Morgunblaðið - 07.11.1998, Side 6
6 LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hjálmar H.
Ragnarsson
Listaháskóli
Islands
Hjálmar H.
Ragnars-
son ráðinn
rektor
HJÁLMAR H. Ragnarsson
tónskáld hefur verið í-áðinn
rektor Listaháskóla íslands.
Hann er ráðinn til fimm ára og
hefur störf formlega hinn 1.
janúar 1999.
Hjálmar er fæddur árið 1952
á Isafirði. Hann stundaði fram-
haldsnám í tónlist í Bandaríkj-
unum og Hollandi. Hjálmar
hefur starfað hér á landi frá ár-
inu 1980 sem tónskáld, kór-
stjóri og kennari. Hann hefur
verið í forystu í félagsmálum
listamanna um langt árabil og
er nú forseti Bandalags ís-
lenskra listamanna.
Listaháskóli Islands er
sjálfseignarstofnun. I stjórn
skólans eru þrír fulltrúar
kjörnir af Félagi um Listahá-
skóla Islands og tveir af
menntamálaráðherra.
„Eg lít á það sem spennandi
og ögrandi verkefni að stofna
og koma þessum skóla af stað.
Eg tel að þarna geti verið upp-
spretta skapandi hugsunar.
Þetta er krefjandi vinna og
krefst samvinnu við listamenn
í landinu og þá sem hafa sinnt
kennslu á háskólastigi. Eg lít
svo á að skólinn verði fyrir
skapandi fólk á listsviðum og
einnig til að þjálfa skapandi
hugsun fyrir fólk sem gæti
haslað sér völl í öðrum grein-
um. Eg vona að skólinn beri
gæfu til að verða suðupottur
skapandi hugsunar," sagði
Hjálmar.
Starfsmönnum Lyfjaverslun-
ar ríkisins dæmd biðlaun
HÆSTIRÉTTUR dæmdi á fimmtu-
dag íslenska ríkið til að greiða fimm
fyrrverandi starfsmönnum Lyfja-
verslunar ríkisins biðlaun vegna
þess að staða þeirra var lögð niður
þegar hlutafélag var stofnað um
reksturinn. Hér var um prófmál að
ræða því samtals hafa 40 fyrrver-
andi starfsmenn Lyfjaverslunar rík-
isins höfðað mál á hendur íslenska
ríkinu til greiðslu biðlauna. í sam-
ráði milli lögmanna aðilja voru valin
úr fimm mál sem talin voru þver-
skurður af hópnum og var um þau
dæmt í Hæstarétti að þessu sinni.
Staða málshöfðenda hjá Lyfja-
verslun ríkisins var lögð niður á ár-
inu 1994 þegar stofnað var hlutafé-
lag um rekstur fyrirtækisins, sbr.
lög nr. 75/1994. Tóku viðkomandi
boði um starf hjá hlutafélaginu,
Lyfjaverslun Islands hf. I dómnum
reyndi á skilning á 14. gr. laga nr.
38/1954 um réttindi og skyldur
starfsmanna ríkisins sem þá átti við
en þar sagði í 1. mgr.: „Nú er staða
lögð niður, og skal þá starfsmaður
jafnan fá fóst laun, er starfanum
fylgdu, greidd í sex mánuði frá því
að hann lét af starfi, ef hann hefur
verið í þjónustu ríkisins skemur en
fimmtán ár, en í tólf mánuði, eigi
hann að baki lengri þjónustualdur,
enda hafi hann þá ekki hafnað
annarri sambærilegri stöðu á veg-
um ríkisins."
Annar samanburður óþarfur
Segir í niðurstöðu meirihluta
réttarins (4/5) að Hæstiréttur hafi
allt írá árinu 1964 dæmt að 14. gr.
yrði túlkuð svo, að biðlaunaréttur
væri fyrir hendi við niðurlagningu
stöðu, þótt sá starfi, sem stöðunni
fylgdi, yrði áfram ræktur á vegum
annars aðila en ríkisins. Ný staða
verði ekki talin sambærileg hinni
fyrri, ef henni fylgi ekki hin sér-
stöku réttindi, sem starfsmaður
naut áður samkvæmt lögum nr.
38/1954. Oumdeilt sé að biðlauna-
réttur hafi ekki fylgt starfi því sem
viðkomandi starfsmenn tóku við hjá
Lyfjaverslun Islands hf. Það teljist
því ekki sambærilegt hinni niður-
lögðu stöðu í skilningi 14. gr. laga
nr. 38/1954 og skipti frekari saman-
burður á kjörum ekki máli.
Starfsmennirnir 40 eiga að sögn
lögmanns þeirra ýmist sex eða tólf
mánaða biðlaunarétt og nemur höf-
uðstóll krafna þeirra um 30 milljón-
um króna.
Málin fluttu Guðrún Margrét
Amadóttir hrl. af hálfu íslenska
íákisins og Jóhannes Albert Sæv-
arsson hdl. fyrir hönd starfsmann-
anna.
I dómi Hæstaréttar er meðal
annars vísað til dóms Hæstaréttar
H.1996.3417 sem fordæmis en þá
voru fyrrverandi starfsmanni Sfld-
arverksmiðju ríkisins dæmd bið-
laun vegna niðurlagningar stöðu
hans þegar SR-mjöl hf. var stofnað.
Með dómi Hæstaréttar á fimmtu-
dag er fordæmið skýrt nánar að því
leyti að ekki þurfi að fara fram
neinn annar kjarasamanburður en
sá hvort biðlaunaréttur fylgi nýja
starfinu. Þess má geta að 1. júlí
1996 tóku gildi ný lög um réttindi
og skyldur starfsmanna rfldsins nr.
70/1996 þar sem biðlaunarétturinn
er þrengdur. Ekki leiðir því af
sjálfu að nýi dómurinn hafi for-
dæmisáhrif vegna hlutafélagavæð-
ingar sem á sér stað eftir það.
Nemendur úr Vestmannaeyjum á 50. þingi Norðurlandaráðs
Kynna
verk-
efni um
lundann
NEMENDUR úr Framhaldsskól-
anum í Vestmannaeyjum, þau Da-
víð, Freydís og Bjarki, verða
ásamt kennara sinum, Helgu
Kristínu, í Osló dagana 7.-10.
nóvember nk. og taka með sínum
hætti þátt Í 50. þingi Norður-
landaráðs. I tölvuvæddri kennslu-
stofu sem komið hefur verið upp í
miðborg Óslóar kynna þau verk-
efni um lundann sem þau hafa
unnið í tilefni af Ári hafsins.
Nemendur frá öðrum Norður-
löndum kynna þar einnig verk-
efni sín um hafið og vistkerfi
þess.
Kynning þessi er lokaáfangi
verkefnisins Hafið og Norður-
löndin (Nordens Hav) sem Nor-
ræna ráðherranefndin hefur íjár-
magnað í tengslum við Ár hafsins
en Sameinuðu þjóðirnar og
UNESCO útnefndu árið 1998 al-
þjóðlegt Ár hafsins.
Markmið verkefnisins Hafið og
Norðurlöndin hefur verið að
beina athygli nemenda að hafinu
og vistkerfí þess. Um 20.000
kennarar alls staðar á Norður-
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
DAVIÐ, Freydís og Bjarki fara utan og kynna verkefni sitt um lundann í tölvuvæddri kennslustofu sem
komið hefur verið upp í miðborg Óslóar.
löndum fengu sendan bækling
þar sem þeir eru hvattir til að
gefa gaum að hafinu í kennsl-
unni. Á samnorrænni heimasíðu
verkefnisins á Netinu, www.nor-
denshaf.org, hefur verið safnað
miklu efni og þar er einnig um-
ræðuvettvangur fyrir nemendur
að taka þátt í umræðunum svo að
nemendum gefist kostur á að fá
svar við margvíslegum spurning-
um.
I lok kynningarinnar þriðjudag-
inn 10. nóvember nk. undirrita
nemendur í Ósló sérstaka yfirlýs-
ingu þar sem þeir heita því að
beita sér fyrir varðveislu hafsins í
framtíðinni.
Sjávarútvegsráðherrar Norð-
urlandanna funda í Ósló þá daga
sem þingið stendur og er vonast
til að þeir ásamt þingmönnum
frá öllum Norðurlöndum sjái sér
fært að heimsækja nemendasýn-
inguna í Saras Telt í grennd við
þinghúsið í Ósló 9.-10. nóvem-
ber nk.
Ferð skólastjúra í Reykjavík til Singapúr
Ovenju SLgad sam-
keppnisþjóðfélag
Morgunblaðið/Ásdís
RAGNA Ólafsdóttir skólastjóri Melaskóla, Ásgeir Beinteinsson skóla-
sljóri Háteigsskóla og Gerður Óskarsdóttir fræðslustjóri í Reykjavík,
voru meðal þeirra sem kynntu skýrslu um kynnisferð skólastjóra í
Reykjavík til Singapúr.
„VIÐ sáum ekki öðruvísi kennslu-
hætti en við eigum að venjast en við
sáum óvenjulegt og agað þjóðfélag
og þar af leiðandi mjög agað skóla-
kerfi, mikla samkeppni og fólk sem
er þrautþjálfað í því að taka þátt í
henni,“ sagði Gerður Óskarsdóttir
fræðslustjóri þegar skýrsla um
kynnisferð skólastjóra í Reykjavík
til Singapúr var kynnt. Tilefni ferð-
arinnar var að nemendur í grunn-
skólum Singapúr voru lang hæstir á
samræmdum prófum í stærðfræði
og náttúrufræði, sem tekin voru í
fjórum aldurshópum í 40 löndum,
en þar voru íslenskir nemendur í
meðallagi.
Gerður sagði að í Singapúr væri
samkeppni milli nemenda um að
komast í skólana, samkeppni milli
skólanna um fjármagn og umbun og
samkeppni milli kennara um laun.
„Það vakti athygli okkar að í
Singapúr eru menn farnir að óttast
of mikla innprentun staðreynda í
nemendur og að þeir læri ekki
gagnrýna hugsun og sjálfstæði,"
sagði hún. „Okkur var sögð sú saga
að jafnvel þættu embættismenn
kunna vel á kerfið en kynnu ekki að
taka ákvarðanir. Það var því fyrir
nokkrum árum að hafíst var handa
við átak um að kenna nemendum
gagnrýna hugsun, sjálfstæði og
frumkvæði á kostnað annarra
greina."
Virðing fyrir skóluni
Á fundinum kom fram að mikill
agi ríkir í skólum Singapúr og
voru nefnd dæmi um strangar
skólareglur um útlit nemenda,
hárgreiðslu - ekki mátti skipta
hárinu í miðju í einum skóla - eða
vera með sítt slegið hár og óflétt-
að - og ákveðnar reglur eru um
klæðnað nemenda - snið á skóla-
búningi og efnisval. Að auki eru
stífar umgengnisreglur og er refs-
að eftir punktakerfi en agastjórar
eða siðameistarar eru í hverjum
skóla.
Foreldrar bera ábyrgð á hegðun
barnanna í skólunum og er virðing
nemenda og foreldra fyrir skólan-
um mun meiri en í íslenskum skól-
um. Náttúrufræðigreinar skipa
mun hærri sess í námi nemendanna
bæði í skólunum og í heimanámi og
hefst nám í þessum greinum mun
fyrr en í íslenskum skólum auk þess
sem tímafjöldinn er meiri í öllum
árgöngum. I stað afþreyingar, eins
og boðið er upp á hjá íþrótta- og
tómstundaráði í Reykjavík, er nem-
endum í Singapúr boðið upp á
kennslu í stærðfræði og náttúru-
fræðigreinum í frístundum t.d. á
laugardögum auk þess sem heima-
nám er mikið og námsaðstoð í formi
einkakennslu er almenn. Fram kom
að bent hafi verið á að Singapúr
ætti engar auðlindir og að í þeirra
augum byggði framtíðarauðlegð
þjóðarinnar á vel menntuðu fólki og
er miklum fjármunum varið til
menntamála.
Það vakti og athygli að þegnskap-
ur og siðfræði eru sérstakar náms-
greinar í skólunum og að verið er að
auka nám í því sem kallað er sjálf-
stæð gagnrýni og hugsun í stað ut-
anbókarlærdóms. Ennfremur vakti
það athygli íslensku gestanna að
mun ver er búið að fötluðum börn-
um í Singapúr. Þau eru í sérstökum
skólum og hvað varðar heyrnar-
lausa og heymarskerta þá er
kennslan mun lengra á veg komin
hér á landi.