Morgunblaðið - 23.09.1998, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Flugleiðir kanna markaði í Rússlandi og öðrum ríkjum Austur-Evrópu
Markaðssljóri
Heklu hf.
Yilja helst Sankti Pétursborg
en Rússar bjóða Moskvu
ÁHUGI Flugleiða á hugsanlegu
flugi milli Islands og Rússlands
beinist helst að Sankti Pétursborg
sem áfangastað en fulltrúar Rússa
í viðræðum um væntanlegan loft-
ferðasamning landanna hafa ekki
viljað ljá máls á öðrum áfangastað
en Moskvu, að því er Pétur J. Ei-
ríksson, framkvæmdastjóri við-
skiptaþróunarsviðs Flugleiða,
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær.
Pétur segir talsverðan tíma
munu líða þar til Flugleiðir hefji
hugsanlega flug milli landanna,
jafnvel þótt loftferðasamningur
komist á. Efnahags- og stjómmála-
ástand í Rússlandi sé með þeim
hætti um þessar mundir að óvissa
ríki um uppbyggingu viðskipta.
Telur hann allt eins víst að tvö til
þrjú ár geti liðið þar til nýr áfanga-
staður í Rússlandi bætist í net
Flugleiða.
Með flugi milli Helsinki og Is-
lands hafa opnast möguleikar á
frekara flugi til austurs og segir
Pétur ýmsar markaðsrannsóknir
hafa farið fram í þeim efnum.
Varðandi flug til Moskvu segir
hann það erfiðleikum bundið vegna
tenginga í Keflavík. Vél sem færi
frá íslandi að morgni yrði ekki
komin til baka nægilega snemma
til að farþegar gætu haldið áfram
til Bandaríkjanna síðdegis sama
dag þar sem flugtíminn væri það
langur.
Af þeim sökum hefði fyrirtækið
fremur augastað á Sankti Péturs-
borg en Rússar hefðu ekki viljað
fallast á það í bili, horfðu fyrst og
fremst á Moskvu en segðu að
Sankti Pétursborg geti komið til
greina síðar. Pétur sagði ekld hafa
verið ræddar neinar hugmyndir
um samstarf við önnur flugfélög í
þessum efnum.
Sölustarf styrkt í Eystra-
saltslöndum
Pétur segir Flugleiðir vera að
styrkja mjög sölustarf sitt í Finn-
landi og Eystrasaltslöndunum en
hægt er að tengja flug frá þeim við
flug Flugleiða til dæmis fl'á
Helsinki eða Stokkhólmi. Hann
segir hugmyndina að fljúga til
Helsinki að minnsta kosti fram eft-
ir næsta vetri og síðan áfram
næsta sumar og telur að það taki
kringum þrjú ár að byggja upp
nýjan áfangastað. Ætlunin sé að
byggja upp samband við austur-
hluta Evrópu gegnum Helsinki.
Að öðru leyti sagði Pétur að
ákveðið hefði verið að staldra við í
uppbyggingu nýrra áfangastaða í
bili, félagið hefði vaxið hratt síðustu
misserin og nú væri aðalatriðið að
gera betur á núverandi áfangastöð-
um.
Borgarráð leyfír gerð mislægra gatnamóta Miklubrautar og Skeiðarvogs
Fyrsti áfang-
inn boðinn út
BORGARRÁÐ hefur staðfest
framkvæmdaleyfí fyrir mislæg
gatnamót við Miklubraut og
Skeiðarvog en skipulagsstjóri rík-
isins hefur úrskurðað vegna mats
á umhverfisáhrifum og heimilað
framkvæmdina. Áætlaður heildar-
kostnaður er um 500 milljónir
króna.
Að sögn Ólafs Bjarnasonar, að-
stoðarborgarverkfræðings, hefur
fyrsti áfangi verksins verið boðinn
út og er gert ráð fyrir að fram-
kvæmdir hefjist í október nk. en
steftit er að verklokum næsta haust.
í fyrsta áfanga verða gerð ný
gatnamót til bráðabirgða og verða
þau austan við núverandi gatna-
mót Miklubrautar og Skeiðarvogs
en gert er ráð fyrir að loka Skeið-
arvogi í núverandi mynd eftir ára-
mót og verður sá hluti lokaður á
meðan á framkvæmdum stendur.
Jafnframt verða í fyrsta áfanga
gerð undirgöng fyrir gangandi
vegfarendur undir væntanlega
vegslaufu og gróf fylling lögð und-
ir vegslaufu í norð-vestur horni
gatnamótanna. Áætlaður kostnað-
ur við áfangann er um 50 milljónir
króna.
Seinni áfanginn verður boðinn
út í desember en það er aðalhluti
verksins, sjálf brúargerðin, aðal-
fyllingar og vegslaufur. -Reiknað
er með að vinna við þann áfanga
geti hafíst upp úr næstu áramót-
um og að vegtengingum verði lok-
ið 1. september á næsta ári en eft-
ir það tekur við frágangsvinna.
mm
Breytingaskeiðið
tlOf 1108 VGl
getun veriö besta tímabíl ævinnar
Hjúkrunarfræöingur kynnir öflugu
Menopace
vítamín og steinefnablönduna
ætluö konum um og eftir fertugt
/ . ..
14-18
Menopace
Hentugur valkostur
fyrir konur um og eftir
breytingaraldur.
Auðvelt - aSeins 1 hylki á
dag með máltíð.
O
VITABIOTICS
flpótek Norðurbæjar
Miðvangi 41, S. 555 3966
Andlát
EIRÍKUR
BJÖRNSSON
LÁTINN er Eiríkur
Bjömsson, bóndi og
rafvirki í Svínadal í
Skaftártungu, Vestur-
Skaftafellssýslu. Eirík-
ur var fæddur 5. des-
ember árið 1900, sonur
hjónanna Vigdísar Sæ-
mundsdóttur og Björns
Eiríkssonar í Svínadal.
Eftirlifandi kona_ Eiríks
heitir Ágústa Ágústs-
dóttir og dvelur hún á
hjúkrunarheimilinu á
Kirkjubæjarklaustri.
Böm þeirra eru Sigur-
dís Erla Eiríksdóttir,
Björn Eiríksson rafvirki og Ágúst
H.S. Eiríksson rafvélavirki.
Eiríkur var um órabil einn af
frumkvöðlum við rafvæðingu lands-
ins. Hann smíðaði
túrbínur og setti upp
rafstöðvar við sveita-
bæi víða um land. Ei-
ríkur nam sín fræði að
mestu af Bjarna Run-
ólfssyni í Hólmi og var
kominn á þrítugsaldur
þegar hann hóf afskipti
sín af rafmagninu. Efth'
nokkurra ára samstarf
við Bjarna í Hólmi hóf
Eiríkur að setja upp
vatnsaflsstöðvar fyrir
bændur, sem óskuðu
þess og munu þær hafa
orðið um 50 talsins sem
hann setti upp á áratuga löngum
starfsferli sínum. Eiríkur var sæmd-
ur Riddarakrossi hinnar íslensku
fálkaorðu árið 1986.
Birting
auglýsing-
arinnar
mistök
GÍSLI Vagn Jónsson, markaðsstjóri
Heklu hf., segir að um mistök hafi
verið að ræða þegar auglýsing frá
fyrirtækinu með bami ofan á þvotta-
vél birtist í tímaritum eftir að Sam-
keppnisstofnun hafði beint þeim til-
mælum til Heklu hf. að hætta birt-
ingu auglýsingarinnar. Samkeppnis-
ráð hefur nú bannað fyrirtækinu
birtingu auglýsingarinnar, eins og
sagt var frá í Morgunblaðinu í gær.
Gísli segir ástæðu þess að auglýs-
ingin birtist vera mannleg mistök
vegna sumarleyfa. Röng filma hafi
birst. Sú rétta, sem hafi átt að birt-
ast, hafi sýnt barnið fyrir framan
þvottavélina.
Gísli sagði aðspurður að aldrei hafi
annað staðið til en fara að tilmælum
Samkeppnisstofnunar í þessum efn-
um. Hekla hafi komið athugasemdum
á framfæri við Samkeppnisstofnun
þegar málið hafi komið upp fyrst, en
Samkeppnisstofnun ekki tekið sjón-
armið fyrirtækisins til ^greina og við
því sé ekkert að segja. I kjölfarið hafi
síðan auglýsingin birst vegna mistaka
sem rekja megi til sumarleyfa og þess
einnig að vinnsluferill þeirra tímarita
sem hér um ræðir sé talsvert langur.
------------------
Menntamálaráðherr-
ar íslands og Færeyja
Yfírlýsing'
um samstarf
SIGNAR á Brúnni, menntamálaráð-
herra Færeyja, og Bjöm Bjarnason
menntamálai-áðherra rituðu undir
samstarfsyfirlýsingu um mennta-,
vísinda- og menningarmál Færeyja
og íslands á fundi í Þórshöfn, höfuð-
borg Færeyja, á sunnudag.
í fi’éttatilkynningu frá mennta-
málaráðuneytinu segir að markmið
yfirlýsingarinnar sé að menntamála-
ráðuneytin og þeir skólar og stofnan-
ir aðrar, sem undir þau heyra, veiti
gagnkvæmt liðsinni í starfi á sviði
menntunar, vísindarannsókna og
menningar.
Fjórþætt samstarf
í samstarfsyfirlýsingunni kveður
meðal annars á um að embættis-
menn beggja ráðuneyta hafi með sér
samráð og skiptist á upplýsingum og
reynslu, samstarf verði á öllum
skólastigum, þjóðirnar veiti hvor
annarri ráð og leiðbeiningar eftir
föngum við vísindarannsóknir og
efnt verði til samstarfs þar sem kost-
ur er, auk þess sem samskipti þeirra
verði efld á menningarsviði eftir
megni.
Björn og kona hans, Rut Ingólfs-
dóttir, voru gestir Signars á Brúnni
og Gunnvarar á Brúnni, konu hans.
Þau heimsóttu menningarstofnanir
og skóla í Færeyjum. Einnig flutti
menntamálaráðherra erindi í Norð-
urlandahúsinu í Þórshöfn og ræddi
um sjálfstæðisbaráttu íslendinga.
------------------
Sendibíll í
Yíðidalsá
LÍTILL sendibíll fór út af þjóðveg-
inum við brúna yfir Víðidalsá,
skammt norðan Víðigerðis í Húna-
þingi laust fyrir hádegi í gær. Lenti
bíllinn í ánni og ökumaður slasaðist
nokkuð. Var hann fluttur á spítala í
Reykjavík.
Að sögn lögreglunnar á Blönduósi
var veður þokkalegt og aðstæður
góðar. Lá ekki ljóst fyrir í gær hvað
fór úrskeiðis hjá ökumanni sendibíls-
ins sem var einn á ferð.