Morgunblaðið - 07.11.1998, Blaðsíða 84
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: R1TSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 7. NOVEMBER 1998
VERÐ I LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
ISAL
Virðisauki
vegna
barrafram-
leiðslu
VIRÐISAUKI framleiðslu íslenska
álfélagsins hf. í Straumsvík eykst á
næsta ári með aukinni framleiðslu á
álbörrum í stað álhleifa, en í apríl á
næsta ári verður tekin í notkun ný
vél sem gerir það að verkum að
hægt verður að steypa alla fram-
leiðslu verksmiðjunnar í álbarra, en
það er verðmeiri vara en álhleifarn-
ir.
r „Virðisaukinn felst í því að við er-
um að umbreyta álinu í vöru sem
selst á hærra verði heldur en á
heimsmarkaðsverði sem miðast við
verð á umbræðslumálmi eins og
hleifarnir eru,“ sagði Rannveig
Rist, forstjóri Islenska álfélagsins, í
samtali við Morgunblaðið.
Umtalsvert hærra verð
„Við fáum yfírleitt umtalsvert
hærra verð fyrir barrana, þar sem
þeir eru meiri sérvara en hleifarnir.
Allar álframleiðsluþjóðir í heimi
geta framleitt umbræðslumálm en
það geta ekki allir framleitt
barrana," sagði hún ennfremur.
Rannveig kvaðst ekki geta svarað
því að svo stöddu hver ávinningur
Alfélagsins yrði vegna nýju vélar-
innar í krónum talið, þar sem það
væri háð svo ótal mörgum breyti-
legum þáttum, eins og álverði á
hverjum tíma, auk þess sem það
væri mjög háð því hvaða barra fyr-
irtækið færi að framleiða.
Rannveig sagði að annað sem
hefði áhrif á þá ákvörðun Alusuisse,
eiganda fyrirtækisins, að auka
barraframleiðsluna væri að verk-
smiðjan á íslandi væri orðin sú
verksmiðja sem þeir treystu mest á
og því þyrfti verksmiðjan að geta
afkastað allri sinni framleiðslu í
börrum.
Þetta verður fjórða barravél ál-
versins í Straumsvík og með til-
komu hennar verður hægt að
steypa alla framleiðslu úr kerskál-
um í völsunarbarra. Notkun á
hleifavél steypuskálans mun
minnka að sama skapi en í ár hafa
verið steypt í henni um 25.000 tonn,
að því er fram kemur í nýjasta tölu-
blaði Ísal-tíðinda.
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra
Auka þarf hlut stór-
iðju í útflutningi
FINNUR Ingólfsson, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, segir að auka
þurfi hlut stóriðju í útflutningi vöru
og þjónustu á næstu árum, úr 10% í
26%. Þetta kom fram í erindi sem
ráðherra hélt á ráðstefnu Verk-
fræðingafélags Islands og Tækni-
fræðingafélags Islands um virkjanir
og umhverfi á Grand Hóteli í gær.
I máli Finns kom fram að orku-
frekur iðnaður væri heppilegur til
uppbyggingai- atvinnulífsins af
mörgum ástæðum. Með honum
væru hreinar náttúruauðlindir
nýttar, dregið væri úr vægi
sjávarútvegs og íleiri styrkum
stoðum rennt undir útflutning, auk
þess sem framleiðslugeta hagkerf-
isins og erlent fjármagn í landinu
væru aukin.
Draga þarf
úr sveiflum
„Við búum við einhæft atvinnulíf
og það setur okkur mjög þröngar
skorður. Sjávarútvegurinn var með
51% hlutfall í útflutningi vöru og
þjónustu árið 1995. Stefna stjórn-
valda gengur út á það að breyta
þeii-ri mynd, til þess að draga úr
þeim sveiflum sem þjóðarbúið býr
við út frá einhæfni atvinnulífsins,"
sagði Finnur.
Finnur sagði að stefna ríkis-
stjórnarinnar væri að staðsetja
iðjuverin sem næst orkulindunum,
en með þeim hætti fengist orkan
hvað hagkvæmust. Finnur sagði að
yrði iðjuver staðsett á Austurlandi
væri gert ráð fyrir þvi að leggja
220 kV háspennulínu yfir miðhá-
lendið til þess að tengja orku-
svæðin saman.
■ Taka verður/43
Morgunblaðið/Kristinn
Haustský
FEGURÐ haustsins liggur ekki
aðeins í litbrigðum gróðursins.
Litbrigðin í skýjunum eru einnig
mikil og auka enn á glæsileik
sköpunarverksins.
♦ ♦♦
Boeing 757-300 þota
prófuð við Keflavík
i
I
PRÓFANIR á nýrri þotu frá
Boeing 757-300 fara fram á Kefla-
víkurflugvelli um helgina, en þrjár
slíkar vélar eru nú í prófun áður
en fyrsta þotan af þessari nýju
gerð verður afhent kaupanda
snemma á næsta ári. Flugleiðir
hafa pantað tvær slíkar vélar og fá
þá fyrri afhenta í mars 2001.
Þotan var væntanleg til Kefla-
víkur nú í morgun eftir sjö tíma
flug frá Seattle í Bandaríkjunum.
Hún hefur þegar verið máluð í Ht-
um þýska leiguflugfélagsins Cond-
or sem fyrst flugfélaga ásamt
Flugleiðum pantaði slíka vél. Þot-
an verður prófuð í miklum vindi,
m.a. reynd kerfi fyrir sjálfvirkar
lendingar og flugtök með 15 hnúta
eða nærri 30 km vind í stélið.
Boeing-verksmiðjurnar hafa
tvisvar áður sent nýjar þotur til
prófana í Keflavík. I vor var hér á
ferð 777-300 og áður 767-300 sem
báðar eru breiðþotur og sögðu
reynsluflugmenn Boeing þegar
777-300 þotan kom hingað að í
Keflavík væru ákjósanlegar
aðstæður til slíkra prófana, ekki
síst af því að þar mætti reikna með
sterkum vindum.
Condor hefur pantað 13 þotur af
gerðinni 757-300, Flugleiðir tvær
og ísraelska flugfélagið Arkia
tvær. Þetta er 7 metrum lengri vél
en 757-200 sem Flugleiðir hafa
notað í átta ár. I innréttingu véla
Flugleiða verða 227 sæti, sem er
38 sætum fleira en í 200-gerðinni
og segir í frétt frá fyrirtækinu að
þessi nýja gerð bjóði uppá lágan
kostnað á farþegasæti, sambæri-
Morgunblaðið/jt
BOEING hleypti fyrstu 757-300 þotunni af stokkunum í maí og
fyrsta flugferðin var farin 2. ágúst. Þrjár þotur eru nú í prófunum
víða um heim þar til sú fyrsta verður afhent snemma á næsta ári.
legan kostnað við það sem gerist í
breiðþotum.
Þotan verður ekki til sýnis hér
að þessu sinni, en verksmiðjurnar
gera ráð fýi-ir að senda hingað
þotu föstudaginn 11. desember
sem sýnd verður starfsmönnum
og gestum Flugleiða.
Meinatæknadeilan
Skriður á
viðræður
SKRIÐUR komst á viðræður full-
trúa meinatækna á blóð- og mein-
efnafræðideild Landspítalans og við-
semjenda þeirra á samningafundi
sem hófst klukkan 14 í gær og stóð
enn þegar Morgunblaðið fór í prent-
un.
Morgunblaðið náði tali af Vigdísi
Magnúsdóttur, forstjóra Ríkisspítal-
anna, um klukkan 11 í gærkvöldi og
sagði hún þá að fundur stæði enn og
að svo virtist sem þokast hefði í
samkomulagsátt. Hún vildi þó engar
yfirlýsingar gefa um líkur á að
samningar tækjust.
--------------
Fjórir
meiddust í
Aðaldal
FERNT var flutt á sjúkrahús eftir
harðan árekstur móts við bæinn
Knútsstaði í Aðaldal í gærkvöldi.
Að sögn lögreglu á Húsavík varð
áreksturinn þegar tveir bíiar mætt-
ust í snjókomu og skafrenningi.
Annar bíllinn ók aftan á bfl sem stóð
bilaður í vegarkantinum. Tvennt var
í hvorum bfl sem í árekstrinum lenti.
Fólk úr aftari bflnum var fiutt á
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
en ökumaður og farþegi úr þeim
kyrrstæða voru flutt til aðhljmning-
ar á sjúkrahúsið á Húsavík.
Að sögn iögreglu var ekki talið að
um hættuieg meiðsli væri að ræða.