Morgunblaðið - 07.11.1998, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.11.1998, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Undirbúningur á kaupum á holsjárómtæki til rannsókna á sjúkdómum í meltingarvegi Getur flýtt greiningii og sparað aðrar rannsóknir Nýr búnaður sem notaður er með speglun- artækjum getur gefíð læknum fljótar en áður öruggari niðurstöður rannsókna á sjúkdómum í meltingarvegi. Jóhannes Tómasson fræddist um tækið sem er óm- skoðunarbúnaður og kostar á bilinu 15 til 17 milljónir króna. Eitt slíkt tæki getur annað kringum 750 þúsund íbúum. ^ Morgunblaðið/Kristinn ASGEIR Theodórs læknir (t.h.) og Árni Ragnar Árnason alþingismað- ur hafa að undanfðrnu kynnt víða þýðingu þess að taka í notkun hér- lendis holsjárómtæki til rannsókna á sjúkdómum í meltingarvegi. ÞESSAR tvær myndasyrpur sýna mismunandi myndir sem fengnar eru með magaspeglun (vinstra megin) og með ómun. Á neðri myndinni er fyrirferð í vélinda og sýnir ómsjármyndin að þar er einungis um góðkynja blöðrumyndun að ræða þar sem dýpri lög veggjarins eru órofin. Á þeirri efri er fyrirferð í vélinda sem vaxið hefur niður í dýpri lög veggjarins. UNDIRBÚNINGUR á kaupum á nýju lækningatæki til rannsókna á sjúkdómum í meltingarvegi er nú vel á veg kominn og er það svonefnt holsjárómskoðunartæki. Eru tvær rannsóknaraðferðir, þ.e. speglun og ómun, sameinaðar í einu tæki sem gerir læknum mögulegt að greina betur strax við sjálfa speglunina umfang og eðli grunsamlegra fyrir- ferða, sem geta verið bólgur, sár eða óeðlilegur vöxtur í eitli, vélinda, maga, ristli og endaþarmi eða ann- ars staðar í meltingarveginum. „Með tækinu er unnt að fá ör- uggari greiningu sjúkdóma í melt- ingarvegi, til dæmis illkynja sjúk- dóma og fá frekari vissu um hvað sé þar á ferðinni," segir Ásgeir Theodórs, yfirlæknir á St. Jósefs- spítala í Hafnarfirði, í samtali við Morgunblaðið en hann starfar einnig sem sérfræðingur á Sjúkra- húsi Reykjavíkur. Hann og Arni Ragnar Arnason alþingismaður hafa kynnt þessa tækni síðustu misserin innan heilbrigðiskerfisins og meðal stéttarfélaga og fjár- mögnunarfyrirtækja. Hafa þeir átt fjölda funda með þessum aðilum en áhugi Árna á málinu kviknaði í framhaldi af veikindum hans fyrir fáum árum sem hann fékk fulla lækningu við fyrir nærfellt tveimur árum með aðstoð Ásgeirs og fleiri lækna. En nánar um gagnsemi tækisins: Tvenns konar rannsókn með einu tæki „í vissum tilvikum er hægt að spara sjúklingi óþægindi af öðrum rannsóknum, sem oft þurfa að fylgja í kjölfar speglunar á melt- ingarvegi, og erfiða bið eftir niður- stöðum sýnarannsókna. Þetta get- ur einnig þýtt nokkurn sparnað í heilbrigðiskerfinu," segir Ásgeir ennfremur. Með speglun geta læknar skoðað slímhúð meltingar- vegar, hvort sem um er að ræða vélinda, maga, skeifugörn, ristil eða endaþarm en þá er grannri slöngu rennt inn í meltingarveg. Geta læknar þannig skoðað við- komandi svæði og kannað hvort bólgur, sár eða æxli eru fyrir hendi og hefur þessi rannsóknaraðferð verið mikið notuð síðustu tvo til þrjá áratugina. Einnig er hægt að taka sýni til meinafræðirannsóknar með sérstakri sýnatöng. Nýja tæk- ið gefur nú möguleika á að óm- skoða til dæmis grunsamleg svæði en með ómun er notuð hljóðbylgju- tækni sem breytt er í mynd sem læknar skoða á skjá. Með ómskoðunartækninni geta læknar séð mun betur og af meira öruggi hvers kyns fyrirferð er á ferðinni, hvort einungis er um að ræða bólgur eða góðkynja fyrirferð sem ekki þarf að hafa áhyggjur af eða hvort um er að ræða illkynja vöxt í líffærinu eða nærliggjandi líf- færi, til dæmis briskirtli. Með þessu nýja tæki er síðan mögulegt að meta hversu langt æxlið er vaxið inn í vegg líffærisins, hvort komin er útbreiðsla í nærliggjandi eitla eða hvort um ífarandi vöxt sé að ræða í önnur líffæri. Ásgeir segir að þessi aðferð hafi verið við lýði síð- ustu 10 til 12 árin en hann kynnti sér hana í Bandaríkjunum fyrir nokkrum árum. Árni Ragnar Árnason segir að tækjabúnaðurinn sé dýr, kosti á bil- inu 15 til 17 milljónir og hugmyndin sé að hingað til lands verði keypt eitt tæki enda geti það annað meira en tvöfaldri íbúatölu íslands. Nefndu þeir Ásgeir til samanburðar að aðeins fjögur tæki væru í notkun í Noregi. Ami segir fulltrúa verka- lýðsfélaga og fjármögnunarfyrir- tækja hafa tekið vel í að leggja fram nokkurt fé og sé stefnt að því að afla þriðjungs kaupverðs með frjálsum framlögum. Hafa þeir rætt við yfir 50 aðila í þessu skyni. Verkefnið er sameiginlegt verk- efni meltingarsjúkdómadeildar St. Jósefsspítala í Hafnai’firði og Sjúkrahúss Reykjavíkur en mjög mikil samvinna hefur verið milli þessara stofnana á sviði meltingar- sjúkdóma. Hugmyndin er að tækja- búnaðurinn verði aðallega á Sjúkra- húsi Reykjavíkur en mögulegt verð- ur að fara með tækin á önnur sjúkrahús, t.d. til Akureyrar og gera rannsóknir þar enda áætlað að sinna vel þörfinni fyrir þessar sér- hæfðu rannsóknir hér á landi. Segir Ásgeir að bestur árangur fengist væntanlega með því að eitt teymi lækna og aðstoðarfólks annaðist all- ar rannsóknirnar og mætti mynda teymi með sérfræðingum á sjúkra- húsunum. Sama fólkið þyi-fti að nota þennan búnað nokkrum sinn- um í viku til að öðlast næga reynslu og leikni við rannsóknir og með- höndlun sjúklinganna. Þetta skiptir meginmáli að sögn Ásgeirs þar sem rannsóknimar geta verið vanda- samar og góð kunnátta þarf að vera fyrir hendi við úrlestur á niðurstöð- um. Nýtist einnig í forvarnir Þá segja þeir tvímenningar að tækjabúnaðurinn geti nýst í for- varnaskyni og segja það ekki þýð- ingarminnstu notin. „I öllum krabbameinslækningum skiptir höfuðmáli að greina krabbameinin sem fyrst, helst á forstigi og það er oft unnt með holsjárómun,“ segir Ásgeir. „Krabbamein í meltingar- vegi eru yfirleitt erfið, koma helst fram hjá fólki sem komið er yfir miðjan aldur en rúmlega 60% þeirra sem greinast hafa langt genginn sjúkdóm. Ef við getum fundið sjúkdóminn fyrr hjá hluta þessa hóps myndi það forða mörg- um frá erfiðri meðferð. Stundum hefur þurft að skera fólk upp til að kanna hvort æxli er skurðtækt og á það einkum við um gamalt fólk og ætti þessi aðferð að geta fækkað slíkum könnunarskurðaðgerðum. Með þessari nýju tækni er nú mögulegt að ákveða með meiri ná- kvæmni en áður ífarandi vöxt ill- kynja meina í vegg meltingarvegar og útbreiðslu þeirra í eitla eða nær- liggjandi líffæri. Slíkar upplýsingar er nauðsynlegt að hafa við upphaf meðferðar í baráttunni við þessa erfiðu sjúkdóma," segir Ásgeir að lokum. Hörð gagnrýni á mæt- ingu borgarfulltrúa FORMAÐUR Fræðsluráðs Reykja- víkur, Sigrún Magnúsdóttir, gagn- rýndi Eyþór Arnalds harðlega, ann- an fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Fræðsluráði, fyrir að hafa aðeins sótt fimm af tíu fundum Fræðsluráðs að undanförnu. Þetta kom fram í ræðu Sigrúnar í borgarstjóm á fimmtudag. Sigrún sagði andstöðu sjálfstæðismanna við þessa hugmynd byggjast á vanþekk- ingu. Hún gerði mætingu Eyþórs Arnalds að umtalsefni og sagði hann aðeins hafa mætt á fimm fundi af tíu sem verið hefðu frá því í sumar. Hún vitnaði í sveitarstjómarlög þar sem segir að sveitarstjómarmenn skuli sækja alla fundi sveitarstjómar og fundi í þeim nefndum og ráðum sem þeir em kjömir til setu í, nema þeg- ar lögleg forfóll hámli. Kvaðst Sigrún ekki kunna að meta fólk sem talaði hátt en sinnti ekki störfum sínum. Hún sagðist hafa horft með velþóknun til þeirra fulltrúa sem Sjálfstæðisflokkurinn valdi til setu í Fræðsluráði. Þetta væri hæfileikafólk og hún hefði talið að kraftar þess myndu nýtast. Þeir nýttust hins vegar ekki nema þeir sinntu starfinu og sér fyndist Eyþór ekki hafa gert það. Hún tók fram að þetta ætti ekki við um Guðrúnu Pétursdóttur, hinn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í ráðinu. Kjartan Magnússon, Guðlaugur Þór Þórðarson og Inga Jóna Þórðar- dóttir, borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins, sögðu Sigrúnu hafa ráðist ómaklega á fjarstaddan borgarfull- trúa. Sagði Kjartan að störf borgar- fulltrúa væru ekki hafín yfir gagn- rýni, en ekki væri sæmandi að gagn- rýna þá þegar þeir gætu ekki borið hönd fyrir höfuð sér. Fjarvera borgarstjóra gagnrýnd Þá gagnrýndi Guðlaugur Þór litla mætingu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra á fundi hafnarstjórnar sem hann sagði hana þó þiggja laun fyrir en greiddar væra tæplega 370 þúsund krónur ár- lega fyrir setu í hafnarstjórn. Sagði hann hana aðeins hafa mætt á sex fundi frá 1995 og fram á þetta ár og samtals væra greiðslur til hennar fyrir setu í hafnarstjórn nærri 1,5 milljónir króna á þessum tíma. Árni Þór Sigurðsson, formaður hafnarstjórnar, benti á að vinna vegna starfa í hafnarstjórn færi ekki síður fram utan funda en á fundun- um sjálfum. Hann sagði borgarstjóra hafa sinnt starfi sínu í hafnarstjórn af stakri eljusemi þótt hún hefði ekki setið alla fundi. Hann sagði borgar- stjóra þurfa að sinna öllum mála- flokkum umfram aðra borgarfulltrúa og launagreiðslur fyrir setu í hafnar- stjórn væru ekki síst fyrir þá miklu vinnu sem borgarstjóri ynni utan fundanna. Hann benti einnig á þá sérstöðu hafnarstjórnar að hún heyrði beint undir borgarstjórn en ekki borgarráð eins og aðrar nefndir og ætlast væri til þess að borgar- stjóri væri vel heima í málum hafn- arinnar. Visa áfrýjar VISA ÍSLAND hefur áfrýjað úr- skurði héraðsdóms í máli fyrirtæk- isins gegn Samkeppnisyfirvöldum til Hæstaréttar, sem varðar bann samkeppnisráðs á grein í viðskipta- skilmálum söluaðila um eitt al- mennt verð á vöra og þjónustu sem kaupmanni er síðan í sjálfsvald sett að veita afslátt frá. Samkeppnisráð hefur í fram- haldi af málinu gefið út nýjar regl- ur um verðmerkingar þar sem söluaðilum er gert að auglýsa við búðardyr ef um kostnaðarálag vegna kreditkortaviðskipta er að ræða. Áfrýjunai-stefna var birt 3. nóv- ember sl. og hefur verið fallist á að málið fái flýtimeðferð fyrir Hæsta- rétti. Lokaniðurstöðu í málinu er því vænta öðru hvoru megin við áramótin. Það er Árni Vilhjálms- son, hrl., sem fer með málið fyrir hönd Visa íslands. Forstjóri Landmælinga Magnús Guðmunds- son skipaður MAGNÚS Guðmundsson, land- fræðingur, hefur verið skipaður forstjóri Landmælinga Islands frá og með 1. janúar 1999 að telja til næstu fimm ára af Guðmundi Bjarnasyni, umhverfisráðherra. Magnús lauk námi í landafræði við Háskóla íslands árið 1983 og hóf það ár starf hjá Landmæling- um Islands, þar sem hann hefur meðal annars unnið sem deildar- stjóri fjarkönnunardeildar og for- stöðumaður framleiðslusviðs. Magnús er kvæntur Jóhönnu Guð- jónsdóttur fóstru og eiga þau þrjú börn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.