Morgunblaðið - 28.11.1998, Page 44

Morgunblaðið - 28.11.1998, Page 44
44 C LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ M—4 Sí vsí á abventu Morgunblaðið/Golli BALDUR Snaer, Jón Baldursson, Eyþór Örn og í sófanum sitja Auð- ur Sif og Kristjana G. Eyþórsdóttir með Jakob. „Aðventa markar upphaf kirkjuársins. Orðið aðventa er komið úr iatínu (ad og venire) og þýðir að koma.“ Kertin á adventukransinum eru BOÐSKAPU R jomna vmr veaínn „Aðventan byrjar fjórum sunnudögum fyrir jól og endar á aðfangadags- kvöldi og er tími sem kristnir menn eiga að nota til þess að undirbúa líf sitt og heimili fyrir komu frelsarans Jesú Krists," segir Kristjana G. Eyþórsdóttir, sem hefur haft veg og vanda af námskeiðum sem síðastliðin tvö ár hafa verið haldin um miðjan nóvember á vegum Biblíuskólans. Þar hefur verið leitað svara við sþurningunni: „Aðventa og jól - Hvers er vænst? Þar hvetur hún fólk til að íhuga, hvernig það held- ur jól og hvað er því mest virði við hátíðina. Er samræmi þar á milli eða myndi fólk vilja breyta ein- hverju? Á námskeiðinu er líka fjall- að um ýmsar leiðir fyrir einstak- linga, fjölskyldur og aðra hópa til .v að hugsa um hinn raunverulega boðskap jólanna á aðventunni og á sjálfum jólunum. Helgistund heima „Markmið jólaundirbúningsins á heimilinu okkar,“ segir Kristjana, „er að finna Jesú. Eitt af því sem hjálpar okkur við þennan undirbúning er sá siður að nota aðventukrans með fjórum kertum til að tendra, eitt nýtt á hverjum sunnudegi aðventunnar ásamt þeim fyrri og fimmta kertið til að tendra á aðfangadagskvöldi. Litur kertanna fjögurra má gjarnan fylgja lit kirkjunnar fyrir aðventu sem er fjólublár en fimmta kertið, kerti Krists, er haft hvítt eins og lit- ur kirkjunnar er á jólahátíðinni. Kristjana heldur áfram: „Helgi- stund á heimilinu - um leið og Ijós aðventukransins eru tendruð - gerir undirbúninginn innihaldsrík- ari. Heppilegt er að miða lengd stundarinnar við úthald yngstu þátttakendanna. Gott er að hafa smá dagskrá sem virkjar alla við- stadda. Eftir að kveikt hefur verið á kertunum er tilvalið að syngja viðeigandi erindi af söngnum „Við kveikjum einu kerti á“. Ekki spillir fyrir, ef einhver á heimilinu kann á hljóðfæri og getur leikið undir. Síð- an kemur ritningarlestur, íhugun, bæn og að lokum nokkrir söngv- ar.“ Fjárhúsið og jatan „Á aðventunni erum við á leið til Betlehem þar sem við ætlum að taka á móti undri jólanna á að- fangadagskvöldi. En hver vísar okkur veginn? Ferðin hefst fyrsta sunnudag í aðventu með því að við tökum fram „jólajötuna", sem sam- anstendur af fjárhúsi, Maríu, Jósef og Jesúbarninu, fjárhirðum og vitr- ingum, spámanni, stjörnu og nokkrum öðrum hlutum. Þetta eru einfaldar, litlar myndir, sagaðar út úr tré. Við leggjum fjólubláan dreg- il ofaná píanóið okkar. Á hægri enda hans stillum við upp fjárhús- inu með stjörnuna fyrir aftan. Á vinstri enda dregilsins setjum við spámanninn og minnumst þess um leið að spámennirnir í Gamla testamenntinu í Biblíunni töluðu orð Guðs um það, sem koma ætti svo þeir geta vísað okkur veginn. Á öðrum sunnudegi í aðventu fær- ist spámaðurinn aðeins nær fjár- húsinu og fyrir aftan hann setjum við Maríu og Jósef sem einnig eru á leið til Betlehem með asnann sinn svo þau vísa okkur líka veg- inn. Þannig höldum við ferðinni áfram, hvern sunnudag aðvent- unnar færum við hlutina nær fjár- húsinu og bætum fjárhirðunum í röðina þriðja sunnudaginn og vitr- ingunum á þeim fjórða. Að lokum er svo hvítur dregill settur í staðinn fyrir þann fjólubláa á aðfanga- dagskvöld. Allir ferðalangarnir eru komnir inn í fjárhúsið og Jesú- barnið í jötunni er sótt og sett á sinn stað. Á þennan hátt geta börnin og við sjálf fylgst með jóla- guðspjallinu á lifandi hátt.“ Fæðing frelsarans aðalatriðið „Jól eru mjög sérstakur tími,“ segir Kristjana. „Allt árið Ijóma börnin okkar þegar þau minnast þessarar hátíðar, þau rifja upp hvað þau gerðu um síðustu jól og segja hvað þau vilja gera á næstu jólum. Já, jólin eru mikið tilhlökk- unarefni hjá börnunum, en hver á eiginlega afmæli þá?“ fimm. Fjögur fjólubláu kertin eru fyrir hvern sunnudag í aðventunni en fjólublái liturinn er tákn föst- unnar. Kertið í miðjunni er kerti Krists, sem við kveikjum á þegar jólin ganga í garð. Það er hvítt. Á hverjum sunnudegi getur fjöl- skyldan búið til litla helgistund þegar kveikt er á kertum að- ventukransins. Fjölskyldumeðlim- ir geta skipst á að kveikja á kert- unum og syngja má viðeigandi erindi söngsins „Við kveikjum einu kerti á“. Þá er lesið úr ritn- ingunni og textinn íhugaður, farið með bæn og að lokum sungnir jólasöngvar eða sálmar. 1. mmtdagur í abentu Kveikt er á spádómskertinu. Barn mun oss fæðast er umhugsunarefni dagsins og lesið er í Biblíunni, Jesaja 9:2-6. Syngja má t.d. sálminn í Betlehem er barn oss fætt eða Jesús er besti vinur barnanna. 2. sumdagnr í éventu Kveikt er á Betlehemskertinu. Texti dagsins er um fæðingu Jesú. Matteus 1:18-25. 3. sumdagur í éventu Kveikt er á hirðakertinu. Texti þessa dags er helgaður hirðingjunum og englunum. Lúkas 2:8-20. 4. sumdqgur í adventu Kveikt er á englakertinu. Koma vitringanna er umfjöllunarefni þennan dag. Textinn er í Matteusarguðspjalli 2:1-12. Það er tilvalið að syngja Bjart er yfir Betlehem eða Ó, hve dýrðlegt er að sjá. Kveikt er á kerti Krists, jólakertinu, sem er iðulega hvítt. Við lesum um komu Krists i Lúkasarguðspjalli 1:68-69. Heims um ból er jólasálmurinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.