Morgunblaðið - 28.11.1998, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998 C 37
þó hefur látið eiga sig að slá garðinn
á aðfangadag, eins og Þjóðverjarnir
gerðu! „Þetta eru einkum siðir sem
tengjast mat,“ bætti hún við.
Auk þess að sauma út sína ár-
legu jólamynd situr Gerður gjarnan
við handavinnu og er margbreyti-
leikinn þar í fyrirrúmi. „Ég hef aldrei
verið í saumaklúbbi, eða öðrum fé-
lagsskap, mér lætur best að vera
ein hér heima og dunda mér,“
sagði hún. Síðustu ár hefur hún út-
búið fjölda bútasaumsveggteppa
en hún sagðist gefa mest af þeirri
handavinnu sem hún gerir. Þá út-
býr hún stjörnur og dúka auk þess
að búa til sín eigin jólakort svo eitt-
hvað sé nefnt af því sem hún tekur
sér fyrir hendur.
Alltaf eitthvað nýtt
„Ég reyni alltaf að gera eitthvað
nýtt fyrir hver jól, það er svo gam-
an að breyta svolítið til, hafa hlut-
ina ekki alltaf eins.“ Að þessu sinni
ákvað hún að útbúa eigin ávaxta-
köku, en hafði áður keypt slíkar
kökur. Hún ætlar líka að breyta til
með hátíðarmatinn á gamlárs-
kvöld, hefur síðustu ár boðið upp á
kalkún en nú á að prófa hreindýr. Á
aðfangadag er hins vegar hefð fyrir
því að borða hangikjöt. „Það er
siður úr sveitinni," sagði Gerður
sem ólst upp í Eyjafjarðarsveit.
„Við höfum bara grænar baunir í
jafningi, laufabrauð og smjör með.
Svoleiðis var þetta alltaf heima og
ég hef haldið í þennan sið.“ Eigin-
maðurinn sem vandist því að
snæða rjúpur á aðfangadagskvöld
lætur sér vel líka.
Þá má nefna að Gerður er ávallt
búin að baka smákökurnar áður en
aðventa gengur í garð, enda sé
það sín reynsla og eflaust margra
annarra að enginn borðar smákök-
ur á jólunum en menn eru að sama
skapi sólgnir í þær fyrir jólin. Laufa-
brauðið er alltaf gert fyrsta laugar-
dag í desember. „Mér þykir að-
ventan óborganleg og vil að hún sé
róleg og notaleg, þess vegna vil ég
Ijúka undirbúningi vegna jólanna
áður en hún hefst," sagði Gerður,
en nú eru þrjú af fjórum barnabörn-
um hennar flutt heim frá útlöndum
þannig að nú hlakkar hún enn meir
en áður til aðventunnar.
Berhmrkrmmr
ein harðsoðin eggjarauða
ein hrá eggjarauða
______60 g sykur_____
125 g smjörlíki
______175 g hveiti___
ein eggjahvíta
fínt hakkaðar möndlur
perlusykur
Stappið soðnu eggjarauðuna vel áður
en sú hráa er sett út í. Þeytið eggin
og sykur og setjið smjörlíkið og hveit-
ið smám saman út í. Vefjið deiginu
inn í plast og geymið í ísskáp í eina
klukkustund. Rúllið deiginu í fingur-
þykkar lengjur. Skerið niður í 10 cm
bita. Krossið endana og penslið með
þeyttri eggjahvítu, stráið möndlum og
perlusykri yfir.
Bakið á plötu með smjörpappír í 8
mínútur við 190° C.
sdflatískakíi
(Góð fyrir þá sem ekki hafa
tíma til að baka)
250 g suðusúkkulaði
4 msk. sterkt kaffi
250 g kókossmör (plöntufeiti)
___________2egg____________
________3 msk. sykur_______
sætt kex (t.d. Digestive frá
McVitie’s eða Maríukex)
gúmmíkarlar, marsípan,
geltoppar (hlaup)
Bræðið súkkulaðið f vatnsbaði
ásamt kaffinu. Bræðið kókóssmjörið
við vægan hita. Þeytið eggin og syk-
urinn mjög vel. Hellið bráðnu
súkkulaðinu varlega í eggjahræruna.
Því næst er kókóssmjörinu hellt
smám saman út í. Þeytið vel. Kælið
form með álpappír og setjið til skipt-
is deig, kex, marsípan og geltoppa.
Skreytið kökuna að ofan með
geltoppum, súkkulaðikúlum, mar-
sípankrönsum eða öðru sem til er.
Setjið álpappír yfir kökuna og setjið
hana í kælingu.
Full búð af vörum,
ódýrari en í útlöndum t
Opið virka daga kl. 9-18,
laugard. kl. 11-14 lengur í des.
£
BM B- magnusson hf.
Hólshrauni 2, Hafnarfirði
WÓÐLEIKHÖSH)
BIIÓÐIR MINN
Glænýtt og
spennandi
Ljónshjartaspil
til sölu
í leikhúsinu
kr. 500.-
Gjafakort
frá kr. 1.300,
Gjafakort í
Þjóðleikhúsið
Gjöfin sem lifnar við
aÚ Mxdítuí vö/lt/
Awr&
BONAPPETIT!
BON APPETIT!
Fjallagrasapaté
i dós 220 g. kr. 258.
Parísariifrarkæfa
i dós 220 g. kr. 172.-
Borgames kjötvömr ehf.
Símar 437-1190-587-5077 - Fax 437-1093
fllltaf betra!