Morgunblaðið - 07.11.1998, Side 57
AÐSENDAR GREINAR
LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1998 57*
H
MORGUNBLAÐIÐ
* Mikil óvissa um „íslenska
ákvæðið“ í Buenos Aires
Á ÖÐRUM degi
loftslagsráðstefnunnar
í Buenos Aires var á
dagskrá í undirnefnd
um vísinda- og tækni-
ráðgjöf (SBSTA)
tvennt sem íslensk
stjómvöld bera mjög
fyrir brjósti: Annars
vegar tillaga um að
viðurkennd verði
kolefnisbinding í
gróðri og jarðvegi og
hins vegar tillaga Is-
lands um losun gróður-
I húsalofttegunda frá
Istóriðju í „litlum hag-
kerfum“, þar sem
keppikeflið er að slík
losun verði ekki reiknuð með í
skuldbindingum viðkomandi lands.
Islensk stjómvöld hafa gefíð til
kynna að afgreiðsla þessara mála
hér í Buenos Aires, einkum hins
síðartalda, geti ráðið úrslitum um
hvort eða hvenær Island gerist aðili
1 að Kýótó-bókuninni. Hér verður
gerð stutt grein fyrir umræðum um
* | þetta efni á fundinum og reynt að
M ráða í stöðuna í ljósi þeirra.
Athyglisverð framlög um
bindingu í gróðri
í Kýótó reyndist skilningur fyrir
að binding kolefnis með skógrækt
verði reiknuð með í uppgjöri ríkja
samkvæmt loftslagssamningnum.
Sama máli gegnir um skógeyðingu
d af mannavöldum, en með öfugu for-
Imerki. Eftir er að skilgreina og ná
samkomulagi um útfærslu á þessu
ákvæði. Kýótó-bókunin gerir jafn-
framt ráð fyrir að fleiri þættir sem
tengjast bindingu kolefnis í gróðri
og jarðvegi með ræktun eða upp-
græðslu komi til athugunar á veg-
um samningsaðila.
Mér taldist svo til að
þrettán ríki hafi skilað
inn skýrslum er varða
skógræktarþáttinn og
sex um aðra þætti
bindingar í gróðri og
hversu með skuli fara.
Island lagði inn skýrsl-
ur um hvorutveggja og
hefur það framlag vak-
ið athygli. Halldór Þor-
geirsson sem talaði hér
fyrir áliti íslands nýtur
virðingar íyrir sitt
framlag, en hann sat
nýlega vinnufundi sér-
fræðinga í Róm um
þessi mál.
Enn eru skoðanir skiptar um
hvort bæta eigi við nýjum þáttum
eins og landgræðslu og hvernig
*
I ljósi viðbragða ýmissa
ríkja á fundiimm telur
Hjörleifur Guttorms-
son heldur ósennilegt
--------------7---------------
að tillaga Islands nái
óbreytt fram að ganga
á þessu þingi.
áfram verði unnið að málinu. Full-
trúar ýmissa þróunarlanda óttast
að með þessu verði opnað fyrir
óæskilegar smugur í samningnum,
sem iðnríkin geti fært sér í nyt. Al-
þjóða vísindanefndin um loftslags-
breytingar (IPCC) á að skila
skýrslu um þessi mál vorið 2000 og
vilja margir bíða eftir niðurstöðum
hennar. Halldór benti hins vegar á
að eðlilegt væri að þoka ýmsum
þáttum fram jafnhliða á vegum
nefndarinnar (SBSTA). Úrslit
verða hins vegar ekki ljós fyrr en
árið 2001 á fyrsta fundi aðila eftir
gildistöku Kýótó-bókunarinnar.
Verður stóriðja á Islandi
undanþegin bókhaldinu?
Gríðarleg áhersla hefur verið á
það lögð af hálfu íslensku ríkis-
stjórnarinnar að fá samþykkta hér í
Buenos Aires allsherjar undanþágu
fyrir losun gróðurhúsalofttegunda
frá nýjum stóriðjuíyrirtækjum á ís-
landi með sérstakri vísun til endur-
nýjanlegra orkulinda. I Kýótó
fékkst viljayfiriýsing um að litið
verði á aðstæður aðila „þar sem
einstök verkefni mundu hafa um-
talsverð hlutfallsleg áhrif á losun á
skuldbindingartímabilinu ...“, það
er á næsta áratug. Á undirbúnings-
fundi í Bonn síðastliðið sumar
kynntu íslendingar hugmynd að út-
færslu á þessu atriði og á fundinum
síðastliðinn þriðjudag lagði sendi-
nefndin fram nokkuð breytta út-
gáfu, sem Halldór Þorgeirsson
kynnti í vísinda- og tækninefndinni.
Talsverð umræða varð um þetta
„íslenska ákvæði" á fundinum og
komu fram þrenns konar sjónar-
mið. Talsmaður Bandaríkjanna tók
afar jákvætt undir tillöguna. Aust-
urríki sem talaði fyrir Evrópusam-
bandið svo og Kanada og Ástralíu
lýstu ýmsum efasemdum en vildu
skoða málið frekar með íslandi. Á
móti tillögunni töluðu fulltráar
Marshalleyja, Brasilíu, Barbados,
Túvalú og Antigu-Barbúda. Síðast-
nefnda ríkið hefur staðfest Kýótó-
bókunina og lýsti talsmaður þess,
John Ash, harðri andstöðu við til-
löguna. Hann er varaformaður
Hjörleifiir
Guttormsson
„ÉG ER ekki í neinu
félagi eldri borgara.
Hef ég þá rétt til að
taka þátt í félags- og
tómstundastarfínu í fé-
lagsheimilunum?" Þessi
® spurning er alltof al-
geng, því hún gefur til-
efni til að ætla að þarna
gæti nokkurs misskiln-
ings, því félagsheimili
eldri borgara í Kópa-
vogi, Gjábakki og Gull-
smári, eru opin öllu
eldra fólki og gestum
þeirra, óháð aðild að
Félögum eldri borgara.
Einstaklingar hafa
misjöfn áhugamál sem
betur fer. Þessu er ekkert á annan
veg farið með eldra fólk þótt oft sé
látið eins og um sérstakan hóp í
Margvísleg lífsreynsla
Sigurbjörg Björgvins-
dóttir, kallar á fjöl-
breytta starfsemi í
lifað hafa lengur en
hálfa öld kallar á fjöl-
breytta starfsemi í fé-
lagsheimilum eldri
borgara. Vegna þess
að áhugasviðin eru
mörg og einnig að fólk
sem hverfur af vinnu-
markaði vegna aldurs
er oft með mikla
starfsorku, hefur
áhugamannavinna
innan veggja félags-
heimila eldri borgara í
Kópavogi, Gjábakka
og Gullsmára, orðið
eins fjölbreytt og raun
ber vitni. Við þetta
bætist að Kópavogs-
bær hefur um langt árabil lagt
metnað sinn í að búa félags- og
tómstundastarfeminni sem bestar
ytri aðstæður og að eldri borgarar
hafa verið hvattir til að vera virkir
þátttakendur í mótun starfseminn-
ar. Þetta eru án efa meginástæður
þess að jafnan ei-u staifandi yfír 20
áhugamannahópar meðal eldra
fólks í Kópavogi, sem hafa ólíkar
starfsreglur og ólík áhugamál.
Sjálfsprottnir
áhugamannahópar
Allt frá því að félagsheimilið Gjá-
bakki hóf starfsemi sína hefur verið
unnið eftir hugmyndafræði sem
kennd er við Frístundahópinn
Hana-nú, en hópurinn hefur notið
skilnings bæjaryfírvalda um 15 ára
skeið. I þessari hugmyndafræði er
gert ráð fyrir að eldri borgarar taki
sjálfír virkan þátt í starfseminni,
sem þeir sjálfir hafa tækifæri til að
móta. Starfsmenn í félagsheimilun-
um hafa alltaf verið minntir á að
vinna með eldri borgurum en ekki
fyrir þá. Eldri borgurum í Kópa-
vogi hefur verið treyst og þeir hafa
axlað ábyrgð. Sú ábyrgð hefur auk-
ist vegna þess að eldri borgarar
hafa sannað að traustið var verð-
skuldað, enda var aldrei gert ráð
fyrir öðru. Því fá nú eldri borgarar
nær ótakmarkaðan aðgang að fé-
lagsheimilunum. Þeir fá lykla og
þeim er treyst til að vera með starf-
semi í félagsheimilunum utan hefð-
bundins opnunartíma. Þetta hefur
leitt til þess að frá opnun Gjábakka,
1993 og nú einnig í Gullsmára, sem
var opnaður í desember á sl. ári
hafa eldri borgarar í Kópavogi ver-
ið áhugasamir um hvaða starfsemi
fer fram í félagsheimilunum þeirra
og þeir hafa einnig verið fúsir til að
leggja þeirri starfsemi krafta sína.
Einmitt þess vegna eru nú starf-
andi áhugamannahópar sem sprott-
ið hafa af sjálfu sér, einhver hefur
haft áhuga á að gera eitthvað annað
en er á dagskránni t.d. dansa eða
fara í göngutúra, fleiri hafa svo ver-
ið tilbúnir að slást í hópinn og úr
hefur orðið sjálfsprottinn áhuga-
mannahópur sem fengið hefur að-
stöðu í félagsheimilunum.
Lokaorð
Allir eru sammála um að þjóðfé-
lagið er breytilegt. Fyrirsjáanlegt
er að fjöldi þeirra sem ná háum
aldri eykst hlutfallslega. Við getum
verið sammála um að það er mikil-
vægt að fólk haldi sem bestri heilsu
alla ævi. Til að halda góðri heilsu,
andlegri og líkamlegri, er mikil-
vægt að neyta hollrar fæðu, helst
alla ævi, hreyfa sig og að vera virk-
ur í samfélaginu t.d. að hafa áhuga
á því sem er efst á baugi hverju
sinni og að geta lagt einhverjum lið.
Ef tækist að líta á ellina sem eðli-
legt og æskilegt markmið mætti
nálgast hana með áhuga og tiltrú
og þá gætu kynslóðimar fjárfest
hvor í annarri. Verum meðvituð um
að við getum ráðið hér nokkru um.
Höfundur er forstöðumaður
Gjábakka og Guilsnlára.
félagsheimilum þeirra.
þjóðfélaginu sé að ræða. Það er
eins og fólkinu sem sett hefur verið
í þetta samfélagshólf eigi að henta
eitthvað eitt. Það er eins og gleym-
ist að þessir einstaklingar eru ef til
vill með hvað ólíkastan bakgrunn-
inn og hafa gengið í gegnum eins-
konar stökkbreytingu á samfélag-
inu úr bændasamfélagi í hátækni-
vætt samfélag.
Þessi fjölbreytta lífsreynsla og
ólíkar væntingar einstaklinga sem
Sjálfsprottnir
áhugamannahópar
Signrbjörg
Björgvinsdóttir
eldri borgara, segír
nefndar Sameinuðu þjóðanna um
sjálfbæra þróun (Commission on
sustainable development, CSD) og
sagður áhrifamikill.
Formaður vísinda- og tækni-
nefndarinnar sagðist við lok um-
ræðunnar hafa heyrt efasemd-
airaddir um málið en lagði til að
hann sem nefndarformaður fái sér
mann til aðstoðar til að líta á tillög-
una og undirbúa afgreiðslu sem all-
ir gætu sætt sig við síðar á þinginu.
Kvaddi hann til Ole Ploughmann,
sem er hér í sendinefnd Dana og
ráðuneytisstjóri í danska umhverf-
isráðuneytinu. Þótt sá sé talinn vin-
samlegur í garð íslensku tillögunn-
ar sýnist í ljósi viðbragða ýmissa'
ínkja á fundinum heldur ósennilegt
að tillaga íslands nái óbreytt fram
að ganga á þessu þingi. Afdrif
þessa óskabarns ríkisstjórnarinnar
munu verða ljós fyrir lok næstu
viku.
Höfundur er alþingismaður.
Lambahryggvöðvi
Ef rétta hráefnið er notað getur
matarboðið ekki klikkað. Við buðum
upp á lambahryggvöðva („filet1 j og
þrátt fyrir að vera snilldarkokkur lét
ég gestina sjálfa sjá um steikinguna.
Útkoman var glæsileg „fondú- og
rakklettveisla“ á heimsmælikvarða.
SigurðwSveinssonogSigríður
Héðinsdóttirágóðristjmd
1. Kjötið er skorið í mátulega bita og marinerað í hvíl-
lauk og pipar.
2. Hver gestur steikir sfna bita eflir eigin höfði í
fondúpotti eða á „rakklettpónnunni“.
3. Það er skemmtilegt að bjóða upp á nokkrar legundir
af sósu með kjötinu, s.s. hvftlaukssósu, piparrótarsósu,
sinnepssósu o.fl.
Hra&’fbi
2 kg lambahryggvöðvi
salt, pipar og hvítlaukur
Meðlæti: Bakaðar kartöflur,
sveppir, salat, dvergmaís
Vín: Torres Gran Coronas
ISLENSKIR
SAUÐFJÁRBÆNDUR
Glatt á hjalla: Sigríður Héðinsdóttir, Guðvarður Gíslason, Guðrún Helga
Arnarsdóllir, Vala Valtýsdóttir, Sigurður Sveinsson, Gísli ósharsson og
Guðlaug Halldórsdóttir njóta matarins.