Morgunblaðið - 23.09.1998, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 23.09.1998, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1998 19 ;V: m W jr Rússneska stjórnin fullskipuð í vikulok Meirihlutinn sáttur við skip- an Prímakovs Moskvu. Reuters. BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, féllst í gær formlega á skipulag nýrrar ríkisstjórnar í landinu undir forystu Jevgenís Prímakovs for- sætisráðherra. Nýtur hann stuðn- ings meirihluta Rússa að því er fram kemur í skoðanakönnunum en helmingur þeirra kveðst þó ekki vita hvernig hann eigi að komast af í þeim þrengingum, sem nú era í landinu. Aðstoðarforsætisráðherrar Prí- makovs verða sex og þar af munu tveir bera titilinn fyrsti aðstoðar- forsætisráðherra. Þeir eru komm- únistinn Júrí Masljúkov, sem fer með efnahagsmál, og Vadím Gú- stov, sem fer með byggingarstarf- semi, æskulýðsmál, málefni héraða og þjóðarbrota. Er hann hófsamur og var áður ríkisstjóri í Péturs- borgarhéraði. Aðrir era miðjumað- urinn Alexander Shokhín, fjármála- ráðherra; tæknikratinn Vladímír Búlgak, samgönguráðherra, og hinn íhaldssami Gennadí Kúlík, sem verður landbúnaðar- og mat- vælaráðherra. Oskipað er í eitt embætti aðstoðarforsætisráðherra. Nokkur ný ráðuneyti Stefnt er að því að auka áhrif héraðsleiðtoganna í stjórninni og þeir Víktor Gerasjenkó seðlabanka- stjóri og Júrí Osípov, forseti rúss- nesku vísindaakademíunnar, munu taka þátt í starfl svokallaðs innra ráðuneytis, sem ekki hefur verið skilgreint enn. Innanríkis-, varnarmála- og ut- anríkisráðuneytið munu heyra beint undir forsetann og einnig þau ráðuneyti önnur, sem fara með ör- yggis- og leyniþjónustumál. Komið verður á fót sérstöku ráðuneyti til að fara með auðhringa- og einokun- armál og ráðuneyti þjóðarbrota og ráðuneyti héraðanna munu koma í stað ýmissa annarra ráðuneyta og stjórnarstofnana. Þá verður ráðu- neyti, sem fer með málefni Sam- veldis sjálfstæðra ríkja, enduivak- ið. Um er að ræða nokkrar breyt- ingar aðrar en önnur ráðuneyti eru óbreytt. Búist er við, að búið verði að skipa í öll ráðherraembættin fyr- ir vikulok. Óvissa um afkomuna I skoðanakönnun meðal 1.500 Rússa um landið allt lýstu 67% stuðningi við Prímakov sem forsæt- isráðherra og aðeins 13% vora hon- um andvíg. Þá hefur fækkað þeim, sem telja, að mótmælaaðgerðum muni fjölga á næstu mánuðum, eða úr 75% í 48% á rúmri viku. Rúmlega helmingur kvaðst hins vegar ekki vita hvemig hann ætti að komast af eins og ástandið væri. Frétta- skýrendur benda á, að þessi aukna bjartsýni kunni að verða skamm- vinn. Skoðanakönnunin hafi verið gerð 12. og 13. september þegar rúblan hafði rétt sig aðeins við gagn- vart dollaranum en síðan hefur gengi hennar haldið áfi-am að falla og sér ekki fyrii' endann á því. Tsjernomyrdín argur Víktor Tsjernomyrdín, fyrrver- andi forsætisráðherra, hefur ákveð- ið að sækjast ekki eftir sæti í dúmunni, neðri deild rússneska þingsins, en búist hafði verið við, að hann byði sig fram í aukakosning- um í Jamalo-Nenets í Síberíu á sunnudag. Tsjernomyrdín, sem fór mikla sneypufór á þingi eftir að Jeltsín hafði útnefnt hann forsætis- ráðherra, segir í yfirlýsingu, að eftir það, sem á undan sé gengið, geti hann líklega ekki unnið með leiðtog- um þingflokkanna. ORT-.sjónvarps- stöðin rússneska sagði, að þrátt fyr- ir þetta væri Tsjemomyrdín enn staðráðinn í að bjóða sig fram í for- setakosningunum árið 2000. Reuters SUÐUR-AFRÍSKUR hermaður fylgir uppreisnarmömmm sem teknir voru til fanga í Lesotho í gær. S-afrískar hersveitir stilla til friðar í Lesotho Maseru. Reuters. SUÐUR-AFRÍSKAR hersveitir voru í gær sendar inn í grannríkið Lesotho til að stilla til friðar eftir margra vikna ólgu í landinu. Að minnsta kosti átta létust í átökum hermanna og stjórnarandstæðinga í gær, og talið er að um 60 manns hafi særst. I gærkvöldi var allt orð- ið með kyrrum kjöram. Mangosuthu Buthelezi, innanrík- isráðherra Suður-Afríku, sagði fréttamönnum í gær að forsætisráð- herra Lesotho, Pakalitha Mosisili, hefði óskað eftir því að Þróunar- samtök Suður-Afríkm'íkja sendu liðsauka til að stilla til friðar í land- inu, þar sem hann teldi að uppreisn væri yfirvofandi. Stjómarandstæð- ingar hafa undanfamar vikur staðið fyrir fjöldamótmælum í Lesotho, en Nokkurt mannfall í átökum en allt orðið með kyrrum kjörum þeir fullyrða að stjórnarflokkurinn hafi hagrætt úrslitum í þingkosn- ingunum í maí síðastliðnum, þar sem hann hlaut 79 þingsæti af 80. Stjórnarandstæðingar fordæma íhlutun Eftir að fulltrúum Suður-Afríku- stjórnar mistókst um síðustu helgi að koma á samningaviðræðum milli ríkisstjórnar og stjórnarandstöðu í Lesotho var ákveðið að senda 600 hermenn yfir landamærin til að binda enda á ólguna í landinu. Her- sveitirnar mættu nokkurri mót- stöðu við konungshöllina í höfuð- borginni Maseru í gæi-morgun, en þeim hafði síðdegis tekist að bæla niður alla andspyrnu. Nokkuð bar þó á gripdeildum í miðborg Masera í gær, eldsprengjum var kastað að stjórnarbyggingum og bflar með suður-afrískum númeraplötum voru grýttir. Talsmaður stjórnarandstæðinga, Mamello Morrison, fordæmdi íhlut- unina í útvarpsávarpi í gær. Sakaði hún Nelson Mandela, forseta Suð- ur-Afríku, um að senda hermenn til að myrða saklausa borgara, sem berðust fyrir lýðræðislegum rétt- indum sínum. Panasoníc ------------ NV-SD230 Myndbandstæki fyrir þá sem vilja hafa hlutina trausta og einfalda Nú bjóðum við í tilefni 20 ára afmælis okkar Panasonic SD230 myndbandstæki. Tækið er sérlega áreiðanlegt og traust fjölskyldutæki og þægilegt í allri notkun. Tækið er með N.T.S.C. afspilun, barnalæsingu og fjöldanum öllum af frábærum eiginleikum sem myndbandstæki af bestu gerð prýða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.