Morgunblaðið - 07.11.1998, Síða 34
34 LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Ekkert ástarbragð af
örbylgjuelduðum mat
Morgunblaðið/Kristinn
DROFN með örbylgjupottinn í höndunum. Pottinn má bæði nota eins
og hann snýr á myndinni og þannig að hvíta lokið verður að botni.
FJÖLSKYLDA nokkur keypti sér
örbylgjuofn að vandlega athuguðu
máli. Hún átti von á að eldamennska
á heimilinu yrði öll miklu auðveldari
og fljótlegi'i með tilkomu ofnsins en
ekki leið á löngu þar til hann var
ekki til annars notaður en að poppa
poppmaís og hita vatn í te.
Þessi saga er ekkert einsdæmi.
Dröfn Farestveit hjá verslun Einars
Farestveit segist þvert á móti verða
vör við þann misskilning að við það
eitt að eignast ný heimilistæki á
borð við örbylgjuofn og gashellur
verði maður meistarakokkur. Svo
einfalt er málið auðvitað ekki en „þú
getur notað örbylgjuofn eins og
eldavél," segir hún við blaðamann,
sem ekki kann á ofninn sinn. „Það
þarf aðeins að breyta um stíl og
tækni. Ég segi stundum við fólk:
„Spurðu sjálfan þig, þarf ég að nota
hita? Ef svarið er já, getur þú yfir-
leitt notað örbylgjuofninn." Það er
þó ekki hægt að nota hann t.d. til að
steikja kleinur eða annað í fljótandi
feiti. Umfram allt þarf maður að
hafa viljann til að nota ofninn,“ segir
hún og bendir á að fólk ætti í raun
að venja sig á að hugsa sig um og
spyrja áður en hafist er handa við
eldamennskuna hvort hægt sé að
matreiða í ofninum.
Ekkert ástarbragð
Örbylgjuofn er mjög frábrugðinn
venjulegri eldavél. Örbylgjugjafi
ofnsins myndar örbylgjur sem lenda
á matnum og hita hann upp án þess
að vatn þurfi til eins og þegar matur
er eldaður á eldavél. Sameindirnar í
matnum komast á hreyfingu við það
að örbylgjurnar skella á honum, þær
fara að núast hver við aðra og mat-
urinn fer að hitna. Þess vegna, segir
Dröfn, haldast næringarefnin mun
betur í matnum og maturinn missir
síður náttúrulegt bragð sitt en þeg-
ar hann er eldaður á hefðbundinn
hátt. Það þýðir einnig að maður get-
ur dregið úr kryddi og salti. „Maður
getur nánast eldað matinn í sjálfum
sér. Af hverju skyldi maður t.d.
sjóða fisk í vatni þegar maður getur
soðið hann í eigin vökva?“ spyr
Dröfn.
Dröfn segir að sömu lögmál gildi
um matreiðslu í örbylgjuofni og á
eldavél. Ef maður lækkar hita á
eldavél þá gerir maður það líka þeg-
ar maturinn er matreiddur með ör-
bylgjum. Þetta á t.d. við þegar hrís-
gi-jónagi-autur er matreiddur. Fyrst
eru hrísgrjónin sett í örbylgjupott-
inn með ofurlitlu vatni og vatnið hit-
að við fullan styrk þar til það fer að
sjóða. Þá er styrkurinn lækkaður,
u.þ.b. um helming, og grauturinn
látinn malla þar til grjónin eru soð-
in. Þetta segir Dröfn að sé bæði auð-
velt og þægilegt og að engin hætta
sé á að grauturinn brenni við og fái í
sig ástarbragð. Og svo lesendur séu
ekki skildir eftir í lausu lofti fylgja
hér nánari leiðbeiningar: Hrærið í
grjónunum u.þ.b. þrisvar á meðan á
suðunni stendur og bætið mjólkinni
út í í 3-4 skömmtum. Það tekur ekki
styttri tíma að elda hrísgrjónagraut
í örbylgjuofni en á eldavélarhellu en
það er óneitanlega kostur að maður
þarf ekki að standa yfir honum á
meðan hann sýður.
Þá væru Bandaríkjamenn
flestir undir grænni torfu
Margir standa í þeirri trú að mat-
ur sem eldaður er í örbylgjuofni sé
ekki eins hollur og matur sem mat-
reiddur er á hefðbundinn hátt.
Dröfn hefur ekki mikla trú á að það
sé rétt og bendir á að ef svo væri
væru Bandaríkjamenn líklegast
flestir komnir undir græna torfu.
„Þeir hafa notað örbylgjuofna í
marga áratugi. Það eru u.þ.b. 15 ár
síðan farið var að selja örbylgjuofna
á Islandi og þá höfðu Bandaríkja-
menn notað þá í 30 ár eða lengur.“
Sjálf notar Dröfn örbylgjuofn
mikið og hún veit af fólki sem ein-
göngu eldar með örbylgjum. Full-
orðinn maður sem kom til hennar á
námskeið þar sem hún kenndi fólki
að nota ofnana var meira að segja
búinn að finna aðferð til að sjóða
eggin sín í ofninum. Það gerði hann
með því að vefja álpappír utan um
eggin og setja þau síðan ofan í skál
með vatni í. Örbylgjur komast ekki í
gegnum málma en þær hita upp
vatnið og álpappírinn leiðir hitann til
eggjanna. Ajmar maður, segir
Dröfn, að hefði bókstaflega horft á
rafmagnsreikninginn sinn lækka
eftir að hann fór að taka örbylgju-
ofninn fram yfir eldavélina.
- En má setja öll áhöld og ílát sem
komast þar íýrir inn í ofninn og er
alveg sama hvernig þau eru á litinn?
„Það er mjög auðvelt að ganga úr
skugga um hvaða ílát má nota í ör-
bylgjuofn. Maður setur vatn í ílátið,
setur það inn í ofninn og stillir á eina
mínútu á fullum styrk. Ef ílátið
verður heitt er það merki um að það
innihaldi blý. Þá má ekki nota það
því blýið gengur í samband við mat-
inn,“ svarar Dröfn. Ekki má heldur
nota ílát með silfur- eða gullskreyt-
ingum því þá er hætta á að ofninn
eyðileggist. Þá skal og hafa í huga
að örbylgjurnar verða alltaf að hafa
eitthvað til að hita upp og þess
vegna má ekki setja hann í gang ef
hann er tómur. Gott ráð við þessu er
að hafa vatn í glasi í ofninum þegar
hann er ekki í notkun.
Aldrei að borða matinn
beint úr ofninum
Dröfn segir að áður fyrr hafi ílát
sérstaklega ætluð fyrir örbylgjuofna
verið til í miklu úrvali en nú séu aðr-
ir tímar. „Þá voru t.d. til sérstök ílát
til að poppa í. Slíkt ílát sérðu ekki
lengur - nema þá kannski heima hjá
mér,“ segir hún kímin. Þægilegast,
segir Dröfn, að sé að elda matinn í
því íláti sem á að bera hann fram í.
Eldfast gler henti vel í örbylgjuofna
og það geri flest plastílát einnig. Þó
eru sérstakir pottar fáanlegir og eru
þeir t.d. hentugir ef elda á grauta,
súpur og pottrétti í ofninum. Auk
þess er hægt að fá sérstakan disk
sem hitnar vel en á honum má bæði
steikja egg og hita bökur þannig að
botn þeirra verður stökkur.
Dröfn segir að með því að nota ör-
bylgjuofn sé oftast hægt að spara
sér töluverðan tíma. Enginn tími fer
í að hita ofninn upp og bökunartím-
inn sjálfur er innan við stundarfjórð-
ungur. „En kökumar líta öðru vísi
út en ef þær em bakaðar í bökun-
arofni því sykurinn brúnast ekki í
örbylgjuofninum," segir hún. Þá
segir hún það óneitanlega kost, sér-
staklega fyrir aldraða, að ofninn
slekkur alltaf á sér sjálfur. Hann er
því ömggari en eldavél, ekki síst ef
menn eiga vanda til að gleyma sér.
Þegar matur er eldaður eða hitað-
ur upp í örbylgjuofni er mikilvægt
að fólk muni að eldunin heldur
áfram í svolitla stund eftir að ofninn
hefur slökkt á sér. „Þess vegna má
aldrei borða matinn beint úr ofnin-
um,“ segir Dröfn og bætir við: „Oft
segir fólk að matur úr örbylgjuofni
sé svo þurr. Ef svo er hefur fólk
gleymt að gera ráð fyrir biðtíman-
um. Sameindirnar hætta ekki að
rekast hver á aðra um leið og ofninn
slekkur á sér. Best er að slökkva á
ofninum skömmu áður en maturinn
er tilbúinn. Þá verður engin hætta á
að hann verði þurr.“ Einnig má
koma í veg fyrir að matur þorni með
því að setja létt lok eða eldhúspapp-
ír ofan á matarílátin eða matinn.
Nokkrar þumal-
fingursreglur
-En hvernig veit maður hvað
maturinn á að vera lengi í ofninum?
Dröfn segir að það fari eftir
styrkleika ofnsins. Upplýsingar um
þetta er að finna í notendaleiðbein-
ingum sem fylgja ofnunum og best
er að kynna sér þær til hlítar. Þó
eru nokkrar þumalfingursreglur
sem gott er að styðjast við.
Fiskur og grænmeti er t.d. eldað
á fullum styrk. Nýtt grænmeti er
haft í örlitlu vatni en vatnið er aftur
á móti óþarft ef verið er að hita fros-
ið grænmeti. Kjöt er yfirleitt eldað á
hægum hita þannig að styrkurinn er
lækkaður. Flesk er steikt á fullum
styrk. Þá er það sett í ílát og papp-
írsþurrka sett yfir til að koma í veg
fyrir að fitan úr fleskinu ýrist út um
allan ofn. Setja má 3-4 lög af fleski í
ofninn í einu og þá er eldhúspappír
hafður á milli laga. Ef maturmn er
misþykkur, svo sem fiskflök, eða
mismunandi grannt er inn að beini
er þunnu/grunnu hlutunum raðað
innst á diskinn en þykku hlutunum
komið fyrir úti við brúnirnar. Best
er að vefja álpappír utan um
þynnstu hlutana og fjarlægja hann
þegar u.þ.b. helmingur er eftir af
matreiðslutímanum.
Orbylgjuofninn kemur svo að
góðum notum þegar smjörið er hart
og ekki er hægt að smyrja því á
brauðið, þegar ísinn er of harður til
að hægt sé að skafa hann og þegar
bræða þarf súkkulaði eða smjörlíki
í baksturinn. Þá er styrkur ör-
bylgnanna hafður aðeins lægri en
sá styrkur sem notaður er til að
þýða frosinn mat. Kökur og kleinur
er auðvelt að hita í ofninum og þá á
lágum styrk - ella verða þær seig-
ar. Það sama á við um brauð. Ef
sultukrukkan er næstum tóm má
skella henni í smá stund inn í ofn-
inn. Þá rennur sultan niður á botn.
Síðan má hæglega búa til lauk-
smjör út á fiskinn í ofninum. Fyrst
er laukurinn mýktur í ofurlitla
stund og síðan er smjörinu bætt út
á. Ef ætlunin er að setja sveppi í
súpu, sósu eða pottrétt getur verið
gott að sjóða þá í smjöri í ofurlitla
stund í ofninum. Ef ætlunin er að
hita upp mat með sósu er gott að
láta sósuna hylja matinn. Kemur
hún þá í veg fyrir að maturinn
þorni. Ef grill er innbyggt í ofninn
er hægt að brúna ost og gratín en
vert er að minna á að grillin eru
aldrei eins kröftug og grill í bökun-
arofni.
Og svo kemur rúsínan í pylsuend-
anum: „Einu sinni keypti ég Ca-
membert-ost fyrir veislu sem ég
ætlaði að hafa um kvöldið. Kjarninn
í ostinum var of harður svo ég setti
hann í ofninn og skaut nokkram
geislum á hann. Þannig gat ég flýtt
fyrir því að hann þroskaðist,“ segir
Dröfn.
Örbylgjuofninn er sem sé til ým-
issa hluta nytsamlegur og margt
fleira hægt að bralla í honum að en
poppa og hita tevatnið.
Spurt og svarað
um neytendamál
E-vítamín gegn
krabbameini
Morgunblaðið/Einar Falur
E-VITAMIN er m.a. að finna í brauði tír grófu korni.
Rúmt um
súkkulaðikex
NEYTANDI sneri sér til Neyt-
endasíðunnar með, að því er hann
sagði, enn eitt dæmið um hvernig
reynt væri að plata neytendur með
umbúðum.
Hann hafði keypt sér myndar-
legan súkkulaðikexpakka og
brugðið í brún við að sjá hversu
rúmt var um kexkökumar í pakk-
anum. A myndinni sést innihaldið
svo að hver getur dæmt fyrir sig.
Hins vegar ber að taka fram að á
pakkningunum er skýrt tekið fram
að aðeins eigi að vera sjö kökur í
pakkanum eins og raun bar vitni.
E-VÍTAMÍN hefur verið mjög í
sviðsljósinu á undanföranum áram
en sönnur á tilvist þess vora fyrst
færðar árið 1922 af vísindamönnum
við Berkley-háskólann í Bandaríkj-
unum. Vítamínið hefur mikið verið
rannsakað síðan og vitneskjan um
eiginleika þess eykst sífellt. Skv.
rannsóknum sem gerðar hafa verið
á E-vítamíni era líkur þeirra sem
era vel birgir af vítamíninu á að fá
hjartaáfall marktækt minni en
þeirra sem hafa lítið af E-vítamíni í
líkama sínum. Einnig hefur komið í
ljós að háir skammtar af E-vítamíni
gætu jafnvel orðið til þess að seinka
þróun Alzheimer-sjúkdómsins að
einhverju marki. Þá hefur komið á
daginn að E-vítamín gæti minnkað
líkur á myndun krabbameins í
blöðrahálskirtli sem og minnkað lík-
ur á að krabbameinið verði þeim
sem fá það að aldurtila.
Verndar blöðruhálskirt ilinn
Rannsóknin, sem leiddi áhrif
vítamínsins á blöðruhálskirtils-
krabbamein í ljós, var framkvæmd í
Finnlandi og var sagt frá henni í
tímaritinu Journal of the National
Cancer Institute fyrr á árinu. Rúm-
lega 30 þúsund finnskir reykinga-
menn tóku þátt í henni og var þeim
skipt í fjóra hópa. Fengu hóparnir
mismunandi stóra skammta af E-
vítamíni; sá fyrsti fékk 50 mg af því,
sá næsti fékk jafnmikið auk 20 mg
af beta-karoteni, þriðji hópurinn
fékk einungis beta-karoten og sá
fjórði hvorugt. Skammturinn af E-
vítamíninu er fimmfaldur ráðlagður
dagskammtur fyrir karla yfir 14 ára
aldri.
Fimm til átta árum eftir að rann-
sóknin hófst vora þeir sem fengu
E-vítamínið tæplega þriðjungi síð-
ur líklegir til að fá blöðru-
hálskrabbamein en þeir sem ekki
fengu vítamínið og líkurnar á að
þeir sem fengu E-vítamín dæju úr
krabbameininu voru 41% lægri.
Þeir sem fengu beta-karotenið voru
ofurlítið líklegri til að fá krabba-
meinið en þeir sem tóku E-vítamín-
ið inn en munurinn var ekki mark-
tækur.
E-vítamín tilheyrir hópi efna sem
kallaður hefur verið andoxunarefni
eða sindurvari. Þau hafa þá eigin-
leika að geta fangað eða hrifsað til
sín frjálsa radikala, efni sem mynd-
ast í líkamanum við oxun, en þeir era
taldir geta skemmt erðfaefni frumn-
anna.
Stórir skammtar auka líkur
á blæðingum
E-vítamín er fituleysanlegt. Það
myndast í ýmsum plöntum og þess
vegna er mikið af því í jurtaolíum á
borð við kornolíu, sojaolíu og
sólblómaolíu, þar sem það verkar
sem þráavarnarefni. I líkamanum
verndar það fituefni gegn oxun og
þá aðallega fjölómettaðar fitusýrur í
frumuhimnum líkamans og blóðfitu.
Fullvaxta einstaklingar sem vilja
taka E-vítamín í fimmföldum ráð-
lögðum dagskömmtum, samanber
rannsóknina hér að ofan, verða að
taka það í töfluformi þar sem þeir
yrðu að innbyrða töluvert magn af
fæðunni til að ná svo stóram
skammti. I fréttabréfi læknadeildar
Harvard-háskóla er ráðlagt að taka
ekki meira en 400 alþjóðlegar ein-
ingar af E-vítamíni án þess að hafa
samráð um það við lækni. Háir
skammtar auka líkur á innvortis
blæðingum og þeir sem taka blóð-
þynningarlyf ættu að fara varlega.