Morgunblaðið - 23.07.1998, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1998 47
BREF TIL BLAÐSINS
Enn um Serba
og* sannmæli
Frá Rúnari Ki-istjánssyni:
ÞANN 7. júlí sl. birtist í Morgun-
blaðinu bréf frá Gunnari Hólmsteini
Ársælssyni, stjórnmálafræðingi í
Svíþjóð, en efni þess eru andmæli
við bréfí er ég sendi til blaðsins og
birtist í því 19. júní sl. Ég hafði
mælst til þess að Serbar yrðu látnir
njóta sannmælis, en umfjöllun fjöl-
miðla hefur verið mjög fjandsamleg
í þeirra garð í allflestum fréttum af
átökunum í fyrrum ríkjum Jú-
góslavíu. Gunnar Hólmsteinn er
greinilega mjög á þeirri línu sem
vestrænir fjölmiðlar hafa markað
með hlutdrægum fréttaflutningi af
umræddum málum. Ég er ekki
hissa á því að almenningur gleypi
við einhliða hatursáróðri í fjölmiðl-
um, þegar menn sem eru að læra að
skyggnast undir yfirborð málanna
falla í sömu gryfju.
Menntun breytir mönnum oft lít-
ið og lærdómsgráður vinna stund-
um seint á þröngsýni, ef hún er á
annað borð fyrir hendi. Það vill
stundum sannast. Gunnar Hólm-
steinn syngur í bréfi sínu sama for-
dæmingarstefið gagnvart Serbum
og hljómað hefur um heimsbyggð-
ina síðustu árin. Það stef hefur engu
góðu komið til leiðar og mun engu
góðu skila. Ávextirnir af því munu
því verri sem það er oftar sungið.
Ég vil vekja athygli á því að Gunnar
Hólmsteinn segir, að ég hafi „næst-
um fullyrt“ að múslimar hafi verið
að verki varðandi sprengjuna sem
Ódýrt flug í sumar
London kr. 19.900
Köln kr. 19.500
Dusseldorf kr. 24.000*
Munchen kr. 24.000*
Innifalið: Flug báðar leiðir
og flugvallaskattur
* 25% afsláttur
fyrir 12-21 árs.
Ferðaskrif-stofa
stúdenta
Sími: S61 5656
V< W W.fa.is/stndtravel ...og ferðin er hafin
Vatnsheid og vindþolin
Allar stærðir og gerðir
Margir litir - gott verð
JþOínasmiðjan
Verslun Háteigsvegi 7 • Sími 511 1100
Verksmiöja Flatahrauni 13 • Sími 555 6100
sprakk á markaðstorginu í Sarajevo
1994. Ég fullyrti ekkert í því sam-
bandi, benti hinsvegar á að rann-
sókn hefði sýnt að engan veginn
væri víst að Serbar hefðu staðið að
þeim verknaði. Þá væri sú spurning
áleitin, hvers væri að vænta af þeim
mönnum sem sviðsettu slíkan glæp
til að sverta andstæðinginn í augum
umheimsins! Á þetta benti ég og
þessi möguleiki er fullkomlega fyrir
hendi. Eina fullyi’ðingin hinsvegar,
varðandi þessa hrömulegu
sprengjuárás, sem sett var fram
kom í fjölmiðlum á Vesturlöndum
og það æ ofan í æ, sú fullyi’ðing var
skýr og stimplaði Serba samstundis
sem þá seku. Þegar svo rannsókn
skilaði niðurstöðum var lítið sem
ekkert gert í því að benda á að sekt
Serba hefði engan veginn verið
sönnuð og ýmislegt komið í ljós sem
renndi stoðum undir þann mögu-
leika að aðrir hefðu verið að verki.
Hafi svo verið hljóta allir að sjá,
að tilgangurinn hefur verið sá að
koma sökinni á Serba. Viljinn til að
brennimerkja þá hefur verið svo
ráðandi í fjölmiðlum að það bókstaf-
lega vekur manni óhugnað. Bréf
mitt 19. júní sl. var því hugsað sem
viðvörun um að menn gættu sín á
hatursáróðri og fordæmingarstefnu
gagnvart einni þjóð, því meðan slíkt
viðgengst eru lausnir á málum ekki
fyrirsjáanlegar. Ég persónulega tel
að þjóðir fyrrum Júgóslavíu hefðu
leyst mál sín miklu fyrr og betur ef
ekki hefði komið til utanaðkomandi
afskipta. Það vora afskiptin erlendis
frá sem helltu olíu á eldinn og mögn-
uðu harmleikinn, en sú saga er viða-
meiri en svo að henni verði gerð skil
hér. Að lokum vil ég þó segja þetta:
Nýlega var grein í Morgunblað-
inu með viðtali við Erling Erlings-
son, sem lauk fyrir skömmu BA-
prófi í sagnfræði og fjölmiðlun við
Suffolk-háskólann í Boston. Báðum
þessum námsgreinum lauk hann
með láði og var það í fyrsta sinn í 70
ára sögu skólans að nemandi út-
skrifaðist með láði í tveimur fógum.
Auk þess var Erlingur með hæsta
meðaleinkunn af þeim 660 nemend-
um sem útskrifuðust eða 3,98 af
4,00 mögulegum stigum.
Önnur af tveimur lokaritgerðum
Erlings, sem hann varði á hefð-
bundinn hátt, fjallaði um fjölmiðlun
og tók mið af fréttaflutningi varð-
andi stríðið í Bosníu. í viðtalinu seg-
ir eftirfarandi: „Ritgerðin sem snýr
að fjölmiðlun fjallaði um fréttaflutn-
ing af borgarastríðinu í Bosníu, þar
sem glöggt kom fram hversu mis-
leiðandi og falskur hann var þegar
um Serba var að ræða. Drjúgur
hluti ritgerðarinnar fór í hugleiðing-
ar um heiðarleika og vinnubrögð í
stríðsfréttamennsku." Tilvitnun
lýkur.
Mér finnst það í hæsta máta at-
hyglisvert, hvað maður sem senni-
lega er við nám í Svíþjóð getur átt
erfitt með að koma auga á stað-
reyndir sem maður við nám í
Boston sér skýrt og greinilega.
RÚNAR KRISTJÁNSSON,
Bogabraut 21, Skagaströnd.
SlBAN 1972
GÆÐA MURV0RUR
Á GÓÐU VERÐI
FL0TMUR
INNI 0G ÚTI - GERUM TILB0Ð
II steinprýði
STANGARHYL 7, SIMI 567 2777
LANCOME
sumarkokkteill
LANCOME býður viðskipta-
vinum sínum upp á einstakan
kaupauka:
Rúmgóð og stór (30x40sm)
hliðartaska fylgir kaupum á
LANCOME snyrtivörum
fyrir 5.000 kr.
Margar spennandi nýjungar eru í
boði, s.s. nýtt líkamskrem, gloss-
varalitir, naglalakk og virkar
nýjungar fyrir feita og blandaða
húð.
snyrtivöruverslun
Hafnarfiröi,
sími 555 2615
FLAGGSKIPIÐ FRÁ BENEFON
Benefon Spica
► Valmynd á íslensku
► Vegur aðeins 240 g
► Rafhlaðan endist
allt að 5 daga í bið
► Úrval aukabúnaðar
(fcr. 49-98o,- stgr.')
Benefon Delta
► Vegurssog
► Rafhlaðan endistallt
að 4 daga í bið eða
2,s klst. i notkun
9
P u
' U i
kr. 74.980,- stgr.
Benefon Sigma Gold
► Valmynd á islensku
► Vegur2g8g
► Rafhlaðan endistallt
að 4 daga í bið eða
2,5 klst. í notkun
(kr. 69.980,- stgr. )
| V1
Benefon Forte
atvinnusími
► Sendistyrkur íjlV
► Handfrjáls búnaður,
bilfestingar og kaplar
fylgja
Vaadaöu valið
- úrval hágæöa
NIVIT farsíma frá
SÍMINN
Ármúla 27, sími 550 7800
Landssímahúsinu v/Austurvöll, sími 800 7000
Afgreiðslustaðir íslandspósts um land allt