Morgunblaðið - 07.11.1998, Page 18
18 LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Þrjár frænkur hófu rekstur saumastofu í fískhúsi á Árskógsströnd fyrir fímm árum
Vantaði starf-
semi með léttan
iðnað í hreppinn
SAUMASTOFAN HAB á Ár-
skógsströnd hóf starfsemi í fisk-
húsi á Árskógssandi fyrir réttum
fimm árum en þá keyptu
frænkurnar Hildur Marinósdótt-
ir, Anna Lilja Stefánsdóttir og
Bryndís Friðriksdóttir fyrstu
saumavélina og hófu eigin fram-
leiðslu. Rúmu ári síðar stofnuðu
þær hlutafélag um reksturinn og
í júní 1995 flutti starfsemin í nýtt
húsnæði á Melbrún 2 á Árskógs-
strönd, þar sem einnig er rekin
verslun með framleiðsluvörur
fyrirtækisins. Nafn fyrirtækis-
ins, HAB, tengist upphafsstöfun-
um í nöfnum þeirra þriggja.
Þær frænkur voru allar búsett-
ar á Árskógsströnd þegar fyrir-
tækið var sett á laggimar en
þær, eins og margir fleiri, töldu
að tilfinnanlega vantaði starfsemi
með léttan iðnað í hreppinn.
Sveitarstjóm hafði m.a. verið
með málið til skoðunar en þar
sem ekkert kom út úr þeirri
vinnu létu þær Hildur, Anna Lilja
og Bryndís slag standa og stofn-
uðu sitt eigið fyrirtæki. „Við
keyptum eina saumavél og stoíh-
uðum saumastofu," sagði Bryndís
og bætti við að hugmyndin hefði
verið að allt að 10 konur gætu
starfað hjá fyrirtækinu þegar
fram liðu stundir. I dag vinna eig-
endumir þrír á saumastofunni og
ganga þar í öll verk og til viðbót-
ar er starfsmaður í hálfri stöðu.
Þær sögðust ekki hafa haft hug-
mynd um hvað þær hefðu verið
að fara út í og aðeins ein þeirra
hefði unnið á saumastofu áður.
Allar höfðu þær þó saumað mikið
á heimilum sínum í gegnum tíð-
ina og sótt ýmis námskeið. Þá
fengu þær fatahönnuð til sam-
starfs við að hanna flíkurnar.
Saumavélum fjölgað
Saumavélum hefur fjölgað á
stofunni og íyrirtækið á nú tvær
iðnaðarvélar auk minni véla en
Bryndís sagði að næsta skref
væri að fjárfesta í góðri vél til
útsaums og merkinga á fatnaði,
enda væri mjög mikið um
merkjafatnað á markaði í dag.
Á saumastofúnni var strax farið
að sauma flíkur úr flísefni og varð
það efni fyrir valinu fyrir ein-
skæra tilviljun, að sögn Hildar.
„Efnið var þá að koma á markað
og við vissum í raun ekkert hvaða
þetta var. Þetta er hins vegar
mjög gott efni, hlýtt, létt og mjúkt
og það er komið til að vera. Fhs-
efnið hleypur ekki og það er hægt
að þvo í þvottavél." Allt flfsefni er
flutt inn til landsins en Bryndís
sagðist sjá fyrir sér að hér á landi
yrði sett á laggimar verksmiðja
til að framleiða fl/seftú. Anna
Lilja sagði að eftir að flísefnið
kom á markað hefði orðið sam-
dráttur í framleiðslu á ullarvörum
en ullin yrði þó alltaf til staðar.
Fjölbreytt framleiðsla
Saumastofan framleiðir fjöl-
breyttar flísvörur og má þar
nefna peysur, húfur, jakka, bux-
ur, vesti, hestaábreiður, teppi og
hlífar undir hjólreiða- og reið-
hjálma. Einnig eru saumaðar
flísvömr fyrir fyrirtæki, einstak-
linga, íþróttahópa og fleiri.
„Fólk getur þá valið sjálft Iiti og
samsetningu í flíkurnar." Einnig
er mögulegt að sauma ýmislegt
annað á saumastofunni og þá úr
öðmm efnum.
Þær frænkur hafa verið dug-
legar að kynna vöru sína víða
um land og m.a. tekið þátt í
handverkssýningum á Hrafnagili
í Eyjafjarðarsveit, sýningunni
Vetrarsporti í Iþróttahöllinni á
Akureyri og sýningum í Laugar-
dalshöll og Perlunni í Reykjavík.
Þá er boðið upp á vörur sauma-
stofunnar í Galleríi Grúsku og
KEA Nettó á Akureyri, auk þess
sem aðrar verslanir kaupa fram-
leiðsluvörarnar. „Einnig póst-
FRÆNKURNAR Hildur Marinósdóttir, t.v., Bryndfs Friðriksdóttir og Anna Lilja Stefánsdóttir, sem situr
við saumavélina, á saumastofu sinni á Árskógsströnd.
sendum við vömna hvert á land
sem er og viðskiptavinirnir fá
vömna í flestum tilfellum í hend-
ur daginn eftir eða tveimur dög-
um eftir að hún er pöntuð.“
Reksturinn gengið þokkalega
MEÐAL nýjunga í framleiðslu saumastofunnar em eyrnahlífar á
hjólreiða- og reiðhjálma. Hér er Bryndís með hjólreiðahjálm með
eyrnahlífum.
Allar em þær frænkur þó sam-
mála um að samkeppnin á þess-
um markaði er geysilega hörð.
Reksturinn hefur gengið alveg
þokkalega og söluaukning verið á
framleiðsluvömm fyrirtækisins.
Að baki þeim árangri liggur hins
vegar þrotlaus vinna og mikið
kynningarstarf. „Við lítum engu
að síður björtum augun til fram-
tíðarinnar og ætlum að halda
áfram að sækja fram á við.“
Hildur, Anna Lilja og Bryndís
em systkinadætur af Krossaætt
og fæddar og uppaldar á Ár-
skógsströnd. Samstarf þeirra
hefur gengið vel og þær vom
sammála um að þær hefðu aldrei
farið út í þennan rekstur ef þær
hefðu ekki verið vissar um að
geta unnið saman.
Morgunblaðið/Benjamín Baldursson
Reið-
skemma
byggð
STJÓRN Hestamannafélagsins
Léttis á Akureyri samþykkti á 70
ára afmælisfundi félagsins 5. nóv-
ember sl. að hefja nú þegar vinnu
við undirbúning að byggingu reið-
skemmu á Hlíðarholti.
Tíminn fram að aðalfundi félags-
ins sem verður í febrúar á næsta
ári, verður notaður til að ræða við
innflytjendur og umboðsmenn sem
flytja inn hús sem geta hentað undir
slíka starfsemi. Stjóm Léttis telur
að nauðsyn þess að reiðskemma
verði reist á Ákureyri sé orðin’hiik-
il. Hestamennska hafi á undanförn-
um árum breyst mikið og krafán um
inniaðstöðu sé orðin hávær.
Hvammshlíðarskóli hefur á und-
anfömum árum boðið upp á hesta-
mennsku með aðstoð Léttis fyrir
sína skjólstæðinga en þessi starf-
semi hefur verið á hrakhólum
vegna aðstöðuleysis. Reynsla af
hestamennsku fyrir fatlaða einstak-
linga hefur sýnt fram á að þörfin er
mikii og það vilja hestamenn styðja
með ráðum og dáð. Reiðskemman
verður að vera að minnsta kosti
60 x 40 metrar svo hún nýtist þeirri
starfsemi sem henni er ætlað að
þjóna.
FREYVANGSLEIKHÚSIÐ hefur
nú byrjað starfsemi sína af full-
um krafti eftir sumarhlé og sýnir
í Freyvangi í kvöld, laugardags-
kvöldið 7. nóvember, kabarettinn
Lómur bar - erótískur dansstað-
ur.
Höfundar em ýmsir félagar í
Freyvangsleikhúsinu og gera þeir
óspart grín að málefnum h'ðandi
stundar. Meðal annars er grín
gert að hagyrðingum og stjóm-
anda þeirra sem tróðu upp í Frey-
Lómur bar
- erótískur
dansstaður
vangi nýlega og þá koma nokkrir
áhugaverðir náungar inn á barinn
og eiga orðaskipti við barþjóninn.
MikiII söngur og tónlist prýða
kabarettinn, erótískir dansarar
em á hverju strái og mikið (jör.
Leikstjórn í sýningu Frey-
vangsleikhússins er í höndum
Helgu Ágústsdóttur og séra
Hannesar Arnar Blandon.
Leikhúsfólk úr Borgarfirði
endurgeldur heimsókn Frey-
vangsleikhússins suður í fyrra og
býður upp á nokkur atriði í kab-
arettinum. Hann hefst kl. 22 í
kvöld og er aðeins uin þessa einu
sýningu að ræða.
Karlakór
Akureyrar - Geysir
Tónleikar í
Glerárkirkju
KARLAKÓR Akureyrar - Geysir
heldur tónleika í Glerárkirkju á
sunnudag, 8. nóvember kl. 17.
Fjölbreytt efnisskrá samanstend-
ur af innlendum og erlendum lögum,
m.a. úr söngleikjunum „Kátu ekkj-
unni“ „Show Boat“ og „Porgy and
Bess“. Einnig verða flutt lög eftir
Jóhann Ó. Haraldsson, Karl 0. Run-
ólfsson, Jón Jónsson frá Hvanná,
Áskel Jónsson og Marshall Bart-
holomew.
Einsöng með kórnum syngja
Magnús Friðriksson tenór og Stein-
þór Þráinsson, baritón en auk þess
kemur fram tvöfaldur kvartett. Und-
irleikari er Richard Simm en stjórn-
andi er Roar Kvam. Ellilífeyrisþegar
fá afslátt af aðgangseyri.
--------------
Bingó
SJÁLFSBJÖRG á Akureyri heldui’
bingó á Bjargi á Bugðusíðu 1 sunnu-
daginn 8. nóvember kl. 14. Spilaðar
verða 12 umferðir. Einnig verður spil-
að bamabingó. Allir eru velkomnii-.
Aksjón
7. nóvember, laugardagur
21.00ÞKvöldljós Kristilegt efni frá
sjónvarpsstöðinni Omega.