Morgunblaðið - 23.09.1998, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 23.09.1998, Qupperneq 20
20 MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Upptökur Tripp fjöl- faldaðar? ________________ERLENT_______ Clinton þótti standa sig betur en í sjónvarpsávarpi ÞAÐ virðist nær samdóma álit fjöl- miðla í Bandaríkjunum að mynd- bandið af yfirheyrslu Kenneths St- arrs, sérskipaðs saksóknara, yfir Bill Clinton, forseta Bandaríkj- anna, hafi ekki reynst forsetanum jafn skaðlegt og búist hafði verið við. Forsetinn hafi verið nokkuð óstyrkur en staðið sig að öðru leyti vel, haldið stillingu sinni og verið „forsetalegur“ í framkomu. And- stæðingar Clintons benda hins vegar á að hártoganir Clintons um hvað teljist kynlíf og hvað ekki séu lítt aðdáunarverðar. Ólíklegt virð- ist því að nokkur muni breyta af- stöðu sinni til forsetans eftir að hafa séð myndbandið umtalaða og telja bandarískir fréttaskýrendur að sýning þess hafi einungis styrkt menn í þeirri afstöðu sem þeir þeg- ar höfðu mótað sér. Demókratar og repúblikanar eru sammála um að ekkert nýtt hafi í raun komið fram á myndbandinu og því hafi alls ekki riðið yfir sá ,jarðskjálfti“ sem spáð hafði verið. Sagði repúblikaninn Charles E. Grassley frá Iowa, sem situr í öld- ungadeild Bandaríkjaþings, að hann ætti ekki von á því að mynd- bandið hefði áhrif á skoðanir al- mennings. „Miðað við þær vænt- ingar sem bæði fylgjendur og and- stæðingar forsetans kyntu undir er óhætt að segja að sýning mynd- bandsins hafi ekki mælst á Rieht- er-kvarðanum.“ Þingmenn flokkanna voru var- kárir í yfirlýsingum og virtist sem sumir þeirra vildu lítt tjá sig um myndbandið fyrr en þeir vissu hver viðbrögð umbjóðenda þeirra yrðu. Þrátt fyrir það leyndi sér ekki að demókratar glöddust ákaflega yfir því að ekki var að finna neitt á myndbandinu sem gerði stöðu for- setans verri en hún þegar er og telja þeir enda að mál forsetans hafi þegar skaðað möguleika þeirra í væntanlegum þingkosningum nægilega mikið. Repúblikanar voru klofnir í af- stöðu sinni þótt enginn þeirra er tjáðu sig héldi því fram að mynd- bandið bætti nokkru við í málinu gegn Clinton. Héldu sumir því fram að myndbandið yrði enn eitt málið er kæmi forsetanum illa en aðrir gagnrýndu birtingu mynd- bandsins og sögðu Clinton þar hafa haft vinninginn. Kvaðst Tom Korologos, sem m.a. vann fyrir Richard Nixon meðan á Waterga- te-hneykslinu stóð, telja mynd- bandið „stórsigur" fyrir Clinton. „Mér fannst hann standa sig frá- bærlega vel.“ Besta vörn Clintons hingað til? Einn fréttaskýrenda The Was- hington Post hélt því fram í gær að hversu undarlega sem það nú hljómaði þá hefði Clinton á mynd- bandinu lagt á borð sína bestu og áhrifamestu vöm fyrir hegðun sinni í Lewinsky-málinu. Þetta væri nokkuð kaldhæðnislegt þar sem Clinton skaut sér lengi undan því að bera vitni fyrir rannsóknar- kviðdómnum og þegar dómsmála- nefnd þingsins ákvað í síðustu viku að birta myndbandið opinberlega fordæmdi Hvíta húsið þá „ósann- gjömu“ ákvörðun. Fréttaskýrendur The New York Times tóku í sama streng en rifj- uðu í þessu samhengi upp sjón- varpsávarp Clintons frá því 17. ágúst þegar hann viðurkenndi fyrir þjóð sinni að hann hefði átt í sam- bandi við Monicu Lewinsky. I sjón- varpsávarpi sínu hefði Clinton vissulega viðurkennt „óviðeigandi samband" en síðan eytt mestum tíma sínum í árásir á Kenneth St- arr og rannsókn hans sem kostað hefði skattborgara milljónir doll- ara. I vitnisburði sínum fyrr um dag- inn, sem nú hefur verið sýndur op- inberlega, hefði Clinton hins vegar virst fullur iðmnar, hann fór falleg- um orðum um Lewinsky og réðst lítt að Starr og rannsókn hans. „Ósamræmið í ávarpi forsetans um kvöldið og vitnisburðinum fyrr um daginn er svo mikið að við hljótum að spyrja: Hvers vegna valdi Clint- on ekki að flytja sjónvarpsávarp sem var meira í stíl við vitnisburð- inn þar sem honum tókst mun bet- ur upp?“ Segir The New York Times að ekki hefði verið útilokað að Clinton hefði tekist að binda enda á málið, hefði hann flutt ávarp meira í lík- ingu við vitnisburðinn, enda höfðu jafnvel andstæðingar hans gefið í skyn að svo gæti farið ef forsetinn sýndi raunvemlega iðmn. I staðinn hlaut Clinton hins vegar að launum reiði jafnvel sinna helstu banda- manna. Er The Washington Post sam- mála því að Clinton hefði betur haldið sig við þennan tón þegar hann flutti sjónvarpsávarp sitt 17. ágúst. Virðist Clinton hafa gert þau mistök að gera almenningi upp þekkingu á framgangi mála þá um daginn sem almenningur einfaldlega hafði ekki og var því ekki í aðstöðu til að geta skilið eða samþykkt reiði hans í sjónvarps- ávarpinu. Metur blaðið því hlutina svo að birting myndbandsins hafi nú loksins skýrt hugarástand for- setans þá um kvöldið og þannig sett ávarpið 17. ágúst í rétt sam- hengi. Fáir vilja hins vegar spá um hvaða áhrif birting myndbandsins eigi í raun eftir að hafa. Segir The Washington Post að kannski eigi viðbrögð almennings eftir að velta á því hvaða útgáfu þeir sáu af myndbandinu, ekki sé nefnilega nóg að sjá hápunkta vitnisburðar- ins til að fá heildstæða mynd af fundi Clintons og Starrs. Bæði hafi skap Clintons verið af ýmsum toga, í takti við spurningar Starrs og að- stoðarmanna hans, og svo hafi það mikil áhrif að áhorfendur sáu aldrei þá sem spurðu Clinton spjömnum úr, raddir þeirra vom andlitslausar og hljómuðu oft eins og drynjandi barnaskólakennarar sem væm ósáttir við hegðun nem- anda síns. „Bandarískur almenningur hef- ur þegar mótað sér skoðun. Nú vill hann það eitt að þessu máli ljúki,“ segir einn viðmælenda The Was- hington Post. Bætir fréttaskýrandi blaðsins því við að birting mynd- bandsins sé því miður einn naglinn í kistu þess trúnaðartrausts sem eitt sinn ríkti milli almennings og stjómvalda. Washington. Reuters. KENNETH Starr, sérskipaður saksóknari, rannsakar nú hvort átt hafí verið við upptökur sem Linda Tripp, samstarfskona Mon- icu Lewinsky, gerði af samtölum þeirra þar sem sú síðarnefnda lýsti sambandi sínu við Bill Clint- on Bandarílgaforseta. Tripp af- henti Starr upptökumar í tengsl- um við rannsókn Starrs á sam- bandi forsetans við Lewinsky en í skjölum um rannsóknina sem gerð vom opinber á mánudag, kemur fram að upptökurnar hafi að öllum likindum verið fjölfald- aðar. í skjölum Starr kemur fram að Tripp, sem var eitt af mikilvæg- ustu vitnunum í rannsókn hans á forsetanum, er nú sjálf undir smásjánni. „Ef ungfrú Tripp fjöl- faldaði einverjar snældur sjálf eða vissi að þær hefðu verið fjöl- faldaðar, laug hún eiðsvarin fyrir rannsóknarrétti og í yfirlýsingu fyrir rétti," segir talsmaður St- arrs. Tripp afhenti Starr 20 klukku- stunda upptökur í janúar sl. Bandaríska alríkislögreglan skoð- aði snældurnar og komst að þeirri niðurstöðu að hluti þeirra kæmi ekki heim og saman við tækið sem Tripp kveðst hafa notað. Þá á Tripp yfir höfði sér mál- sókn þar sem hún hafi brotið lög Maryland-ríkis er hún tók upp samtölin við Lewinsky. Tripp seg- ist ekki hafa brotið af sér og full- yrðir að Lewinsky hafi haft ein- hveija vitneskju um upptökumar og það að hún punktaði niður hjá sér ýmislegt það sem Lewinsky sagði. Því neitar Lewinsky. Leiðarahöfundar dagblaðanna fjalla um áhrif birtingar yfírheyrslunnar yfír Clinton Myndbandið ræð- ur ekki úrslitum Reuters PALESTÍNUARABI les dagblað, sem fjallar um sýningu myndbandsins með framburði Clintons, í borginni Hebron á Vesturbakkanum í gær. LEIÐARAR helstu dagblaða Bandaríkjanna voru í gær tileinkað- ir myndbandinu með vitnisburði Clintons. Gengur The Wall Street Journal áberandi lengst stórblaðanna í and- stöðu sinni við Clinton og segist al- gerlega ósammála þeim sem telja sýningu myndbandsins sigur fyrir forsetann. Verjendur Clintons vilji reyna að telja Bandaríkjamönnum trú um að Kenneth Starr hafi ein- faldlega vaknað einn daginn „og ákveðið að það gæti verið gaman að eltast við Bill Clinton". Segir blaðið hins vegar að hártoganir Clintons við yfirheyrsluna séu engu lagi líkar og vert sé að muna að forseti Bandaríkjanna hafi engan rétt, frekar en aðrir dauðlegir menn, til að brjóta lögin. Segir blaðið það skoðun sína að það veki nú „við- bjóð“ meirihluta dómkerfisins bandaríska, hvar í flokki sem menn standa, hvemig Hvíta húsið svívirði lög landsins. „Með birtingu mynd- bandsins í gær [fyrradag] tókst Bill Clinton ef til vill að láta svo líta út sem sannleikurinn skipti engu máli. Þjóðin hefur ekki enn kynnst fylli- lega afleiðingum þessa afreks for- setans." Blaðið The Washington Post seg- ir í leiðara sínum að myndbandið hafi tekið af öll tvímæli um það að CÍinton laug fyrir rétti, jafnvel þótt forsetinn sjálfur telji svo ekki vera, um samband sitt við Monicu Lewin- sky. Þetta sé sú vandasama staða sem menn standi frammi fyrir, bæði almenningur og þingmenn. Telur blaðið að ekki sé hægt að líta fram- hjá ósannindum forsetans því með því séu menn að gefa frá sér réttinn til að kvarta hástöfum næst þegar maður í opinberri stöðu fremur meinsæri. Segir blaðið því afstöðu sína áfram vera þá að þingið hefji umræður um málshöfðun til emb- ættismissis og taki síðan að vel ígrunduðu máli afstöðu til þess hvort um slíka málshöfðun verður að ræða. The New York Times gengur ekki jafnlangt í leiðara sínum og segir óvíst hvort bandarísku þjóð- inni og stjórnkerfi hennar sé nokk- ur greiði gerður með því að höfða mál á hendur Clinton. Hitt sé alveg ljóst að ekki megi fórna lögum og rétti, þótt menn vilji gjarnan fyrir- gefa forseta sínum, og hann geti ekki lengur farið fram á það við þjóð sína að hún umberi lygar hans, Clinton verði að gangast við lyginni sem hann hafði í frammi um sam- bandið við Lewinsky. Segir blaðið myndbandið hafa sálfræðilega séð verið „hörku- spennandi" enda mátti þar líta öll hin mörgu andlit Clintons. Hann beitti gamansemi og einnig per- sónutöfrum þeim sem fleytt hefðu honum svo langt. En ekki síður hefði mátt greina reiði forsetans undir niðri yfir „þeim illu öflum sem nú sæktu svo hart að honum án þess að hann hefði nokkuð til þess unnið“. Forsetinn hefði hins vegar ekki misst stjórn á skapi sínu, eins og menn héldu, og það væri sennilega skýringin á þeirri reiði sem Clinton sýndi í sjónvarps- ávarpi sínu um kvöldið. Segir blað- ið að þegar öllu sé á botninn hvolft hljóti menn að hafa meiri áhuga á vandamálum þjóðarbúsins en per- sónulegri stöðu Clintons. Lærdóm- urinn sem draga mætti af birtingu myndbandsins væri sá að kjósend- um væri best þjónað þegar öllum upplýsingum er komið á framfæri án tafar. „Við erum öll Bill Clinton" Evrópskir fjölmiðlar höfðu marg- ir uppi getgátur um að andstæðing- ar forsetans væru að gera valda- stofnunum Bandaríkjanna enn meiri grikk en Clinton sjálfum per- sónulega. Pólska dagblaðið Rze- czpospolita sagði hins vegar að sennilega væri veröldinni mestur greiði gerður ef Clinton segði af sér og í sama streng tók austurríska dagblaðið Der Standard. Breska blaðið The Times sagði Bandaríkjaforseta hafa þurft að þola niðurlægingu sem enginn for- vera hans hefði einu sinni getað lát- ið sér koma til hugar. Samt sem áð- ur hefði Clinton haft stjórn á sér og telur The Times að hártoganir hans hefðu ekki verið „hneykslanlegar miðað við allar aðstæður". Forset- inn hefði að vísu örugglega ekki unnið sér stað.í hjarta Bandaríkja- manna með vafasamri túlkun sinni á því hvað orð eins og „aleinn“ merkti en ekki heldur hefði myndbandið verið sú sprengja sem margir áttu von á. Spáði blaðið því hins vegar að lokum að enn ætti þetta mál eftir að einoka forsíður heimsblaðanna. The Independent taldi hins vegar mikilvægt að þessum „fjöl- miðlasirkus" lyki. Gerði blaðið að umtalsefni þá staðreynd að á meðan veröldin horfði fram á erfið efna- hagsvandamál hefði síðasta stór- veldið ákveðið að eyða tíma sínum í að „pynta“ leiðtoga sinn opinber- lega. Bandaríkjamönnum færi betur að muna að Bandaríkin voru byggð á lögum og rétti einstaklingins. Auðvitað væri forsetinn ekki yfir lögin hafinn en ekki heldur ætti hann að njóta minni réttinda en aðr- ir. Sagði leiðarahöfundur í fram- haldinu að augljóst væri að sóknin á hendur Clinton byggðist ekld á rétt- lætinu heldur flokkspólitík. The Independent kvaðst að lokum telja að Clinton ætti, ef það væri ekki þegar um seinan, að viðurkenna að hann laug fyrir rétti og gangast þannig undir refsingu þingsins því jafnvel þótt brottrekstur hans úr embætti yrði niðurstaðan þá væri í það minnsta yfir því meiri sómi en með því að halda því til streitu að hann hefði ekki logið. Mörg dagblaðanna í Evrópu sögðu Bandaríkin gera sig að at- hlægi í augum alheims með málinu öllu saman og Le Soir í Belgíu lýsti yfir samúð sinni með Clinton. „For- seti Bandaríkjanna á sama rétt á einkalífi og við hin. Hans réttur er okkar réttur. f þessu máli erum við öll í stöðu Bills Clintons.“ Frumlegast í umfjöllun sinni var þó líklega þýska blaðið Hamburger Morgenpost sem ákvað, eftir að les- endur þess höfðu ítrekað kvartað yfir umfjöllun blaðsins, að birta tvær auðar síður í blaðinu en þó með fyrirsögninni „klámfengnar yf- irheyrslur yfir Clinton: við erum búin að fá nóg“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.