Morgunblaðið - 23.09.1998, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 23.09.1998, Blaðsíða 52
NIVEA VISAGE Drögum næst 24. september HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF3040. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Hækkandi vatnsborð í Hágöngu- rT miðlun MIÐLUNARLÓNIÐ við Hágöng- ur er óðum að fyllast eftir að hleypt var á það vatni í sumar. Yfirborð lónsins stendur ntí í 812,4 m yfír sjávarmáli en end- anlegt yfírborð þess verður 816 m y.s. Lónið er misjafnlega djtípt en dýpst er það næst stífl- unni, 16 metrar. A myndinni má sjá aðalstíflu Hágöngumiðlunar þar sem htín stendur austan við Syðri-Hágöngu, og er hún 88 metra há. Óvíst er hvenær lónið verður orðið fullt, en miðað við — eðlilegt rennsli gæti það orðið um áramótin, að sögn Hermanns Hermannssonar fulltrtía verk- kaupa á svæðinu. Tvær árangurslausar innbrotstilraunir í tölvukerfí Krabbameinsfélagsins Slóð tölvu- þrjóts rakin til Tékklands TVÆR tilraunir voru gerðar fyrr á þessu ári til innbrots í tölvukerfi Krabbameinsfélagsins. Tölvuþrjót- unum tókst þó í hvorugu tilvikinu að komast inn í sjálft tölvukerfið og að gögnum og skrám Krabbameinsfé- lagsins. Peim tókst hins vegar að komast inn í pósttölvu félagsins, sem veitir aðgang að netinu, og olli annar þeirra talsverðum skemmd- um á hugbúnaði tölvunnar. Unnt var að rekja slóð hans til baka og kom í ljós að um var að ræða 15 ára Islending. Var innbrot hans kært til efnahagsbrotadeildar embættis ríkislögreglustjóra. I hinu tilvikinu var slóð tölvuþrjótsins rak- in til Tékklands. Hann olli engu tjóni á tölvukerfi félagsins og var ekki aðhafst frekar í því máli. „Engin viðkvæm gögn í hættu“ Samkvæmt upplýsingum Trausta Sigurvinssonar, hjá tölvudeild Krabbameinsfélagsins, komst ís- lendingurinn inn á póstvélina, stofn- aði þar notendaheiti og virðist markmið hans hafa verið að athafna sig á netinu. „Þarna voru hins vegar engin viðkvæm gögn í hættu,“ segir hann. Trausti leggur áherslu á að mjög öflug vörn sé á milli pósttölvu Krabbameinsfélagsins og tölvukerf- is félagsins sem heldur utan um ýmsar skrár með viðkvæmum upp- lýsingum og því sé nánast útilokað að tölvuþrjótarnir hefðu getað brot- ist inn í sjálft tölvukerfið. I kjölfar þessara innbrotstilrauna var ysta vörn tölvukerfis Krabba- meinsfélagsins sem takmarkar að- gang að pósttölvunni styrkt enn- frekar en að sögn Trausta er öryggi varnarveggjarins á milli póstvélar- innar og gagnagrunns Ki'abba- meinsfélagsins talið fullnægjandi. Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélagsins, segir að ekki sé óalgengt að tölvuþrjótar reyni að komast inn í póstkerfi í tölvum ýmissa stofnana og að ekki bendi neitt til þess að gögn skjól- stæðinga Krabbameinsfélagsins séu sérstaklega undir smásjá glæpa- manna. Vel vakandi fyrii’ óboðnum gestum Guðrún segir að aldrei hafi neinn getað hreyft við gögnum um skjól- stæðinga Krabbameinsfélagsins, því varnir þeirra séu sterkar. „Eftir innbrotið í póstkerfið voru þær varnir styrktar enn meira,“ segir Guðrún. „Við erum mjög vel vak- andi fyrir óboðnum gestum af öllu tagi, hvort sem þeir sækja í húsið okkar eða reyna að komast ókeypis inn á alnetið," segir Guðrún. „Við gerum að sjálfsögðu þær varúðar- ráðstafanir sem nauðsynlegar eru til að gæta öryggis þeirra sem hjá okkur starfa og þeirra sem til okkar leita og við berum ábyrgð á upplýs- ingum um,“ segir Guðrún. Morgunblaðið/RAX Kröfu SH vegna kaupa IS á Gelmer hafnað Fleiri at- vinnuleyfí til útlendinga ÚTLIT er fyrir að gefin verði út fleiri atvinnuleyfi til útlendinga á þessu ári en undanfarin ár. Búið er að gefa út 1.240 leyfi það sem af er árinu. Allt ái-ið í fyrra voru gefin út 1.560 atvinnuleyfi og 1.206 leyfi árið 1996.1 ágústmánuði sl. voru gefin út 156 atvinnuleyfi fyrir útlendinga, þar af 135 ný leyfi. Pað sem af er árinu hafa verið gefin út 808 ný atvinnu- leyfí, en í fyrra voru gefin út 875 ný atvinnuleyfi allt árið. ■ Minnsta atvinnuleysi/4 --------------- Þriðjungur aflamarks í þorski fluttur FLUTNINGUR á varanlegu afla- marki á milli fiskiskipa var mun meiri í lok síðasta fiskveiðiárs en fiskveiðiárin á undan. Um síðustu fiskveiðiáramót hafði þannig verið tilkynnt um flutning á 31,3% af afla; marki þorsks á síðasta fiskveiðiári. I lok fiskveiðiársins 1996/7 vai- hlut- fallið aðeins um þriðjungur af þessu eða um 11,8%. Skýringar á þessum aukna flutn- ingi má rekja til tilkomu Kvótaþings sem hóf starfsemi í upphafi fiskveiði- ársins. Þá hefur lögum um veiði- skyldu fiskiskipa einnig verið breytt og er þeim nú skylt að veiða 50% aflamarks síns á hvei'ju ári. Því var mikið um tilfærslur innan útgerð- anna og að útgerðir færðu aflamark til viðskiptamanna sinna. ■ Þrefalt meira/Dl VERZLUNARDÓMUR Parísar hafnaði í gær kröfum Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna á hend- ur íslenzkum sjávarafurðum og fyrri eigendum Gelmer-verksmiðjanna í Frakklandi um riftun kaupa ÍS á franska fyrirtækinu og fébótum vegna þess máls. Forsendur niðurstöðu dómsins voru í meginatriðum þær að enginn skriflegur samningur við SH hefði legið fyrir og að hvorki aðaleigandinn - - fyirverandi né IS hefðu gerzt brotlegir við lög. íslenzku fyrirtækin kepptu um kaupin á Gelmer síðastliðið haust og varð niðurstaðan sú, að ÍS keypti. Málsókn SH byggðist á því að ÍS hefði með ólögmætum hætti komið að kaupunum og að um samningsbrot franska fyi-irtækisins hefði verið að ræða, þar sem viðræður SH og eigenda Gelmers hefðu enn staðið yfir. „Málinu er ekki lokið, við munum áfiýja,“ segir ^^Magnús Scheving Thorsteinsson, framkvæmda- stjóri Icelandic France, dótturfyrirtækis SH í París. „Þetta var fyrsta dómstig, raunar með kjöm- um, en ólöglærðum dómendum. Nýleg fordæmi era í Frakklandi fyrir annars konar niðurstöðu í líkum málum. Við teljum okkur standa vel að vígi.“ Þórður Gunnarsson, lögfræðingur ÍS, segir að meginkrafa ÍS um sýknu hafi verið samþykkt. Ennfremur hafi hann þær upplýsingar frá frönsk- um lögmanni fyrirtækisins, að rétturinn hafi í ein- hverjum mæli orðið við kröfum IS og fyrri eigenda Gelmer um skaðabótakröfur vegna málsóknar SH. „Niðurstaðan nú er sú, að öllum kröfum SH er hafnað og hugsanlegt að hinum stefndu verði greiddar bætur. Við erum með fullt hús stiga og dómurinn hafnar því að öllu leyti að óheiðarleiki eða ólögmætt framferði hafi átt sér stað við kaup IS á Gelmer,“ segir Þórður. Höskuldur Asgeirsson, forstjóri Iceland Sea- food, dótturfyrirtækis ÍS í Boulogne, segir niður- stöðu dómstólsins undirstrika afstöðu fyrirtækis- ins: „SH tapaði þessu máli, enginn löglegur samn- ingur milli SH og Gelmer hafði verið gerður og ÍS beitti eðlilegum viðskiptaháttum við kaupin á Gelmer. Við höfum fengið upplýsingar um að varnaraðilum hafi verið dæmdar bætur.“ Einn lögfræðinga SH, Sérge Wilinski, segii' hins vegar að bótakröfum allra málsaðila hafi ver- ið hafnað; bæði SH og ÍS og fyrri eiganda Gelmer. SH krafðist skaðabóta, á annað hundrað milljóna króna, að sögn lögfræðingsins, frá fyrri eigendum Gelmer og ÍS vegna meints samningsrofs við sölu fyrirtækisins í október í fyiTa. Núverandi og fyra- verandi eigendur Gelmer gerðu gagnkröfur; ÍS vegna ímyndar fyrii-tækisins og Francois Lanoy, fyrrverandi aðaleigandi fyrirtækisins, vegna þeiira óþæginda, sem málaferlin hefðu valdið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.