Morgunblaðið - 23.09.1998, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 23.09.1998, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1998 11 FRÉTTIR Úrskurður Samkeppnisstofnunar Auglýsingar nátt- úruvara taldar brjdta gegn lögum Morgunblaðið/Anna Bjarnadóttir INGIBJÖRGU Hönnu Pétursdóttur hefur tekist að nýta þæfða ull á nýjan hátt. JAKKI úr hlýraroði. / Islenskur tískuhönnuður sýn- ir kvöldfatnað úr þæfðri ull Ziirich. Morgunblaðið. KENNURUM Ingibjargar Hönnu Pétursdóttur í listahá- skólanum í Utrecht í Hollandi leist ekki sérstaklega vel á þá hugmynd hennar að sérhæfa sig í tískuklæðnaði úr þæfðri ull og fiskroði þegar hún stakk upp á því. Þeir samþykktu það þó og í haust voru föt frá henni valin á sýningu á athyglisverð- asta tískufatnaðinum frá nem- endum í tískuhönnun í Hollandi, Belgíu og Sviss. Barclay-fyrirtækið stendur fyrir tískusýningunni til að koma nýjum tískuhönnuðum á framfæri. Sýningin í fyrra þótti mjög forvitnileg og vakti meðal annars athygli Madonnu á tísku- hönnuðinum Olivier Theyskens. Sýningin í haust var haldin í Amsterdam, Ziirich og Antwerpen. Áhrifafólki úr tísku- heiminum var boðið og á eftir var veisla þar sem tækifæri gafst til að kynnast réttu fólki. Ingibjörg Hanna lauk námi í tískuhönnun og textíl í Utrecht í júní. Hún sendi lokaverkefnið sitt í keppnina um að komast á Barclay-sýninguna og var ein af 24 nemendum í tískuhönnun í þremur löndum sem voru vald- ir. „Nýjar, spennandi hugmynd- ir í hönnun og textíl voru vald- ar á sýninguna," sagði Ingi- björg Hanna. „Litur, efni og form skipta máli.“ Framtíð í ullinni Það voru níu flíkur eftir Ingi- björgu Hönnu á Barclay-sýning- unni. „Ég er sú fyrsta sem geri kvöldklæðnað úr þæfðri ull og jakka úr fiskroði,“ sagði hún. ,,Ég var í starfsreynslu hjá Istex á Islandi og prófaði mig áfram með efnið þar. Þæfð ull hefur hingað til aðallega verið notuð í húfur, skóleppa eða skrautmuni og fiskroð í veski eða aðra smáhluti. Ég prófaði að blanda íslensku ullinni sam- an við bómull og mér hefur tek- ist að yfírvinna ýmsa erfíðleika. Nú get ég hannað fín föt úr efni sem ég hefði aldrei búist við að geta notað svona. Þetta er al- veg nýtt og ég held að það sé framtíð í þessu. Efnið er til dæmis tilvalið í buxur. Það leggst vel að líkainanum eða getur verið formfast - það býð- ur upp á mikla möguleika." PLIKUR Ingibjargar Hönnu voru gráar og rauðar. Ingibjörg Hanna er nú á leið til Parísar og ætlar að ljúka mastersprófí hjá Institute Francais de la Mode í vetur. Hún hefur fengið ullina ókeypis frá ístex til að prófa sig áfram með og ætlar að halda áfram á sömu braut. „Þetta er spenn- andi efni sem ætti að íjölda- framleiða," sagði hún. Á FUNDI samkeppnisráðs í síð- ustu viku voru bannaðar sex aug- lýsingar þriggja fyrii'tækja sem flytja inn náttúruvörur eða fæðu- bótarefni. Samkeppnisráð bannaði Eðalvör- um ehf. að birta auglýsingu á hvít- lauksafurðum með fyrirsögninni „Er hvítlaukurinn þinn hreinn hvít- laukur?“. Auglýsingin birtist á bak- síðu tímaritsins I apótekinu, 2. tbl. 1997, í desember sl. og taldi sam- keppnisráð auglýsinguna brjóta ákvæði 21. gr. samkeppnislaga þar sem segir m.a. að „óheimilt sé að veita rangar, ófullnægjandi eða vill- andi upplýsingar í auglýsingum eða með öðrum hætti eða beita öðrum slíkum viðskiptaaðferðum sem sama marki eru brenndar, enda séu upplýsingar þessar og viðskiptaað- ferðir fallnar til að hafa áhrif á eft- irspurn eða framboð vara, fast- eigna, þjónustu eða annars þess sem haft er á boðstólum í atvinnu- starfsemi sem lög þessi taka til.“ Var það álit samkeppnisráðs að auglýsingin innihéldi rangar, vill- andi og ófullnægjandi upplýsingar og væri jafnframt ósanngjörn gagnvart neytendum og keppinaut- um. Samkeppnisráð bannaði þá Eðal- vöi-um ehf. að dreifa auglýsinga- bæklingnum „Rautt eðalginseng (þykkni)" þar sem upplýsingar í honum brjóta gegn ákvæðum 21. gr. samkeppnislaga. Taldi sam- keppnisráð nauðsynlegt að bæk- lingurinn yrði innkallaður. Auglýsingar villandi og ófullnægjandi Auglýsing Logalands ehf. á kyolic-kjarnahvítlauk með fyrir- sögninni „Vilt þú aðeins það besta?“, sem birtist í Morgunblað- inu 3. febrúar sl., var bönnuð þar sem hún braut í bága við 21. gr. samkeppnislaga. Bannaði sam- keppnisráð Logalandi ehf. að gefa í skyn í auglýsingunni að náttúruvar- an/fæðubótarefnið kyolic hefði já- kvæð áhrif á kólesteról og ónæmis- kerfið þar sem slíkt væri ósannað og vísaði til óviðkomandi mála. Að mati samkeppnisráðs er auglýsing- in ófullnægjandi og villandi. Jafn- framt sé hún ósanngjörn gagnvart keppinautum og neytendum þar sem skírskotað sé til óviðkomandi mála. Auglýsing Logalands ehf., sem birtist í Morgunblaðinu 12. febrúar með fýrirsögninni „Hugsar þú um heilsuna?", var einnig bönnuð þar sem í henni var vísað til rannsókna á kyolic, sem gefa í skyn að nátt- úruvaran/fæðubótarefnið kyolic hafi lækningamátt þar sem slíkt sé ósannað og vísar til óviðkomandi mála. Að mati samkeppnisráðs er auglýsingin brot á 21. gr. sam- keppnislaga þar sem hún sé röng, ófullnægjandi og villandi. Auglýsing Logalands, sem birtist í Morgunblaðinu með fyi-irsögninni „Hver er munurinn á kyolic og öðr- um hvítlauksafurðum?“, vai’ bönn- uð þar sem fyrirsögnin var talin vera villandi þar sem aðrar upplýs- ingar í auglýsingunni eiga ekki ein- göngu við um kyolic. Áuglýsingin er því einnig ósanngjörn gagnvart keppinautum Logalands að mati samkeppnisráðs. Samkeppnisráð gerði einnig at- hugasemd við merkingar Loga- lands á umbúðum II Hwa ginsengs og taldi þær ófullnægjandi þar sem þess sé ekki getið að uþplýsingar þær sem þar koma fram um umsvif framleiðanda eigi ekki eingöngu við um markað fyrir hvítt ginseng í Kóreu. Fæðubótarefnið Life Extension, sem fyrirtækið Celsus flytur inn og auglýsti í Morgunblaðinu 24. júlí sl. með fyrirsögninni „Fvrir þá sem vilja njóta lífsins ... eftir fertugt", var bönnuð með þeim rökum að hún innihéldi ósannaðar fullyrðing- ar og væri birting hennar brot á ákvæðum 21. gr. samkeppnislaga. NOATUN OBYRT -00 hlaðið bætielnum! Hiöptú 300. Innmatur ur haustslatrun NOATUN Verslanir Nóatúns eru opnar til kl. 21, öll kvöld. NÓATÚN117 • ROFABÆ 39 • LAUGAVEG1116 • HAMRABORG 14 KÓP. • FURUGRUND 3, KÓP. • ÞVERHOLTI 6, MOS. • JL-HÚSI VESTUR í BÆ • KLEIFARSEL118 • AUSTURVERI, HÁALEITISBRAUT 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.