Morgunblaðið - 07.11.1998, Síða 69
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1998 69
KONUR af Tsemaí-þjóðflokki í Eþíópíu í sínu fínasta skarti.
Kristniboðsdagurinn 1998
Erindi um
sjálfseyð-
ingu krabba-
meins-
frumna
DR. KRISTINN P. Magnússon,
sérfræðingur á rannsóknarstofu ís-
lenskrar erfðagreiningar, heldur
erindi laugardaginn 7. nóvember
um sjálfseyðingu ki-abbameins-
frumna sem hann nefnir: Hvernig
er hægt að fá krabbameinsfrumur
til að fremja sjálfsmorð? Erindið
verður flutt á Lynghálsi 1 og hefst
kl. 14. Að því loknu verður opið hús
þar sem gestum gefst kostur á að
skoða rannsóknarstofur Islenskrar
erfðagi’einingar. Öllum er heimill
aðgangur meðan húsrúm leyfir.
I erindi sínu mun Kristinn fjalla
um hvernig skrifað stendur í erfða-
efni hverrar einustu frumu í
mannslíkamanum að hún skuli eyða
sjálfri sér. „Á degi hverjum er
milljónum frumna eytt úr líkaman-
um með því að koma af stað nokk-
urs konar sjálfsmorðsforriti.
Þannig losar líkaminn sig við frum-
ur sem hafa lokið hlutverki sínu.
Frumum er m.ö.o. fórnað fyrir
heildina, sjálfa lífveruna. Krabba-
mein er í raun einræktun á eigin-
gjömum frumum sem hafa hætt að
sinna vefjasérhæfðu hlutverki sínu
og hafa á einn eða annan hátt
„slökkt" á sjálfsmorðsforriti sínu.
Þegar erfðaefni frumna verður fyr-
ir skemmdum eins og t.d. þegar
húðfrumur verða fyrir of mikilli út-
fjólublárri geislun, þá vakna ýmsir
„húsverðir" af dvalanum og taka til
sinna ráða,“ segir í fréttatilkynn-
ingu.
Kristinn P. Magnússon, lauk BS-
gráðu í líffræði 1983 og starfaði síð-
an við rannsóknir og sem aðstoðar-
kennari við Háskóla Islands. Frá
árinu 1990 starfaði hann við sam-
eindalíffræðirannsóknir á krabba-
meinum í Stokkhólmi og varði þar
doktorsritgerð sína í læknisfræði
11. júní sl.
Framhalds-
aðalfundur
Búmanna
STOFNFUNDUR húsnæðisfélags-
ins Búmenn var haldinn 11. október
sl. Fundinn sóttu nærri 300 manns
og nærri eitt þúsund manns hafa
látið skrá sig í félagið. Sunnudaginn
8. nóvember kl. 16 verður haldinn
framhaldsstofnfundur Búmanna á
Hótel Sögu í Súlnasalnum.
Auk hefðbundinna fundarstarfa
mun formaður félagsins, Guðrún
Jónsdóttir, arkitekt, gera grein fyr-
ir þeim lóðum og byggingarsvæðum
sem eru til skoðunar hjá félaginu.
Árni Sigfússon, framkvæmdastjóri
Stjórnunarfélagsins, fjallar um fjár-
mál miðaldra og eldra fólks og þörf
og leiðir til öruggari afkomu. Loks
mun Þórarinn Magnússon, verk-
fræðingur, fjalla um nýjungar í
byggingatækni og leiðir til meiri
hagkvæmni svo lækka megi bygg-
ingarkostnað.
Senjóríturnar, eldri sveit
Kvennakórs Reykjavíkur, taka lag-
ið undir stjóm Ruth L. Magnússon.
Fundarstjóri verður Össur
Skarphéðinsson, alþingismaður.
Á fundinum geta menn látið skrá
sig í félagið sem stofnfélaga og
verða það síðustu forvöð að gerast
stofnfélagi á þessum fundi. Hver fé-
lagsmaður fær sérstakt félagsnúm-
er og verður dregið um röðina með-
al stofnfélaga. Stofngjald er 2.000
kr. fyrir einstakling og 3.000 kr. fyr-
ir hjón.
Húsnæðisfélagið Búmenn er
landsfélag og hefur þegar komið
fram áhugi á byggingum á nokkrum
stöðum utan höfuðborgarsvæðisins.
Aldursmark við kaup á búseturétti
er 55 ár.
KRISTNIBOÐSDAGURINN er
sunnudaginn 8. nóvember. Þann
dag verður starf Sambands ís-
lenskra kristniboðsfélaga í
Eþíópíu og Kenýa minnst sér-
staklega í kirkjum landsins.
Utvarpað verður messu frá
Breiðholtskirkju þar sem Guð-
laugur Gunnarsson kristniboði
predikar. Hann hefur verið að
störfum í Suður-Eþíópiu í um 13
ár og er nýkominn til íslands.
Einnig verða samkomur í húsi
KFUM í Reykjavík og á Akur-
eyri. Biskup Islands, herra Karl
Sigurbjörnsson, hefur lagt
áherslu á virkari þátttöku safn-
aða landsins í kristniboðsstarfinu
eftir að hann heimsótti sjálfur
starfssvæði íslensku kristniboð-
anna í Afríku fyrr á þessu ári.
Samband íslenskra kristni-
boðsfélaga hefur um þessar
mundir sjö kristniboða starfandi
á sinuin vegum, tvo í Eþíópíu og
fimm í Kenýa. Þeir vinna við
uppbyggingu kennslu, boðun,
ráðgjöf og stjórnun. Einn maður
er við undirbúningsnám í
Englandi og fer til Kenýa eftir
áramótin.
Það eru nú orðin 45 ár síðan
fyrstu íslensku kristniboðarnir
settust að í Konsóhéraði í Eþíóp-
íu. Þar er nú blómlegt safnaðar-
starf, barnaskóli, heilsugæslu-
stöð og þróunarverkefni. I söfn-
Kvikmynda-
sýningar
fyrir börn
KVIKMYN DASÝNIN GAR fyrir
börn eru í Norræna húsinu alla
sunnudaga kl. 14.
Sunnudaginn 8. nóvember verð-
ur sýnd dönsk leikbrúðumynd
„Balladen om Holger danske“.
Þetta er leikbrúðumynd, sem
segir frá þjóðhetjunni Holgeiri
hinum danska. Sagan hefst á fæð-
ingu hans og skírn um árið 800 á
meðan heiðni ríkti í Danmörku.
Menn Karls mikla ræna drengn-
um og flytja hann til Frakklands.
Þar lendir hann í ýmsum ævintýr-
um. Framleiðandi er Frejas bprn.
Hentar börnum frá 7 ára. Danskt
tal og sýningartími er 78 mín.
Hálf milljón
bfla hjá Frum-
herja hf.
HÁLF milljón bíla hefur verið
skoðuð í skoðunarstöð Frumherja
hf., sem áður hét Bifreiðaskoðun
hf., á Hesthálsi í Reykjavík. Af því
tilefni hefur verið í gangi sérstakt
átak á skoðunarstöðvum fyrirtæk-
isins um land allt þar sem vakin er
athygli á búnaði ökutækja fyrir
veturinn. Sérstaklega hefur verið
lögð áhersla á hjólbarða í því sam-
bandi og þeir gerðir að umfjöllun-
uðinum eru nú meira en tuttugu
þúsund manns. Undanfarin ár
hefur verið starfað meðal
Tseimaí-manna í Voito-dalnum
fyrir vestan Konsó og um þessar
mundir er verið að reisa nýja
heilsugæslustöð, sjúkraskýli og
skólastofur í nágrenni bæjarins
Ómó Rate í afskekktu héraði við
landamæri Eþiópíu og Kenýa.
I Kenýa er íslenska kristni-
boðsstöðin í Cheparería að verða
20 ára. Skólastarf og fræðsla
hafa verið áhersluverkefni auk
safnaðarstarfsins sem unnið er
meðal Pókot-manna á þessum
slóðum. Auk þess tekur kristni-
boðssambandið þátt í að senda
kristilega útvarpsþætti til Kína,
bæði fyrir börn og fullorðna.
Fjárhagsáætlun kristniboðs-
sambandsins á þessu ári er rúm-
lega 20 milljónir króna. Starfið
er allt borið uppi af frjálsum
framlögum einstaklinga og
kristniboðsáhugafólks. Tekin
verða samskot í kirkjum og á
samkomum á kristniboðsdaginn.
Hægt er að leggja framlög til
starfsins inn á bankareikning
SÍK í Landsbanka íslands nr.
0117-26-2818. Kristniboðssam-
bandið getur einnig notfært sér
notuð frímerki og má koma þeim
til aðalskrifstofunnar á Holtavegi
28 í Reykjavík eða senda í póst-
hólf 4060.
arefni í nýjasta fréttabréfi Frum-
herja, segir í fréttatilkynningu.
Hámarki náði þetta átak á
fóstudaginn var. Þá hlaut við-
skiptavinur vetrardekkjagang af
gerðinni Norð-dekk að gjöf, en
þetta er annar viðskiptavinurinn
sem fær svona vinning. Næstu tvo
föstudaga hljóta tveir viðskiptavin-
ir til viðbótar samskonar vinninga,
en vinningshafinn er dreginn úr
hópi viðskiptavina sem komið hafa
í skoðun þá vikuna.
Þennan sama dag var viðskipta-
vinum boðið upp á að greiða sama
verð fyrir skoðunina eins og gert
var 2. janúar 1990 þegar starfsemi
stöðvarinnar hófst. Miðað við verð-
lagsþróun á þessu tímabili hefur
verð fyrir skoðunina lækkað því
krónutöluhækkun er aðeins 12%,
sem er innan við 1% meðalhækkun
á ári, en til samanburðar má geta
þess að launavísitala hefur hækkað
um 60% á þessu tímabili, segir í til-
kynningunni.
Basar og
kaffísala í
Landakoti
KVENFÉLAG Rristskirkju í
Landakoti heldur sunnudaginn 8.
nóvember happdrætti, basar og
kaffisölu í Safnaðarheimili kaþ-
ólska safnaðarins, Hávallagötu 16
og verður húsið opnað kl. 15.
Fjöldi góðra vinninga verður á
boðstólum. Engin núll. Ágóðanum
verður varið til styrktar starfsemi
kaþólska safnaðarins.
Þjóðminjasafn
spyr um heim-
ilisguðrækni
og sttídentalíf
ÞJÓÐHÁTTADEILD Þjóðminja-
safns Islands hefur gefið út tvær
nýjar spurningaskrár nú á haust-
dögum en deildin aflar heimilda
um lífshætti í gamla daga með því
að senda spurningaskrár til eldra
fólks. Annars vegar kom út skrá
94 um heimilisguðrækni sem send
var til fastra heimildarmanna
deildarinnar og hins vegar skrá
95 um stúdentalíf sem send var til
þeirra sem útskrifuðust úr Há-
skóla íslands fyrir 1960.
Varðandi heimilisguðrækni er
m.a. spurt um trúarlegt uppeldi
og fræðslu, bænir, áheit, signing-
ar, helgisiði í tengslum við at-
burði, hátíðir og merkisdaga, um
viðhorf til presta og samskipti
þeirra við heimili, um trúarlegar
bækur og myndir, trúarlíf og fjöl-
miðla, áköll á almættið, blótsyrði,
sögur og vísur. I spurningaskrá
um Stúdentalíf er spurt um náms-
val, væntingar, kennsluaðstöðu,
kennslu og próf, útskriftir, út-
skriftaferðir og veislur, samskipti
kennara og nemenda, leikfimi og
íþróttir. Um viðhorf til háskóla-
borgara, kynjamun, námsbækur,
samvinnu nemenda, skemmtanir,
(rússagildi, rannsóknaræfingar,
garðsböll), félagslíf og pólitík í há-
skólanum, um búsetu og fjöl-
skylduhætti stúdenta, um líf í
námsmannanýlendum erlendis og
um það hvernig námið hefur nýst
í lífinu.
Á sjötta þúsund dagbóka
Þjóðháttadeild stóð að degi
dagbókarinnar ásamt handrita-
deild Landsbókasafnsins og þang-
að hefur nú þegar verið skilað á
sjötta þúsund dagbóka með lýs-
ingum á lífi Islendinga af ýmsu
tagi hinn 15. október sl. Enn eru
að berast dagbækur og menn sem
hafa skrifað dagbók þennan dag
en eiga eftir að senda hana eru
hvattir til að gera það sem fyrst.
Þjóðháttadeild Þjóðminjasafns
íslands er lokuð vegna flutninga
fyrstu tvær vikurnar í nóvember.
Hún verður opnuð á Lyngási 7 í
Garðabæ hinn 16. nóvember. Nýtt
símanúmer er 530 2200.
Höfðinglegt
framlag til
meðferðar-
deildar fyrir
ungt fólk
SÁA hefur undanfarna daga verið
með fjáröflun til byggingar með-
ferðardeildar fyrir ungt fólk á
sjúkrahúsinu Vogi.
Almenningi býðst að kaupa
SÁÁ-kortið fyrir 300 kr. í verslun-
um um land allt. Sl. miðvikudag
gerðist einn kaupandinn stórtæk-
ari en flestir hinna og lagði fram
andvirði 6.667 SÁÁ-korta til söfn-
unarinnar. Það gerir tvær milljón-
ir króna
Velgjörðarmaður SÁÁ er kona
sem ekki vill láta nafn síns getið.
Sala SÁÁ-kortsins gengur vel og
er nú farið að síga á seinni hluta
þessarar fjáröflunar. Henni lýkur
sunnudaginn 8. nóvember.
• •
Ornefna-
stofnun
flytur
ÖRNEFNASTOFNUN íslands er
flutt að Lyngási 7 í Garðabæ.
Örnefnanefnd hefur aðsetur á
sama stað.
LEIÐRÉTT
Hjálparstarf kirkjunnar
í FRÉTT um Hjálparstarf kirkj-
unnar, sem birtist í Morgunblaðinu
í gær, urðu brenglanir bæði í texta
og undir mynd. Þar er ranglega far-
ið með nöfn fyrrverandi og núver-
andi formanns, Harðar Einarssonar
og Ólafs G. Einarssonar, og enn-
fremur með nafn eins stjómar-
manns, Hönnu Johannessen. Morg-
unblaðið biðst afsökunar á þessum
mistökum.
Umsjón með tískusýningu
RANGHERMT var í frásögn af
tískusýningu á Kaffi Reykjavík í
Fólki í fréttum að Auður Haralds-
dóttir hefði umsjón með sýningun-
um. Það er Unnur Arngrímsdóttir
sem annast þessar sýningar. Beðist
er velvirðingar á þessum mistökum.
Minnismerki um
sr. Sigurð skáld í Holti
„í GREIN minni um séra Sigurð
skáld í Holti undir EyjafjöIIum,
sunnudaginn 29. nóvember sl., segir
að minnismerki hans í garði Skóga-
skóla sé verk listakonunnar Rúrí.
Höfundurinn er Ragnhildur Stef-
ánsdóttir, myndhöggvari. Hlutað-
eigendur era beðnir afsökunar á
þessum mistökum."
Þórður Tómasson, Skógum.
SIMINN
HVBR MÍNÚTA
FRÁ KL. 23 TIL 08
NÆTURTAXTA
er 73 kr./mín.
o
VitaMineral®
18 vítamín og steinefni
Fæst í apótekum