Morgunblaðið - 07.11.1998, Page 20

Morgunblaðið - 07.11.1998, Page 20
20 LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI j Morgunblaðið/Guðmundur Þór Sendiherra Rússa heimsótti Dalvík LANDIÐ Samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaga í Þingeyjarsýslum Tillaga liggi fyr- ir í lok næsta árs SENDIHERRA Rússlands á ís- landi, Anatoly S. Zaytsev, var í heimsókn á Dalvík ásamt eiginkonu sinni um helgina. Hann kynnti sér starfsemi fyrirtækja og stofnana, sat hátíðarkvöldverð í boði bæjar- stjórnar Dalvíkur ásamt nýbúum af rússneskum ættum og þá kom hann við í fjósinu á Sökku í Svarfaðardal og kynnti sér þannig svarfdælska búskaparhætti. Heimsóknin er að frumkvæði Fiskmiðlunar Norðurlands sem mjög hefur aukið umsvif sín í Rúss- KEN Leslie opnar sýningu á verk- um sínum í Deiglunni laugardaginn 7. nóvember kl. 17. Ken Leslie er fæddur í New York en alinn upp í Vermont þar sem hann býr nú og kennir við Johnson framhaldsskólann. Flest verk hans eru hringlaga myndii' sem henta bókarforminu ágætlega sé bókin hringlaga eins og hnötturinn. Sé litið á bækur hans er jafnframt litið á hnattlagaða tilveru manneskjunnar um leið og bókinni er flett. Miðjan er í senn endimark og upphaf. Þema hans á sýningunni er staða einstaklingsins í alheiminum, and- stæða borgarlífs og lífsins í og með landi. Frá árinu 1992, þegar við- skiptin við Rússland á sviði sjávai'- útvegs hófust, hafa þau vaxið jafnt og þétt. A myndinni eru frá vinstri Anatoly S. Zaytsev, sendiherra, Alexei Sergueev rússneskur starfs- maður Fiskmiðlunar Norðurlands, Hilmar Daníelsson, framkvæmda- stjóri Fiskmiðlunar Norðurlands, Þorsteinn Aðalsteinsson og Sigríður Rögnvaldsdóttir hjá Norðurströnd við húsakynni Norðurstrandar á Dalvík. náttúrunni. Ken dvelur nú í gesta- vinnustofu Gilfélagsins á Akureyri og verður þar fram til 23. nóvember næstkomandi, en hann er að leggja drög að nokkrum bókum/málverkum um veröldina séða í íslenskri birtu. Hann heimsótti Island í maí og júní síðastliðnum í þeim tilgangi að upp- lifa áhrif íslenskrar birtu að sumri til. Hann kom svo aftur í haust til að kynnast myrkrinu og lífinu á sömu slóðum, en hann ferðaðist um Suður: land, Norðurland og Vestfirði. I næstu viku flytur hann fyrirlestur og sýnir myndir sem hann málaði um borð í ferjunni til Grímseyjar síðast- liðið sumar. FYRSTI fundur samstarfsnefndar um sameiningu sveitarfélaga í Þing- eyjarsýslum eftir sveitarstjórnar- kosningar var haldinn á Húsavík í vikunni. Öll sveitarfélög á starfssvæði hér- aðsnefndar Þingeyinga, að Háls- hreppi frátöldum, eiga fulltrúa í nefndinni, Húsavík fjóra fulltrúa en önnur sveitarfélög tvo. Sveitarfélög- in sem um ræðir eru Þórshafnar- hreppur, Svalbarðshreppur, Rauf- arhafnarhreppur, Óxarfjarðar- hreppur, Kelduneshreppm-, Tjör- neshreppur, Húsavíkurbær, Reykjahreppur, Skútustaðahrepp- ur, Aðaldælahreppur, Reykdæla- hreppur, Ljósavatnshreppur og Bárðdælahreppur. Reinhard Reynisson, bæjarstjóri á Húsavík, er formaður nefndarinn- ar og Gunnlaugur Júlíusson, sveit- arstjóri á Raufarhöfn, varaformað- ur. A fundinum var gengið frá vinnuáætlun nefndarinnar, en sam- kvæmt henni verða skipaðar fimm undirnefndir; stjórnkerfisnefnd, fjárhagsnefnd, atvinnumálanefnd, Egilsstaðir - Aldarafmælis kirkj- unnar að Ási í Fellahreppi var minnst nú um mánaðamótin og af því tilefni var hátíðarguðsþjónusta í kirkjunni. Séra Sigurður Sigurðarson, vígslubiskup í Skálholti, prédikaði og séra Baldur Gautur Baldursson, sóknarprestur flutti ávarp og kvaddi söfnuð sinn. Þetta var síð- asta guðsþjónustan sem hann tók þátt í en hann lætur af störfum sem sóknarprestur í Valþjófsstaða- prestakalli. Séra Bryndís Malla Elídóttir las ritningarlestur og mennta- og félagsmálanefnd og þjónustunefnd. Þessar nefndir munu fjalla um og skila sartistarfs- nefndinni áliti í þeim málaflokkum sem undir þær heyra. Gert er ráð fyrir að unnt verði að ráða starfs- mann til að vinna fyrir samstarfs- nefnd og undirnefndir. Atkvæðagreiðsla um sameiningu í maí 2000 Vinnuáætlun samstarfsnefndar um sameiningu sveitarfélaga í Þing- eyjarsýslum gengur út á að tillaga að sameiningu sveitarfélaga liggi fyrir eigi síðar en í lok næsta árs, 31. desember 1999. Almenn at- kvæðagreiðsla um tillögu nefndar- innar verður í maí árið 2000 að und- angengnum tveimur umræðum í viðkomandi sveitarstjómum. Leiði niðm'stöður atkvæðagreiðslu til þess að kjósa þurfi að nýju verður það gert í október árið 2000. Ný stjórn í sameinuðu sveitarfélagi mun svo taka til starfa að loknum reglubundnum sveitarstjórnarkosn- ingum árið 2002. barn úr Fellum var borið til skírn- ar. Að athöfn lokinni var kirkjugest- um boðið í kaffisamsæti í Fellaskóla þar sem flutt voru ávörp. Áskirkja var vígð 30. október 1898 en hún var reist eftir að kirkjan sem þar stóð áður var rifin eftir tæp 50 ár. Frá 1669 til 1884 var óslitin seta presta undir Ási en þá flutti presturinn í Valþjófsstað í Fljótsdal og hefur prestakallinu verið þjónað þaðan frá þeim tíma. Nýr prestur hefur tekið við Valþjófsstaðaprestakalli. Það er séra Lára G. Oddsdóttir. Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson SESSELJA Jónsdóttir tók fyrstu skóflustunguna að Nesbraut. Framkvæmd- ir hafnar við Nesbraut í Þorlákshöfn Þorlákshöfn - Fyrsta skóflustung- an að Nesbraut var tekin 3. nóvem- ber sl. Nesbraut er gata sem er beint framhald Hafnarskeiðs suður úr þorpinu. Sveitastjóri Ölfus- hrepps, Sesselja Jónasdóttir, tók fyrstu skóflustunguna. Vélagrafan á Selfossi tekur verkið að sér. Á þessu ári var samþykkt nýtt aðal- skipulag fyrir Þorlákshöfn 1997-2009. í aðalskipulaginu eru sett inn ný byggingasvæði fyrir iðnað og grófiðnað og eins kemur fram staðsetning Suðurlandsvegar við Þorlákshöfn. Iðnaðarlóðirnar við Nesbraut eru á nærsvæði við höfnina og er verið að úthluta þar um og yfir 20.000 fermetra lóðum. Samhliða þessari vegagerð er unnið að lagfæringum á höfninni. Höfnin í Þorlákshöfn er eina höfnin á Suðurlandi og er hún nú orðin mjög góð vöru- og fiski- skipahöfn. Með byggingu Nes- brautar er verið að auka framboð á iðnaðarlóðum sem fyrst og fremst eru fyrir starfsemi sem tengist höfninni. Nesbrautin mun liggja sunnan byggðar og tengjast Suður- strandarvegi vestan við byggðina. Á aðra hönd við Nesbrautina er iðnaðarsvæði og á hina höndina er hverfisverndarsvæði. Þorlákshöfn er íyrsta sveitarfé- lagið á landinu sem hefur tekið frá slíkt svæði til verndar. Á þessu svæði eru sögu- og menningarminj- ar sem flestar tengjast búsetu frá gamalli tíð. Svæðið nær yfir heilleg- asta hluta elstu byggðarinnar í Þor- lákshöfn þar sem eru rústir bæja og verbúða, gömul tún og fleira. Þetta svæði tengist síðan Hafnar- nesi sem er á náttúruminjaskrá sem sérstakt útivistarsvæði, sunn- an byggðar vestur af Flesjum. Sigurður Jónsson, skipulags- og bygingarfulltrúi Ölfushrepps, sagði að margt spennandi væri að gerast í Þorlákshöfn þessa dagana og í allra næstu framtíð og væri mikil bjartsýni ríkjandi. Norræna bókasafnsvikan í ljósaskiptunum Ken Leslie sýnir í Deiglunni .. Morgunblaðið/Anna Ingólfs. FJOLMARGIR prestar voru viðstaddir guðsþjónustuna. Frá vinstri eru Cecil Haraldsson, Baldur Gautur Baldursson, Bi-yndís Malla Elídóttir, Sigurður Sigurðsson vígslubiskup, Lára Guðbjörg Oddsdótt- ir, Einar Þór Þorsteinsson prófastur og Vigfús Ingvar Ingvarsson. Askirkja í Fellum hundrað ára Norræn fyndni NORRÆNA bókasafnsvikan verður haldin öðru sinni dagana 9. til 15. nóvember næstkomandi og er þema vikunnar að þessu sinni norræn fyndni. Vikan hefst á því að á bókasöfnum um öll Norðurlönd verður lesinn kafli úr sögu Göran Bengtsons „Ormur rauði“ á sama tíma á öllum stöðum eða kl. 18 að íslenskum tíma næstkomandi mánudag, 9. nóvem- ber. Lesari á Amtsbókasafninu á Akureyri verður Steinunn S. Sigurð- ardóttir. Tónlistardagskrá verður á safninu um kvöldið og er hún helguð nor- rænum bókmenntum og tónlist, nor- rænni kímni og íslenskri fyndni. Fram koma hljómsveitimar „Hund- ur í óskilum", „Börn hins látna“, „Spýtt í lófana“, „Þungarokkhljóm- sveitin Bambi“ og „Bítlahljómsveitin blóm og kransar," ásamt Tjamar- kvartettinum. I vikunni verður valinn sá nor- rænn höfundui' sem safngestum þykir fyndnastur og bröndurunum um frændur okkar á Norðurlöndum verður safnað og verðlaun veitt fyrir besta brandarann. Norræn myndbönd og tónlist verður ókeypis þessa viku og sérstök athygli verður vakin á norrænum bókmenntum. Ungir sem aldnir í messu Grundarfirði - Síðastliðinn sunnudag var haldin messa í Grundarfjarðarkirkju sem sér- staklega höfðaði til yngsta og elsta hluta íbúanna. Þar sungu saman kór eldri borgara og barnakórinn. Báðir Joessir kórar hafa starfað I Grundar- firði um skeið en ekki verið leiddir saman fyrr en nú. Prest- ur í messunni var sr. Karl Matthíasson. Morgunblaðið/Hallgrímur Magnússon t i I I I I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.