Morgunblaðið - 07.11.1998, Page 10
10 LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Forystumenn stjórnmálaflokkanna
Samkomulag um
breytta kjör-
dæmaskipan
FORYSTUMENN stjórnmálaflokk-
anna hafa ákveðið að standa sameig-
inlega að þeim breytingum á kjör-
dæmaskipan sem kjördæmanefnd
hefur lagt til að gerðar verði frá
upphaflegri tillögu nefndarinnar,
ásamt öðrum breytingum á tilhögun
þingkosninga er af henni leiða og
gerð er grein fyrir í skýrslu nefnd-
arinnar. Samkvæmt því tilheyrir
Norðurlandskjördæmi vestra óskipt
Norðvesturkjördæmi ásamt Vestur-
landi og Vestfjörðum, að undan-
skildum Siglufirði sem fylgir Norð-
austurkjördæmi, og A-Skaftafells-
sýsla flyst úr Suðurkjördæmi í
Norðausturkjördæmi.
Drög að frumvarpi fonnanna
stjórnmálaflokkanna um breytingar
á kjördæmaskipan og kosningatil-
högun er nú til umfjöllunar hjá þing-
flokkunum, en að sögn Friðriks
Sophussonar, formanns kjördæma-
nefndar, vonast hann til að hægt
verði að mæla fyrir frumvarpinu í
þessum mánuði.
„Pað afgreiðist ekkert á yfirstand-
andi þingi annað en stjómarskrár-
breyting, en kosningalagafrumvarpið
sem fylgir sem fylgiskjal er undir-
liggjandi samningur þeirra sem
standa að þessu. Það þarf að afgreiða
stjómarskrárbreytinguna fyrii' kosn-
ingar og endurtaka síðan með frum-
varpsflutningi eftir kosningar. Þá
fyrst er hægt að fara að breyta kosn-
ingalögunum," sagði Friðrik.
I greinargerð með frumvarpsdrög-
unum kemur fram að með breyting-
artillögu kjördæmanefndar verði
dregið meira úr mesta misvægi at-
kvæða milli kjördæma en aðaltiUaga
nefndarinnar gerði ráð fyiir, auk þess
sem núverandi kjördæmum verði
ekki skipt upp nema í tveimur tilvik-
um, þ.e. á Reykjanesi og í Reykjavík.
Tillaga að nýrri skipan kjördæma
Kjördæma-
mörk sem
Norðves
(Vesturtand.
... Norðurland vestrá'gn
Reykjavík-V
Reykjavík-A
Suðvestur-
kjördæmi
(Reykjanes
án Suðumesja)
Kjördæmi Kjósendur Þingsæti (kjördæma- og jöfnunarsæti) Kjósendur aö baki hvers þingmanns
Norðvesturkjördæmi 21.502 9+1 2.150
Norðausturkjördæmi 28.754 9+1 2.875
Suðurkjördæmi 25007 9+1 2.501
Suðvesturkjördæmi 40.312 9+2 3.665
Reykjavík vestur 39.517 9+2 3.592
Reykjavík austur 39.516 9+2 3.592
Landið allt 194.608 54+9 3.089
Óráðið er í fjórtán stöð-
ur heilsugæslulækna
ALLS er óráðið í 13,7 stöður
heilsugæslulækna í öllum kjör-
dæmum landsins nema í Reykja-
vík, en læknar eru væntanlegir í
a.m.k. þrjú af þessum stöðugildum
á næstu mánuðum. Þetta kemur
fram í skriflegu svari Ingibjargar
Pálmadóttur heilbrigðisráðherra
við fyrirspurn Hjörleifs Guttorms-
sonar, þingmanns í þingflokki
óháðra. I svarinu segir að líklega
séu margar ástæður fyrir því að
erfiðlega gangi að manna lækna-
stöður utan Reykjavíkur. Ein
ástæðan gæti þó verið mikil vakta-
byrði og einangrun. „Unglæknar
kynnast störfum utan sjúkrahúsa
mjög takmarkað, öll vinnuskylda á
kandídatsárum er innan sjúkra-
húsa. Vinna í dreifbýli verður því
framandi og á vissan hátt ógn-
andi,“ segir ennfremur.
Þá kemur fram að mikil sam-
keppni hafi verið um unga lækna
undanfarin ár, bæði innan lands
og utan. „Stóru sjúkrahúsin á ís-
landi þurfa sífellt á stórum hópi
ungra lækna að halda og keppa
m.a. við heilsugæslustöðvar um
takmarkaðan mannafla.“ Auk þess
segir að vaxandi læknaskortur sé
annars staðar á Norðurlöndunum
og að markvisst hafi verið reynt
að bjóða læknum þar góð kjör,
einkum í Noregi. „A tveimur árum
hefur íslenskum læknum til dæmis
fjölgað úr 60 í 98 þar í landi. Hins
vegar hafa nýlegar kjarabætur til
heilsugæslulækna eftir úrskurð
kjaranefndar jafnað stöðu þeirra á
íslandi gagnvart grannlöndun-
um.“
Læknar kynnist heilsugæslu í
námi og starfsþjálfun
í svarinu eru taldar upp þær
stöður heilsugæslulækna sem enn
er óráðið í. Kemur þar fram að á
Vesturlandi er óráðið í tvær stöður
í Ólafsvík og eina stöðu í Stykkis-
hólmi. A Vestfjörðum er óráðið í
eina stöðu á Patreksfirði, en hún er
nú mönnuð af læknanemum og á
Norðurlandi vestra er óráðið í eina
stöðu á Siglufirði. A Norðurlandi
eystra er óráðið í eina stöðu á Rauf-
arhöfn, en á Ólafsfirði er lækna-
nemi í skammtímaráðningu fram í
miðjan desember og von á fastráðn-
um lækni næsta sumar.
A Austurlandi er óráðið í eina
stöðu á Vopnafirði, eina stöðu á
Seyðisfirði, eina stöðu á Eskifirði
og tvær stöður á Höfn í Hornafirði.
A Suðurlandi er óráðið í 0,7 stöðu-
gildi á Selfossi en þar er nýr læknir
væntanlegur um næstu áramót. Þá
er á Reykjanesi óráðið í eina stöðu í
Keflavík en umsókn um hana liggur
fyrir stöðunefnd.
I svarinu kemur fram að heil-
brigðisráðuneytið hafi þegar gripið
til ýmissa aðgerða til að ráða bót á
þessum vanda. „Ráðuneytið hefur
nýlega auglýst þrjár nýjar náms-
stöður í heimilislækningum og tel-
ur að mikilvægt sé að færa sérnám
í auknum mæli inn í landið. Stöður
þessar gefa ungum læknum mögu-
leika á að ráða sig í skipulagt
þriggja ára nám hér á landi. Dvöl á
heilsugæslustöðvum undir hand-
leiðslu reyndari lækna er stór hluti
þessa náms sem skipulagt er í
samráði við læknadeild Háskóla
Islands. Einnig telur ráðuneytið
nauðsynlegt að hyggja að svipuðu
námi á kandídatsári. ísland sker
sig úr með að hafa heilsugæslu
ekki sem hluta þeirrar skylduþjálf-
unar. Ætlun ráðuneytisins er að
beita sér fyrir endurskoðun þessa
ákvæðis, þannig að verðandi lækn-
ar kynnist starfi í heilsugæslu í
námi og starfsþjálfun," segir m.a. í
svarinu.
Flutningur verkefna
íbúðalánasjdðs
Yinnu-
brögð
ráðherra
gagnrýnd
STEINGRÍMUR J. Sigfússon, þing-
flokki óháðra, gagnrýndi Pál Péturs-
son félagsmálaráðherra á Alþingi á
fimmtudag fyrir að hafa ekki svarað
bréfum bæjarstjómar, verkalýðsfé-
lags og verslunarmannafélags Húsa-
yíkm’ frá því í september sl. um að
íbúalánasjóður verði staðsettur á
Húsavík. Tók Steingrímm- fram að
hann fagnaði þeirri ákvörðun ráð-
herra að flytja ætti verkefni sem áð-
ur voru j höndum Veðdeildar Lands-
banka íslands út á land og óskaði
Sauðkrækingum til hamingju með
það en taldi samskipti ráðherra við
Húsvíkinga ámæhsverð þar sem
hann hefði ekki svarað þeim bréfum
sem áður voru nefnd. „Eg vil geta
þess að hér hefur ráðherra í öllu falli
augljóslega brugðist skyldum sínum
samkvæmt 7. gr. stjómsýslulaga um
að svara erindum og að beina þá er-
indunum í rétta átt ef þau eiga
heima annars staðar í stjómsýslunni
en hjá ráðherra sjálfum," _ sagði
Steingrímur og bætti við: „Eg fæ
ekki annað séð en að ráðherra hafi
brotið þessar skyldur fyrir utan
þann dónaskap að svara ekki bréf-
um. Það em mannasiðir eins og allir
vita að svara þeim.“
Félagsmálaráðherra sagði það
rétt sem fram hefði komið að í sept-
ember hefði honum borist bréf frá
Húsavík um að íbúðalánasjóður yrði
fluttur til Húsavíkur en „ekki bara
einhver hluti hans“. „Það er einnig
rétt og það skal ég taka á mig að það
hefur dregist að svara með formleg-
um hætti bréfi bæjarstjómar á
Húsavík, en því hef ég reyndar kom-
ið í verk núna,“ sagði hann.
I máli hans kom síðar fram að
ákveðið hefði verið að setja upp und-
irdeild innheimtusviðs íbúðalána-
sjóðs á Sauðárkróki en þar hefði
verið hægt að tengjast Reiknistofu
bankanna í gegnum útibú Búnaðar-
bankans. Tók hann einnig fram að
20 til 25 milljónir spöraðust á því að
flytja þennan hluta starfsemi Ibúða-
lánasjóðs til Sauðárkróks.
Nokkrir þingmenn stjórnarand-
stöðu tóku undir gagnrýni Stein-
gríms og sagði Jóhanna Sigurðar-
dóttir, þingflokki jafnaðarmanna,
m.a. að það væri pólitíksur óþefur af
þessum flutningi verkefna íbúða-
lánasjóðs til kjördæmis ráðherrans.
Fjármála-
ráðherra
syngur með
Arna
Johnsen
GEIR H. Haarde fjármálaráð-
herra syngur þrjú lög á nýjum
hljómdiski sem Arni Johnsen al-
þingismaður er að senda frá sér.
Þetta er sjötti diskurinn sem
Ámi sendir frá sér á 30 ára söng-
ferli og ber hann nafnið „Stór-
höfðasvítan og svolítið meira“.
„Þetta er nú bara svona létt
grín. Áma dettur svo margt
skrýtið í hug. Annars sagði ég
við hann að hann hefði fengið
mig til að vera með til að tryggja
örugga sölu á plötunni," sagði
Geir þegar hann var spurður um
þátttöku sína á plötunni.
Á plötunni er að finna tón-
verkið „Stórhöfðasvítan“, sem
Árni samdi í samvinnu við Sin-
fóníuhljómsveit Islands. Þar eru
einnig 10 gamlar upptökur á
Morgunblaðið/Þorkell
GEIR H. Haarde, Vilhjálmur Guðjónsson og Árni Johnsen voru við
upptökur í gær.
lögum sem Stórhöfðasvítan
byggist á. Lögin eru við ljóð eft-
ir Davíð Stefánsson, Matthías
Johannessen, Halldór Laxness,
Jón Helgason, Jóhannes úr Kötl-
um og fleiri. Á plötunni eru
einnig sjö ný lög, sem fiest eru
amerískir smellir að sögn Árna.
Eitt laganna kemur þó frá Rúss-
landi. A einu laganna syngur
Árni bæði á íslensku og fær-
eysku.
„Geir er gestasöngvari á disk-
inum,“ sagði Árni þegar hann
var spurður um hlutverk fjár-
málaráðherrans. „Geir er vanur
söngmaður. Hann hefur sungið í
ýmsum kórum og hefur oft
sungið einsöng á mannamótum.
Hann er hörkusöngmaður og
skilaði sínu listavel. Það er
styrkur að því að hafa Geir með
á þessu sviði eins og annars
staðar.“
Diskurinn kemur í verslanir í
lok mánaðarins. Um útsetningar
og upptökur sá Vilhjálmur Guð-
jónsson.
Stj órnsýslugerning-
ur eða dómsathöfn?
í GREIN undirritaðs „Óskeikul-
ir dómstólar“ sem birtist á bls.
10-12 í Morgunblaðinu síðastlið-
inn sunnudag, 1. nóvember 1998,
sagði að samkvæmt „bestu
manna yfirsýn" hefði ákvörðun
Hæstaréttar 15. júlí 1997 um að
synja um endurupptöku dóms-
máls á hendur Sævari M. Ciesi-
elski verið stjórnsýslugerningur
en ekki dómur. Þótt ekki kæmi
það fram í greininni þá var þessi
fullyrðing byggð á orðum í
greinum eftir Ragnar Aðal-
steinsson hrl., talsmann Sævars,
og Ragnar H. Hall hrl., settan
ríkissaksóknara í málinu, sem
birtust í Úlfljóti nr. 3/1997, en
báðir eru þar þeirrar skoðunar
að um stjórnsýsluákvörðun hafi
verið að ræða, enda er mér ekki
kunnugt um að aðrir hafi tjáð
sig opinberlega um þetta efni.
Síðan greinin birtist hefur for-
seti Hæstaréttar, Pétur Ki-.
Hafstein, sent undirrituðum „til
fróðleiks" afrit af bréfi Hæsta-
réttar til Ragnars Aðalsteins-
sonai' hrl. dags. 26. september
1997 þar sem það er rökstutt að
ákvörðunin 15. júlí 1997 hafi ver-
ið dómsákvörðun en ekki stjórn-
sýsluverkefni.
Samkvæmt þessum nýju upp-
lýsingum er ekki hægt að full-
yrða meira en að það sé umdeilt
hvort ákvörðunin á sínum tíma
hafi verið dómsathöfn, en segja
má að Hæstiréttur hafi síðasta
orðið í því efni. Þetta breytir þó
að mati undirritaðs ekki því sem
síðar sagði í greininni að Alþingi
gæti rýmkað reglur um endur-
upptöku refsimála, Sævar borið
fram nýja beiðni og Hæstiréttur
tekið hana að nýju fyrir óbund-
inn af fyrri ákvörðun. Ekkert
skal hins vegar sagt um hvort þá
væri rétt að leyfa endurapptöku,
enda færi það eftir því hvemig
lagaheimildin væri orðuð og
þeim gögnum sem lögð væru
fram til stuðnings beiðninni.
Páll Þórhallsson