Morgunblaðið - 07.11.1998, Qupperneq 26
26 LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
Salan margfölduð
á þremur árum
Sæmark selur sjávarafurðir fyrir
fjóra milljarða króna á þessu ári
SALA á sjávarafurð-
um á vegum Sæmarks
hf. hefur aukist veru-
lega á síðustu árum og
hefur andvirði seldra
afurða farið úr 550
milljónum árið 1995 í
3,5 milljarða það sem
af er þessu ári. í ljósi
aukinna umsvifa Sæ-
marks hf. hefur verið
ákveðið að endurskoða
skipulag fyrirtækisins.
Nýr framkvæmda-
stjóri, Halldór G. Eyj-
ólfsson, hefur verið
ráðinn til þess að ann-
ast yfirstjóm félagsins,
en hann hefur undan-
farið starfað sem framkvæmda-
stjóri Fiskverkunar Kristjáns Guð-
mundssonar hf. Kjartan Ólafsson
mun gegna starfi framkvæmda-
stjóra sölumála.
Sæmark hf. er í hópi 10 stærstu
útflytjenda landsins. Fyrirtækið
hefur verið í eigu Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna hf. frá því í árs-
lok 1994 og annast það kaup og sölu
sjávarafurða frá aðilum sem ekki
eru samningsbundnir SH. Félagið
selur ekki einvörðungu frosnar af-
urðir heldur einnig ferskar, niður-
lagðar og saltaðar. Fara þær á alla
hefðbundna mai-kaði fyrir sjávaraf-
urðir frá Islandi. Umsvif fyrirtæk-
isins og sala hafa aukist verulega á
síðustu árum. Arið 1995 seldi félag-
ið sjávarafurðir fyrir
um 550 milljónir króna
og starfsmenn voru 4,
salan var einn milljarð-
ur árið 1996 og 2 millj-
arðar árið 1997. Það
sem af er árinu 1998 er
salan orðin 3,5 millj-
arðar króna og stefnir í
4 milljarða allt árið,
starfsmenn eru 10.
Nýr framkvæmda-
stjóri ráðinn
Halldór G. Eyjólfs-
son er 32 ára verk-
fræðingur. Hann varð
stúdent frá Mennta-
skólanum við Hamra-
hlíð árið 1986 og lauk BS-prófi í
vélaverkfræði frá Háskóla Islands
árið 1990. Hann lagði síðan stund á
rekstrarverkfræði við Danmarks
Tekniske Hojskole þaðan sem hann
útskrifaðist árið 1992. Eftir að
Halldór kom heim úr námi starfaði
hann hjá Samstarfsnefnd atvinnu-
rekenda í sjávarútvegi á árunum
1992-1994. Árið 1994 hóf hann störf
hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
þar sem hann starfaði til 1998 sem
deildarstjóri markaðsdeildar. Hall-
dór hefur undanfarið starfað sem
framkvæmdastjóri Fiskverkunar
Kristjáns Guðmundssonar hf. Hall-
dór er giftur Sólveigu H. Sigurðar-
dóttur lyfjafræðingi og eiga þau
eitt barn.
Halldór G.
Eyjólfsson
Fjórir sviptir leyfi
FISKISTOFA svipti fjóra báta
veiðileyfi tímabundið í október. Þar
af var einn bátanna sviptur tvíveg-
is. Emir BA 29 var sviptur veiði-
leyfi 6. október vegna afla umfram
heimildir. Báturinn fékk leyfið að
nýju daginn eftir eftir að afla-
marksstaða hans hafði verið lag-
færð. Þann 21. október var Ernir
sviptur veiðileyfi á ný af sömu
ástæðu. Vegna ítrekaðs brots fær
báturinn ekki veiðileyfi á ný fyrr en
tveimur vikum eftir að aflamarks-
staða hefur verið lagfærð.
Auk þessa báts voru bátarnir
Meta VE 8, Vonin SU 36 og Tryllir
GK 600 sviptir veiðileyfi vegna afla
umfram heimildir. Veiðileyfi fæst
að nýju þegar aflamarksstaða hefur
verið lagfærð. Það hefur þegar ver-
ið gert hjá Trylli, sem fékk leyfið á
ný þriðja október.
Ljósmynd/Snorri Snorrason
Smáey VE breytt
NÝVERIÐ lauk breytingum
og almennum endurbótum á
Smáey VE frá Vestmannaeyj-
um. Verkið var unnið hjá
Stáli hf. á Seyðisfirði. Skipið
var lengt um 3 metra og er
nú 28,9 metra langt. Einnig
var sett ný ljósavél í skipið,
gerðar breytingar á milli-
dekki og innréttingar fyrir
áhöfn endurnýjaðar. Þá var
fiskilest skipsins breytt
þannig að nú komast í hana
110 kör sem bætir gæði
o g bætt
aflans til muna. Þess má
einnig geta að í fyrstu veiði-
ferð eftir breytingarnar fékk
Smáey VE fullfermi á aðeins
tveimur sólarhringum en
skipið var þá að veiðum
suður af landinu.
Fá bara sfld í flottrollið
SÍLDVEIÐISKIPIÐ Beitir NK
fékk um 200 tonn af sfld í flottroll í
Héraðsflóa í fyrrinótt. Að sögn Sig-
urjóns Valdimarssonar, skipstjóra,
er sfldin prýðisgóð og talsvert að sjá
af henni á svæðinu. Hann segir sfld-
ina hinsvegar liggja nokkuð djúpt
og því ekki í færi fýrir nótaskipin.
Engin síldveiði hefur verið í nót
síðustu daga. Húnaröst SF leitaði
meðfram suðurströndinni og Aust-
urlandinu í fyrrinótt en fann ekk-
ert. Skipið var í gær komið til hafn-
ar á Hornafirði þar sem útbúa á
skipið á tveggja báta trollveiðar
ásamt Jónu Eðvalds SF. Gert er
ráð fyrir að skipin haldi til sfldveiða
efth- helgi. Tveggja báta troll hafa
lítið verið reynd við sfldveiðar hér
við land en hafa gefið góða raun við
veiðar á uppsjávarfiskum erlendis.
Síldin stendur
djupt og ekkert
næst í nótina
og mun írskur skipstjóri vera skip-
stjórunum innan handar í fyrstu
veiðiferðinni.
Hættir fyrir vestan
Ekkert skip er nú á sfldveiðum
vestur af Snæfellsnesi en þar fann
hafrannsóknaskipið Arni Friðriks-
son talsvert magn af sfld fyrr í vik-
unni. Þrjú skip, Arnþór EA, Ant-
ares VE og Oddreyrin EA, hafa
verið á svæðinu síðustu daga en
voru öll á austurleið í gær. Arnþór
EA landaði um 150 tonnum af sfld á
Akranesi á miðvikudag og sagði
Sævar Ingvarsson, stýi’imaður, í
samtali við Morgunblaðið í gær að
skipin hafi ekkert kastað í þrjá
daga. „Það er töluvert að sjá af sfld
en hún er ekki í veiðanlegu ástandi
og það er hæpið að það veiðist mik-
ið í nót úr þessu. Það hefði örugg-
lega verið hægt að ná meira af sfld
fyrir vestan hefðu menn skoðað
svæðið fyrr í haust. Það veit enginn
hvenær hún kom á þetta svæði en
það bendir allt til þess að hún hafi
verið þar í nokkurn tíma. Engu að
síður er gott að vita af sfldinni
þarna, að hún sé yfirhöfuð til. Það
kemur að því fyrr eða síðar að hún
kemst í veiðanlegt ástand en því
miður veit nú enginn hvenær það
nú verður," sagði Sævar.
Fjórðungur aflans
til vinnslu
LANDK) OG ORKAN
Sýndar eru myndir Ragnars Axelssonar Ijósmyndara Morgunblaðsins af svæðum sem gætu farið undir
virkjanir, samkvæmt áætlunum, sem gerðar hafa verið. Einnig eru sýndar samanburðarmyndir þar sem
fyrirhuguð uppistöðulón og mannvirki hafa verið teiknuð inná. Myndirnar á sýningunni eru til sölu.
Nú hefur samtals verið landað
um 33 þúsund tonnum af sfld á yfir-
standandi vertíð. Þar af hafa tæp
25 þúsund tonn farið til bræðslu,
rúm 5.600 tonn til söltunar og rúm
1.500 tonn til frystingar. Mest hef-
ur verið landað hjá SR-mjöli hf. á
Seyðisfirði, tæpum 8 þúsund tonn-
um og um 3.500 tonn hafa borist til
Síldarvinnslunnar hf. á Neskaup-
stað. Heildarkvóti vertíðarinnar er
89.540 tonn og því er nú 56.620 tonn
eftir af kvótanum.
Ertu með brjóstsviða?
Þá hjálpar SILICOL
Komið og sjáið hálendi Islands meó augum Ragnars Axelssonar.
Fæst í apótekum