Morgunblaðið - 12.08.1998, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Um 400 manns leituðu vélar þýsku feðganna sem fannst í Vesturhorni
BJÖRGUNARSVEITARMENN leggja af stað til leitar á Fjarðarheiði.
Morgunblaðið/Þorkell
Talið að röng stefna hafi
verið tekin frá vita við Höfn
—— ■ -'r v BKr
Náttmálatindur
Morgunblaðið/Landmælingar
FLAK flugvélar þýsku feðganna
fannst laust fyrir klukkan tvö í
gærdag, eftir um sólarhrings leit.
Flakið fannst fyrir ofan klettabelti
á Vesturhorni og hafði kviknað í
hluta vélarinnar er hún rakst í
hamrana. Talið er að mennirnir
þrír hafi látist samstundis. Talið
er að vélin hafi tekið ranga stefnu
frá vitanum sunnan við Höfn í
Homafirði. I stað þess að taka
stefnu 03, eða u.þ.b. beint í norður
á flugvöllinn, hafi hún tekið stefnu
30 eða í norðaustur. Það voru leit-
armenn sem fundu flakið eftir að
hafa tæpum tveimur tímum fyrr
fundið hjól vélarinnar í klettabelt-
inu austan í Vesturhorni, fyrir of-
an Hvammsfjöra.
Fulltrúar frá rannsóknamefnd
flugslysa og ríkislögreglustjóra
komu til Hafnar klukkan sex í
gærkvöldi og héldu þá rakleitt á
fund með lögreglu, fulltrúa sýslu-
manns og fulltrúum frá Flug-
björgunarsveitinni. I bítið í morg-
un var fyrirhugað að halda í vett-
vangsrannsókn á slysstað, en að
sögn Eddu Símonardóttur fulltrúa
sýslumanns er vonast til að rann-
sókn á slysstað ljúki í dag.
Um 400 manns
við leitarstörf þegar mest var
Fyrstu björgunarsveitir lögðu af
stað til leitar klukkan fjögur í gær-
morgun og hófu leit við birtingu.
Þá hafði leit formlega legið niðri
frá miðnætti, en björgunarsveitir
vora að tínast inn fram eftir nóttu.
Milli sex og sjö í gærmorgun var
búið að ræsa út allar björgunar-
sveitir, sem komu allt frá Reykja-
nesi að Egilsstöðum, og voru um
400 manns við leitarstörf þegar
mest var.
Upphaflega átti að leita á svæði
frá Bergárdalsheiði í vestri til Gjá-
dals í austri og var leitarsvæðinu
skipt í 16 hluta. Strax um kl. hálf
níu var leit lokið á einu svæði og
þegar líða tók á dag snera æ fleiri
sveitir til byggða eftir árangurs-
lausa leit. Leitarsvæðið var smám
saman víkkað út í gærmorgun, til
vesturs og norður og vora leitar-
svæði orðin 24 þegar björgunar-
sveitirnar fengu boð um að hætta
leit.
Það var gert í kjölfar þess að
leitarmenn á syðsta leitarsvæðinu,
svæði eitt, fundu hjól flugvélar.
Fljótlega fékkst staðfest að um var
að ræða hjól vélarinnar sem leitað
var að og var leit annars staðar þá
hætt samstundis. Lögregla stöðv-
aði umferð við Stokksnes og Papós
þegar ljóst var að vélin var fundin
og verður vegurinn lokaður þar til
rannsókn er lokið.
Um tveimur tímum eftir að hjól-
ið fannst komu leitarmenn að flak-
inu. Aðstæður á slysstað vora erf-
iðar, þoka og hált og voru sér-
þjáifaðir björgunarsveitarmenn
sendir á vettvang til að aðstoða þá
sem fyi’ir vora. Um tíma stóð til að
senda þyrlu Landhelgisgæslunnar
á vettvang til að aðstoða við leitina,
en vegna lélegs skyggnis varð ekk-
ert úr því.
Að sögn Björns Inga Jónssonar
svæðisstjóra hjá björgunarsveit
Homafjarðar sem kom á slysstað
um klukkan fjögur var aðkoman
ljót, enda brak úr vélinni dreift um
stórt svæði. Hæðarmunur er um
200 metrar á svæðinu þar sem
brakið er í fjallinu að því er Björn
taldi. Hann sá um fjarskipti og
skipulag á slysstað og fór ekki al-
veg að flakinu heldur stóð í skriðu
neðan við flakið meðan það var
skoðað, en þess var gætt að hrófla
ekki við neinu, enda sér Rannsókn-
arnefnd flugslysa um rannsókn
slyssins.
Fimm manns úr Hjálparsveitum
skáta í Hafnarfirði og Kópavogi
fóru að flakinu. Þeir fóru heimleið-
is þegar þeir komu af slysstað og
var boðin áfallahjálp strax við
heimkomu. Læknir var sendur á
slysstað og staðfesti hann lát
mannanna þriggja um fimmleytið.
Guðbrandur Jóhannsson for-
maður svæðisstjómar í V-Skafta-
fellssýslu sagði í samtali við Morg-
unblaðið að leit hefði gengið mjög
vel miðað við aðstæður, skyggni
hafi verið lélegt og svæðið erfitt yf-
irferðar. „Það má segja að björg-
unarsveitir hafi unnið umtalsvert
afrek miðað við aðstæður.“
Björgunarsveitarmenn hófu leit
um tvöleytið í fyrradag, um
klukkustund eftir að síðast heyrð-
ist frá vélinni. Leit hófst í Al-
mannaskarði, í grennd við Nátt-
málatind, þar sem ratsjáin á
Stokksnesi staðsetti vélina klukkan
eitt. Fljótlega var farið að leita á
Fjarðarheiðinni og víðar eftir því
sem liðsstyrkur barst. Björgunar-
sveitir streymdu til Hafnar í fyrra-
dag og langt fram á kvöld, en um
150 manns leituðu vélarinnar í
fyrradag.
Röng stefna frá
vitanum sunnan við Höfn
Feðgarnir sem létust í slysinu
höfðu dvalist á íslandi í nokkra
daga. Þeir vora á leið til Hafnar frá
Reykjavík þegar slysið átti sér
stað. Flugmaður vélarinnar til-
kynnti kl. 12:45 að hann væri í að-
flugslínu við Höfn, en klukkan eitt
nam ratsjáin á Stokksnesi neyðar-
sendingu frá vélinni og var hún þá
stödd rétt við Náttmálatind.
Guðbrandur sagði í samtali við
Morgunblaðið að talið væri að flug-
vélin hefði tekið ranga stefnu frá
vitanum sunnan við Höfn. í stað
þess að taka stefnu 03, eða u.þ.b.
beint í norður á flugvöllinn, hafi
hún tekið stefnu 30, eða í norðaust-
ur. Vélin flaug svo í 3.400 feta hæð
yfir Almannaskarð í Skarðsárdal
og heyrðist síðast í henni þar þegar
hún var við Náttmálatind. Þá féll
samband við hana niður, en svo
virðist sem flugmaður hafi tekið
hægri beygju þegar vélin var kom-
in yfir Papafjörð, hafi flogið yfir
Papós, enn í hægri beygju og flogið
beint á Vesturhorn.
Skyggni var mjög slæmt á þess-
um tíma og svo virðist sem flug-
maður hafi ekki vitað hvar hann
var staddur.
hafði borið langt af leið
Flugvélina
SLÆMT veður var við Höfn í Hornafirði á
mánudaginn þegar einkaflugvél þýsku
feðganna fórst í aðflugi að flugvellinum á Höfn.
Var alskýjað í 500-600 fetum, suðaustanátt og
rigning. Flugvöllurinn á Höfn var þó opinn fyr-
ir flugumferð þegar flugmaður vélarinnar ætl-
aði að koma inn til lendingar, en flugvöllurinn
lokaðist um tíma á mánudaginn vegna veðurs,
skv. upplýsingum Hallgríms Sigurðssonar í
stjórnstöð Landsbjargar.
Flugmaðurinn tilkynnti um kl. 12.45 að hann
væri í aðflugslínu við flugvöllinn. Ljóst er að
vélin hefur verið í rangri aðflugstefnu, en flak
vélarinnar fannst í gær norðanmegin í Vestur-
horni. Hallgrímur kunni ekki skýringar á af
hverju vélina hafði borið svo langt af leið.
Þegar myndir á ratsjá Flugmálastjómar í
Reykjavík voru skoðaðar sást að hún hvarf af
ratsjá við Náttmálatind við Almannaskarð. Eft-
ir það náði loftnet frá Stokksnesi ekki til vélar-
innar vegna skugga af fjöllum. Síðustu myndir
benda til að hún hafi verið byrjuð í hægri
beygju, að sögn Hallgríms. Eftir það er erfitt
að segja til um ferðir hennar, en giskað er á að
hún hafi haldið beygjunni áfram og farið inn
skarðið milli Brunnhoms og Vesturhoms en
einnig sé mögulegt að hún hafi farið fyrir
Brannhornið.
Sjálfvirkur neyðarsendir í vélinni fór í gang
við höggið og sendi út í um 10 mínútur. Þá var
enginn gervihnöttur eða tæki tiltæk til að geta
staðsett hana nákvæmlega. Frá því að flug-
maðurinn tilkynnti um aðflug á flugvellinum á
Höfn og þar til vélin fórst er talið að liðið hafi í
mesta lagi þrjár til fjórar mínútur, að sögn
Hallgríms.