Morgunblaðið - 07.11.1998, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1998 41
MARGMIÐLIIN
BOEING-737 flugvél Flugleiða á flugi
rétt fyrir sunnan Reykjavík við sólar-
upprás. Sést í Perluna og Reykjavíkur-
flugvöllur er upplýstur.
s
Islenskt
landslag fyrir
flughermi
A ARUM áður, áður en leikjatölvubyltingin
hófst fyrir alvöru, var vinsælasti tölvuleikur
heims Flight Simulator frá Microsoft. Hann
er reyndar enn vinsæll þó heldur hafi hann
látið undan síga fyrir leikjuin með meiri has-
ar.
Meðal þess sem gerir Flight Simulator eins
vinsælan og raun ber vitni er hversu auðvelt
er að smíða fyrir hann landslag og bæta inn
flugleiðum. Þannig má í raun staðfæra forrit-
ið fyrir hvert Iand og fyrir vikið verður það
ekki bara skemmtun, heldur einnig gagnleg
æfing ef vel er að verki staðið. Nokkrar út-
gáfur eru til af íslandi fyrir Flight Simulator,
ein slík hefur meðal annars verið seld hér á
landi, en einnig er til ókeypis útgáfa sem
fengið hefúr mjög góðar viðtökur. Sú kallast
einfaldlega Iceland, kostar ekki neitt og er til
í tveimur útgáfum, Iceland 2.6 og nýkomin er
útgáfa 3.0. Báðar eru útgáfurnar ýmist fyrir
Flight Simulator 5, FSW95 (6) eða FS98 (7).
Landslagið er unnið í sjálfboðavinnu
þeirra Franks Jagers, sem kallar sig Knarf-
net og sá um landið með fjöllum, vötnum og
fljótum, Ricks Schuitemakers, Scumari, sem
sá um flugvelH, flugbrautir, vita og hluti og
Sveinbjöms Ólafssonar, Shadow, sem safn-
aði upplýsingum til verksins, og tók hreyfi-
og ljósmyndir fyrir vinnuna. I því er meðal
annars að fínna alla siglingavita og flugvall-
artíðni sem er notuð hér á landi.
Iceland er hægt að sækja á slóðina
http://www.scumari.demon.nl/fs51.htm.
Eins og getið er kostar útgáfan ekkert.
Drekaleit upp á
líf og dauða
LEIKUR
Spyro The Dragon
Spyro the Dragon, leikur fyrir PlayStation
frá SCEE, Sony Computer Entertainment
Europe.
ILLI galdramaðurinn Gnasty Gnorc
hefur breytt öllum drekum í heiminum í
steina og hjartfólgnum kristöllunum og
gullinu þeirra í hermenn. Litli drekinn
Spyro slapp sem betur fer undan göldrum
Gnastys Gnorcs og hefur ákveðið að
bjarga öllum drekunum sem breytt hafði
verið í stein og ráðast síðan sjálfur á Gna-
sty Gnorc. Spyro verður að læra ýmislegt
á leiðinni og hjálpa drekamir sem Spyro
bjargar með því að kenna honum alls kon-
ar brögð til að bjarga sér.
Spyro getur ekki valið úr stóru vopna-
búri þegar að því kemur að ráðast á óvini
en það sem hann kann virkar afar vel;
hann getur hlaupið á óvinina og
stangað þá eða brennt þá með
eldi. Sérstakar brekkur eru
einnig í leiknum þar sem
Spyro getur hlaupið á ofur-
hraða og stokkið og svifið
langar leiðir. Spyro
getur ekki flogið ,
nema í nokkrum
borðum og getur
hann þá aðeins spúð
eldi til að eyðileggja
flugvélar óvinanna.
Grafíkin í Spyro er
hreint ótrúleg og vissi
greinarhöfundur ekki að
hægt væri að framkalla
svona flottar hreyfingar í
PlayStation tölvum
fyrr en hann sá þenn-
an leik. Þegar Spyro
frelsar drekana standa
þeir upp og segja ann-
aðhvort stutta sögu eða
kenna þér eitthvað nýtt
og hreyfingar og tal
drekanna gefa leiknum
ótrúlegan persónuleika
sem hlotið hefur lof um
allan heim.
Ef Spyro frelsar tíu
dreka kemst hann í
nýtt borð, en þó eru oftast fleiri en tíu
drekar í hverjum heimi og verður Spyro
að finna þá alla á endanum til að fá að
berjast við Gnasty Gnorc. Ekki er þó nóg
að frelsa alla drekana heldur verður
einnig að finna alla kristalla og öll egg
sem leiðinlegir þjófar hafa stolið frá drek-
unum. Spyro þarf að elta alla þessa dreka
uppi og ná af þeim eggjunum en það er
líklega erfiðasti partur leiksins fyrir utan
endaóvinina sem eru í hverju borði, enda
eru óvinimir sérstakir þjónar Gnastys
Gnorcs og mun erfiðari en venju-
legur óvinur. Einnig hafa þeir oft
einkaþjóna sem einnig eru erfið-
ari en venjulegir óvinir.
Þótt Spyro sé næstum stans-
/ laus spenna og
hlaup allan tímann
þarf mjög oft að
stoppa aðeins og
hugsa til að geta náð
öllu rétt.
Spyro The Dragon er
frábær leikur og sannköll-
uð nútímaklassík, án vafa
besti „platform“-leikur sem
gefinn hefur verið út til þessa
fyrir PlayStation; að minnsta
kosti lendir hann í einu af fyrstu
þrem sætunum.
Ingvi Matthías Árnason
Nýr Linux
kjarni
VÆNTANLEG er ný útgáfa af Linux
kjarnanum, útgáfa 2.2, og leysir af hólmi
útgáfu 2.0.35. Samkvæmt fréttum úr her-
búðum Linux-manna er foringinn Linus
Torvbalds búinn að „loka“ kjarnanum, þ.e.
ekki vera fleiri viðbætur settar inn, en
lögð áhersla á að treysta hann og prófa út
í hörgul. Búist er við að þeirri vinnu Ijúki í
desember eða janúar og þá verður útgáf-
unni nýju dreift.
Meðal nýjunga í nýjum kjarna er betri
stuðningur við samhliða íjölör-
gjörvavinnslu og RAID sem gerir stýri-
kerfið fýsilegan kost fyrir umfangsmikla
vinnslu og rannsóknir. Stuðningur er fyrir
fjölörgjörvavinnslu í núverandi gerð Lin-
ux, en hún byggist á því að ekki fær nema
einn örgjörvi aðgang að kjamanum í einu
og hinir þurfa að bíða á meðan. I nýrri út-
gáfu getur vinnsluferli á örgjörva læst
hluta af kjarnanum og aðrir örgjörvar því
nýtt það sem opið er. RAID er síðan tækni
sem notuð er við að skrifa gögn á marga
diska samtímis og tryggja með því að ekk-
ert glatist þótt einn diskur gefi upp öndina
á ögurstundu.
Nýi kjarninn verður meðal annars í út-
gáfu Red Hat 6.0 af Linux, en hennar er
ekki að vænta fyrr en einhveijum mánuð-
um eftir að 2.2 kemur á markað.
WordPerfect fyrir Linux
Það er þó meira á seyði í Linux-heimum
er kjarnauppfærslur, því Corel-hugbúnað-
arfyrirtækið kanadíska sendi frá sér
fréttatilkynningu á dögunum þar sem fram
kom að útgáfa 8.0 af WordPerfect verði til
fyrir Linux og það sem meira er, henni
verði dreift ókeypis. Að sögn Corel-manna
er þetta gert til að sýna stuðning við Lin-
ux-umhverfið, en einnig hyggist fyrirtækið
selja Linux-notendum hugbúnaðarvöndul
fyrir Linux og WordPerfect sé hluti af
þeim vöndli. Þeir sem vilja geta þannig
sótt sér WordPerfect 8.0 og notað. en síðan
keypt það sem á vantar vöndulinn, til að
mynda töflureikni og fleiri forrit. Einnig
verður til sérstök netútgáfa af WordPer-
fect 8.0 fyrir Linux, en hún verður seld.
<RINGWN
fitwsáhalcies-, qjafavöt'M-
og hásqaqnavetslamiy
Borb f/rir tvo
Byggt & búiö
Búsóhöld & gjafavörur
Gallerí Fold
Habitat
Hagkaup
Heimskringlan
íslandia
Jón Indiafari
Kosta Boda
Latino
Silfurbúöin
Tékk-Kristall
Villeroy & Boch
þ/latvörvtvaÝslamy
Nýkaup
Heilsuhúsiö
Konfektbúöin
Whittard
Siöast eti ekki sist
Á.T.V.R.
*
Aman
Landsíminn
Tal
Samlíf
Sólblóm
Sjónvarpsmarkaöur
gpftm
/tfgreiðslutími:
Mán. - fim. frá 10.00 til 18.30
Fös. frá 10.00 til 19.00
Lau. frá 10.00 til 18.00
KRINGMN