Morgunblaðið - 07.11.1998, Blaðsíða 78
78 LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
J*
FOLK I FRETTUM
Teygður
með tré?
Uppsigað við myndavélar
►LEONARDO eitthvað
sjúskaður þessa dagana?
Nei, myndin er ekki af
leikaranum Leonardo
DiCaprio heldur er hér á ferð
taflenskur
umhverfisverndarsinni sem ber
grímu með eftirmynd leikarans.
Verið var að mótmæla töku á
kvikmyndinni „The Beach“ á
Phi Phi eyju sem er þjóðgarður í
Taflandi. Twentieth Century
Fox hyggst gera myndina á
næsta ári með Leonardo
DiCaprio í aðalhlutverki.
Mótmælendur
segja að ef af kvikmynda-
tökunni verði þurfi að breikka
strandlengju á hluta eyjunnar
og þá muni sjaldgæfar plöntur
og kókóspálmar látin fjúka.
Slíka eyðileggingu á gróðurfari
eyjunnar muni ekki vera hægt
að bæta.
►LIAM Gallagher er
lítið hrifínn af
ljósmyndurum og
lætur þá andúð oft
bitna á
vinnutækjum þeirra,
myndavélunum. Á
tónleikum í Lille í
Frakklandi 4.
nóvember 1997 sýndi
Liam áhorfendum
myndavél sem hann
hafði nappað af einum
ljósmyndaranum og
kallaði yfir salinn: „Svona verða
lygarnar til!“ Síðan henti hann
vélinni frá sér.
Núna, nákvæmlega ári síðar, 4.
nóvember 1998, var Liam
handtekinn fyrir utan krá í
London þar sem hann hafði rifíð
myndavél úr höndum
Ijósmyndara og eyðilagt hana.
Kannski fínnst honum hann bara
myndast svona illa?
★★★ MORGUNBLAÐIÐ
SÍMINN-GSM
SÍMINN-<5SM
J
Stutt
Framleiðni
frekar en
ástleitni
NÚ GETA ítalskir vinnuþjark-
ar tekið gleði sína. Italskur
dómstóll hefur kveðið upp
þann dóm að eiginkonur vinnu-
samra hafi enga réttlætingu
fyrir því að halda fram hjá eig-
inmönnum sínum af þeirri einu
ástæðu að þeir séu alltaf á
skrifstofunni og aldrei heima.
Dagblöð á Ítalíu kalla dóm-
inn Stakhanov-dóminn í höfuð-
ið á sovéska iðnaðarmanninum
Alexei Stakhanov, en sá fékk
sérstaka viðurkenningu fyrir
að fara fram úr framleiðniá-
ætlunum á vinnustað. Pví mun
framleiðnin á skrifstofunni
hafa forgang yfir ástleitni á
heimilinu ef mið er tekið af
dómnum.
Líkbfllinii
horfínn
TVEIR þýskir útfararbílstjór-
ar lentu í klandri á dögunum í
Wiesbaden. Þeir höfðu lagt út-
fararbílnum við hús meðan
þeir brugðu sér inn til að ná í
líkið sem jarða átti. Þegar þeir
komu út með kistuna á milli
sín var líkbíllinn á bak og burt.
Hafði lögreglan séð að stórri
bifreið var ólöglega lagt við
götuna.
Eftir mörg símtöl og kvart-
anir við yfirvöld var líkbflnum
skilað svo hann gæti gegnt
hlutverki sínu. Borgaryfirvöld
báðust afsökunar á tiltækinu
og sögðu að lögreglan hefði
ekki séð að um líkbíl væri að
ræða. Ekki náði þó afsökunin
lengra en svo að ákveðið var að
stöðusektina skyldu mennirnir
samt fá að borga.
Sjá bara
svona vel!
ÞEIR sem hampa stórum
heila geta eflaust heimsótt
augnlækninn sjaldnar í fram-
tíðinni. Nýjustu rannsóknir
breska vísindamannsins Ro-
bert Barton í háskólanum í
Durham á Englandi gefa til
kynna að heilastærð hafi tals-
vert meira með sjón að gera en
gáfur.
Nú virðast þessar upplýs-
ingar ganga þvert á fyrri hug-
myndir manna um heilastærð
og gáfnafar, en Barton segir
að kenning hans gangi ekki af
fyrri hugmyndum dauðum, því
skilningarvit dýra gegni lykil-
hlutverki í því hvernig þau
nálgist upplýsingar.
Karnival að
fornum sið
SVARTUR reykur og eldtung-
ur eru hvarvetna og í kvöld-
húminu er eins og logandi eld-
boltar gangi um göturnar. Litli
bærinn Ottery St. Mary á
Englandi breytir um svip einu
sinni á ári, þegar haldin er há-
tíð olíutunnunnar.
Hátíðin dregur að sér gesti
hvaðanæva úr heiminum enda
kölluð ofbeldisfyllsta, hættu-
legasta og stjómlausasta hátíð
sem haldin er á Bretlandseyj-
um. Hátíðin á rætur sínar að
rekja til heiðins siðar og hefur
verið haldin í litla bænum í
meira en 300 ár.
Gestir eru varaðir við hætt-
um sem leynst geta nálægt
logandi olíutunnunum og er
skilti á þorpstorginu sem á
stendur Varúð: Þú ert héma á
eigin ábyrgð!