkarður Ö. Pálsson
Við tjoldum
aðeins því
besta
Vandaðar vörur á sumartilboði!
í kjallaranum
allt á tilboðsverði!
5 manna risahústjald, 48.000 kr.
Tilboðsverð 38.000 kr.
2ja manna göngutjald, Newt 120, 8.500 kr.
Tilboðsverð 6.970 kr.
Svefnpoki, þriggja árstíða, 4.990 kr.
Tilboðsverð 3.990 kr.
Tjaldborð og 4 stólar, 4.990 kr.
Tilboðsverð 3.990 kr.
-SKMAK FRAMUK
Snorrabraut 60 • 105 Reykjavík
Sími 511 2030 • www.itn.is/skatabudin
Umboðsaðilar: Vestursport, ísafirði, s. 456 3602 • Austfirsku Alparnir, Egilsstöðum, s. 471 2533
SÚN búðin, Neskaupstað, s. 477 I I33 • Verslunin Tákn, Húsavík, s. 464 I340