Morgunblaðið - 07.11.1998, Síða 72
72 LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
BRIDS
Umsjón Arnór 6.
Ragnarsson
Norðurlandsmót í sveitakeppni
Norðurlandamót í sveitakeppni
1998 verður haldið á Akureyri 14.-15.
nóvember. Spilað verður í Hamri við
Skarðshlíð og hefst spilamennska kl.
10 á laugardags- morgun og lýkur í
síðasta lagi kl. 20. Aftur verður sest
við kl. 10 á sunnudag og áætluð móts-
lok eru um kl. 17.30. Undanfarin ár
hefur Norðurlandsmót hafíst kl. 17 á
fóstudegi, en nú er ráðgert að breyta
því í tveggja daga mót..
Gert er ráð fyrir að allir spili við alla
forgefin spil með Butler-útreikningi
milli para. Spilafjöldi ræðst af fjölda
sveita.
Hægt verður að fá súpu og brauð á
vægu verði í hádeginu á keppnisstað
og þar er einnig veitingasala (gos,
samlokur o.fl.). Keppnisgjald er 10.000
kr á sveit, molakaffi innifalið.
Skráning í keppnina þarf að berast
eigi síðar en miðvikudaginn 11. nóv. til
Stefáns Vilhjálmssonar, hs. 462 2468.
Langur
laugardagur
Tilboð
Verð ™ r 3 QQR
m 1 V y L
Litur: Svartir m/grænu
Stærðir: 41-46
Tegund: 3107
Loðfóðraðir
gönguskór
m/Skandia Tex,
verð áður kr. 5.995.
STEINAR WMGE
SKÓVERSLUN
D0MUS MEDICA
við Snorrobrout • Reykjavík
Sími 551 8519
SAMDÆGURS
■BHHHHHH
Bikarkeppni Bridssambands
Norðurlands eystra
Skráning er hafin í bikarkeppni Norð-
urlands eystra hjá Stefáni Vilhjálms-
syni, hs.462 2468 og Sveini Aðalgeirs-
syni, hs. 464 2026. og stendur fram á
laugardag 14. nóv. en dregið verður þá
um kvöldið. Fyrh-komulag verður eins
og undanfarin tvö ár, þátttökugjald er
2000 kr. á umferð. Spilaðar verða tvær
umferðir fyrir jól, en trúlegt er að
margar sveitir sitji yfir í þeirri fyrri.
Bridsdeild Barðstrendinga og
Bridsfélag kvenna
Nú er lokið 3 kvölda hraðsveita-
keppni, 15 sveitir tóku jiátt með 1645
stig, spilarar María Asmundsdóttir,
Steindór Ingimundarson, Halldór Por-
valdsson og Arnar Þorsteinsson.
Sveit Stefaníu Sigurbjömsdóttur 1605
Sveit Birau Stefánsdóttur 1584
Sveit Gróu Guánadóttur 1578
Mánudaginn 9. nóv. nk. verður
spilaður 1. kvölds tvímenningm-
mitchell. Rauðvin í verðlaun fyrir
bestu skor, bæði í N/S og A/V. Skrán-
ing á spilastað í Þönglabakka 1. ef
mætt er stundvíslega fyrir kl. 19.30.
www.mira.is
PABBI/MAMMA
allt fyrir nýfædda barnið
ÞUMALINA
Pósthússtræti 13, sími 551 2136.
Heildsölubirgðir
EINCO EHF.
Skúlagötu 26.
sími 893 1335
Innilegar þakkirfœri ég öllum þeim, sem
glöddu mig með nœrveru sinni og sendu mér
kveðjur og gjafir á 80 ára afmœli mínu.
Guð veri með ykkur öllum.
Þórhallur Halldórsson,
Espigerði 4, Reykjavík.
Pantið jólafötin á alla fjölskylduna
úr stærsta vörulista Evrópu
Allar stærðir
Opið á iaugardögum til jóla
Ármúla 17A - Sími 588 1980 - Fax 588 1985
Opið 11-17 mán.-fös. og 10-15 laugardaga.
ottolisti@heimsnet.is
I DAG
VELMKMDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Orð Drottins
er áreiðanlegt
VELVAKANDA barst eft-
irfarandi bréf:
Er það satt, að Guð hafi
sagt, (1. Mósebók 3,1), svo
mælti höggormurinn (þ.e.
Satan) við konuna (Evu) í
aldingarðinum Eden forð-
um daga. Enn spyrja
margir: Er Biblían orð
Guðs? Er hún áreiðanleg?
Ég svara hiklaust játandi,
fyrst og fremst vegna þess
sem Jesús Kristur, sonm-
Guðs, heftr sagt, hann sem
er sannleikurinn (Jóh. 14,
6). í fyrra Pétursbréfi 2,22
er skrifað um Drottin
Jesúm: „Hann drýgði ekki
synd og svik voru ekki
fúndin í munni hans.“
Jesús sagði í guðspjalli
Jóhannesar 17,17: „Þitt
orð er sannleikur," þ.e. allt
Gamla testamentið, Nýja
testamentið var ekki til þá.
Við getum verið fullviss
um að Nýja testamentið er
líka sannleikur vegna þess
sem Jesús sagði í guð-
spjalli Jóhannesar
14,24-26: „Sá sem elskar
mig ekki, varðveitir ekki
mín orð. Orðið sem þér
heyrið er ekki mitt, heldur
föðurins, sem sendi mig.
Þetta hef ég talað til yðar,
meðan ég var hjá yður. En
hjálparinn, andinn heilagi,
sem faðirinn mun senda í
mínu nafni, mun kenna yð-
ur allt og minna yður á allt
það, sem ég hef sagt yður.“
Lesa má einnig í 2. bréfi
Tímóteusar 3,16: „Sérhver
ritning er innblásin af
Guði.“ Neðanmáls stendur
að líka megi þýða þennan
texta þannig: „Sérhver
ritning innblásin af Guði
er...“ Mér hefur verið sagt
af þeim sem þekkir
frummálið að rétt þýðing
sé: . „Sérhver ritning er
innblásin af Guði.“
Hafa ber það líka í huga,
að hægt er að finna hinn
upprunalega texta með því
að beita talnagildi.
Bókstafir í hebresku og
grísku hafa talnagildi.
Þetta talnapróf hefir verið
notað til að komast að raun
um hver sé upprunatext-
inn. Þetta getur verið
nauðsynlegt, þar sem mis-
munandi leshættir rekast
á í handritum Biblíunnar.
Kemur þá í ljós á hverjum
stað, að einungis einn les-
háttur stenst þetta próf.
Þannig má komast að með
vissu, hvað Guð lét skrá.
„Ákvæði Drottins eru
sannleikur, eru öll réttlát.
Þau eru dýrmætari heldur
en gull, já gnóttir af skíru
gulli og sætari en hunang,
já hunangseimur." Sálmui'
19,10-11.
„Vitið það umfram allt,
að enginn þýðh' neinn
spádóm ritningarinnar af
sjálfum sér því að aldrei
var nokkur spádómur bor-
inn fram að vilja manns,
heldur töluðu menn orð frá
Guði, knúðir af heilögum
anda.“ 2. Pétursbréf
1,20-21.
I guðspjalli Jóhannesar
7,16-17 v. stendur: „Jesús
svaraði þeim: „Kenning
mín er ekki mín, heldur
hans, er sendi mig. Sá sem
vill gjöra vilja hans, mun
komast að raun um, hvort
kenningin er frá Guði eða
ég tala af sjálfum mér.“„
Eflaust væri hægt að
benda á marga fleiri texta í
orði Guðs, Biblíunni, sem
sanna áreiðanleika þess,
en ég ætla að láta þetta
nægja. Ekki má heldur
gleyma vitnisburði allra
þeirra þúsunda og aftur
þúsunda manna, sem hafa
fengið að reyna í lífi sínu
og dauða að orð Guðs er
sannleikur, lifandi og
máttugt orð sem engan
svíkur, sem þorir að
treysta því. Lofaður sé
Drottinn fyrir það. „Því að
orð Drottins er áreiðanlegt
og öll verk hans eru í trú-
festi gjörð.“ Sálmur 33,4.
Allai' Biblíutilvitnanir
eru úr þýðingunni 1981.
Guð blessi ykkur öll sem
þetta lesið.
Sóley Jónsdóttir,
Akureyri.
Tapað/fundið
Heyrnartæki týndist
UM miðjan september
týndist lítið heyrnartæki í
hlust. Tækið var í lítilli
svartri buddu en gæti al-
veg eins hafa dottið úr
henni. Gæti hafa týnst við
Dómkirkjuna eða Oddfell-
ow. Þeir sem hafa orðið
tækisins varir hafi sam-
band í síma 551 8643.
Lesgleraugu
týndust
LESGLERAUGU í bláu
hulstri, utan á hulstrinu er
penni, týndust sl. miðviku-
dag. Skilvís fmnandi hafi
samband í síma 568 8500
eða 553 2273.
ÞESSAR duglegu stúlkur héldu hlutaveltu til styrktar Neistaniun, styrktarfélagi hjart-
veikra barna. Söfnuðu þær kr. 2.200. Þær heita Sólveig Björk Ásmundardóttir, Hildur Eva
Ásmundardóttir og Elín Rut Elíasdóttir.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
aftnæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira lesend-
um sínum að kos.tnað-
arlausu. Tilkynningar
þui'fa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir
sunnudagsblað.
Samþykki afmælis-
barns þarf að fylgja af-
mælistilkynningum
og/eða nafn ábyrgðar-
manns og sfmanúmer.
Fólk getur hi-ingt í
síma 569-1100, Sent í
bréfsíma 569-1329,
sent á netfangið ritstj
@mbl.is. Einnig er
hægt að skrifa:
Ámað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík.
Víkverji skrifar...
NIÐURSTÖÐUR bandarísku
þingkosninganna fyrr í vikunni
voru skýr vísbending um að band-
arískum almenningi hefur fyrir
löngu ofboðið sú gífurlega umræða
um samband Clintons Bandaríkja-
forseta við Monicu Lewinsky sem
tröllriðið hefur bandarískri
þjóðmálaumræðu frá því í byrjun
árs.
Þetta ætti engum að koma á
óvart sem fylgst hefur með band-
arískum fjölmiðlum og þá ekki síst
sjónvarpi í lengri eða skemmri
tíma á þessu ári. í raun má segja
að fátt annað hafi komist að í um-
fjöllun margra sjónvarpsstöðva og
þá ekki síst þeirra er sérhæfa sig í
fréttum og spjallþáttum. Kvöld eft-
ir kvöld hefur sama leiksýningin
farið í gang þar sem rætt er fram
og til baka um ótrúlegustu smáat-
riði, aukaatriði og einstaka sinnum
aðalatriði málsins. Ráðist er á for-
setann og menn koma honum til
varnar. Að mörgu leyti hefur þetta
minnt á hringekju því að þeir sem
voru t.d. gestir í spjallþætti Larrys
Kings á CNN eitt kvöldið birtust
gjarnan á skjánum í „Hardball",
spjallþætti Chris Matthews á
stöðinni CNBC kvöldið eftir og
öfugt. Og svona hélt þetta áfram.
Kvöld eftir kvöld, viku eftir viku.
Víkverji gerði heiðarlega tilraun til
að fylgjast með umræðunni er
hann var um nokkurra vikna skeið
í Bandaríkjunum fyrr á árinu en
gafst upp eftir nokkra daga.
xxx
HVAÐ er eiginlega að gerast í
ostainnflutningsmálum? Vík-
verji fagnaði því líkt og margir aðrii'
íslendingar þegar innflutningur á
erlendum ostum hófst fyrir nokkru
og kaupir reglulega franska osta
þrátt fyrir óþarflega hátt verð.
Framboð hefur hins vegar verið
stopult og ekki hægt að treysta á að
tilteknar tegundir séu ávallt til, sem
eflaust ræðst af hinu undarlega
kvótakerfi ostainnflutnings, sem
Víkverji hefur ekki enn botnað til
fulls í.
Sjaldan virðist ástandið hins veg-
ar hafa verið jafnslæmt og síðustu
vikur. I ostaborðinu í Nýkaup í
Kringlunni, þar sem yfirleytt er
ágætt úrval osta, hefur nú smur-
brauð rutt ostunum til hliðar og
skýringin sem Víkverji fékk var sú
að frönsku ostamir væm hreinlega
ekki til og engin leið að segja til um
hvenær þær kæmu að nýju. Er ekki
orðið tímabært að leysa neytendur
undan oki skammtakerfis og hafta á
þessu sviði sem öðru?
xxx
KUNNINGI Víkverja, sem er
áhugamaður um léttvín, benti
honum nýlega á kostulegan bækling
frá íyrirtæki er sérhæfir sig í því að
selja selja búnað og efni til „vín-
gerðar". Stór hluti þjóðarinnar
virðist reglulega stunda „víngerð" á
heimilum sínum og kaupir til þess
sérstakt þrúguþykkni. I bæklingn-
um var staðhæft að eftir geymslu í
einungis eina viku væri „varla hægt
að kaupa betri vín“ en þau sem
fengjust úr þykkninu. Kunningja
Víkverja, sem þekkir ágætlega til
þessara mála, rak hins vegar í
rogastans er hann las lýsingar á
þeim þrúgum sem í boði eru. Meðal
annars var hægt að kaupa þykkni
úr þrúgunni Sauvignon Blanc, sem
er ein þekktasta hvítvínsþrúga
Frakklands. Voru vín úr þessari
þrúgu sögð einkennast af „gras- og
gæsakeim". Vín úr Sauvignon Blanc
þykja vissulega minna á keim
garðaberja (á ensku
,,gooseberries“). Minna hefur hins
vegar farið fyrir gæsunum til þessa,
að minnsta kosti í hefðbundnum
vínfræðum.