Morgunblaðið - 28.11.1998, Síða 54
54 C LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ÞEIR
BOÐA
KOMU
JÓLA
GEORG JENSEN
KÚNÍGÚND
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 8 S 551 3469
ynnín
Kaffitár - Kaffibrennsla,
Holtsgötu 52, 260 NjarðviX
sími 4212700, bréfsími 421 2735.
Kaffiverslun - expressóbar,
Kringlunni 8-12,103 Reykjavík,
sími 5880440.
Kaffiverslun - expressóbar,
Bankastræti 8,101 Reykjavík,
sími 5114540.
* Huróarkrœns
KRISTÍN Magnúsdóttir að pensla
jólahornið með litapúðri.
Margir hafa fyrir sið að föndra
fyrir jólin og hún Kristín
Magnúsdóttir, sem hefur haft
af því atvinnu í mörg ár, segir
að allir geti föndrað ef þeir
kunni grunnhandtökin og
Morgunblaðið/Golli
JÓLAHORN sem unnið er úr hænsnavír.
sleppi síðan hugmyndafluginu
lausu. „Auðvitað þarf fólk líka
að finna sig í að föndra og
fikra sig áfram. Það er mjög
gaman að geta sjálfur búið til
jólaskraut eða gjafir fyrir þá
sem manni þykir vænt um.“
FÖNDRAÐ
Jyrír jolín
Kristín starfar hjá Blóma-
t verkstæði Binna, kennir
framreiðslunemum borð-
skreytingar og heldur nám-
skeið þar sem hún kennir m.a. jóla-
skreytingar. „Mér finnst alltaf gam-
an að skreyta fyrir jólin og er dálítið
veik fyrir eplum í því sambandi."
Kristín kennir lesendum hér að
búa til horn úr hænsnaneti og
einnig krans á hurð.
jólahom
Hænsnanet (fæst í
byggingarvðruverslunum)
5 búnt Calaxy blöð (fást í blóma-
búðum eins og flest annað
_________í skreytinguna)______
_________nana greinar_________
______oasis fremst í hornið___
granat epli
________________hnetur________________
________ . kanilstangir____________
________________könglar_______________
_______________glimmer _______________
______________ berjagrein_____________
_______ lótus________________
______________gyllt snúra_____________
_____________litlaus lakkúði_______
litapúður (fæst í
_____________föndurbúðum)_____________
_______________blómavír_______________
gylltur úði (fæst í
blómaverslunum)
„Hænsnanet má móta á ótal vegu og
í þessu tilfelli var það mótað í horn.
Þegar búið er að móta hænsnanetið
krækist það af sjálfu sér saman.“
Kristín hylur síðan netið með calaxy
blöðum og setur einnig nana greinar
á víð og dreif. Þegar þessu er lokið
fyllir hún upp í hornið fremst með
oasis og stingur síðan í það granat
eplum sem hún er búin að stinga í
vír, könglum, hnetum, lótus, kanil-
stöngum og fleira skrauti. Að lokum
gyllir hún hluta af hnetum og kanil-
stöngum og setur með í skreyting-
una. Hún sker einnig niður granat
epli og lætur sneiðarnar njóta sín.
Kristín penslar yfir calaxy blöðin með
litapúðri og úðar að lokum yfir með
lakkúða.
Hurfarkrtms
Bastkrans
víðigreinar
nana greni
kókoshár
granatepli
brúnn börkur
rauður kaðall
bindivír
Byrjið á að vefja greinum og greni á
kransinn og notið til þess bindivír. St-
ingið síðan vír í gegnum eplin og fest-
ið þau á kransinn. Skreytið með
berki, kaðli og kókoshári eftir smekk.
Úðið yfir skreytinguna litlausu lakki
og hengið svo á útidyrnar þegar að-
ventan gengur í garð.
oi uumuicgum iiaiuvjuium, nátttötum og
sloppum úr silki, satíni með bómull að
innan og micro-fíber.
elúr-sloppar og gallar.
Frotté-sloppar.
Laugavegi 32. Sími 551 6477.
Sendum í póstkröfu.
ff.U) rm T'rfo VöE-n
Kertavax í dúkinn
Kertaljós og jólin fara vel saman.
Hvað er til bragðs að taka ef
kertavax fer í dúkinn eða gólf-
teppið?
Svar: Ef kertavax lendir í dúk er best
að setja hann í frysti svo kertavaxið
harðni og þá er hægt að brjóta og
skafa sem mest í burtu. Það sem eft-
ír er hverfur síðan í þvottinum ef þvo
má við 60° C. Ef dúkurinn þolir ein-
ungis 40° C er best að bleyta blettinn
með vatni og síðan setja uppþvotta-
lög sem látinn er liggja í 4-6 klst. eða
yfir nótt (hylja blettinn með plasti).
Dúkurinn loks þveginn. Ef enn er eftir
litarblettur má fjarlægja hann með því
að nudda blettinn varlega með
própanóli eða hreinsuðu benslni. Ef
kertavax fer í gólfteppið þarf að fjar-
lægja eins mikið og hægt er með
gaffli. Vætið slðan bómullarklút með
hreinsuðu bensíni og nuddið varlega.
Ef teppið er mjög Ijóst getur orðið
erfitt að fjarlægja blettinn alveg, það
má reyna að bleikja litarblett með
vetnisperoxíði (fæst í lyfjabúðum),
farið að öllu með gát. Einnig er gott
að hafa í huga að kertaljósin eru jafn
falleg og þau geta verið hættuleg ef
ekki er farið rétt að.