Morgunblaðið - 23.07.1998, Page 37

Morgunblaðið - 23.07.1998, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1998 37 heimskreppunni. Foreldrar hans voru Jón Sigurðsson, bílstjóri, skó- smiður, sjómaður, útgerðarmaður og síðast húsasmiður, kenndur við Hóp í Grindavík, og Guðríður Einarsdóttir, ljósmóðir, frá Jámgerðarstöðum í Grindavík. Guðmundur var þá yngst- ur fjögurra lifandi systkina, þar til undimtaður kom til sögunnar sjö ár- um síðar. Guðmundur ólst upp í Gr- indavík til átta ára aldurs í faðmi fjöl- skyldunnar þar sem hann „var elsku lith drengurinn minn“ eins og segir í bréfum fóður okkar, sem þurfti að dvelja langdvölum frá fjölskyldunni eins og títt var á þeim tímum, vegna bágborins atvinnuástands. Arið 1943 fluttist fjölskyldan til Reykjavíkur þar sem Bretavinnan var í fullum gangi og framtíðarhorf- ur vænlegri en í Grindavík þess tíma. Nýja heimilið var fyrstu árin á Óðinsgötu 32, síðar í Barmahlíð 49 og loks á Hraunteigi 24 í hinu ný- byggða Laugameshverfí. Guðmund- ur var með afbrigðum rólynt bam svo til var tekið. Þrátt fyrir það varð hann afar bráðþroska til lífsins og lystisemda þess. Hann fór að vinna hin ýmsu störf strax að loknu ung- lingaprófi, var mjög vinsæll í hópi félaga sinna við vinnu, skemmtun og í stjómmálastarfi. Strax á unglings- áram kynntist hann stóru ástinni sinni er varð hans lífsfórunautur til æviloka, Lovísu Jóhannesdóttur. Unga parið eignaðist fyrsta bamið árið 1955 við tvítugsaldur. Hulda litla reyndist hafa hjartagalla. Hér reyndi strax á mannkosti og styrk hinna ungu foreldra. Þau stóðust það próf með prýði og fóm með bamið til skurðaðgerðar í Danmörku. Stúlkan náði dágóðri heilsu og ungu foreldr- amir höfðu fengið eldskím sem styrkti þau og þjappaði þeim saman. Börnin komu eitt af öðra á næstu árum. Við tóku alhnörg erfiðleikaár með þungu heimilishaldi og ekki hvað síst barátta við sjúkdóma sem hefðbundnar aðferðir dugðu illa við. Á endanum hafðist fullur sigur í baráttunni, einkum og sér í lagi fyr- ir tilstilli eigin viljastyrks og þraut- seigju, svo og með stuðningi frá eig- Þú stóðst þig sérstaklega vel í borð- tennis og tókst þátt í mótum hér heima og erlendis. En fyrir einu og hálfu ári er rósin stóð í blóma og framtíðin virtist svo björt dró ský fyrir sólu. Þú barðist hetjulegri bar- áttu, studd af fjölskyldu og vinum. Ein af síðustu minningunum er frá því þegar. þú komst í afmæli móður minnar og þið föðmuðust af gleði yf- ir því að sjást aftur. Við Baldur vottum fjölskyldu þinni samúð. Nú kveðjum við þig, okkar elskulega Kolla, en minning- arnar um þig munu lifa og ylja okk- ur áfram um hjartarætur. Kristín. Og dagurinn leið í djúpið vestur, og Dauðinn kom inn til þín. Þú lokaðir augunum - andartak sem ofbirta glepti þér sýn. Og um varir þér brá fyrir brosi þeirra, sem bíða í myrkrinu og þrá daginn - og sólina allt í einu í austrinu rísa sjá. (Tómas Guðmundsson.) Þegar við fréttum ótímabært frá- fall Kollu vinkonu okkar fylltumst við vanmætti og spurn. Hvers vegna var hún hrifin brott í blóma lífsins, þegar í raun flest var ólifað? Kollu kynntumst við fyrst við borð- tennisæfingar í TBR. Þar var oft glatt á hjalla. Einkum minnumst við Danmerkurferðar okkar, þar sem glaðværðin ríkti oft við spil og spjall fram undir morgun eftir erfiðan dag við æfingar. í huga okkar verður Kolla alltaf minnisstæð sem góður félagi og íþróttamaður í fremstu röð. Við þökkum forsjóninni fyrir að hafa átt samleið með henni í leik og starfi. Megi Guð styrkja fjöldskyldu Kollu í sorginni. Líney, Eva, Lilja. Hún Kolbrún er horfin frá okkur, hún sem var eitt sinn okkar efnileg- asta stúlka í borðtennis. Hún Kol- brún var mjög alvarleg og einbeitt í íþrótt okkar. Keppti ávallt til sigurs, hún ætlaði sér einfaldlega að vera SIGURÐUR ARNALDS inkonu og börnum. Lífið brosti við Guðmundi og fjölskyldu á ný. Guðmundur hóf störf og nám í raf- virkjun í fyrirtæki Guðlaugs bróður síns og fleiri aðila, Rafgeislahitun hf. Hann var ötull og laginn starfsmað- ur og vinsæll meðal vinnufélaga á þessum vinnustað sem og öðmm vinnustöðum sem hann seinna vann á . Eftir að Rafgeislahitun hf. hætti starfsemi stundaði Guðmundur um árabil rafvirkjastörf við byggingu Búrfellsvirkjunar, en síðustu starfs- árin vann hann hjá heildverslun Gísla Jónssonar þar sem hann sá um afgreiðslu á hinum hollensku Sikk- ens bílalökkum til fagmanna í bfla- sprautun. Þetta var lifandi og skemmtilegt starf sem Guðmundur undi vel við, þar tfl heilsan bilaði skyndilega haustið 1990. Eg minnist Guðmundar bróður míns fyrir margra hluta sakir. Fyrst og fremst fyrir gott bróður- þel og örlæti. Ein mesta hamingju- stund lífs míns var þegar Gummi bróðir, þá 15 ára, færði mér reið- hjólið sitt að gjöf. Hann hafði end- urheimt það í slæmu ásigkomulagi frá lögreglunni eftir stuld og látið gera það upp á eigin kostnað af sín- um sendisveinslaunum. Eins er mér minnisstætt er hann færði mér heil- ar 500 krónur að gjöf af litlum efn- um, er ég fór í mína fyrstu utan- landsferð 19 ára gamall árið 1961. Guðmundur var srax í æsku mik- ill bókaormur. Á fullorðinsárum las hann heilan hafsjó bóka, aðallega ís- lenskar nútímabókmenntir, þar sem Halldór Laxness og Þórbergur voru í mestum metum . Af erlendum höf- undum var Steinbeck efstur á blaði. Mér er til efs að margir bókmennta- fræðingar hefðu slegið Guðmundi við ef á slíkt hefði reynt. Höfuðmannkostir Guðmundar vora rólyndi, tryggð, þrautseigja og æðraleysi. Þeir skiluðu honum vin- sældum og velgengni í starfi, far- sæld og óvenjulegri samheldni í fjölskyldulífi og hjálpuðu honum í þeim miklu raunum sem heilsuleys- ið olli honum síðustu átta árin. Guðmundur fékk heilablóðtappa 1990 og lamaðist hægi'a megin. Á undraverðan hátt náði hann fæmi á ný til gangs og síðar meira að segja til bifreiðaraksturs. Þrátt fyrir geysimikla fötlun, starfsorkumissi og vangetu til lestrar, sem var hans yndi, æðraðist Guðmundur aldrei og öðlaðist talsverða lífshamingju á ný. Árið 1997 greindist hjá honum banvænn sjúkdómur sem ekki varð við ráðið. Hve heitt ég fagna huliðsómnum mæra sem höfundur vors lífs mér dumbum gaf; hve sæll ég styn: ó dýrðardásemd skæra, ó djúpa líf, ó ríka guðdómshaf. (Halldór K. Laxness.) Kæra Lovísa, böm og barnabörn. Ég votta ykkur dýpstu samúð fyrir hönd systkina Guðmundar og fjöl- skyldna okkar. Gunnar Þór Jónsson. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem. Með þessum fallega sálmi viljum við kveðja afa okkar, sem látinn er eftir erfið veikindi. Hann var okkur alltaf svo góður og tók vel og fagn- andi á móti okkur þegar við komum í heimsókn. Við vitum að Guð hefur tekið vel á móti honum og þar líður honum vel. Elsku afi, við þökkum þér fyrir allar samverastundirnar sem við áttum með þér og við munum sakna þín mikið, og viljum við biðja algóð- an Guð að styrkja ömmu okkar í hennar miklu sorg og okkur öll. Oss héðan klukkur kalla, svo kallar Guð oss alla til sín úr heimi hér, þá söfnuð hans vér sjáum og saman vera fáum í húsi því, sem eilíft er. (V. Briem.) Birgir Arnar, Tinna Björk og Lovísa Mjöll. + Sigurður Arnalds fæddist í Reykjavík 15. mars 1909. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykja- víkur 10. júlí síðastliðinn og fór útför hans fram frá Fossvogs- kirkju 16. júlí. Fregnin af andláti Sigurðar vin- ar míns Arnalds vakti með mér djúpan söknuð og angurværð. Með látlausri og einlægri fram- komnu í bland við góðar gáfur hafði hann sterk áhx-if á samferða- menn sína. Ég átti því láni að fagna að eignast syni Sigurðar og Ásdísar, eiginkonu hans, að vinum gegnum skólagöngu og vinnu. Þeim kynnum fylgdi ríkulegur heimanmundur, ævarandi vinátta Sigurðar og Ásdísar. Frá fyrstu stundu varð ég heimagangur á heimili þeii'ra hjóna sem tóku öll- um félögum sonanna opnum örm- um. Og þetta var um margt öðru- vísi heimili. Þar ríkti umburðar- lyndi sem á einhvern undarlegan hátt var samofið ábyrgð. Um leið ljómaði heimilið af glaðværð og lífsgleði. Sigurður hafði áhuga á því sem við strákamir vorum að fást við, sagði gamansögur og gat verið dæmalaust skemmtilegur prakkari þegar sá gállinn var á honum. Augu hans endurspegluðu kímni og góðvild og Ásdís enginn eftirbátur, hlý og ástrík. Alþýðleg umgjörð heimilisins, þar sem önd- vegisbækur og málverk skipuðu veglegan sess, féll fullkomlega að heimilisandanum. Mér leið ósjálfi-átt vel í þessu andnímslofti. Það var helst garðholan á Stýri- mannastígnum sem skaut skökku við. Hún hafði að vísu verið gi-afin upp af sonunum í árangurslausri leit að foi’nminjum sem Sigurður kvað þar fólgna. Synirnir fengu þá alltént tilefni til að róta í íslenskri mold og kynnast leyndardómum hennar. Seinna komst ég að raun um að garðholan var einskonar jarðlæg öfugmælavísa. Sigurður var ötull jarð- og skógræktarmað- ur. Á landsspildu sinni við Álfta- vatn hafði hann stundað skógrækt um áraraðir. Þar var hlúð að plöntum með sömu alúð og hann umgekkst mannfólkið. Og árang- urinn hefur ekki látið á sér standa. Landsspildan er einstök perla. Á Oðalinu, berangursmelum við Ha- fravatn, stundaði Sigurður síðar skógrækt af sömu dyggð og enn sem fyrr með öflugi-i þátttöku Ás- dísar. Svo bráðsmitandi var áhug- inn að tveii; synir þeirra hjóna, Andrés og Olafur, eru meðal öfl- ugustu vísinda- og framkvæmda- manna við uppgræðslu og endur- heimt fyrri landsgæða. Sigurður kom víða við um æfina. Hann gaf út Satt, víðlesið tímarit með sér- stæðri blöndu af skrýtlum úr safni Sigurðar, sakamálasögum og þjóðlegum fróðleik. Sem bóka- útgefandi fékk Sigurður landskunna málsnillinga, Tómas Guðmundsson, skáld, og Sverri Kristjánsson, sagnfræðing, til að semja þætti um minnisverða menn og atburði frá fyrri öldum. Komu út einar tíu bækur eftir þá Tómas og Sverri í ritröðinni Is- lenskir örlagaþættir árin 1964 til 1973 og nutu fágætra og verð- skuldaðra vinsælda. Þar sýndi Sigurður og samhent fjölskylda hans þrautseigju sem eftir var tekið og uppskáru með sama hætti og sáð var til í skógrækt- inni. Sjálfur var Sigurður öi'látur og magnaður sagnamaður. Það er gæfa að hafa átt hann að vini. Fjölskyldu Sigurðar sendi ég ein- lægar samúðarkveðjur. Atli Gíslason. best. Hún varð þrefaldur íslands- meistari í unglingaflokkum 1996 og vann sigur í 1. flokki kvenna sama ár. Hún vann til margra annai-ra verðlauna bæði á íslandsmótum, sem og á öðmm mótum sem hún keppti á fyrir hönd félags síns Vík- ings. Við horfðum björtum augum til framtíðar að eiga slíkan íþróttamann í okkar röðum sem Kolbrún var. Hún var falleg og hafði sérstaklega prúðmannlega framkomu og var hvarvetna til sóma þar sem hún kom fram. Það varð okkur mikið áfall er hún missti heilsuna fyrir tæplega tveimur árum og ljóst var að framtíð hennar hafði breyst. Okkur hlýnaði um hjartarætur að sjá Kolbrúnu mætta aftur til leiks á síðasta ís- landsmóti, þrátt fyrir að hafa ekki náð fullum bata. Kolbran var glaðleg og jafn áhugasöm og einbeitt í að ná góðum árangri, enda vann hún til verðlauna í 1. flokki kvenna. Við minnumst hennar og kveðjum hana með djúpum söknuði og vottum móður hennar og öði-um aðstandend- um okkar innilegustu samúð. Fyrir hönd BTÍ Sigurður Valur Sverrisson formaður. Elsku Kolla mín. Þegar ég kynntist þér fyrir rúmu ári á Reykjalundi varstu í hjólastól, glaðvær, einlæg, ákveðin ung stúlka. Akveðin í að ná bata og komast aft- ur á fætur. Þegar þú sást okkur frá Komið og dansið dansa á Reykja- lundi, fylltist þú ákafa og spurn, hvort þú gætir dansað svona og hvoi-t þú gætir jafnvel kennt svona dans, ég vissi að okkur vantaði ung- lingaleiðbeinendur og sagði þér að það væri enginn efi að þú sem værir svona áköf og féllir strax fyrir þess- um dansi, gætir gert þetta og meira til. Nú í júlí þurfti ég aftur inn á Reykjalund þar sem ég sá unga, lag- lega og þroskaða stúlku, sem var full af ró og jafnvægi. Þessi stúlka fór vel í mig, með fallegt blik og yndis- lega ám, áru sem sýndi veikindi hennar en þó umfram allt hugarró. Ég var viss um að ég hefði séð þessa stúlku. Mikil var undmn mín og gleði þegar ég uppgötvaði að þetta varst þú, Kolla mín. Með ákveðni og einurð tókst þér að koma þér upp úr hjólastólnum og enn spurðir þú hvort ég héldi að þú gætir dansað. Við ætluðum fljótlega að skoða dansana og athuga hvort fóturinn þinn þyldi snúningana. En lífið hér á jörðinni er ekki allt sem sýnist. Það að blikan þín hafði tekið svo miklum breytingum hefði átt að vara mig við. Ekki datt mér þó í hug að lífið þitt væri á enda, að kallið þitt væri komið og þær breytingar sem ég hélt að fylgdu þessum yndislegu litum þín- um væra ekki jarðneskar. En sólar- ljósið mitt litla, þín bíður önnur leið- sögn en okkar í Komið og dansið, annar dans en okkar og þú átt eftir að koma mem gleði og kærleika inn í lífið á annan og breiðari hátt en við þekkjum hér á jörð, þar eð ég veit að það vom litir Krists og Hvítu Töru sem voi'u hjá þér síðustu dagana. Vina mín, ég bið guð og alla góða vætti að senda ljós kæi'leikans, ástar og vonar í hug og hjarta foreldra þinna, systkina og annarra aðstand- enda. Guð veri með ykkur öllum. Þuríður. Þú hvarfst mér eins og lítið fagurt ljós, sem lítið sólarbros, er kom og fór, sem bliknað lauf, er blöðin fellir rós, sem blóm, er hylur, kaldur vetrar snjór. Þú komst og fórst semóorkt æskuljóð, en eftir varð hin sára ljúfa þrá. Ég geymi þig í mínum minjasjóð, en mun þig aldrei aldrei framar sjá. (Margrét Jónsdóttir.) Kveðja. Þín vinkona og frænka, Signin. T egsteinar í Lundi SÓLSTEINAR v/Nýbýlaveg 564 4566 Persónuteg, alhliða útfararþjónusta. Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson, útfararstjóri útfararstjóri Útfararstofa íslands Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300 Allan sólarhringinn. 3 Erfidrykkjur H H H H H Sími 562 0200 Iiiiiiiiii H H H H H H H H H H £ spano og iano OKKur TramKaiu myndirnar úr sumarfriinu, fyrir aðeins 780,- 24 myndir. GNOÐARVOGI 44 (Á móti Menntaskólanum við Sund) LEGSTEINAR f Marmari Islensk framleiðsla Granít Vönduð vinna, gott verð Blágryti Sendum myndalista Gabbró MOSAIK Lfparít Hamarshöfði 4, 112 Revkjavík 1 sími 5871960, fax 5871986 1

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.