Morgunblaðið - 07.11.1998, Qupperneq 36
ENNI L
Játvarður ruddi
rennilásnum br
MORGUNBLAÐIÐ
Þeir eru margir smáhlutirnir sem við not-
um daglega, jafnvel mörgum sinnum á dag,
án þess að leiða hugann að því hvernig
væri að vera án þeirra eða hver hafí átt
hugmyndina að gerð þeirra. Einn slíkur er
rennilásinn og Bergljót Ingólfsdóttir veltir
því fyrir sér hvar við værum stödd án hans
og rifjar upp sögu þessa þarfa hlutar.
ÞAÐ VAR bandarískur sölu-
maður landbúnaðartækja í
Chicago, Whitcomb L. Jud-
son að nafni, sem fékk stað-
fest einkaleyfi sitt á rennilás (þá
kallaður ,,festir“) við Einkaleyfis-
stofnun Bandaríkjanna 29. ágúst ár-
ið 1896. Hann framleiddi rennilása
sem setth’ voru í skó árið 1891 og átti
hugmyndir að mörgum uppfinning-
um öðrum. En þeir voru fleiri sem
komu við sögu áður en rennilásinn
varð eins og hann er nú.
I bókinni „Zipper" eftir Robert
Friedel sem kom út á aldarafmæli
rennilássins, árið 1996, eru ná-
kvæmar lýsingar og teikningar af
tilraunum sem gerðar voru, ásamt
nöfnum þeirra manna sem við þær
fengust.
Bókin er sjálfsagt skemmtileg
lesning fyrir tækniáhugamenn, en
hér verður hins vegar vikið að öðru
sem ritað hefur verið og rætt um
rennilásinn, sitt úr hverri áttinni.
Minna má vart vera, svo lengi og vel
hefur rennilásinn þjónað okkur
mannfólkinu. Eitt er víst, það væri
ekki gott að vera án hans.
í upphafí
Eins og áður segir var það W.L.
Judson sem var upphafsmaðurinn,
en Giedon Sundback, sænskur verk-
fræðingur í Pennsylvaníu í Banda-
ríkjunum, er talinn hafa gert
rennilásinn eins og við þekkjum
hann nú. Hann framleiddi rennilása
sem settir voru í svefnpoka og pen-
ingabelti hermanna í fyrri heims-
styrjöldinni. I lásana var notuð
málmblanda sem fengin var frá
Þýskalandi en það efni var uppurið
og ófáanlegt árið 1916.
Árið 1923 framleiddi gúmmífyrir-
tæki í Bandaríkjunum bomsur með
rennilás og kom á markað undir
heitinu „Zipper". Nafnið á bomsun-
um færðist yfir á rennilásinn og var
þar með tekið inn í málið og hefur
verið þar síðan.
I Bretlandi varð „zipper“-nafnið
kunnugt árið 1924 þegai’ fyi-sta
rennilásaverksmiðjan var reist í
Birmingham og það auglýst í Daily
Mail.
Játvarður, prinsinn af Wales, (sá
er þurfti að afsala sér konungdómi
vegna ástar á fráskilinni konu) vai’
mikill skartmaður og þótti til fyrir-
myndar í klæðaburði. Þegar það
spurðist út árið 1935 að hann gengi í
buxum með rennilás í buxnaklaufinni
voru betri klæðskerar í London ekki
lengi að taka við sér og skiptu yfir
frá hnappagötum og tölum.
Arið 1938 voru 13 rennilásaverk-
smiðjur starfandi í Bretlandi, 20 í
Þýskalandi og 12 í Frakklandi. Þær
voru þá orðnar margfalt fleiri í
Bandaríkjunum.
Japanh- hófu framleiðslu á
rennilásum árið 1934, þeir þóttu lé-
legri en þeir sem fyrir voru, en þeim
var komið á markað í Evrópu og
Bandaríkjunum með undirboðum.
Það var fyrirtæki manns að nafni
Tadao Yosia sem í hlut átti, það fyr-
irtæki er enn við lýði undir nafninu
YKK og framleiðir flesta rennilása í
heiminum nú. Þeir eiga verksmiðjur
í Georgíu-fylki í Bandaríkjunum þar
sem framleiddar eru milljónir lása á
dag.
I upphafi þurfti að spretta
rennilásnum af áður en flikin var
þvegin, annars var hætta á ryði.
Framan af tíðkaðist að sauma
ÞESSI teikning Christophe Vorlet er kröftug og huginyndarík lýsing
á eiginleikum rennilássins til að sameina og aðskilja.
(málm)borðai’ með sérstökum út-
báunaði (málm- eða plasttönnum á
jaðrinum) til að loka opi. Betur verð-
ur honum ekki lýst.
í orðasafni Háskóla íslands kem-
ur orðið rennilás fyi’st á skrá etir
1950. Etir því sem næst verður kom-
ist voru rennilásar iyrst fáanlegir
hér á árunum fyrir seinna stríð og
þóttu þá nýjung. Það er mörgum
sem þá voru á barnsaldri minnis-
stætt þegar þeir eignuðust fyrstu
flíkina með rennilás. Tilbúinn fatnað-
ur með rennilásum var svo fluttur
inn frá Bandaríkjunum á stríðsárun-
um. Þai’ á meðal hinar sívinsælu
gallabuxur.
Þess má geta að rennilásar eru
framleiddir á Islandi. I Kópavogi
rekur Rafn Thorarensen Rennilása-
gerðina sem stofnsett var áríð 1969.
Önnur merking
Allt er breytingum háð, orð geta
fengið nýja merkingu, nöfn hvers-
dagslegara hluta orðið hálfdónaleg.
Þannig fór það fyrir hinum þarfa
hlut, rennilásnum, í enski’i tungu,
þar heitir hann „zipper", eins og áð-
ur segir. Þegar þar er sagt að karl-
menn gangi með rennilásinn (á
buxnaklaufinni) opinn merki það að
þeir séu á höttunum eftir kvenfólki
til _að gamna sér við.
I bókinni „Brave New World“ eft-
ir Aldous Huxley, sem kom út árið
1932, bendir höfundurinn á hina nýju
tækni, rennilásinn, og telur hann til
þess eins að auka lauslæti. Hann
áleit að mönnum yrði gert of auðvelt
að fækka fötum og hafði um það hin
háðulegustu orð!
Þegar Lyndon B. Johnson var for-
seti Bandaríkjanna (1963-1969)
sagði hann eitt sinn stoltur frá því að
samstarfsmenn hans gengju sko
ekki um með rennilásinn opinn. Vildi
hann þar með benda á staðfestu
sinna manna og siðferðisstyrk.
Opnir rennilásar hafa komið nokk-
uð við sögu undanfarið í fréttum er-
lendra útvarps- og sjónvarpsstöðva.
I öllu fárinu vegna meintrar kven-
semi Bill Clintons Bandaríkjaforseta
hefur verið á það minnst. I banda-
rískum fréttatíma fyrir skömmu var
roskin kona tekin tali, í lítilli borg
fjarri Washington. Hún sagðist
hæstánægð með Clinton sem for-
seta, þeir gerðust ekki betri, jafnvel
þó hann ætti í „efiðleikum með
rennilásinn"!
Gideon Sundbacl
(1880-1954)
JÁTVARÐUR prins af Walse var
annálað snyrtimenni í klæða-
burði. Þegar það spurðist út árið
1935 að hann gengi í buxum með
rennilás í buxnaklaufiimi voni
betri klæðskerar í London ekki
lengi að taka við sér og skiptu
yfir frá hnappagötum og tölum.
rennilásinn beint í brún buxnaklauf-
arinnar öðrum megin. Til eru skráð
tvö tilfelli í bresku læknaskránni
„The British Medical Journal“, þar
sem rennilásinn hafði fest í við-
kvæmu líffæri karla og erfitt reynd-
ist að losa um. Nú er vart hætta á
slíku slysi þar sem efnið er alltaf lagt
undir lásinn.
í Toronto í Kanada kom alifugla-
bónda nokkrum það í hug að sauma
rennilása í kalkúnana svo kaupand-
inn þyrti ekki annað en að renna
lásnum aftur þegar fyllingin væri
komin í. Heilbrigðisyirvöld höfðu
eitthvað við það að athuga svo ekki
varð úr framkvæmd.
Ef marka má fregnir af tilraunum
á rannsóknarstofu eiga venjulegir
rennilásar að endast til opnunar og
lokunar í 12.000 skipti. Þær upplýs-
ingar eru ekki seldar dýrari en þær
voru keyptar.
í íslenskri orðabók Menningar-
sjóðs er rennilási lýst svo: tveir
Hvernig lýsir lungnaþemba sér?
Magnús Jóhannsson læknir svarar spurningum lesenda
Lungnaþemba
Spurning: Hvernig lýsir lungna-
þemba sér og hver eru fyrstu ein-
kennin?
Svar: Lungnaþemba lýsir sér
með mæði og hósta. Lungna-
þemba kemur ekki skyndilega
heldur er sjúkdómurinn að þróast
í fjölda ára eða áratugi. Yfir 80%
lungnasjúkdóma stafa af reyking-
um og þar er lungnaþemba ekki
undanskilin. Aðrar ástæður fyrir
lungnaþembu eru loftmengun og
ertandi lofttegundir eða ryk. Sum-
ir af þeim sem fá lungnaþembu
hafa verið með langvarandi
berkjubólgu, sem oft hefur staðið
árum saman. Fáeinir sjúklingar
með lungnaþembu eru með arf-
genga tegund sjúkdómsins og sú
tegund getur byi’jað á unga aldri.
Mikill meirihluti sjúklinga með
lungnaþembu er karlmenn en
konur sækja stöðugt á og er þar
líklega um að kenna minnkandi
mun á reykingum kynjanna.
Loftskipti lungnanna fara fram
í lungnablöðrunum sem eru ör-
smáar en smæð þeirra gerir heild-
aryfirborðið stórt. Við lungna-
þembu springa þessar blöðrur og
renna saman í stærri blöðrur en
við það minnkar yfirborðið, loft-
skipti lungnanna versna og við-
komandi verður móður við
minnstu áreynslu. Lungnaþemba
er algengur sjúkdómur, einkum
hjá reykingamönnum, og miðað
við erlendar tölur má gera ráð
fyrir að allt að 2000 íslendingar
þjáist af þessum sjúkdómi. Þegar
lungnablöðrurnar springa og
renna saman er um að ræða var-
anlegar skemmdir sem ekki er
hægt að lækna og ekki lagast með
neinum þekktum aðferðum. Það
sem hægt er að gera er að reyna
að koma í veg fyrir að ástandið
versni og úr verði lungnabilun.
Það sem skiptir langmestu máli er
að þeir sem reykja hætti því án
tafar. Þeir sem vinna við ertandi
lofttegundir eða ryk verða að fá
sér aðra vinnu og allir ættu að
forðast loftmengun eftir mætti.
Sumir hafa gagn af berkjuvíkk-
andi lyfjum eins og þeim sem not-
uð eru við astma og gefa þarf
sýklalyf við íyrstu merki um bakt-
eríusýkingu í öndunarfærum.
Sjúklingarnir ættu einnig að fá
bólusetningar gegn inflúensu og
lungnabólgubakteríum. Þeir ættu
að stunda almennt heilsusamlegt
lífemi með reglulegri líkamsrækt,
hollum mat og góðum svefni.
Þessar ráðstafanir geta hamlað
framgangi sjúkdómsins og bætt
líðan sjúklinganna verulega. Aldr-
aðir sjúklingar með mikla lungna-
þembu og lungnabilun geta þurft
súrefnisgjöf til að líða sæmilega.
Talsvert er gert af lungnaígræðsl-
um í sjúklinga með lungnabilun og
fer árangur slíkra aðgerða
Brothættar
neglur
stöðugt batnandi. Einnig er verið
að gera tilraunir með ýmiss konar
skurðaðgerðir til að bæta ástand
sjúklinga með lungnaþembu og
lofa sumar þessara aðgerða góðu.
Spurning: Er nöglum hættara
við að brotna ef of mikið kólester-
ól er í blóðinu og ef svo er, hvað er
þá til ráða?
Svar: Engar öruggar heimildir
eru fyrir því að þátt kólesteról í
blóði valdi brothættum nöglum.
Hátt kólesteról getur hins vegar
átt þátt í að trufla blóðflæði í
háræðum og getur þannig truflað
naglavöxtinn. Hátt kólesteról eyk-
ur hættu á hjarta- og æðasjúk-
dómum og oft er ástæða til að
halda því niðri með réttu matar-
æði og lyfjum. Brothættar eða
aflagaðar neglur eru oft arfgengar
en ástæður fyrir slíku geta einnig
veríð sjúkdómar eða ytri ástæður.
Af ytri ástæðum má nefna að mik-
ið sull í vatni, þvottaefnum, lút eða
lífrænum leysiefnum getur
skemmt neglurnar. Sama gildir
um ýmsar sýkingar, einkum
sveppasýkingar, í nöglum eða
naglbeði. Naglalakk og naglaherð-
ir getur skemmt neglurnar, t.d. ef
viðkomandi hefur ofnæmi fyrir
efnunum og óhófleg naglapússun
þynnir neglurnar og gerir þær
brothættar. Ymsir sjúkdómar geta
valdið brothættum og aflöguðum
nöglum og má þar nefna sóríasis,
blettaskalla, ýmsa lungnasjúk-
dóma, blóðleysi vegna jámskorts,
skjaldkirtilssjúkdóma og fleira.
%Lesendur Morgunblaðsins geta
spurt lækninn um það sem þeim
liggur á hjarta. Tekið er á móti
spurningum á virkum dögum milli
klukkan 10 og 17 í síma 569 1100 og
bréfum eða símbréfum merkt:
Vikulok, Fax 5691222.