Morgunblaðið - 23.09.1998, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 23.09.1998, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1998 25 LISTIR Morgunblaðið/Jim Smart GUÐRÚN Ásmundsdóttir og Erlingur Gíslason í hlutverkum Fonsíu og Wellers í Rommí sem sýnt er í Iðnó um þessar mundir. Sýningin verður í samstarfi við Annað svið. Leikritið Frú Klein eftir Nicholas Wright verður einnig á fjölum Iðnó í vetur. Er það sál- fræðistúdía, byggð á ævi Meianie Klein, sem var einn af brautryðj- endum í sálgreiningu á fyrri hluta aldarinnar. Klein var kona umdeild um sína daga og lenti meðal annars upp á kant við Sig- mund Freud. Leikstjóri verður Inga Bjamason en Margrét Áka- dóttir fer með hlutverk frú Kiein. Sýningin er samstarfsverkefni LI og Hvunndagsleikhússins. Eftir áramót verður frumsýnd í Iðnó sápuópera, framhaldsleik- rit byggt á spunatækni sem þró- ast með þátttöku áhorfenda og Netsins. Leikstjóri verður Martin Gejer. Staðið verður fyrir sögustund- um fyrir börnin um helgar síðar í vetur. Þegar hafa þrjár sýningar ver- ið frumsýndar í Iðnó á þessu leikári: Spunaleikritið Þjónn í súpunni með Eddu Björgvins- dóttur, Bessa Bjarnasyni, Stefáni Karli Stefánssyni, Margréti Vil- hjálmsdóttur og Kjartani Guð- jónssyni; Rommí eftir D.L. Coburn, þar sem Guðrún Ás- mundsdóttir og Erlingur Gísla- son fara með aðalhlutverkin, og barnaleikritið Dimmalimm, sem byggt, er á bók Iistmálarans Muggs. Hlutverk í þeirri sýningu eru í höndum leikaranna Hörpu Amardóttur, Olafs Guðmunds- sonar og Þorsteins Bachmann og tónlistarmannanna Guðrúnar Birgisdóttur og Peters Máté. Þá verður Leikhússporti, keppni í leiklist, fram haldið á mánudagskvöldum í vetur. Segir Magnús þessa nýbreytni hafa failið í fijóa jörð og þarna sé tví- mælalaust vaxtarbroddur í ís- lensku leikhúslífi. Leikstjóri er Martin Gejer. Næstu keppnir verða 28. september, 12. og 26. október og 9. og 23. nóvember. Fleiri sýningar em fyrirhugað- ar í Iðnó á leikárinu en að sögn Magnúsar er ótímabært að kynna þær að svo stöddu „enda er Iðnó lifandi leikhús og bmgðist fljótt við breyttum aðstæðum“. Tónlist og myndlist Á þessu má sjá að leiklist mun skipa öndvegi í Iðnó í vetur, svo sem hefðin gerir ráð fyrir. Tón- list, myndlist og sitthvað fleira mun þó einnig koma við sögu. „Með því að vera með tónlist og myndlist i Iðnó tekst okkur kannski að laða nýtt fólk að leik- húsinu um leið og við ýtum ef til vill undir áhuga leikhúsgesta á þessum listgreinum. Það er af hinu góða - listgreinarnar hafa alla tíð stutt vel hver við aðra.“ Alla þriðjudaga verða tónleikar í Iðnó, allt frá poppi yfir í klassík. Verið er að leggja lokahönd á dagskrá vetrarins og verður hún kynnt í heild sinni innan skamms. Þegar má nefna að í nóvember verða tónleikar með verkum Áskels Mássonar og í janúar verða öll kammerverk franska tónskáldsins Francis Poulenc flutt á femum tónleikum. Á göngum Iðnó verða mynd- listarsýningar í vetur. Þar verð- ur myndlist af öllu tagi sem gjarnan tengist leiksýningum í húsinu að einhveiju leyti. Ennfremur verður boðið upp á dansleiki í Iðnó í vetur. Haust- dansleikur er á næsta leiti og ný- ársdansleikur er einnig fyrirhug- aður. Loks er þess ógetið að fyrir skemmstu var undirritaður sam- starfssamningur Iðnó og Skemmtihússins. Fyrsti liðurinn í samstarfinu var sýning Skemmti- hússins á Ormstungu í Iðnó. SIP SAMBAND ÍSLENSKRA PRÓFUNARSTOFA Morgunverðarfundur SÍP föstudaginn 25. sept. nk. kl. 8.15—10.00. Staður: Háteigur, 4. hæð á Grand Hóteli Fundarefni: Prófanir og gæðatrygging í evrópsku samhengi. 1. Setning — kynning á SÍP. (Hjörleifur Einarsson, formaður SÍP). HE setur fundinn og kynnir SÍP, hverjir eru félagar og hvaða prófanir þeir framkvæma. 2. EUROLAB — starfsemi og staða. (Claes Bankvall, formaður Eurolab). CB hefur yerið formaður Eurolabs sl. tvö ár. Hann greinir frá stöðu samtakanna, árangri og framtíðarhorfum. 3. ISO guide 25 — endurskoðun og breytingar frá fyrri útgáfu. (Jarl Forsten, forstjóri VTT). ISO guide 25 (kallast nú EN ISO 17025) er í endurskoðun og á að koma í stað EN 45001 - staðalsins um gæðatryggingu í prófanastarfsemi. JL hefur verið virkur í þessu starfi og greinir frá helstu breytingum og gangi starfsins. 4. CEN/STAR — kynning, hvernig geta Norðurlöndin haft áhrif á starfið? (Göran Lindholm, forstjóri NORDTEST). CEN/STAR er sú staðlanefnd, sem metur hvar skortur á prófunaraðferðum stendur staðlastarfi fyrir þrifum og gerir tillögur um rannsóknarverk- efni á þessu sviði (prenormative research). GL veitir nefndinni forstöðu. 5. Starfsemi Nordtest á sviði gæðatryggingar í prófanastarfsemi. (Bent Larsen, gæða- stjóri FORCE). NT starfar mikið á þessu sviði og hefur gefið út talsvert af leiðbeiningum og greinargerðum varðandi þessi mál. BL greinir frá áhugaverðustu þáttunum. 6. Fyrirspurnir og umræður. Kaldi karlinn og krúttið KVIKMYJVPIR Stjörnubfó HEAVEN’S BURNING ★ ★ Leikstjóri: Craig Lahiff. Handrits- höfundur: Louis Nowra. Aðalhlut- verk: Russel Crowe, Youki Kudoh, Kenji Isomura og Ray Barret. Beyond Films. 1998. ÁSTRÖLUM finnst greinilega hentugt að nota eyðimörkina sína til einhvers, og þ.ám til að taka upp kvikmyndir og sérstaklega svokallaðar vegamyndir sem hafa verið, og eru enn, ansi vinsælar einkum meðal yngri höfunda. Himnabál er ein þessara mynda og er hún ungæðislegur og furðuleg- ur óður ungskáldsins til Astralíu, föðurlandsins víðfeðma. Ung- skáldsins sem raunveruleikinn hef- ur enn ekki fengið að sía sig í gegnum. Heaven’s Burning segir frá japönsku konunni Midouri sem er að kafna undan ofríki karlmanna og gamaldags hefða, en getur loks- ins andað léttar þegar hún kemur til stóru frelsisálfunnar. Hún sting- ur karlinn af, er tekin sem gísl í bankaráni og kynnist þannig eld- heitustu ást lífs síns, honum Colin. Alveg í gi-unninn er þessi saga harmræn ástarsaga. Ofan á það er þetta vegamynd, glæpamynd og samsull af hinu og þessu með ótrú- Borðdúkar Margar lega skrítnum endi. Það mætti líta á það sem löst en eitt er víst að maður veit aldrei hvað kemur næst. Mörg atriði eru býsna fyndin og notar leikstjórinn myndavélina oft til að skapa gamansamt and- rúmsloft. Margar furðulegar per- sónur koma til sögu og setja sinn svip á myndina og sýna hversu auðugt mannlífið er í þessari risa- álfu. Furðulegt en satt þá em aðal- persónurnar klisjukenndastar; krúttið og kaldi karlinn. Youki Ku- doh er sannkallað krútt og sæmi- legasta leikkona á ensku. Ég get ímyndað mér að hún sýni betri til- þrif þegar hún leikur á móðurmál- inu. Russel Crowe er kaldur karl, stundum of alvarlegur, því hann er meira en helmingi fallegri þegar hann brosir. Þau era samt fínt par og ættu bara svei mér að giftast. Það verður seint sagt að þetta sé sérlega góð kvikmynd, en heldur ekki að hún sé leiðinleg. Hildur Loftsdóttir Þakrennur Þakrennur og rör ^ á SiBA BLIKKAS hf Símar 557 2000 og 557 7100 Skemmuvegi 36 Bleik gata Kópavogi Hjá Heimsferðum finnur bú sérfræðinga í sérhópum Hjá Heimsferðum starfar starfsfólk með áralanga reynslu af skipulagn- ingu hópferða um allan heim. Hvort sem um er að ræða ráðstefnu, árs- hátíðarhóp, skólahóp eða fyrirtækjaferð, þá getur þú treyst því að hjá okkur finnur þú hagkvæmustu leiðina. Við nefnum hér nokkra af þeim áfangastöðum sem við höfum skipulagt ferðir til, fyrir hópa, á síðustu árum. Hafðu samband og við gerum þér tilboð ( ferðina. • Acapulco • Costa del Sol • Malasia • Austurríkí • Hawaii • Mallorca • Bahamas • Jamaica • Mexico City • Barbados • Japan • NewYork • Barcolona • Kanari • Paris • Benidorm • Kúba • Prag • Boston • London • San Francisco • Brasllfa • LosAngeles • Singapore • Cancun • Madrid • Thailand HEIMSFERÐIR Austurstræti 17, 2. hæð ♦ sími 562 4600. www.heimsferdir.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.