Morgunblaðið - 23.09.1998, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 23.09.1998, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1998 33 KRISTÍN MARKÚSDÓTTIR + Kristín Markús- dóttir fæddist í Vestmannaeyjum 26. janúar 1914. Hún lést á Sjúkra- húsi Reykjavíkur 9. september síðastlið- inn og fór útför hennar fram frá Neskirkju 16. sept- ember. Komið er að kveðju- stund. Stína frænka okkar hefur yfirgefíð þetta tilverustig. Stína frænka var uppáhalds- frænka allra í fjölskyldunni og er á engan hallað þó sagt sé að hún hafi verið best. Ef einhver manneskja á skilið að það séu skrifuð um hana eftirmæli þá er það Stína frænka. Hún var ein af þessum fágætu eðal- mennum sem ganga á meðal okkar hér á jörðinni. Stína giftist aldrei en bjó alla tíð með Öldu systur sinni, Eggerti manni hennar og Margréti dóttur þeirra. Stína og Alda voru alltaf nefndar í sömu andrá, og í hugum okkar voru þær óaðskiljanlegar. Stína frænka var einhver besta og hjartahlýjasta manneskja sem við höfum kynnst á ævinni, alltaf reiðu- búin til að leysa hvers manns vanda og binda um sárin hvort sem þau voru af andlegum eða líkamlegum toga. Stína frænka var líka alltaf í góðu skapi, allavega alltaf þegar við hittum hana. Við eigum mjög erfitt með að sjá hana fyrir okkur í fýlu eða vondu skapi, þó við gerum ráð fyrir því að hún hafi eins og allir aðrir átt sínar erfiðu stundir. Hún var afar trúuð og trúrækin og starf- aði í KFUK alla ævi. Þar sem ann- arsstaðar átti hún stóran vinahóp, því að Stína var þannig manneskja að allir löðuðust að henni, ungir sem aldnir. Það voru þrettán Markúsdætur í ættinni. Eldri Markúsdætumar voru sex, þær Hermanía, Markús- ína, Helga, Kristín, Gunnþórunn og Aida. Allar stórbrotnir persónuleik- ar, hver á sinn hátt. Nú lifa aðeins þrjár þeirra, þær Helga, Gunnþór- unn og Alda í hárri elli. Yngri Markúsdæturnar em sjö, þær Helga, Fjóla, Hulda, Svala, Lilja, Árdís og Sædís sonardætur Helgu. Við systurnar höfum alltaf verið stoltar af því að vera spor- göngumenn ömmusystra okkar, enda em þeirra spor vandfyllt og megum við hafa okkur allar við að verða ekki eftirbátar þeirra á öllum sviðum. Ömmusystur okkar héldu alla tíð góðu sambandi sín á milli og kynntust því fjölskyldur okkar vel. Ömmusystram var alltaf boðið til allra merkisviðburða í fjöl- skyldunum þannig að barnabörnin og bama- barnabörnin kynntust þeim. Að sjálfsögðu er mikið um fjölskylduboð hjá svo stórri fjöl- skyldu og var Stína frænka þar alltaf hrók- ur alls fagnaðar. Hún naut sérstakra vin- sælda hjá yngra fólkinu, vegna þess að hún gaf sér alltaf tíma til að fara í leiki og gera eitthvað skemmtilegt með okkur. Hún skildi það að börn þurfa aðhlynningu og athygli. Stór fjölskylduboð gátu oft reynt á þol- rifin í ungdómnum, þar sem allir vom í sparifötunum og máttu helst ekki hreyfa sig. En þá kom Stína frænka eins og frelsandi engill og stakk uppá og stjómaði allskonar skemmtilegum leikjum sem hægt var að leika án þess að ata sig allan út. Fyi'ir þetta verður Stínu frænku aldrei nógsamlega þakkað og veit ég að öll bamabömin í fjölskyldunni taka undir það. Stína frænka var oft í Vindáshlíð og langar mig (Helgu) að minnast þess þegar hún fór með mig og Lindu frænku (barnabam Markús- ínu) frá Ameríku í Vindáshlíð. Þetta gerðist fyrir réttum fjörutíu ámm. Eg var þá sjö ára og eigin- lega of ung til að vera þar ein. En Stína tók mig með, til að vera með Lindu sem þá var níu ára. Hún var í heimsókn á íslandi og talaði bara ensku. En einhvernveginn tókst okkur að gera okkur skiljanlegar eins og börnum einum er lagið og áttum við þar yndislegan tíma sem við báðar munum á meðan við lif- um. Við erum reyndar nýbúnar að rifja hann upp, þegar Linda kom hingað fyrir um tveimur árum. Stína vakti yfir okkur og gaf okkur þarna tækifæri til að kynnast og upplifa nokkuð alveg sérstakt sem við munum og geymum í hjarta okkar eins og fjársjóð. En það var einmitt fjársjóður hjartans sem Stína átti í svo ríkum mæli og var ósínk að gefa öðrum af. Einnig verður að minnast ferða- lagsins sem ömmusysturnar fóru í með alla fjölskylduna á Snæfells- nesið. Það em víst um þrjátíu og fjögur ár síðan. Þá var farið í rútu og vom allir með, sem vettlingi gátu valdið. Það var tjaldað nálægt Stykkishólmi svo að langamma Sig- SVERRIR EINARSSON + Sverrir Einarsson fæddist í Reykjavík 22. september 1936. Hann Iést á heimili sínu, Úthlíð 5 í Reykjavík, 16. sept- ember síðastliðinn og fór útför hans fram frá Dómkirkjunni 22. september. Það em rétt rúm tvö ár síðan ég og mín fjölskylda kynntumst Sverri fyrst, ekki fóm þau kynni vel af stað. Eg var sennilega eitthvað tortryggin út í hann, treysti honum ekki nógu vel fyrir mömmu minni, en móðir mín og hann vom þá byrjuð að draga sig saman. Ekki lét hann það neitt á sig fá, hélt bara sínu striki og vann mig á sitt band. Sverrir var öðlings- maður, hann var góður við okkur öll. Honum fannst gaman að koma til okkar í heimsókn og fá okkur til sín. Alltaf var öllu því fínasta tjaldað til, silfrið alltaf nýpússað og sparistellið notað, ekkert hálfkák þar á bæ. Nokkmm sinnum fómm við upp í sumarbústað til Sverris og mömmu. Þar blómstraði Sverrir, hann var bú- inn að græða þar upp stórt land- svæði og hugsaði um það af stakri nákvæmni. Eftir að hann veiktist hvarflaði hugurinn mikið upp í sum- arbústað og hann saknaði þess að geta ekki unnið í garðinum sínum. Stutt er síðan mamma mín og Sverr- ir giftu sig, það var á laugardegi, sól- in skein og ekki blakti hár á höfði. Dagurinn var svo fallegur, þá trúði ég því að kraftaverkin gætu gerst og ég vonaði svo sannarlega að þau gætu átt langt líf saman. Eitt af því síðasta sem Sverrir sagði við mig var einmitt á þessum degi. Hann sagðist ætla að hugsa vel um mömmu mína, en enginn veit sína ævina fyrr en öll er. Að verða svona heiftarlega veikur eins og Sverrir og deyja eftir nokkurra mánaða baráttu við sjúkdóm sem leggur alltof margan manninn að velli er erfitt en hann var alltaf æðrulaus. Bjartsýnn var hann og til í að berj- ast áfram þó að sennilega væri hann farið að grana að stutt væri eftir. Hann dó heima í ró og næði, sofnaði bara og vaknaði ekki aftur. Ef ég ætti einhvem óskadauðdaga þá vildi ég hafa hann eins og Sverrir fékk, sofna heima hjá mér í faðmi fjöl- skyldunnar. Hvfl í friði. Edda Arinbjarnar. ríður gæti verið á hóteli yftr nóttina, því að hún treysti sér ekki til að sofa í tjaldi. Að sjálfsögðú var geng- ið á Helgafell og vönduðu ungmenn- in sig mikið að horfa ekki til baka og ganga þegjandi upp fjallið til að mega óska sér þegar upp væri kom- ið. Þegar við komum niður þá var spurt hvort við hefðum nú ekki ósk- að okkur einhvers og jú, allir höfðu borið fram einhverjar óskir, það er að segja allir nema Stína. Hún sagð- ist nú ekki hafa þurft neins við og þess vegna hafði hún bara þakkað fyrir allt það sem guð hefði gefið henni. Svona var Stína. Svo um kvöldið stjómaði hún leikjum og söng fyrir ungdóminn eins og henni einni var lagið. Nú þegar Stína frænka er farin, þá er stórt og vandfyllt skarð komið í ömmusystrahópinn. Við Markús- dætur yngri viljum þakka henni samveruna og alla elskuna sem hún sýndi okkur ávallt. Elsku Aida, Magga, Guðbjörn og böm, ykkar missir er mestur. Við biðjum algóð- an guð að vera með ykkur og líkna ykkur í sorginni. Helga, Fjóla, Hulda, Svala, Lilja, Árdís og Sædís Markúsdætur. Svo er endar ógn og stríðin, upp mun renna sigurtíðin, oss þá kallar heim til hallar himna Guð, er lúður gjallar. (Sr. Friðrik Friðriksson.) Þetta yndislega erindi úr sálmi sr. Friðriks Friðrikssonar orðar svo vel hinstu kveðju mína til Kristínar Markúsdóttur. Að loknu sjúkdóms- stríði er sigurinn unninn, fullnaðar- sigur. Raunveralegur sigur dauð- vona manneskju felst nefnilega ekki í tímabundinni frestun andláts held- ur í von eilífs lífs fyrir dauða og upprisu frelsarans Jesú Krists. I huganum er vissulega söknuður en þó miklu fremur feginleiki yfir því að stríðinu skuli lokið - og fyrst og fremst þökk fyrir þá fullvissu að Stína sé nú komin heim í dýrð Guðs, endanlega laus úr viðjum sjúkdóma og hrörnunar. Sem unglingur kynntist ég Stínu. I vitund minni og annarra vina Mar- grétar, systurdóttur hennar, var hún Stína frænka. Hún var mikil KFUK-kona og sköraleg í fasi, hvort sem var í ræðustóli á Amtmannsstíg 2B, í vinnuflokki í Vindáshlíð eða í sam- ræðum heima í stofu. Hún hafði til- einkað sér einkunnarorð sumar- starfs KFUK í Vindáshlíð: Vertu trú! í minningunni ber Stína frænka með sér reisn og myndugleik. Það var sjálfsagt að virða hana, taka mark á henni. Mér fannst hún bæði ströng og hlý en umfram allt var hún einlæg og sönn í trú sinni og þjónustu í kristilegu starfi. Að leiðarlokum vil ég þakka Stínu fyrir allt gott í minn garð. Aðstand- endum votta ég hluttekningu. Mættum við öll vera trú allt til dauða og öðlast kórónu lífsins. Ólafur Jóhannsson. Skilafrestur minning- argreina EIGI minningargi'ein að birt- ast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: I sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á fóstudag. í mið- vikudags-, fimmtudags-, föstu- dags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna skilafrests. + Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, dóttir og amma, RAGNHEIÐUR KRISTÍN TÓMASDÓTTIR, lést á heimili sínu Breiðuvík 31, þriðjudaginn 15. september. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju föstudag- inn 25. september kl. 15.00. Erling Þór Þorsteinsson, Elísabet Erlingsdóttir, Jón Hafsteinn Ragnarsson, Konný Sif Erlingsdóttir, Hafsteinn Eyrar Jónsson, Sigríður Kristín Christianssen. + Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, KRISTJÁN SÆVALDSSON, Grænumýri 7, Akureyri, lést sunnudaginn 20. september. Útförin auglýst síðar. Björg Steindórsdóttir, Hulda Kristjánsdóttir, Gestur Jónsson, Þóra Steinunn Gísladóttir og barnabörn. + Móðir okkar, GUÐFINNA GfSLADÓTTIR frá Krossgerði, Berufjarðarströnd, lést á Droplaugarstöðum mánudaginn 21. september. Valborg Eiríksdóttir, Þóra Eiríksdóttir, Elsa Eiríksdóttir. + Ástkær faðir okkar og fósturfaðir, GUNNAR BJARNASON, fyrrverandi hrossaræktarráðunautur og kenn- ari, lést á hjúkrunarheimilinu Eir þriðjudaginn 15. september. Útförin fer fram frá Hvítasunnukirkjunni Fíla- delfíu, Hátúni 2, föstudaginn 25. september kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Minningarsjóð íslenzka hestsins, sem skrifstofa mannafélaga annast um (bankanúmer sjóðsins Minningarsjóð Fíladelfíukirkjunnar. Fyrir hönd aðstandenda, Halldór Gunnarsson, Bjarni Gunnarsson, Gunnar Ásgeir Gunnarsson, Regína Sóiveig Gunnarsdóttir, Margrét Haraldsdóttir. Landssambands hesta- er 311-13-725000) eða + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT FJÓLA GUÐMUNDSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Seljakirkju föstudaginn 25. september kl. 15.00. Ómar Ingólfsson, Elín Edda Benediktsdóttir, Auður Ingólfsdóttir, Þórir Dan Jónsson, Jóna Guðný Jónsdóttir, Heimir Hólmgeirsson, Jón Guðni Ómarsson, Dagný Fjóla Ómarsdóttir, Ásdís Dan Þórisdóttir, Ben Frank Boyce, Margrét Dan Þórisdóttir, Ingólfur Dan Þórisson og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.