Morgunblaðið - 23.09.1998, Side 15

Morgunblaðið - 23.09.1998, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1998 15 VIÐSKIPTI Forsvarsmenn Íslandssíma um væntanlegar nýjungar á símamarkaði hérlendis Greindarnet beinir hring- ingu úr einni símstöð í aðra 1. Hús með venjulega símatenginu LANDSSÍMI ÍSLANDSSÍMI EBfflffl fflfflffl fflfflffl fflfflffl m n 1 t Grunnnetið i ■—» viðskipti við aðra en Landssíma, þá berast hljóðbylgjurnar áfram. 2. Frá símanum berast hljóðbylgjur á ákveðinni rás eftir grunnnetinu yfir í Landssímann sem tekur á móti þessum bylgjum og sendir þær áfram. 4. Hjá Íslandssíma er hljóðbylgjum breitt yfir í upplýsingabita og þeir sendir áfram yfir á intemetið. Með þessu móti er hægt að koma mörgum talbitum fyrir á einni rás (breiðbandi). HIÐ nýstofnaða fyi'irtæki íslands- sími hf., sem undirbýr nú komu sína á íslenskan fjarskiptamarkað og hefur í hyggju að prófa ýmsar nýjungar í síma- og fjarskipta- tækni hér á landi, sér fyrir sér ýmsar breytingar á símaþjónustu hérlendis. Það er skoðun Islandssíma- manna að símanúmer eigi að fylgja eiganda sínum eins lengi og hann kýs, þess vegna ævilangt, þrátt fýrir að hann hætti viðskiptum við eitt fyrirtæki og fari til annars. Tæknin til að flytja númer er þeg- ar til hjá Landssímanum, að þeirra sögn, svokallað greindamet. Þegar er boðið upp á slíka þjónustu í Finnlandi, Bandaríkjunum og Bretlandi, að sögn Islandssíma- manna. En hvemig verður eitt símtal framkvæmt með þeim aðferðum sem Íslandssími sér fyrir sér í þjónustu sinni? Neytandi hringir úr síma sínum og hljóðbylgjur berast út úr húsi og inn í símstöð Landssímans. Þar tekur greindametið við símtalinu og greinir að númerið sé ekki leng- ur í viðskiptum við Landssímann, og fer út úr Landssímanum og inn í stjórnstöð Íslandssíma. Þaðan fer svo símtalið sína leið til móttakand- ans. Ef hins vegar sami notandi ætlar sér að hringja til útlanda fer sím- talið sömu leið í upphafí. Breyting- in verður síðan hjá Íslandssíma þegar símtalið breytist í gagna- pakka sem fer út á netið og í því landi sem viðtakandinn er staðsett- ur breytist pakkinn aftur í venju- legt símtal sem fer inn í línukerfí þess lands og til móttakandans. Íslandssími hefur í hyggju að nota sér það línukerfi sem Lands- síminn á og rekur til þessarar þjónustu og leigja það gegn gjaldi eins og lög kveða á um. Fyrirtækið ætlar sér að bjóða lægri gjöld og segir að það sé mögulegt með því að hafa símstöð- ina mjög sjálfvirka og með því að lágmarka tilkostnað. Ókeypis í framtíðinni? Arnar Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri sölusviðs Islands- síma, segir að í framtíðinni verði nánast jafnódýrt að hringja til út- landa og innanlands og hugsanlega verði símtölin ókeypis þegar aug- lýsingar og virðisaukandi þjónusta verður farin að standa undir rekstrinum. Breytingar eru örar á þessu sviði í heiminum í dag og hann segir að viðskiptavinir Is- landssíma muni verða varir við nýj- ungar vegna þeiiTar stefnu fyrir- tækisins að nota Islandsmarkað sem tilraunamarkað fyrir nýjungar í símaþjónustu. Arnar segir Islendinga nota far- síma, kreditkort, einkatölvur, intemet og stafræn símkerfí meira en flestar þjóðir. Framundan er samrunaferh þessara þátta og mun starfsemi Islandssíma markast af því. Meðal þess sem Islendingar gætu fengið að prófa væri frekari þróun farsíma, annarra en GSM- síma, svokallaðra Breiðbands eða WCDMA-síma. í þeim mun t.d. verða hægt, að sögn talsmanna fyr- irtækisins, að horfa á viðmæland- ann á skjá símans, senda myndrit og horfa á sjónvarpið svo eitthvað sé nefnt, allt með hjálp netsins. Frjáls fjöl- miðlun sem- ur um fjöl- bankalán GENGIÐ hefur verið frá 500 milljóna króna fjölbankaláni Búnaðarbanka Islands hf., Landsbanka íslands hf., og ís- landsbanka hf. til Frjálsrar fjölmiðlunar hf. Lánið er loka- stig í fjárhagslegri endurskipu- lagningu félagsins í kjölfar kaupa Sveins R. Eyjólfssonar og Eyjólfs Sveinssonar á 35% hlut Islenska Útvarpsfélagsins í Frjálsri fjölmiðlun í febrúar sl. Með samningnum lækkar fjármagnskostnaður félagsins verulega þar sem um er að ræða endurfjármögnun á öllum skuldum félagsins og verða óhagstæð eldri lán og ýmsar skammtímaskuldir greiddar upp. Auk þess skapast svigrúm til að takast á við ný verkefni í samræmi við markmið félags- ins og stefnumótun, að því er fram kemur í frétt frá Frjálsri fjölmiðlun. Samanlögð velta á liðnu ári 2 milljarðar A undanförnum árum hefur Frjáls fjölmiðlun breyst úr út- gáfufélagi dagblaðs í sam- steypu fyrirtækja á fjölmiðla- og upplýsingamarkaði. A liðnu ári var samanlögð velta Frjálsrar fjölmiðlunar, dóttur- og hlutdeildarfélaga rúmir 2 milljarðar króna. I dag starfa um 350 starfsmenn hjá fyrir- tækinu. Forstjóri Landssímans um afnot af grunnneti Landssímans hf. Rúm túlkun á fjarskiptalögum GUÐMUNDUR Bjömsson for- stjóri Landssímans segir að Is- landssíma standi til boða afnot af línukerfí Landssímans, svokölluðu grunnneti, þ.e. öllum flutningsleið- um sem Landssíminn ræður yfir. Hann segir að það sem Islands- sími hefur gefíð í skyn, að þeir þurfí ekki að byggja eigið línukerfi, grunnnet, sé rúm túlkun á lögum um fjarskipti en segir að þeir geti fengið aðgang fyrir alla þá umferð um helstu flutningsleiðir sem þeir vilja, um línukerfí Landssímans. Aðspurður segir hann að það taki ekki langan tíma í undirbúningi að hleypa öðrum aðila inn á línukerfið, segir það hægt með tiltölulega litl- um fyrirvara. „Islandssími þarf hinsvegar að eiga eitthvað kei'fi til að taka á móti sínum viðskiptavin- um og einnig þurfa þeir að hafa yfir einhverju línukerfí að ráða sjálfir, annaðhvort þráðlausu eða með þræði.“ En af orðum Islandssímamanna að ráða þá ætla þeir ekki að byggja sitt eigið línukerfi? „Mér fínnst það vera rúm túlkun á þeim lögum sem gilda um fjar- skipti. Það liggur ekkert ljóst fyrir ennþá með línulagninu þeirra og ég get ekki svarað því frekar á þessari stundu. Það er venja að þeir aðilar sem bjóða fjarskiptaþjónustu eigi sitt eigið notendakerfi en síðan getur Landssíminn leigt þeim afnot af helstu flutningsleiðum. Annars hafa engar viðræður farið fram um útfærslu á þessum tengingum. Við svöruðum einungis erindi þeirra um afnot af grunnlínukerfínu. Því var svarað og við eigum von á að heyra meira frá þeim,“ sagði Guð- mundur. Hann segir að gott sé að útskýra málið útfrá Tali hf. en þeir eigi sitt eigið radíókerfi. „Þeir eiga sitt kerfí en fá leigða línu hjá okkur til að tengja á milli stöðva. Þeir hafa því sjálfir sambandið við sína viðskipta- vini.“ Að sögn Guðmundar er Lands- símanum skylt, samkvæmt 12. grein fjarskiptalaga, að leigja samkeppn- isaðila línur í grunnkerfinu. Sambærilegt leigugjald og Landssíminn borgar Guðmundur segir að Landssím- inn sé fyrirtæki sem líti á sjálft sig sem fyrirtæki sem tekur upp nýj- ungar og nýja tækni í sína þjónustu og þannig hafi íyrirtækið sent út fréttatilkynningu í ágúst um að þeir muni bjóða upp á símtöl í gegnum Netið. Um leigugjald fyrir línukerfi Landssímans segir hann að keppi- nautar muni leigja aðgang á sam- bærilegum kjörum og fyrirtækið reikni sér sjálft. Fyrirtækið sé í lokafrágangi á því að aðskilja bók- hald grunnkerfisins og annarra þátta í starfsemi þess. Aðspurður um hvort líta megi á línukerfið sem sameiginlega eign þjóðarinnar segir hann að sam- keppnisaðilar eignist ekki sjálfkrafa hlut í því. „Málið er að grunnnetið er kostað af viðskipavinum Lands- símans og okkur ber að gæta hags- muna fyrirtækisins. Það er ekki svo að fjarskiptafyrirtæki sem hefja samkeppni eignist sjálfkrafa hlut í gi-unnnetinu við það eitt að hefja starfsemi, ekkert frekar en að er- lend fyrirtæki sem hingað kæmu eignuðust sjálfkrafa hlut í grunn- kerfínu."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.