Morgunblaðið - 23.09.1998, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1998 17
Rannsókn sprengjutilræðanna
í Austur-Afríku
Tveir ákærðir
í Tanzaníu
Morð í
Tirana
AHMET Krasniqi, einn af leið-
togum sjálfskipaðrar ríkis-
stjórnar Kosovo-Albana í
Kosovo-héraði í Júgóslavíu, var í
gær skotinn til bana í Tirana,
höfuðborg Albaníu. Ekki er
vitað hver stóð að morðinu en
það kemur í kjölfar annars
pólitísks morðs, á albanska
stjómarandstæðingnum Azem
Hajdari, sem olli átökum í síð-
ustu viku.
Afsögn ekki
á dagskrá
DAVID Trimble, leiðtogi
stærsta flokks sambandssinna
og forsætisráðherra á N-írlandi,
sagðist í gær alls ekki hafa í
huga að segja af sér embætti af-
vopnist írski lýðveldisherinn
(IRA) bráðlega, en orðrómur
hafði verið á kreiki um þetta um
helgina.
Stjórnar-
myndun í
Kambódíu?
LEIÐTOGAR stjórnmálaflokk-
anna í Kambódíu hittust í fyrsta
sinn i gær síð-
an kosið var í
landinu í júlí
og áttu viðræð-
ur um myndun
ríkisstjómar.
Stjórnarand-
staðan, undir
forystu Rana-
riddhs prins,
hafði fyrr í
sumar hafnað
niðurstöðum kosninganna og
sagt að þær hefðu ekki verið
framkvæmdar með heiðarlegum
hætti. Fundurinn í gær fór hins
vegar vel fram, að sögn
viðstaddra, og komust þeir að
samkomulagi um að þing kæmi
saman á morgun í fyrsta sinn.
Suharto í
vígahug
RÁÐHERRA í indónesísku
ríkisstjórninni hafði í gær eftir
Suharto, fyrrverandi forseta
landsins, að hann væri reiðu-
búinn að skila fjármunum
geymdum erlendis tækist mönn-
um að sanna að um slíka
fjármuni væri að ræða. Að sama
skapi væri Suharto staðráðinn í
að ákæra hvem þann fyrir
meiðyrði sem ekki tækist að
sanna ásakanir sínar.
Engin spilling
í Danmörku
AFAR lítil spilling erí Dan-
mörku ef marka má nýja
rannsókn sem Transparency
International bh-ti í gær. Stofn-
unin gefur hverju landi einkunn
í samræmi við dóma almennings
og fulltrúa í viðskiptalífi þar í
landi um almenna spillingu í
samfélaginu. Fékk Danmörk
hæstu einkunn, eða 10, og er Is-
land í fimmta sæti með 9,3 á eft-
ir Finnlandi, Svíþjóð og Nýja
Sjálandi. Kamerún rekur lestina
með einungis 1,4 í einkunn.
Rússar fá hjálp
BILL Richardson, orkumál-
aráðherra Bandaríkjanna, til-
kynnti í gær að Bandaríkin
hygðust veita Rússum aðstoð við
að breyta tíu kjarnorkustöðvum,
sem áður vom notaðar til vopna-
framleiðslu, í iðnaðarfyrirtæki.
RANNSÓKNARDÓMARI í
Tansaníu lagði á mánudag fram
ákæru á hendur tveimur mönnum
fyrir aðild að sprengjutilræðinu við
sendiráð Bandaríkjanna í höfuð-
borginni Dar es Salaam 7. ágúst
síðastliðinn. Þrír menn vom látnir
lausir í gær eftir yfirheyrslu í
tengslum við tilræðið, og að sögn
lögreglu veittu þeir mikilvægar
upplýsingar.
Rashid Saleh Hemed frá
Tansaníu og Mustafa Mahmoud
Said Ahmed frá Egyptaland em
ákærðir fyrir að bera ábyrgð á
dauða ellefu manna, sem fórast í
sprengingunni, og eiga yfir höfði
sér dauðadóm, verði þeir fundnir
sekir. Þeir munu koma fyrir rétt í
Tansaníu í október.
Dómarinn lét ekki frekari upp-
lýsingar í té, en dagblöð í Dar es
Salaam skýrðu frá því í gær að
lögregla hefði fundið leifar af
sprengiefni á heimili og í bifreið
Salehs. Ekki er ljóst hvers vegna
gmnur féll á Ahmed, en hann neit-
ar sakargiftum og segist ekki hafa
verið í borginni er sprengingin átti
sér stað.
Yfirvöld í Kenýa hafa staðfest að
tala látinna eftir sprenginguna við
bandaríska sendiráðið í Naíróbí sé
komin upp í 248, en eitt fórnar-
lambanna lést á sjúkrahúsi á
mánudag. Tveir menn hafa verið
ákærðir í New York fyrir aðild að
sprengingunni í Naíróbí, sem átti
sér stað samtímis tilræðinu í Dar
es Salaam.
Ákvörðun um flugskeytaárás
byggð á ágiskunum?
í Washington ber nú á vaxandi
gagnrýni á gagnárás Bandaríkj-
anna á A1 Shifa-efnaverksmiðjuna í
Khartoum, höfuðborg Súdans, 20.
ágúst síðastliðinn. Verksmiðjan var
sögð framleiða efnavopn og tengj-
ast hryðjuverkamanninum Osama
bin Laden, sem bandaríska leyn-
iþjónustan segir hafa staðið að baki
sprengingunum í Kenýa og
Tansaníu.
Nokkmm dögum eftir flug-
skeytaárásina kom upp orðrómur
um að sökum óáreiðanlegra
njósnaupplýsinga hefði röng bygg-
ing verið lögð í rúst, og embættis-
menn hafa nú gefið í skyn að
ákvörðun um árásina hafi að miklu
leyti verið byggð á getgátum.
The New York Times hefur eftir
háttsettum manni innan band-
arísku leyniþjónustunnar að bin
Laden hafi átt í viðræðum við
stjómvöld í Súdan um að þar væm
gerðar tilraunir með efnavopn, sem
hann hugðist nota gegn bandarísk-
um hermönnum í heimalandi sínu,
Saudí-Arabíu. Hann segir að band-
arískir embættismenn hafi þó ekki
vitað með vissu hvort þessi áform
hafi í raun verið komin í fram-
kvæmd, eða hvort A1 Shifa verk-
smiðjan hefði tengst þeim.
Ófullnægjandi upplýsingar
frá Súdan
Fullyrðingar um að upplýsingar
um verksmiðjuna hafi verið
ófullnægjandi þykja trúverðugar í
ljósi þess að erfitt hefur reynst fyr-
ir bandarísku leyniþjónustuna að
afla áreiðanlegra heimilda frá Súd-
an. Bandaríska sendiráðið í
Khartoum hefur verið lokað í rúm-
lega tvö ár, og starfsemi CLA þar
hafa því verið settar skorður.
Einnig hefur verið bent á að árið
1995 hafi komið í ljós að upplýsing-
ar, sem CIA þáði frá erlendum njó-
snara um að hætta steðjaði að
bandarískum borgumm í Kharto-
um, vom ekkert annað en upp-
spuni.
Einn viðmælenda The New York
Times kemst svo að orði að árásin
á A1 Shifa sé aðeins „enn eitt
dæmið um að gripið sé til aðgerða
á grundvelli ófullnægjandi upplýs-
inga frá Súdan“.
Canon l 90
Tölvutengjanlegt laseriax og prentari
Sendingarhraði: 6 sek. miðað við A4
blað (14.400 bps).
Prenthraði: 6 blöð á mínútu.
Prentupplausn: 600 dpi.
Pappirsmeðferð: Prentar á venjulegan
A4 papptr, pappírsbakki með 250 blöðum,
30 blaða frumritamatari.
Vinnsluminni: 138 A4 blaðsíður í
sendingu og móttöku. „Dual Access"
Tekur á móti í minni ef papplr klárast.
NÝHERJI
Skaftahlíð 24 - 105 Reykjavík
Sími: 569 7700 - Fax: 569 7799
www.nyherji.is
a Breiovarpinu
Á Breiðvarpinu em fjórar
stöðvar fyrir þá Evrópu-
sinnuðu, tvær þýskar,
ein ítölsk og ein frönsk.
Það er óneitanlega stór
kostur að geta fylgst með
sjónvarpsefni á öðrum tungumálum en íslensku og ensku
og fá breiðari yfirsýn yfir það sem er að gerast í heiminum.
Pko Sieben - Þýsk stöð með menningar-, skemmti- og íþróttaefni.
ARD - Þýska ríkissjónvarpið.
RAIUNO - ítalska ríkissjónvarpið.
TV5 - Vinsæl og fersk frönsk stöð með fréttir og skemmtiefni.
Á næstunni munu bætast við stöðvar á fleiri tungumálum.
Hvers vegna að tengjast breiðbandinu
| • FJARSKIPTANET MEÐ FRAMTIÐARMOGULEIKA
Með því að tengjast breiðbandinu tryggirðu aðgang þinn að
nýjum fjarskipta- og margmiðlrmarmöguleikum á hverjum tíma.
Þú nærð um 20 sjónvarpsrásum og 20 útvarpsrásum og mun
framboð þeirra aukast á næstunni og nýjungar bætast við.
| • SKÝRARI MYND OG HRADARIINTERNETTENGING |
Myndgæði á útsendu efni eru skýrari en nokkru sinni fyrr.
Flutningshraði Intemetsins verður einnig mun meiri með
tengingu við breiðbandið, en það verður kynnt á næstu vikum.
> EKKERT TAPAST VIÐ TENGINGU
Með tengingu breiðbandsins verður loftnet óþarft en fyrir þá sem
vilja einnig ná Stöð 2, Sýn eða Fjölvarpinu er mælt með að
fagmenn sjái um að tengja saman breiðbandið og loftnet.
> FRÍTT VIÐ TENGINGU
Þegar þú tengist breiðbandinu fylgja frítt með tíu sérhæfðar
útvarpsrásir sem senda út tónlist allan sólarhringinn,
án auglýsinga og kynninga.
Á Music Choice getur hver og einn vahð sína
tegund tónlistar.
FRITT KOSTNAÐARMAT
Innan þriggja daga frá því að þú biður um það, færðu
frítt kostnaðarmat á lokafrágang breiðbandsins.
Hafðu samband í gjaldfrjálst þjónustunúmer, 800 7474^
20.000 HEIMILI EIGA ÞESS NÚ KOST AÐ
TENGJAST BREIÐBANDINU OG MUNU ÞÚSUNDIR
HEIMILA BÆTAST VIÐ Á NÆSTU MÁNUÐUM.
Hringdu strax
OG KYNNTU S>ÉR WIÁLIÐ!
F:M*l7474
1 ( J j y f V ’ J y J J
L