Morgunblaðið - 23.09.1998, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 23.09.1998, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1998 39 FRÉTTIR Sel kennt um stirðar sjóbirtings- göngur REYTINGSVEIÐI hefur verið á sjóbirtingsslóðum í Skaftafells- sýslum það sem af er. Veiði er minni en menn höfðu vænst miðað við að venju samkvæmt ætti kraft- ur að vera mikill og góður í göng- um um þessar mundir. Telja kunn- ugir að selur kunni að valda og tefja göngur með nærveru sinni í ósum Kúðafljóts og Skaftár. Hafsteinn Jóhannesson, sveitar- stjóri á Vík, og sjóbirtings- veiðimaður með meiru sagði í sam- tali við Morgunblaðið fyrir skömmu að mikið væri t.a.m. af sel í Kúðafljóti. 15 pundari stærstur I veiðibókina fyrir Hörgsá hefur verið skráður 15 punda birtingur og er það sá stærsti sem vitað er um að hafí veiðst í skaftfellsku án- um það sem af er vertíð. í Hörgsá hafa einnig veiðst fyeir 11 punda og tveir 10 punda. Á sunnudaginn voru komnir um 50 birtingar í veiðibókina, en um tugur þeirra veiddist í apríl. Petta er ekki meira en reytingsveiði og göngur hafa litlar verið. Nýjar tölur eru ekki haldbærai’ frá efri hluta Hörgsár, en þó vitað að veiði hefur verið fremur lítil. Menn hafa slitið upp einn og einn. Um helgina voru komnir um 80 sjóbirtingar á land úr Geirlandsá og bestu hollin voru að fá 11 og upp í 18 fiska á fjórar stangir. Stærsti fiskurinn var 11 punda. Vatnamót Skaftái’, Geirlandsár, Fossála og Hörgsár höfðu aðeins TVEIR vænir sjóbirtingar úr Hörgsá, 4 og 5 punda, ÁSTHILDUR Eiríksdóttir með 11 punda sjóbirting úr Geir- landsá. gefið milli 70 og 80 fiska og menn sem voru þar í lok síðustu viku fengu aðeins fimm þokkalega fiska og eitthvað af smælki. Stærsti birtingurinn af svæðinu var 11 pund. Um 50 fiskar höfðu og veiðst í Fossálum og þar voru stærstu fiskamir 11 og 9 pund. Lítil sjóbirtingsveiði hefur ver- ið í Eldvatni á Brunasandi, aðeins sex höfðu veiðst í haustveiði um helgina, en aftur á móti komu 40 í vorveiðinni. 107 sjóbleikjur hafa verið færðar til bókar í Eldvatni, en mest var bleikjuveiðin seint í júlí og snemma í ágúst. Að undan- fómu hefur veiði verið lítil, helst ki’opp úr bleikjugöngunum, en hún tekur þó orðið fremur illa. Glæðist í Tungufljóti Þrátt fyrir einhvem selagang í Kúðafljóti er sjóbirtingsveiðin í Tungufljóti komin yfir 100 stykki, nánar tiltekið 112 um helgina. Menn sem vora í Fljótinu um helgina fengu sjö birtinga og einn 13 punda lax. Nokki’ir laxar hafa veiðst og milli 50 og 60 bleikjur. Stærstu birtingarnir era 10-11 pund, en sjálfsagt eiga stærri fiskai’ eftir að veiðast. Ný stjórn Heimdallar Leitar stuðnings við málstað Austur- Tímor JUAN Federer, framkvæmda- stjóri alþjóðastuðningssamtaka Austur-Tímor, og hjálparstofnunar við Austur-Tímorbúa (East Timor International Support Center og Timor Aid), en báðar stofnanirnar eru í Ástralíu, verður staddur hér á landi 28. og 29. september. Hann kemur hingað til að kynna þróun mála í Indónesíu og á Austur- Tímor, jafnframt því að leita eftir frekari stuðningi við baráttu Aust- ur-Tímorbúa. Juan Federer er Chilebúi, giftur konu frá Austur-Tímor og hefur verið búsettur í Ástralíu um árabil. Hann er náinn samstarfsmaður José Ramos Horta sem fékk frið- arverðlaun Nobels árið 1996 fyrir baráttu sína í þágu frelsis Austur- Tímor. I fréttatilkynningu segir að Juan Federer hafi fylgst grannt með þróun mála í Indónesíu og þeim viðræðum sem átt hafa sér stað um framtíð Austur-Tímor, jafnframt því að fylgjast með þeirri miklu ólgu og efnahagssam- drætti sem nú einkennir Austur- Asíu. Priðjudagskvöldið 29. sept. kl. 20.30 verður haldinn opinn spjall- fundur á Litlu-Brekku við Bankastræti. Hvernig læra dönsk börn stafsetningu? KRISTIAN Kjær, lektor í dönsku við Kennaraskólann í Holbæk, heldur málstofu á vegum Rannsóknarstofnunar Kennara- háskóla íslands í dag, miðvikudag 23. september, kl. 15.15. Efni mál- stofunnar verður: Hvernig læra dönsk börn stafsetningu? Dönsk stafsetning er álitin erfið- ari en stafsetning annarra norrænna mála enda er munur framburðar og stafsetningar mik- ill. Stafsetningarkennsla í dönsk- um skólum hefur verið viðfangs- efni fræðimanna og kennara um langt skeið, segir í fréttatilkynn- ingu. Á málstofunni mun Kristian Kjær fjalla um mun framburðar og stafsetningar frá kennslufræðilegu sjónarmiði. Kristian Kjær lektor hefur kennt dönsku bæði heima og er- lendis. Hann hefur gefið út nokkr- ar kennslubækur um danskar bók- menntir og hin síðari ár hefur hann einnig gert nokkrar rannsóknir á stafsetningu ung- linga. Málstofan er öllum opin og verð- ur haldin í stofu M-301 í Kennara- háskóla íslands við Stakkahlíð. Gönguferð og sigling HAFNARGÖNGUHÓPURINN stendur fyrir gönguferð og siglingu í tilefni af sex ára afmæli hópsins í kvöld, miðvikudagskvöld. Farið verður frá Hafnarhúsinu að austan- verðu kl. 20 í stutta gönguferð upp í bæ og farnar tvær leiðir til baka, sú yngi’i nokkurra tuga ára gömul. Frá Hafnarhúsinu að vestan- verðu verður svo gengið kl. 20.30 um borð í fræðslu- og skemmti- ferðaskipið Ámes og siglt með ströndinni og út að Sjöbauju. Þaðan inn Engeyjarsund í höfn. Áætlað er að ferðinni ljúki við Hafnarhúsið kl. 23. Boðið verður upp á léttar veiting- ar um borð í Árnesinu, HGH-tríóið leikur, minnst verður árs hafsins og ýmislegt verður sér til gamans gert. Ailir eru velkomnir. Á AÐALFUNDI Heimdallar, félags ungi-a sjálfstæðismanna í Reykja- vík, var kjörinn nýr formaður, Ingvi Hrafn Óskarsson, laganemi. Fráfar- andi formaður, Illugi Gunnarsson, hagfræðingur, gaf ekki kost á sér til endurkjörs. í stjórn Heimdallar voru eftirtaldir kjörnir auk Ingva: Björgvin Guðmundsson, hag- fræðinemi, Viggó Örn Jónsson, starfsmaður Islensku auglýsinga- stofunnar, Ólöf Hrefna Kristjáns- dóttir, stjórnmálafræðingur, Herj- ólfur Guðbjartsson, framhaldsskóla- nemi , Einar Hannesson, lög- fræðingur, Arna Hauksdóttir, BA í sálfræði, Gunnlaugur Jónson, verk- fræðinemi, Árni Heiðar Karlsson, píanóleikai’i, ívar Páll Jónsson, við- skiptafræðinemi, Haukur Örn Birg- isson, laganemi, og Sigurður Kjart- an Hilmarsson, hagfræðinemi. Á aðalfundinum var samþykkt stjórnmálaályktun þar sem segir m.a.: »Heimdallur fagnar þeim árangi-i sem náðst hefur í efnahags- málum í tíð rfldsstjórna Davíðs Oddssonar. Eftir nokkurra ára sam- dráttarskeið hefur hagvöxtur aukist hér á landi og hagur almennings og fyrirtækja batnað. Stöðugleiki í efnahagsmálum hefur verið lykillinn að þessum árangri ásamt ýmsum skrefum í átt til aukins frjálsræðis. Ábyrg forysta Sjálfstæðisflokksins í landsmálum hefur þannig átt ríkan þátt í jafnri og öruggri þróun í átt til betri lífskjara. Heimdallur fagnar því að ríkisstjórnin skuli nú á þessu kjörtímabili hafa náð þeim mikils- verða áfanga að lækka skatta á ein- staklinga og atvinnulíf. Heimdallur telur hins vegar að á undanföraum árum hafi verið of hægt farið í frjálsræðisátt á ýmsum mikilvægum sviðum. Þannig hefur ekki verið tekið á útgjöldum hins opinbera með nægilega góðum árangri heldur hefur bætt staða ríkissjóðs einkum komið til vegna aukinna skatttekna, sem stafa af bættri afkomu heimilanna og at- vinnulífsins. Skref í átt til minni skattheimtu hafa verið of fá og smá og ekki hefur verið farið út í nauðsynlega uppstokkun á skatt- kerfinu. Einkavæðing opinberra fyrirtækja hefur gengið of hægt fyrir sig þannig að ríkisumsvif í at- vinnulífinu eru enn mun meiri en eðlilegt getur talist. Framundan eru því mörg mikil- væg verkefni á sviði efnahags- og ríkisfjármála. Þau helstu eru eftir- farandi: Lækkun ríkisútgalda, lækkun skatta og greiðsla á skuld- um ríkissjóðs. Einkavæðing þeirra fyrirtækja og stofnana ríkisins sem fást við starfsemi sem einka- aðilar eru betur fallnir til að sinna. Af þessum sökum telur Heimdall- ur afleitt að fresta enn sölu ríkis- viðskiptabankanna og telur sér- staklega brýnt að flýta henni. Jafnræði á milli fyrirtækja verði tryggt og áfram haldið á þeirri braut að setja atvinnulífinu al- mennar leikreglur. Einkum þarf að leysa íslenskan landbúnað úr þeim fjötrum sem ríkisvaldið hefur bundið hann í. Heimdallur leggur áherslu á að fyrirtækjum og at- vinnugreinum sé ekki mismunað með skattalegum aðgerðum og hafnar því alfarið sérstökum auðlindaskatti á sjávarútveg. Koma þarf í veg fyrir að séreign- arskipulaginu í íslenskum sjávarútvegi verði kollvarpað með afnámi kvótakei’fis.“ Afmælis- þing Byggða- safns Skag- fírðinga AFMÆLISÞING Byggðasafos Skagfirðinga verður haldið í fyrir- lestrasal Bóknámshúss Fjölbrauta- skóla Norðurlands vestra á Sauðár- ki’óki hinn 26. september. Ásdís Guðmundsdóttir, formaður menningar-, íþrótta- og æskulýðs- nefndar á Sauðárkróki, setur þing- ið, en frummælendur verða Þór Magnússon þjóðminjavörður, Sigríður Sigurðardóttir safnstjóri, Hjörleifur Stefánsson minjastjóri, Hjalti Pálsson skjalavörður, Laurence Johnson, stjórnarformað- ur New Iceland Heritage Museum í Gimli, fyrrverandi formaður Þjóðræknisfélags Islendinga í Vest- urheimi, Tammy Axelsson, for- stöðumaður The New Iceland Heritage Museum, og Valgeir Þor- valdsson ft-amkvæmdastjóri. Um klukkan 14.30 slítur séra Gísli Gunnarsson, forseti sveitarstjóm- ar, afmælisþinginu. Islands- meistaramót í Hornafjarð- armanna ÍSLANDSMEISTARAMÓT í Homafjarðarmanna fer fram í Reykjavík sunnudaginn 18. október nk. og hefst kl. 14 í Veislusalnum í Akoges-húsinu, Sóltúni 3. Keppt er um farandgrip og eignarverðlaun eft- ir listakonuna Kristbjörgu Guð- mundsdóttur. Ski’áning er hjá Jökla- ferðum og þátttökugjald er 1.000 kr. Þrjú „stórmót" verða haldin ár- lega. Þegar hafa verið haldin tvö „heimsmeistaramót“ og eitt „Homa- fjarðarmeistaramót" með þátttöku um 650 manns. Nú er komið að íslandsmeistara- móti í Reykjavík og verður keppninni skipt. Áðalkeppnin verður 18. október og úrslitaumferðin, milli þriggja efstu manna, verður á Broad- way fostudagskvöldið 23. október á sérstöku Homafjarðarkvöldi. ■ FRAMKVÆDMASTJÓRN SUJ hefur samþykkt ályktun þar sem segir: „Um leið og Samband ungra jafnaðarmanna lýsir yfii’ stuðningi við Öiyrkjabandalag íslands í réttlátri baráttu þess fyrir bættum lífsskilyrðum, fordæmum við þá með- ferð sem íslenskir örykjar þurfa að þola.“ Síðar í ályktuninni segir: „Sú staðreynd að tekjutrygging örykja skerðist sem nemur þein-i upphæð tekna maka sem fer umfram 40.000 kr. á mánuði, veldur því að öryrkjar eigi þess vart kost að hefja sambúð, nema þá að verða fjárhagslega háðir maka. Þær aðstæður sem íslenskir öryrkjar þurfa að búa við eru ekki nokkrum manni bjóðandi og til þess fallnar að hneppa þetta fólk í ánauð fátæktar, auk þess sem þetta er ský- laust brot á bæði landslögum og mannréttindasáttmálum.“ ■ ENDURVARPI dagskrár Bloomberg-sjónvarpsstöðvarinnar á Fjölvarpi Islenska útvarpsfélags- ins hefur verið hætt. Vegna tak- mörkunar á fjölda rása íslenska út- varpsfélagsins á örbylgju hefur ver- ið ákveðið að Bloomberg víki fyrir dagskrá nýrrar Bíórásar sem fer í loftið 25. september nk. Áskrifendur Fjölvarpsins hafa eftir sem áður aðgang að dagskrá CNBC sem sinnfr fréttum úr við- skipta- og fjármálaheiminum, segir í fréttatilkynningu frá íslenska út- varpsfélaginu. LEIÐRÉTT Guðni Stefán Pétursson I frétt Morgunblaðsins í gær um að Réttarholtsskóli hefði sigrað á Norðurlandamóti grunnskólasveita í skák var rangt farið með nafn eins í sigurliðinu. Hann var sagður heita Guðni Þór Stefánsson, en hann heitir Guðni Stefán Pétursson. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Rangt nafn í leiklistardómi I leiklistardómi Dimmalimm í blaðinu í gær var leikstjórinn rangnefndur. Hann heitir Ásta Amardóttir. Beðist er velvirðingar á mistökunum. Rangt nafn í myndatexta í frétt blaðsins um samning Netverks við Telia-Mobitel í gær var ranglega farið með nafn Ali Mobli í myndatexta. Beðist er velvirðingar á mistökunum. SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF I.O.O.F. 7 » 18009238'/2 = I.O.O.F. ' = 1792398’/! = 9.I. □ GLITNIR 5998092319 I Fjhst. Hörgshlíð 12. Boðun fagnaðareríndisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00. éSAMBAND ÍSLENZKRA r kristniboðsfélaga Háaleitisbraut 58 Samkoma í Kristniboðssalnum í kvöld kl. 20.30. Kjartan Jónsson segir erlendar fréttir. Henning E. Magnússon verður með hugleiðingu. Allir hjartanlega velkomnir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.