Morgunblaðið - 07.11.1998, Blaðsíða 70
I
Hundalíf
Ljóska
Ferdinand
Wl, CHUCK..PID
YOU EVER öET MT
FOOTBALL OUT OF
THETREE?
I THINK YOU OU)E ME
A NEU) BALL, CHUCK..
AFTER ALL,THE TREE'5
IN YOUR BACK YARD.
r^r
lUELL, U)HAT I THINK itL DO
I5 6ET A LADDER,CLIMB UP
INTO THE TREE, RE5CUE THE
BALUANDTHEN FALL OUT
OF THE TREE AND LAND
ON MY HEAD..
z-r
you're a real
Hæ, Kalli, náðir þú f<5t- Ég held að þú skuldir mér Nú, það sem ég held að ég geri, er Þú ert sönn hetja,
boltanum mínum ein- nýjan bolta, Kalli... tréð er að ná í stiga, klifra upp í tréð, Kalli...
hvern timann niður úr nú í bakgarðinum þinum ... bjarga boltanum, og detta síðan á
trénu? hausinn niður úr trénu...
MORGUNBLAÐIÐ
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
I leit að betri
lífskjörum
Frá Ægi Geirdal:
HÆSTVIRTUR forsætisráðherra,
Davíð Oddsson, hefur líkt rétt-
mætri kjarabaráttu meinatækna á
Ríkisspítölum við gíslatöku. Með
því að líkja þessari stétt manna við
hryðjuverkasamtök, sýnir hann
enn og aftur fyi-irlitningu sína á
lífsbaráttu fólksins í landinu.
A sama tíma og háttvirtir alþing-
ismenn ræða í fullri alvöru um að
hækka laun sín með einu penna-
striki um tugi prósenta, mega
meinatæknar ekki fara ósköp eðli-
lega leið til þess að hækka sín laun.
Það er engin gíslataka þótt menn á
sama tíma segi upp störfum sínum.
Slíkt hefur haft eðlilegan aðdrag-
anda og menn hafa rætt það sín á
milli og orðið sammála um að við
núverandi launakjör verði ekki
unað lengur.
Það er engin gíslataka að leita
sér að betri lífskjörum þegar þau
loksins bjóðast. Eiga meinatæknar
að bíða þar til tækifæri um hærri
laun ganga þeim úr greipum? Það
er staðreynd að meinatæknar geta
fengið allt að 40% hærri laun ann-
ars staðar en á Ríkisspítölunum og
þá er ég ekki að tala um Noreg.
Stjórnun Ríkisspítalanna er í al-
gjörum ólestri vegna þess að hver
silkihúfan raðast upp af annarri.
Afdankaðir pólitískir rétttrúnaðar-
menn raðast þar á jötuna og þvæl-
ast þar hver fyrir öðrum í algjöru
reiði- og getuleysi. Helsta úrræðið
til þess að hagræða í rekstrinum er
að búa til nýtt dekurstarf handa
getulausum pólitíkusum, sem virð-
ast hafa það helst að markmiði að
efla úlfúð.og illindi meðal starfs-
manna.
Stjórnarformaður Ríkisspítal-
anna talar um ábyrgðarleysi og
varpar öllu yíir á meinatækna.
Hann virðist gleyma því að upp-
sagnirnar hefðu ekki átt að koma
honum og öðrum stjórnendum
Ríkisspítalanna á óvart, þar sem
allir meinatæknarnir sögðu upp
með löglegum fyrirvara, eins og er
réttur sérhvers vinnandi manns.
Abyrgðarleysið er hans m.a. þar
sem hann og aðrir stjómendur
gripu ekki til viðeigandi ráðstafana
og réðu annað fólk í þessi störf.
Slíkt var bæði réttur og skylda
þessara stjórnenda Ríkisspítal-
anna. Getuleysi þeirra blasir við
allri þjóðinni, þeir eru óhæfír sem
stjómendur.
Það hefur alltaf verið lenska lé-
legra stjómenda að varpa sök eigin
getuleysis yfír á herðar undir-
manna sinna.
Á öllum vinnustöðum fer fram
umræða um hvar hægt sé að fá
betri lífskjör fyrir sig og fjölskyldu
sína. Hvort einn eða fleiri ákveða í
kjölfar sMkra umræðna að segja
upp, með lögmætum fyrirvara, er
þeim algjörlega í sjálfsvald sett og
hvorki hæstvirtur forsætis-
ráðherra né heldur stjómarfor-
maður Ríkisspítalanna geta breytt
því, þótt þeir fegnir vildu. Það er
helgur réttur og í raun skylda sér-
hvers vinnandi manns að leita eftir
betri lífskjörum. Það er algjör
svívirðing við þann rétt að þurfa að
sitja undir því að hæstvirtur for-
sætisráðherra skuli líkja
meinatæknum við hryðjuverka-
samtök, þegar þeir vilja nýta sér
þann sjálfsagða valkost.
Það er líka sárt að fá þá kveðju
frá stjórnarformanni Ríkisspítal-
anna, að það sé ábyrgðarleysi þeg-
ar meinatæknar reyna að nýta sér
þá möguleika um hærri laun, sem
bjóðast fyrir utan hinn alltumfaðm-
andi ríkisbarm. Þessir háu herrar
verða bara að átta sig á því að það
er eitthvað annað í boði en saltfisk-
ur.
ÆGIR GEIRDAL, birgðavörður,
Sjúkrahúsi Reykjavíkui-, Fossvogi.
Gilsfj ar ðarbrú
Frá Kristjönu Ágústsdóttur:
NU ER stóra stundin runnin upp.
Vegurinn yílr Gilsfjörð var opnað-
ur formlega með komu Halldórs
Blöndal samgöngumálaráðherra,
vegamálastjóra og verktakans
Gunnars Birgissonar forstjóra
Klæðningar hf. sem sá um verkið.
Einnig vom mættir þingmenn
bæði núverandi og fyrrverandi og
mikill fjöldi annarra gesta og
heimamanna. Lítil stúlka að nafni
Kristný Hilmarsdóttir færði Hall-
dóri skærin til að klippa á
borðann.
Þessi dagur var í alla staði hinn
ánægjulegasti og ekki spillti fyrir
að veðrið var yndislegt.
Eftir að ráðherra og verktaki
höfðu klippt á borðann var öllum
gestum boðið til kaffidrykkju í
félagsheimilinu í Króksfjarðarnesi
og þar mættu flestir gestanna og
þáðu veitingar og hlustuðu á ræð-
ur, einnig söng kór heimamanna
fyrir gesti. Var þessi athöfn í alla
staði hin besta. Það sem vakti at-
hygli mína við þetta tækifæri var
hvað verktakinn og yfírmenn
sýndu verkamönnum og vinnuliði
mikinn sóma og þakklæti, því án
þessa fólks og þeirra stóru vinnu-
véla hefðu svona framkvæmdir
ekki komið til greina.
Það var mjög sérstök sjón að um
það leyti sem ráðherra var að
klippa borðann flaug arnarfjöl-
skyldan úr Garpsdal í Gilsfirði yfir
svæðið, svo ýmsum datt í hug að
hún væri að þakka fyrir sig, enda
fór vel á með þeim og verktökun-
um meðan verkið stóð yfir.
KRISTJANA ÁGÚSTSDÓTTIR,
Búðardal.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.