Morgunblaðið - 23.09.1998, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 23.09.1998, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1998 FRETTIR MORGUNB LAÐIÐ .Herjólfur hægir á vid kví Keikós Hafnarstjóri f Vestmannaeyjum hefur beðið skipstjóra Herjólfs að hægja á ferð skipsins j þegar siglt er fram hjá Klettsvíldnni, þar sem EYJAMENN verða nú að sitja og standa eins og Húsavíkurmóra þóknast . . . Spóatífa MorgunblaðiðAann Kolbeinsson Hringmáfur Litrik, orugg og skemmtileg Fást í leikfangaverslunum, bóka- og ritfangaverslunum, stórmörkuðum og W 1 matvöruverslunum "jF um allt land. PE_ ---DREÍF1NGARA€UU~ EEEfflBMSHHEi Sfmi: 533-1999, Fax: 533-1995 FtetverPrice Flæking- ar á ferð ÞRÁTT fyrir norðlægar áttir á tímabili fyrr í mánuðinum hafa fundist tveir sjaldgæfir flæk- ingsfuglar. Hringmáfur á 2. vetri sást í Húsdýragarðinum en talsvert hefur borið á þessari máfateg- und á þessu ári. Hringmáfar verpa í Norður-Ameríku en eru reglulegir að vetrarlagi í Evrópu. Þá sást spóatífa við Hafur- bjarnastaði á Miðnesi. Þessi vaðfugl verpir í Síberíu og hefur viðkomu í Evrópu á leið sinni til og frá Afríku. Þær sjást reglulega hér á landi þó mest á haustin. Ungfuglar eru líkir lóuþrælum en eru stærri með lengri gogg og öðruvísi bringumynstur. Aðferðir tii að meta ferskleika fisks Þörf fyrir ferskleikamæl- ingar er brýn Guðrún Ólafsdóttir FAIR FLOW ráð- stefna um aðferðir til að meta ferskleika fisks verður haldin hér á landi á Hótel Loftleiðum þriðjudaginn 29. septem- ber næstkomandi. Guðrún Ólafsdóttir verður með er- indi á ráðstefnunni. - Fyrir hvað stendur FLAÍR FLOW? „Það er átak sem Evr- ópusambandið styrkir til að koma á framfæri rann- sóknum sem styrktar hafa verið af Evrópusamband- inu. Þetta er fyrsta ráðstefnan sem haldin er hér á landi en alls verða þær fjórar á næstu tveimur árum. Rannsóknarstofnun fisk- iðnaðarins er tengiliður átaksins hér á landi og því er það okkar hlutverk að koma á fram- færi þessum verkefnum til iðnað- arins.“ - Hvaða verkefni verða kynnt á ráðstefnunni? „Þetta eru tvö verkefni sem verið er að kynna, annað er sam- skiptaverkefni sem kallast Mat á ferskleika fisks og þar er ég verkefnisstjóri. Hitt verkefnið kallast tölvuvætt skynmat í fisk- vinnslu og þeir sem kynna það eru Emilía Martinsdóttir hjá RF og Ólafur Magnússon hjá Tækni- vali. Þá kynna tveir aðilar úr fisk- iðnaði sem meta þörfina fyrir gæðamælingar. Annar þeirra er Andrew Pepper frá bresku mat- vörukeðjunni Teseo og hinn er Hjördís Sigurðardóttir, gæða- stjóri Bakka á Bolungarvík. - Hvert var markmiðið með verkefninu? „Verkefnið um mat á fersk- leika fisks er samskiptaverkefni og þátttakendur í því eru frá 14 löndum í Evrópu. Markmiðið var að samræma og meta mismun- andi aðferðir sem notaðar eru við ferskleikamat á fiski. í verk- efninu voru myndaðir vinnuhóp- ar á mismunandi fagsviðum um ferskleikamat fisks. Fjallað var m.a. um örverufræði, breytingar á fitu, próteinum og niðurbrotsefnum sem myndast við skemmd á fiski. Einnig eðlis- fræðilegar aðferðir og skynmat.“ - Hverjar voru niðurstöðurn- ar? „Þær eru í aðalatriðum að nú er komið mjög gott yfirlit yfir rannsóknir á sviði ferskleika- mælinga og gefið var út mjög ít- arlegt ráðstefnurit í tengslum við lokafund verkefnisins sem haldinn var í Frakklandi í nóv- ember á síðasta ári. í verkefninu kom í ljós að mik- ill áhugi er á að koma á sam- ræmdri skynmatsaðferð í Evr- ópu sem hægt er að nota yfir alla keðjuna frá veiðum og til neyt- enda. Sú fiskflokkun sem lýst er í tilskipunum Evrópusambands- ins fullnægir engan veginn þeim kröfum sem gerðar eru í dag til gæðamats á fiski.“ Guðrún segir að niðurstaðan sé sú að sú aðferð sem mest er notuð í iðnaði til að meta fersk- leika er skynmat. Stefnt er að því að samræma og bæta aðferð- ir sem notaðar eru við skynmat og mælt var með gæðastuðulsað- ferð, svokallaðri QIM aðferð sem kynnt verður á ráðstefnunni sem ► Guðrún Ólafsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1958. Hún lauk BS-prófi í matvælafræði frá Há- skóla íslands árið 1980 og MS- prófi í matvælafræði frá háskól- anuin i Wisconsin í Bandaríkjun- um árið 1985. Guðrún hefur starfað á Rann- sóknastofnun fiskiðnaðarins frá árinu 1988 og er verkefnisstjóri í Evrópuverkefni um ferskleika- mat á fiski. Hún hefur unnið að fjölmörgum rannsóknarverkefn- um á því sviði, m.a. þróað rafnef sem hraðvirka aðferð til að meta ferskleika fisks. Eiginmaður Guðrúnar er Magnús Sigurðsson efnaverk- fræðingur og eiga þau þrjú börn. tölvuvætt skynmat í fiskvinnslu. -Út á hvað gengur tölvuvætt skynmat í fiskvinnslu? „í gæðastuðulsaðferðinni eru margir gæðaþættir metnir fyrir hvert sýni, t.d. augu, tálkn og roð. Hver gæðaþáttur fær ein- kunn 0-3 eða 0-2 eftir vægi og einkunnirnar eru síðan lagðar saman og gefa gæðastuðul sem fylgir beinni línu eftir geymslu- tíma í ís. Aðferð þessi hefur ver- ið kennd á skynmatsnámskeið- um RF og hefur reynst afar hentug við kennslu og þjálfun matsmanna. Gallar við aðferðina hafa verið taldir að hún er seinleg og til að ráða bót á því þyrfti að tölvuvæða aðferð- ina annaðhvort með því að koma henni á handtölvur eða tengja við tölvukerfi í vinnslunni. Tæknival er að vinna að þessari tölvuvæðingu í samstarfi við RF, Bakka á Bolungarvík og Fisk- markað Suðurnesja ásamt RIVO-DLO rannsóknastofnun- inni í Hollandi og tveimur fisk- mörkuðum þar í landi.“ -Hver er þörfín í fiskiðnaði fyrir ferskleikamælingar? „Það kom mjög sterkt fram á ráðstefnunni í Frakklandi að þörfin er mjög brýn og þetta koma þau Andrew og Hjördís til með að fjalla um á ráðstefnunni. Sífellt eru gerðar auknar kröfur um gæði og skrásetningu frá kaupendum og það er þörf fyrir hraðvirkar og viðurkenndar mælingar." Guðrún bendir á að nánari upplýsingar fáist á heimasíðum verkefnanna en þær eru: http://www.rfisk.is/verkefni/l 139 og http://qimit.rfisk.is Samræmd skynmatsað- ferð í Evrópu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.