Morgunblaðið - 23.09.1998, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 23.09.1998, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ í DAG Arnað heilla (\pTÁRA afmæli. í dag, Omiðvikudaginn 23. september, er níutíu og flmm ára Bergljót Þor- steinsddttir, fyrrv. hús- freyja, Byggðaholti, Ldni, Austur-Skaftafellssýslu, nú vistmaður í Skjdlgarði, Höfn í Hornaflrði. BRIDS llmsjón Guðiniinilur l'áll Arnarson STERKU laufkerfin voru allsráðandi í úrslitaleik bik- arkeppninnar, en öll pörin í sveitum Marvins og Ár- mannsfells spila einhvers konar útgáfu af Precision. Laufopnunin er auðvitað sérstaklega viðkvæm fyrir hindrunarsögnum og á það reyndi í þessu spili úr síð- ustu lotunni: Suður gefur; enginn á hættu. Vestur ♦ 43 ¥ KD74 ♦ G1042 ♦ 1085 Norður ♦ ÁK ¥ G82 ♦ ÁKD6 ♦ G432 Austur ♦ DG108765 ¥109 ♦ 987 *Á Suður ♦ 92 ¥ Á653 ♦ 53 ♦ KD976 Vestnr Norður Austur Suður Ö. A. S.S. G.R.J. S.Þ. SÁ J.K. PJ. A.J. - - - Pass Pass 1 lauf 3 spaðar ??? Eftir sterka laufopnun norðurs (16+ HP) hinduðru bæði Guðlaugur R. Jóhannsson og Þorlákur Jónsson í þrjá spaða. Sú sögn setur mikinn þrýsting á suður, sem á ágæt spil eft- ir upprunalegt pass og hugsanlega nóg í slemmu á móti góðri laufopnun. Sæv- ar Þorbjömsson valdi að dobla neikvætt og við því sagði Sigurður Sverrisson þrjú grönd. Það reyndist einfalt spil upp á tíu slagi. Á hinu borðinu sagði Aðalsteinn Jörgensen fjög- ur lauf og fór þar með fram- hjá grandgeiminu. Sagnir enduðu svo í fimm laufum. Þorlákur kom út með spaða- drottningu, sem Jakob Kristinsson tók og fór í trompið. Þorlákur fékk á trompásinn og spilaði aftur spaða. Jakob tók tvö tromp í viðbót, síðan þrjá efstu í tígli og trompaði tígul. Loks spilaði hann hjartaás og meira hjarta. Hann þóttist vita að austur ætti tvílit í hjarta og var að vona að það væri Kx eða Dx. I þeirri stöðu á vörnin tvo vonda kosti: Annaðhvort fær aust- ur hjartaslaginn og verður að spila út í tvöfalda eyðu; eða hann afblokkerar, en þá verður hjartagosi sagnhafa slagur. En vestur átti hjartahjónin, svo vörnin fékk þar tvo slagi: einn nið- ur. Jakob átti raunar kost á betri leið, sem tryggir ell- efta slaginn ef austur á tví- spil í hjarta. Hann gefur einfaldlega slag á hjarta og tekur öll trompin. Vestur þvingast þá í rauðu litunum. Q/\ARA afmæli. Niutíu í/l/ára er í dag, miðviku- daginn 23. september, Sigríður Kristinsddttir, Víðilundi 24, Akureyri. Hún tekur á móti ættingj- um og vinum frá kl. 16 á af- mælisdaginn í Heiðarlundi 4e. 0/\ÁRA afmæli. í dag, O Vfmiðvikudaginn 23. september, verður áttræð Helga Jdnsddttir, Framnes- vegi 42, Reykjavík. Helga er stödd erlendis á afinæl- pTOÁRA afmæli. í dag, O \/ miðvikudaginn 23. september, er fimmtugur Jón Karl Kristjánsson múr- arameistari, Fjarðarseli 6, Reykjavík. Eiginkona hans er Agústa Hafdís Finn- bogaddttir sjúkraliði. Þau verða að heiman á afmælis- daginn. JT OÁRA afmæli. Á +/ v/morgun, fimmtudag- inn 24. september, verður fimmtugur Þorlákur Helga- son, fræðslustjóri Árborg- ar. Þorlákur býður vinum og vandamönnum heim í Artún 13 á Selfossi í morg- unkaffi að morgni afmælis- dags milli kl. 6.30 og 9. Með morgunkaffinu ÉG er ekkert ósáttur við að þú skulir vilja giftast ddttur minni, en af hverju tekurðu púls á mér í hvert sinn sem ég býð gdðan dag? SKÁK Uinsjón Margeir Pétursson STAÐAN kom upp í ár- legri keppni bestu skákkvenna heims við öfluga öldunga. Kínverska stúlkan Xie Jun orgíu T/z v. af 12 möguleg- um, Zhu Chen, Kína 7 v., Pia Cramling, Svíþjóð 6'/2 v., Nana Ioseliani, Ge- orgíu og Xie Jun báðar 5‘/2 v. og Ketevan Arakhamia, Englandi 4 v. Öldungamir: Viktor Kortsnoj 9 v., Boris Spasskí 7‘/2 v., Vlastimil Hort 7 v., Lajos Portisch (2.510) hafði hvítt og átti leik gegn Rússan- um Mark Taimanov (2.455). 28. Bxf7+! - Hxf7 29. Hg8+ Hf8 30. Hxf8+ og Taimanov gafst upp. Eftir 30. - Kxf8 31. Hxd7 blasir mátið við. Keppnin var óvenju jöfn og spennandi að þessu sinni, en í ár fór mótið fram í Roquefort í Frakklandi. Stúlkurnar unnu stórt í síðustu umferð og jöfnuðu metin, en niðurstaðan varð 36-36. Árangur kvennanna: Maja Tsjíburdanidze, Ge- HVÍTUR leikur og vinnur. og Vasílí Smyslov 5 v. og Taimanov 2/2 v. Allir þessir meistarar voru með í keppninni Sovétríkin-heimurinn árið 1970, þar sem teflt vai- á tíu borðum. STJÖMUSPÁ eftir Franccs llrakc Aímælisbarn dagsins: Með örlítið heflaðri frmnkomu gætir þú verið hvers manns hugljúfí. Mundu að oft má satt kyrrt liggja. Hrútur (21. mars -19. apríl) Það stefnir í átök með þér og samstarfsmanni þínum. Gættu þess að láta reiðina ekki ná tökum á þér því þá ertu dæmdur til þess að verða undir. Naut (20. apríl - 20. maí) Nýir kunningjar koma með ferskan blæ inn í líf þitt. Gættu þess að stíga á brems- urnar svo þú farir ekki of geyst upp tÖfinningaskalann. Tvíburar _ (21. maí - 20. júní) rtA Nú verður þú að láta heilsu þína ganga fyrir öllu öðru. Lægðu öldur áhyggjanna með því að leita þér lausnar í hug- og líkamsrækt. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Sú stund rennur upp að það er í lagi að kasta öllum alvar- legum ráðagerðum fyrir róða og leika sér bara eins og bam. Ljón (23. júll - 22. ágúst) Þú þarft að treysta á hugboð þitt þegar þú stendur frammi fyrir viðkvæmu og vandasömu máli. Enda þótt fjármálahliðin sé á hreinu er fleira að athuga. Meyja (23. ágúst - 22. september) utmL Þú ert boðberi hinna góðu tíðinda og þarft ekki að fyrir- verða þig þótt þú baðir þig í þakklæti viðkomandi. (23. sept. - 22. október) ra Þér finnst hægt miða með starfsframann en vertu ró- legur. Breytingai-nar bíða handan homsins og það skiptir öllu máli að standa sig þangað. Sþorðdreki (23. okt. - 21. nóvember) Þú þarft að taka á honum stóra þínum til þess að ljúka við verkefni dagsins en þú ert líka vel í stakk búinn til slíks áhlaups. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) Það færi best á því að þú haldir þér til hlés í viðkvæmu vandamáli. Tíminn vinnui' með þér svo geymdu alla mn- fjöllun þar til síðar. Steingeit (22. des. -19. janúar) Þig vantar aðeins loka- stykkið til þess að allt gangi upp. Vertu óhræddur við að ganga í smiðju hjá öðmm til þess að klára verkið. Vatnsberi (20. janúar -18. febrúar) Þú þarft að setja þér takmark með öllu þínu athæfi svo að málin reki ekki á reiðanum og þú missir öll tök á tilverunni. Fiskar +',.\ (19. febrúar - 20. mars) >♦*» Leyfðu þínum listrænu hlið- um að njóta sín. Þú ert hald- inn sköpunarþrá og ættir að veita henni útrás hið fyrsta. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1998 43 ^ Þau vítamín og næringarefni sem mjólkin hefur að geyma gegna mikilvægu hlutverki í daglegu lífi okkar alla ævi. Látum aldrei vanta mjólk á okkar heimili. Tryggðu þér flugsæti til London með Heimsferðum frá kr. 24.790 Flug alla fimmfudagaogmánin úaga i október og nóvember Lundúnaferðir Heimsferða hafa fengið ótrúleg viðbrögð og nú er uppselt í fjölda brottfara í vetur. Heimsferðir kynna nú fjórða árið í röð, bein leiguflug sín til London, þessarar vinsælu höfuðborgar Evrópu, og aldrei fyrr höfum við boðið jafn hagstætt verð og jafn gott úrval hótela. Tryggðu þér sæti á lága verðinu meðan enn er laust. Glæsileg ný hótel í boði Plaza- hótelið, rétt við Oxford-stræti. Flugsæti til London Verð kr. 24.790 Flugsæti til London með flugvallar- sköttum. Flug og hótel í 4 nætur, helgarferð Verð kr. 29.990 Sértilboð 8. október, Ambassador- hótelið, 4 nætur í 2ja manna herbergi. íslenskir fararstjórar Heimsferða tryggja þér örugga þjónustu í heimsborginni Brottfarir I. okt., uppseit 5. okt., 11 sæti 8. okt.. 21 sæti 12. okt., 18 sæti 15. okt., uppselt 19. okt., örfá sæti 22. okt. 11 sæti 26. okt. 29. okt. 2. nóv. 5. nóv. 9. nóv. 12. nóv. 16. nóv. 19. nóv. 23. nóv. 26. nóv. Austurstræti 17, 2. hæð ♦ sími 562 4600. www.heimsferdir.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.