Morgunblaðið - 23.09.1998, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
♦
Skuldir heimilanna jukust um
43 milljarða undanfarið ár
SKULDIR heimilanna við opinber-
ar lánastofnanir, lífeyrissjóði,
tryggingarfélög og bankakerfi
námu 407 milljörðum króna um
mitt þetta ár og höfðu aukist um 43
milljarða króna frá sama tíma í
fyrra eða um 11,8%. Þetta er tals-
vert meiri aukning skulda heimil-
anna en árið á undan, því skuldir
heimilanna jukust um 28 milljarða
króna frá júlíbyrjun 1996 til
júníloka í fyrra, sem jafngildir 8,3%
aukningu.
Þessi skuldaaukning heimilanna
kemur til viðbótar mikilli hækkun
ráðstöfunartekna á síðustu misser-
um. Már Guðmundsson, aðalhag-
fræðingur Seðlabanka Islands, seg-
ir að þetta sýni að heimilin séu að
endurmeta varanlegar tekjur sínar
til hækkunar í kjölfar þess að raun-
kaupmáttur hafi aukist verulega
vegna kjarasamninga, minni
verðbólgu, skattalækkana og fleira.
Fólk virðist reikna með að þessi
hækkun sé að verulegu leyti varan-
leg og hærra tekjustig geri það að
verkum að heimilin skuldsetji sig
meira en áður. Spurningin sé hins
vegar sú hvort heimilin taki nægi-
lega mikið tillit til þess að auðvitað
séu alltaf vissar líkur á að einhvern
tíma geti komið til samdráttar.
Viðskiptahallinn fer vaxandi
Már sagði aðspurður að mikil
aukning eftirspurnar hér á landi,
sem drifin sé áfram af þessari
miklu kaupmáttaraukningu og sem
meðal annars endurspeglist í þess-
ari skuldaaukningu heimilanna, sé
mjög líklega umfram það sem efna-
hagslífið þoli til lengdar, enda fari
viðskiptahallinn vaxandi.
„Þó svo verðbólgan sé mjög lág
nú, þá er auðvitað sú hætta fyrir
hendi, ef innlend eftirspurn vex of
hratt og viðskiptahalli verður of
mikill, að það geti á einhverju stigi
haft áhrif á gengið og þá vex
verðbólgan eitthvað aftur. Við er-
um að sjá merkin um þetta í þess-
um viðskiptahalla og það er
auðvitað nokkurt áhyggjuefni,"
sagði Már.
Hann rifjaði upp að Seðlabank-
inn hefði bent á þessi ofþenslu-
merki fyrr í sumar, sérstaklega við-
skiptahallann og sagt að í ljósi þess
að verðbólgan væri lág og peninga-
stefnan þegar mjög aðhaldssöm,
þyrfti helst að bregðast við þessum
merkjum með auknu aðhaldi í ríkis-
fjármálum, annaðhvort með því að
hækka skatta eða skera niður út-
gjöld.
„Það er ekkert fram komið í
sumar sem breytir þessari mynd í
meginatriðum sem við drógum upp
í upphafi sumars, nema bara að
verðbólgan hefur verið minni og
viðskiptahallinn líklega þó nokkuð
meiri,“ sagði Már.
Hann sagði aðspurður að erfitt
væri að tala um það að skuldsetn-
ing heimilanna væri komin á ein-
hver hættumörk að meðaltali. Það
yrði að metast í hverju tilviki íýrir
sig í samhengi við tekjur og
greiðslubyi’ði. Almennt sýndi þessi
þróun að tekjuaukningin síðustu
misseri hefði orðið til þess að fólk
treysti sér til að auka skuldir sínar
enn frekar og miðaði við hærri tekj-
ur í því sambandi. Þá væri einnig
rétt að benda á að lánstími hefði al-
mennt lengst og vextir lækkað.
Spurningin væri hins vegar sú hvað
gerðist ef nýtt samdráttartímabil
hæfist og það væri óvarlegt að gera
ráð fyrii’ öðru en að til slíks kæmi
einhvern tíma.
Starfshópur
fjallar um
Miramax
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti í
gærmorgun tillögu um að skipað-
ur yrði starfshópur fjögun’a
ráðuneyta til að fjalla um áhuga
kvikmyndaversins Miramax/-
Dimension á að vinna kvikmyndir
á Islandi.
Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, lagði í gær
fram minnisblað þar sem hann
gerði að tillögu sinni að hópurinn
yrði skipaður. Viðskiptaráðuneyti
hefði forræði fyi-ir hópnum, sem
yrði skipaður fulltrúum iðnaðar-
og viðskiptaráðuneytis, mennta-
málaráðuneytis, fjármálaráðu-
neytis og umhverfisráðuneytis.
Forsaga þessa máls er sú að í
ágústlok kom hingað Cary
Granat, forstjóri Dimension
Films hjá Miramax, til að kanna
hugsanlega tökustaði á Islandi
fyrir gerð nýrrar Highlander
kvikmyndar með Sean Connery í
aðalhlutverki. Miramax er í eigu
Disney-samsteypunnar.
Margir framhaldsskólanemendur með farsíma
Notkun
bönnuð í
einstaka
skóla
SETJA hefur þurft reglur um
farsímanotkun framhaldsskóla-
nema í framhaldsskólum og er
hún bönnuð í einstaka skólum en
í öðrum er látið nægja að kenn-
arar ræði við nemendur verði
vart við hringingar í kennslu-
stundum. Notkunin virðist mjög
misjöfn eftir skólum. I einum
skóla, Fjölbrautaskólanum í
Garðabæ, er notkun GSM-síma
útilokuð vegna þykkrar stál-
klæðningar á útveggjum skól-
ans.
Sölvi Sveinsson, skólameistari
Fjölbrautaskólans við Ármúla,
segir þá skýru reglu hafa verið
setta á vorönn síðasta vetrar að
banna alla notkun farsíma innan
veggja skólans og að það hafi
verið að gefnu tilefni. „Það bar
nokkuð á að símar væru að
hringja í tímum og augljóst er að
slíkt gengur ekki,“ sagði Sölvi í
samtali við Morgunblaðið.
„Það eru ótrúlega margir
nemendur með farsíma og notk-
unin hefur stórlega aukist í
haust. Farsímar eru nýjasti þátt-
urinn í neyslu unglinga, rétt eins
og að reka bfl eða eitthvað
annað.“ Sölvi segist verða var
við notkun farsíma utan við
glugga skólans og segir jafn-
framt að dregið hafi stórlega úr
notkun símasjálfsala sem eru í
skólanum. Skólameistarinn segir
hafa gengið vel að halda þessa
reglu enda séu unglingar upp til
hópa hlýðnir og ágætisfólk.
I Fjölbrautaskólanum í Garða-
bæ er þetta ekki vandamál, að
sögn Gísla Ragnarssonar aðstoð-
arskólameistara. „Við erum svo
heppin að það er ekki hægt að
tala í farsíma í skólanum. Hann
er allur klæddur þykkri stál-
klæðningu og það fara engar
bylgjur gegnum veggina,“ segir
Gísli en lætur þess getið að væri
ekki þessi sjálfvirka hindrun fyr-
ir hendi, sem menn vissu ekki
um fyrirfram, væri notkun slíkra
sima bönnuð. „Margir nemendur
eru með síma og þeir verða bara
að fara út fyrir og hringja."
—I— i !. .... ,i ■' "■
\ \
MARGIR nemendur framhaldsskóla nota farsíma dags daglega en all-
ir skólar banna slíka notkun í kennslustundum, Myndin er sviðsett.
Morgunblaðið/Ásdís
BANNAÐ hefur verið að nota farsíma í Fjöl-
brautaskólanum í Ármúla.
Farsímanotkun
orðin fáránleg
Ragnheiður
Torfadóttir,
rektor Mennta-
skólans í Reykja-
vík, segir notkun
farsíma ekki
bannaða í skól-
anum, að ekki
hefði reynst
nauðsynlegt að
grípa til slíkra
ráðstafana. „Ef
farsími fer að
hringja í skóla-
stofu eru kenn-
ararnir ekkert blíðir og þessi
farsímanotkun er auðvitað
fáránleg," segir rektor, „fólk
getur vart gengið örfá skref án
þess að láta hann trufla sig á öll-
um tímum.“ Hún sagðist vita að
nemendur ættu farsíma og gætu
þeir sem best talað í hann utan
dyra en einnig væru síma-
sjálfsalar í skólanum.
Farsímanotkun nemenda hef-
ur ekki verið vandamál f Versl-
unarskóla íslands, að sögn Þor-
varðar Elíassonar skólameistara.
„Það er meinalaust af hálfu
skólayfirvalda að nemendur tali
í farsíma í skólanum en það er
eins og með alla aðra truflun í
tímum að hringi farsími eru
nemendur beðnir að slökkva.“
Þorvarður sagði menn ekki hafa
þurft að skipta sér af farsíma-
notkun nemenda, þeir ættu
margir síma og einnig væru
sjálfsalar í skólanum.
Lárus H. Bjarnason, rektor
Menntaskólans við Hamrahlíð,
segir farsímanotkun ekkert
vandamál í skólanum og að þar á
bæ hafi menn komist hjá því að
setja nokkrar reglur aðrar en að
á þeim sé slökkt í kennslustund-
um. I þau fáu skipti sem notkun-
ar hafi orðið vart í tímum hafi
kennarar orðið sammála um að
líða slíkt ekki.
I Menntaskólanum á Akureyri
hefur farsímanotkun nemenda
ekki truflað skólastarf og ekki
hefur þurft að setja reglur. Jón
Már Héðinsson aðstoðarskóla-
meistari segir nemendur sýna þá
kurteisi að nota ekki slíka síma
eða láta hringja í sig í tímum.
„Við höfum því ekki þurft að
setja reglur hvað sem síðar verð-
ur - ef verðið heldur sífellt
áfram að lækka."
GPS-eigendur
geta lent í vanda
í ágúst næsta ár
HINN 22. ágúst 1999 munu margir
eigendur GPS-staðsetningartækja
standa frammi fyrir svipuðu
vandamáli og því sem sækir á tölvu-
eigendur við upphaf ársins 2000.
Að sögn Guðjóns Scheving, verk-
fræðings hjá Siglingastofnun, er í öll-
um GPS-tækjum teljari sem telur
vikumar frá því að GPS-kerfið var
fyrst tekið í gagnið 5. janúar 1980.
Frá þeim tíma hefur vikutalan
hækkað um 1 í hverri viku og er þessi
vikutala hluti þeirra skilaboða sem
GPS-tæki taka við frá gervihnatta-
sendingum.
Hámarkstalan sem þessir teljarar
geta hins vegar tekið við er talan
1.024 og því mun það gerast við lok
1.023. viku frá upphafi GPS-sendinga
að teljarinn mun sýna töluna 0 og
byrjar aftur að telja upp í 1.024.
Þetta gerist í fyrsta skipti 22. ágúst
1999. GPS-staðsetningartæki eru um
borð í flestum eða öllum íslenskum
skipum. Auk þess nota björgunar-
sveith’, jeppaeigendur og útivi-
starfólk tækin til staðsetningar.
Guðjón segir að það verði misjafnt
eftir tegundum tækja hvernig vand-
ræðin vegna 22. ágúst 1999 muni
birtast. Sum tæki, einkum þau elstu,
geti hætt að starfa. Önnur verði
óstarfhæf í skamma stund en muni
síðan telja aftur með dagsetningunni
6. janúar 1980 en réttri staðsetningu.
Enn önnur muni hlaða inn nýjar alm-
anaksupplýsingar og starfa síðan á
réttan hátt.
Hann ráðleggur öllum eigendum
GPS-tækja að hafa samband við
framleiðendur tækja sinna og leita
upplýsinga um hvaða áhrif 22. ágúst
1999 muni hafa á búnaðinn. Almenn-
ar upplýsingar um málið er m.a. að
finna á heimasíðu bandarísku strand-
gæslunnar, http:www.uscg.mil.
Meðal þeirra aðila sem nota mikið
GPS-tæki eru björgunarsveitir
Landsbjargar. Kristján Birgisson,
hjá Landsbjörgu, sagði að þar vissu
menn af þessu vandamáli og þeir
kynntu það á þeim námskeiðum sem
Landsbjörg stendur fyrir. Lands-
björg sem slík á, að sögn Kristjáns,
engin GPS-tæki heldur eru þau í eigu
einstakra björgunarsveita.
Minnsta atvinnu-
leysi síðan 1991
ATVINNULEYSI í ágúst sl. var
2,2% á landinu öllu og hefur atvinnu-
leysi í þessum mánuði ekki verið
lægi’a síðan í ágúst 1991. Vinnumála-
stofnun spáir því að atvinnuleysi
minnki enn í september og verði á
bilinu 1,8-2,1%. Um 71% þeirra sem
eru atvinnulausir búa á höfuðborgar-
svæðinu.
Atvinnuleysisdagar í ágúst sl. jafn-
gilda því að 3.099 manns hafi að
meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í
mánuðinum. Mun fleiri karlar en
konur eru án vinnu eða 2.101 kona og
998 karlar. Undanfarin 10 ár hefur
atvinnuleysi minnkað um 1,7% að
meðaltali frá júlí til ágúst, en núna
fækkar atvinnulausum milli mánaða
um 13,8%.
Margar konur í hlutastörfum
Atvinnuleysi minnkaði í öllum
landshlutum í ágúst. Mest minnkaði
atvinnuleysi hlutfallslega á Norður-
landi vestra og Vesturlandi, en at-
vinnulausum fækkaði hins vegar
mest á höfuðborgarsvæðinu. At-
vinnuleysi er hlutfallslega mest á
höfuðborgarsvæðinu, en minnst á
Vestfjörðum.
Hlutfallslegt
atvinnuleysi ■
ágústmánuði 1
1989-1998
4,3
4% -
2,2
14 gj 1,1
1990 1992 1994 1996 1998
Af þeim 3.687 sem voru skráðir at-
vinnulausir síðasta dag ágústmánað-
ar voru 637 í hlutastörfum. 564 konur
voru í hlutastörfum en jafnframt á
atvinnuleysisskrá, en 73 karlar voru í
sömu stöðu.
I lok ágústmánaðar voru u.þ.b. 330
störf laus hjá vinnumiðlunum lands-
ins og er þetta talsvert meira fram-
boð á lausum störfum en var í lok
júlí.