Morgunblaðið - 12.08.1998, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 1998 13
TILÞRIF í leik Þórs og Völsungs.
Leikgleðin í fyrirrúmi
á Strandamótinu
ÞAÐ SÁUST mikil tilþrif á
Strandamótinu sem haldið
var á Árskógsströnd fyrir
skömmu, en þar er 7. flokkur
í öndvegi, krakkar átta ára
og yngri.
Álls tóku þrjátíu lið frá tíu
félögum á Norðurlandi þátt í
mótinu, allt frá Blönduósi til
Húsavíkur, en þar af voru
átta lið frá Þór á Akureyri
sem öll stóðu sig mjög vel.
Auk Þórs tóku lið frá KS,
Völsungi, Dalvík, Leiftri, KA,
Hvöt á Blönduósi, Narfa í
Hrísey, Samheija í Eyjaijarð-
arsveit og Magna á Grenivík
þátt í mótinu.
Keppendur voru alls um
250 og voru margir foreldrar
á svæðinu að fylgjast með
fyrstu skrefum barnanna á
keppnisvellinum.
Mótið fór fram á Árskógs-
strönd, en var í umsjá Dalvíkinga
ALLIR fengu viðurkenningarskjöl og
tösku undir fótboltaskó við mótslok.
og voru alls leiknir sjötíu og
fimm Ieikir á fímm völlum. Leik-
gleðin var í fyrirrúmi og fengu
allir þátttakendur viðurkenningu
í mótslok.
Morgunblaðið/Kristján
GLEÐIN skein úr hverju andliti.
Jazzklúbbur Akureyrar
Marty Hall og félag-
ar í Deiglunni
KANADÍSKI gítaristinn og blúsar-
inn Marty Hall og félagar hans
annast flutning á næstu jazztón-
leikum Jazzklúbbs Akureyrar í
Deiglunni á heitum fimmtudegi 13.
ágúst kl. 21.30 og er aðgangur
ókeypis.
Með Marty Hall leika þeir
Eðvarð Lárusson á gítar, Stefán
Ingólfsson á rafbassa og Karl Pet-
ersen á trommur. Marty Hall hefur
getið sér gott orð fyrir flutning á
eigin tónlist bæði í Kanada og víðar
um lönd. Tónlist hans er blúsættar
með jazzívafi og mjög áheyrileg.
Eðvarð Lárusson er í fremstu
www.mbl.is/fasteignir
röð jazzleikara okkar og hefur m.a.
leikið með Kombói Ellenar Krist-
jánsdóttur. Bæði Karl Petersen og
Stefán Ingólfsson hafa áður leikið á
vegum Jazzklúbbsins en þeir búa
báðir á Akureyri.
Karl kennir á slagverk við Tón-
listarskólann á Akureyri og stofn-
aði og lék í jazzhljómsveitinni Na
nú, sem m.a. flutti mörg jazzlög eft-
ir hann sjálfan. Stefán flutti til
Akureyrar fyrir þremur árum en
hafði áður öðlast mikla viðurkenn-
ingu í Reykjavík fyrir leik sinn með
íj'ölmörgum landskunnum tónlist-
armönnum.
Aksjón
Miðvikudagur 12. ágúst
21.00ÞSumarlandið Þáttur
fyrir ferðafólk á Akureyri og
Ákureyringa í ferðahug.
Notar þú
símdrtri mikið
á kvöldin og
um helgdr?
Frá í. september býðst 25% lægra verð fýrir
innanlandssímtöl á kvöldin og um helgar
gegn föstu mánaðarlegu gjaldi.
Með því að skrá sig í Frístundir Símans og greiða 300 kr.
fastagjald á mánuði, lækkar verð á innanlandssímtölum
í almenna símkerfinu á kvöldin og um helgar úr 78 aurum
í 59 aura á mínútu. Verð á dagtaxta helst óbreytt.
Þessi nýjung nýtist sérstaklega einstaklingum sem nota síma
og/eða Internetið mikið utan hefðbundins vinnutíma.
Taflan hér fyrir neðan er samanburður á almennu verði og
verðskrá Frístunda Símans. Hafa ber í huga að símreikn-
ingar taka til 3 mánaða símnotkunar með öllum tegundum
símtala, en hér er einungis tekið dæmi um mánað arsímnotkun
í almenna símkerfinu innanlands á kvöldin og um helgar.
Klukkustundir á mánuði á kvöld-, nætur- og helgartaxta Almennt verð á mánuði Verð með Frístundum Símans á mánuði
25 1.170 kr. I.I78 kr.
50 2.340 kr. 2.055 kr-
75 3.5IO kr. 2.933 kr.
100 4.680 kr. 3.8lO kr.
Frístundir Símans gilda aðeins innan almenna símkerfisins á kvöld-,
nætur- og helgartaxta (sjá nánar bls. 4 í Símaskrá). Afsláttur reiknast
ekki af útlandasímtölum og símtölum í farsímakerfin, boðkerfi,
Símatorg og þjónustunúmer Landssímans.
SIMINN