Morgunblaðið - 28.11.1998, Side 2
2 C LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
UmsjOll:
GUÐBJÖRG R.
GUDMUNDSDÓTTIR
Ljósmyndír:
KJARTAN
ÞORBJÖRNSSON
(GOLLI)
Hönnun:
HELGA SIGR.
ÞÓRARINSDÓTTIR
Umkot:
HARPA
GRÍMSDÓTTIR
Höjundar cjiiís:
ANNA
BJARNADÓTTIR,
ANNA
INGÓLFSDÓTTIR,
ÁLFHEIÐUR HANNA
FRIÐRIKSDÓTTIR,
BRYNJA TOMER,
GUÐBJÖRG R.
GUÐMUNDSDÓTTIR,
INGER ANNA AIKMAN,
MARGRÉT ÞÓRA
ÞÓRSDÓTTIR,
SIGRÚN
DAVÍÐSDÓTTIR
ÞÓRUNN
ÞÓRSDÓTTIR
Forsíöumynd:
KJARTAN
ÞORBJÖRNSSON
(GOLLI)
í byrjun aðventu fer hún Þórdís, mamma vinkonu minnar, að
útbúa litla jólapakka. Hún nostrar við þá en innihaldið er ekki
verðmætt í krónum talið. Þessa litlu skrautlegu pakka réttir hún
til dæmis póstburðarmanninum, blaðberanum og þeim sem hirða
sorpið hennar um leið og hún óskar þeim gleðilegra jóla og þakk-
ar þeim ótal spor að húsinu hennar.
Jólin koma fyrst og fremst í
hjartanu, segir sr. Guðný Hall-
grímsdóttir hér í jólaspjalli
þegar gjafir, bakstur og annað
amstur ber á góma. Og það er
ekki fjöldi smákökutegundanna
sem börnin okkar eiga eftir að
varðveita í minningunni eða þá
margar og dýrar gjafir. Það
þekkjum við sem erum orðin
fullorðin. En það gæti verið að
þessi litli pakki hennar Þórdís-
ar yrði blaðberanum minnis-
stæður þegar fram líða stundir.
Öðrum er t.d. hugleiknust tón-
listin sem var leikin á aðventunni heima eða biðin eftir að mamma
setti styttuna af Jesúbarninu í jötuna á jólunum.
Jólagleðin í hjarta er gleðin yfir að gleðja og sýna kærleika og
hún kemur ekki í hlutfalli við stærð eða fyrirferð gjafanna heldur í
samræmi við ástúðina sem við látum í té.
Sníðum okkur stakk eftir vexti og njótum aðventunnar með frið í
hjarta.
Efnísjfírlít
6 Laxatartar, rjúpur og
pistasíuísterta
8 Innbakaðar nautalundir
og Feneyjabrjóst
10 Innbakaður reyktur áll og
rjúpnabringur
12 Ostakökur og heit lifrarkæfa
14 Nautakjöt í rauðvínssósu og
frönsk súkkulaðikaka
16 Daimostakaka, romm-
kúluterta og Oddaæði
18 Fyllt gæs og súkkulaðiterta
með Amaretto og
kanilmousse
32 Smákökur
34 Marineraðir sjávarréttir og
rækju- og laxapaté
37 Berlínarkransar, sælgætis-
kaka og stjarna
38 Hamborgarhryggur og
fiskisúpa
41 Sænsk svínasteik
42 Konfekt
44 Boðskapur jólanna
46 Uppáhaldsjólaskrautið
20 Dádýrahryggur, núggatís
og hangikjöt
22 Jólabrauð, kalkúnn og
saltfiskur
26 Kínverskt fondue og
kanadfsk súkkulaðikaka
28 Brauðflétta og fræhjörtu
w/jU iviaiau a yiiö
54 Jólahorn og
hurðarkrans
56 Engill og
hnetukrans
Það er nóg að gera á Leiðbeiningastöð heimilanna þegar nær dregur jólum
enda eru fyrirspurnirnar margar og ólíkar. Leitast er við að gefa góð svör
og finna lausnir við flestum vandamálum sem upp koma.
Forstöðumaður Leiðbeiningastöðvarinnar, Hjördís Edda Broddadóttir,
var beðin að veita lesendum svör við algengustu spurningum sem berast
varðandi jólaundirbúninginn. Mið var tekið af þeim fyrirspurnum sem Leið-
beiningastöðinni berast frá neytendum fyrir jólin og eru spurningarnar og
svörin birt hér á víð og dreif um blaðið.
Leiðbeiningastöð heimilanna er opinber neytendafræðsla sem hefur ver-
ið rekin af Kvenfélagasambandi íslands frá árinu 1963. Þar er m.a. hægt að
fá upplýsingar um allt sem viðkemur heimilisstörfum.