Morgunblaðið - 23.09.1998, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 23.09.1998, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1998 21 Dansinn frumsýndur KVIKMYND Ágústs Guð- mundssonar Dansinn er frum- sýnd í dag í Háskólabíói. Kvik- myndin er gerð eftir smásögu færeyska rithöfundarins Willi- ams Heinesens, og fóru tökur fram í Færeyjum og við Dyr- hólaey. Helstu hlutverk eru í höndum Gunnars Helgasonar, Baldurs Trausta Hreinssonar, Pálínu Jónsdóttur og Dofra Hermannssonar. Kvikmyndatökumaður er Er- nest Vincze, en leikmynda- hönnuður er Tonie Jan Zetter- ström og um búninga sér Þór- unn María Jónsdóttir. Tónlist myndarinnar er eftir Kai Dor- enkamp. Viðstaddur frumsýninguna verður Andy Paterson, fram- leiðandi og framkvæmda- stjóri Oxford Film Company, en Dansinn er samvinnu- verkefni Isfilm efh., Oxford Film Company, Nordisk Film og Hamburger Kino Kompanie. Ofurnákvæmni TOJVLIST IVorræna husið LJÓÐATÓNLEIKAR Wout Oosterkamp og Jan Willem Nelleke fluttu söngverk eftir Beethoven, Schubert, Barhms, Faure, Debussy og Ravel. Sunnudagurinn 20. september, 1998. UNDIR yfirskriftinni ARSIS ei"u ráðgerðir fimm tónleikar í Norræna húsinu, sem að því er virðist vera hluti af skipulagðri tónleikaferð um Evrópu. Eitthvað vantaði á að skipuleggjendum tæk- ist að ná til væntanlegra tónleika- gesta, því innan við 30 voru mættir til að hlýða á bassa-bariton söngv- arann Wout Oosterkamp og Jan Willem Nelleke flytja þýska og franska ljóðatónlist. Þeir sem unna góðri tónlist misstu af miklu, því hér voi-u á ferðinni mjög góðir listamenn. Tónleikarnir hófust á An die ferne Geliebte, eftir meist- ara Beethoven. Lagaflokkur þessi er með því fegursta í stóru safni ljóðatónlistar. Þeir sem þekkja Adelaide op. 46 og An die feme Geliebte op, 96 telja það mikinn skaða að Beethoven skuli ekki hafa leikið þann leik oftar, að semja fleiri lagaflokka. Rétt um 70 sönglög eru til eftir Beethoven en flest þeirra eru, frá höfundarins hendi, ekki merkt með ópusnúm- eri, þó sum væru gefin út á meðan höfundurinn var og hét. Strax í upphafi mátti heyra að hér voru á ferðinni góðir lista- menn, þó fyrir smekk undirritaðs færa þeir of varlega „höndum“ um verk meistarans. Flutningurinn var mjög yfirvegaður, mjúklega út- færður en helst til of haminn í hraða. Næsta verkefni var þrjú lög eftir Schubert, sem fyrst voru gef- in út 1822 undir nafninu Harfenspi- eler en síðar fundust flem gerðir af þessum sönglögum við ljóð Goethes, sem talin voru upprana- lega gerðin, samin 1816 og vora þau gefin út 1895. Það sama má segja um flutning þeirra félaga, á Söngvum hörpuleikarans og flutn- ing þeirra á lagaflokki Beethovens, að Schubert var of haminn, og þó allt væri á sínum stað og vel mótað, vantaði að þeir slepptu fram af sér „beislinu“. Átta lög eftir Brahms vora sér- lega fallega fiutt og sérstaklega Wie Melodien zieht es og Meine Liebe ist grún vie der Flieder- busch. Oosterkamp er auðheyri- lega sérlega vel að sér í franskri söngtóntónlist, því í lögum eftir Faure, Debussy og Ravel féll hvergi á skuggi, öll lögin vora næstum óhugnanlega vandlega flutt. Oft hefur því verið haldið fram, að stíll franskra sönglaga, sem að nokkru leyti var stefnt gegn þýskri rómantík, sé í raun beint framhald af þýskra róman- tíkinni en þar muni, að þýskir syngi um tilfinningar sínar, gráti sjálfir en franskir lýsi þeim, telji tárin á vanga annarra. Hvað sem þessu líður var flutningur þeirra félaga sérlega myndrænn í frönsku lögunum, sem era meistaralega vel gerð „myndverk“ í tónum og þar átti píanistinn oft sérlega fallega mótaðar tónlínur. Oosterkamp og Nelleke era frá- bærir listamenn en fyrir undirrit- aðan leggja þeir ofuráherslu á vandaðan flutning, svo mjög, að maður fer að hlusta einum um of á ýmis nákvæmnisatriði og þar með tekur útfærslan athyglina frá sjálfri tónlistinni. Jón Ásgeirsson Nýjar plötur • BERRÖSSUÐ i tánum er með nýju íslensku bamaefni. A plötunni er að finna ljóð og sögur úr dag- skránni Berrössuð á tánum sem fiutt hefur verið á leikskólum víða um land sl. þrjú ár. Efnið er ætlað börnum á aldrinum 2ja-8 ára og fjallar t.d. um dýrin, veðrið og hvað errétt ograngt. Höfundar og fiytjendm■ eru þau Anna Pálína Arnadóttir og Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson. Anna Pálína og Aðalsteinn hlutu styrk frá Barnamenningarsjóði ár- ið 1995 til að setja saman og semja efni fyrir börn og er þessi hljóm- plata m.a. afrakstur af því starfi. Áður hafa komið út með þeim Önnu Pálínu og Aðalsteini hljóm- plöturnar Á einu máli, Von og vísa og Fjall og fjara. Um hljóðfæraleik sjá Gunnar Hrafnsson bassaleikai-i, Gunnar Gunnarsson píanóleikari og Pétur Grétarsson, trommu- og slagverks- leikari. Hljómplötunni fylgir texta- hefti með fjölda mynda eftir Sig- rúnu Eldjárn. Utgefandi Berrössuð á tánum er Dimma. Japis sér um dreifingu og kostar hljómplatan 1.990 kr. ^noha Brunaslöngur frá Noregi \1durkennd brunavöm Fáanlegar með og án skáps Fást í hyggingavöruverslunum um land allt. www.mbl.is Langar þig á úrslitaleik Landssíma- deildarinnar á laugaxdaginn? Lokaumfer9 Landssímadeildarinnar fex fxam á laugardaginn og nú ez spennan í hámazki! Þeir sem fá úrslit úr leikjum Landssimadeildarínnar með SMS hjá Símanum-GSM, eiga möguleika á að vinna tvo miða á leik KR og ÍBV á laugardaginn. 5 $ 5 2 Z < 5 ö o z 2 o Skráðu þig strax á heimasíðu Simans, www.simi.is, eða hríngdu í gjaldfrjálst númer Þjónustumið- stöðvar Símans, • iU'J 7000 Dregið verður á föstudaginn og fá vinningshafar SMS skilaboð um að sækja miðana í verslun Simans í Kringlunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.