Morgunblaðið - 07.11.1998, Qupperneq 30
30 LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Opiðídagkf. 10-18
Trebol 60 0
Verð 31.500 kr.
Margir viðarlitir
ERLENT
Kínverjar for-
dæma Tævan-
för Richardsons
Baltimor
L: 210 sm
Microvin áklæði
99.800 kr.
Margir litir
Tilkynning um almennt hlutafjárútboð og skráningu á Verðbréfaþingi íslands
OPIN KERFIHF
m HEWLETT PACKARD
Hlutafjárútboð
Fjárhæð útboðsins er 4.000.000 krónur að nafnvirði og er um að ræða nýtt hlutafé. Hlutabréf
Opinna kerfa hf. að nafnvirði 38 m.kr. eru þegar skráð á Aðallista Verðbréfaþings íslands.
Útboðsgengi er 55,5 til forkaupsréttarhafa og 57,0 í almennri sölu.
Tilgangur útboðsins er að afla fjár vegna fjárfestinga í öðrum félögum og fjölga hluthöfum til að
uppfylla skilyrði Verðbréfaðings íslands um skráningu Opinna kerfa hf. á Aðallista.
Forkaupsréttartímabil: 11. nóvember 1998 til 13. nóvember 1998.
Almennt sölutímabil: 16. nóvember 1998 til 20. nóvember 1998.
Nokkrir stærstu hluthafar Opinna kerfa hf. hafa framselt forkaupsrétt sinn til
Búnaðarbankans Verðbréfa sem mun annast sölu á þeim hluta til almennings.
Söluaðilar eru Búnaðarbankinn Verðbréf og útibú Búnaðarbanka íslands hf.
Umsjón með útboðinu hefur Búnaðarbankinn Verðbréf, Hafnarstræti 5, 3. hæð, 155 Reykjavík.
Verðbréfaþing íslands hefur samþykkt að skrá ný hlutabréf Opinna kerfa hf. á Aðallista þingsins.
Niðurstöður útboðsins, sem munu liggja fyrir í lok nóvember, verða tilkynntar í viðskiptakerfi
Verðbréfaþings íslands ásamt upplýsingum um endanlega skráningardagsetningu.
Skráningar má vænta í byrjun desember, enda uppfylli félagið þá öll skilyrði um skráningu.
Skráningarlýsing og önnur gögn um Opin kerfi hf. liggja frammi hjá
Búnaðarbankanum Verðbréfum og Opnum kerfum hf.
BUNAÐARBANKINN
VERÐBRÉF
- byggir á trausti
Hlífðarefni undir
borðdúka
Uppsetningabúðin
Hverfísgötu 74, sími 552 5270.
Leitin að réttu eigninni
hefst hjá okkur
Vettvangur fólks í fasteignaleit
-
.mbl.is/fasteignir
Peking. Reuters.
KÍNVERJAR fordæmdu í gær
fyrirhugaða heimsókn Bills Ric-
hardsons, orkumálaráðherra Band-
aríkjanna, til Taívan í næstu viku,
og vöruðu við því að hún myndi
skaða samskipti Bandaríkjanna og
Kína.
I yfírlýsingu kínverska utan-
ríkisráðuneytisins segir að stjóm-
völd í Kína séu mótfallin formleg-
um tengslum Bandaríkjanna og
Taívan, sem og heimsóknum band-
arískra embættismanna þangað.
Er Bandaríkjastjóm hvött til að
einskorða samskipti við Taívan við
óopinber tengsl.
Bandaríkjastjóm greindi frá því
á fimmtudag að Richardson myndi
heimsækja Taívan til að ræða efna-
hags- og viðskiptamál, og ráðgert
er að hann eigi fund með Lee
Teng-hui, forseta eyjarinnar.
Engin stefnubreyting
Heimsóknir bandarískra emb-
ættismanna til Taívans hafa verið
fátíðar, en James Rubin, talsmað-
ur utanríkisráðuneytisins, vísaði
því á bug að för Richardsons
markaði stefnubreytingu af hálfu
Bandaríkjastjórnar. Heimsóknin
væri í samræmi við ákvörðun sem
tekin var árið 1994 um að embætt-
ismönnum á sviði efnahags- og
tæknimála væri heimilt að fara í
ferðir til eyjarinnar. Rubin sagði
að Richardson færi í boði nokk-
urra fyrirtækja, en Bandaríkin eru
stærsti viðskiptaaðili Taívana.
Kínverjar líta á Taívan sem
hluta af Kína, og hafa þrýst fast á
bandarísk stjórnvöld að embættis-
menn fari ekki þangað í opinberar
heimsóknir. Bandaríkjastjóm hélt
stjórnmálasamskiptum við stjórn
Chiang Kai-sheks á Taívan eftir
valdatöku kommúnista í Kína árið
1949, en sleit þeim og viðurkenndi
stórnvöld í Peking árið 1979. Bill
Clinton Bandaríkjaforseti olli
nokkurri reiði á Taívan í sumar, er
hann heimsótti Kína og gaf til
kynna að Bandaríkin styddu ekki
kröfu Taívana um alþjóðlega við-
urkenningu á sjálfstæði eyjarinn-
ar.
Reuters
Flóðahætta í
SÍGAUNAR í Ungveijalandi
hlaða varnargarða við ána
Tisza, við þorpið Tivadar, um
350 km frá Búdapest. Mikil úr-
Ungverjalandi
koma hefur valdið flóðum víða í
Evrópu. Óttuðust menn í gær
að áin myndi flæða yfir bakka
sína og voru hús við hana rýmd.
Umræðum um
Kyoto-sáttmálann
ljúki árið 2001
Buenos Aires, London. Reuters.
GERT er ráð fyrir að fulltrúar á
loftslagsráðstefnunni í Buenos
Aires í Ai-gentínu samþykki að
tímamörk til að ljúka umræðum
um Kyoto-loftslagssáttmálann
verði árið 2001, að sögn frétta-
skýrenda.
Er nú tekin að koma skýrari
mynd á viðræður á ráðstefnunni og
sagði Michael Williams, talsmaður
Sameinuðu þjóðanna, í gær að von-
ast væri til að á næstu tveimur til
þremur árum tækist að samþykkja
áætlun sem tryggði að öll ákvæði
Kyoto-sáttmálans ættu við er hann
verður tekinn í notkun, en verði
ekki staðlausir stafír.
Hið sögulega Kyoto-samkomu-
lag, sem samþykkt var í desember
síðastliðnum, gerir kröfu um að
iðnríkin hefji baráttu gegn gróður-
húsaáhrifum með því að draga úr
notkun efna, sem gefa frá sér skað-
legar gastegundir, um fímm pró-
sent frá því sem var árið 1990, á
tímabilinu 2008-2012. Er mjög
rætt um það í Buenos Aires hvern-
ig hægt sé að ná þessum markmið-
um, sem virðist ætla að reynast
þjóðum erfitt þótt græningjar víðs
vegar að úr heiminum hafí í gær
haldið því fram að þetta 5% mark-
mið sé engan veginn nægjanlegt og
að gera yrði mun strangari kröfur.
Er gert ráð fyrir því, eins og áð-
ur segir, að þjóðum heims verði
gert skylt að ljúka umræðu um
Kyoto-sáttmálann árið 2001 og er
áætlað að fram fari ráðstefna ári
áður annaðhvort í Marokkó eða
Jórdaníu þar sem gerð verður
grein fyrir stöðu mála. Annað mál
er hvort þessum markmiðum verð-
ur náð því helstu mengunarvaldar í
heiminum, Rússar og Bandaríkja-
menn, eiga enn langt í land með að
samþykkja Kyoto-sáttmálann, ef af
því verður á annað borð.