Morgunblaðið - 08.12.1998, Síða 1
280. TBL. 86. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Rússlandsforseti hafði skamma viðdvöl 1 Kremi í gær
Jeltsín rak helsta
ráðgjafa sinn
Moskvu. Reuters.
BORIS Jeltsín Rússlandsforseti
gerði nokkuira klukkustunda hlé á
sjúkrahúsvist sinni í gær og hélt til
vinnu í Kreml þar sem hann rak
fjóra ráðgjafa sína áður en hann
lagðist aftur inn á sjúkrahús. Þá átti
forsetinn stuttan fund með helstu
aðstoðarmönnum sínum. Dmitrí
Jakúshkín, talsmaður Jeltsíns,
sagði hann óánægðan með frammi-
stöðu starfsliðs síns í baráttunni
gegn spillingu og öfgastefnu, eink-
um sl. hálfan mánuð er forsetinn
hefur legið á sjúkrahúsi.
Jeltsín mætti til vinnu í gær-
morgun og áður en þrjár stundir
voru liðnar hafði hann rekið einn
nánasta samstarfsmann sinn og
ráðgjafa í mörg ár, Valentín
Júmasjev starfsmannastjóra, auk
þriggja lægra settra starfsmanna.
Við starfi Júmasjevs tekur Nikolaj
Bordjuzha, fyri-verandi yfirmaður
hjá rússnesku leyniþjónustunni,
yfírmaður landamæravörslu og nú-
verandi forseti öryggisráðs forset-
ans. Með því safnast mikið vald á
hendur Bordjuzha, sem hefur ver-
ið lítt áberandi í rússneskum
stjórnmálum.
Jakúshkín sagði forsetann afar
ósáttan við starf ráðgjafa sinna að
undanförnu, þeir hefðu grafið und-
an trausti á forsetaembættinu.
„Hlutirnir ganga ekkert of vel,“
hafði talsmaðurinn eftir forsetan-
um og sagði hann Jeltsín hafa fyr-
irskipað að baráttan gegn glæpum
yrði hert á öllum sviðum. Þá
kvartaði forsetinn yfir lélegum
tengslum innan stjórnarinnar og
átti þá einkum við varnarmála-
ráðuneytið gagnvart öðrum ráðu-
neytum.
Starfa áfram fyrir Jeltsín
Brottrekstur Júmasjevs og hinna
ráðgjafanna kemur ekki á óvart því
forsetinn hefur lagt það í vana sinn
að reka starfsmenn eða gera aðrar
afgerandi ráðstafanir þegar hann
snýr aftur til starfa eftir veikindi.
Júmasjev hafði óskað eftir því að
láta af störfum áður og er ekki búist
við því að hann hverfí algerlega úr
starfsliði forsetans, heldur starfi
áfram sem ráðgjafi. Þá hverfa ráð-
gjafamir þrír ekki með skömm,
einn þeirra verður t.d. fulltrúi
Jeltsíns í sambandsráðinu svokall-
aða, efri deild þingsins.
■ Osýnilegi maðurinn/26
CfölMTSWPffrt?
A i.'U Bi: UC'NXt 'SII
7-8 ■décmibntl&S
Maison tlc l'VtliSCo
OrganisatitMi
dcs Nation.s Unics
pour l’cducation,
la scícncc
ct ta culturc
Reuters
50 ár frá mannréttinda-
yfirlýsingu SÞ
BARÁTTUMENN fyrir mann-
réttindum hófu í gær vikulöng
hátíðahöld í París í tilefni þess
að á fimmtudag verður hálf öld
liðin frá því mannréttindayfir-
lýsing Sameinuðu þjóðanna var
samþykkt í frönsku höfuðborg-
inni. Jacques Chirac Frakk-
landsforseti, sem setur hér há-
tíðina, sagði að þótt mikið hefði
áunnist í baráttunni fyrir mann-
réttindum væru þau enn of oft
fótum troðin. „Fólk er pyntað í
helmingi allra landa heims. Það
gerist of oft að ráðamenn þagga
niður í pólitiskum andstæðing-
um sinum og virða ekki mál-
frelsið.“
Reuters
PALESTINSKIR lögreglumenn bera Palestínumann, sem særðist þegar ísraelskir hermenn skutu gúnuníkúl-
urn á palestínska mótmælendur í Betlehem í gær. Nítján manns særðust í átökunum.
Netanyahu fær tvær vik-
ur til að bjarga stjóminni
Reno
hafnar
rannsókn
Washington. Reuters.
JANÉT Reno, dómsmálaráðherra
Bandaríkjanna, ákvað í gær að
skipa ekki óháðan lögmann til að
rannsaka ásakanir um að Bill Clint-
on forseti hefði gerst brotlegur við
lög í kosningabaráttunni árið 1996.
Clinton hefur verið sakaður um
að hafa brotið lög, sem reisa skorð-
ur við því hversu miklu fé frambjóð-
endur geta eytt í kosningabaráttu
sinni, með sjónvarpsauglýsingum
sem Demókrataflokkurinn greiddi.
Reno sagði að ekki væri ástæða
til frekari rannsóknar á málinu þar
sem fram hefðu komið skýrar vís-
bendingar um að forsetinn hefði
ekki brotið lögin af ráðnum hug.
Lögfræðingar hans hefðu sagt hon-
um að auglýsingarnar brytu ekki í
bága við kosningalögin.
■ Repúblikanar/28
Jcrúsalcm. Reuters.
BENJAMIN Netanyahu, forsætis-
ráðherra ísraels, fékk í gærkvöldi
tveggja vikna frest til að bjarga
stjórn sinni, sem hefur riðað til falls
vegna óeiningar um friðarsamkomu-
lag hans við Palestínumenn.
Þing ísraels átti í gær að greiða
atkvæði um frumvarp þess efnis að
þingið yrði rofíð og boðað til kosn-
inga í byrjun næsta árs en íresta
þurfti atkvæðagreiðslunni þar sem
flokkur heittrúaðra gyðinga, sem á
aðild að stjórninni, lagði fram tillögu
um vantraust á hana. Vantrauststil-
lagan og þingrofsfrumvarpið verða
borin undir atkvæði eftir tvær vikur,
eða eftir fund Bills Clintons Banda-
ríkjaforseta með Netanyahu og
Yasser Arafat, leiðtoga Palestínu-
manna, í Israel á mánudaginn kem-
ur.
Samþykki þingið vantrauststillög-
una og þingrofsfrumvarpið fellur
stjórnin og boðað verður til kosn-
inga innan tveggja mánaða.
„Þeir komu til að fella stjórnina.
Þeir frestuðu því. Ég var ánægður,"
sagði Netanyahu eftir þingfundinn.
Átök á Vesturbakkanum
Að minnsta kosti 50 Palestínu-
menn særðust í átökum við ísraelska
hermenn á Vesturbakkanum í gær
þegar hópar Palestínumanna komu
saman til að krefjast þess að Israel-
ar leystu palestínska fanga úr haldi.
Palestínskir lögreglumenn særðu
einnig 19 manns þegar þeir skutu
gúmmíkúlum á Palestínumenn, sem
reyndu að ráðast á höfuðstöðvar lög-
reglunnar í Nablus.
Israelskir hermenn skutu gúmmí-
kúlum og beittu táragasi í átökum
við Palestínumenn í Hebron, Jenín,
Betlehem, Nablus og fleiri bæjum á
Vesturbakkanum. Tveir ísraelskir
hermenn og fjórir lögreglumenn
særðust í átökunum.
Palestínumaður særðist einnig
lífshættulega í bænum Abu Dis og
sjónarvottar sögðu að tveir vopnaðir
Israelar hefðu skotið hann í höfuðið.
Kosovo
Serbar
hóta nýrri
sókn
Bclgrad. Reuterst
STJÓRN Serbíu hótaði í gær að
heíja nýja sókn í Kosovo ef eftirlits-
menn Oryggis- og samvinnustofnun-
ar Evrópu (ÖSE) hefðu ekki taum-
hald á albönskum aðskilnaðarsinn-
um í héraðinu.
Litið var á viðvörunina sem dul-
búna hótun við 2.000 óvopnaða eftir-
litsmenn ÖSE, sem eiga að fram-
fylgja vopnahléssamkomulaginu í
Kosovo sem náðist í október. Nokk-
ur NATO-ríki hafa einnig ákveðið að
senda 1.800 hermenn til nágranna-
ríkisins Makedóníu þar sem þeir
eiga að vera í viðbragðsstöðu til að
koma eftirlitsmönnunum til hjálpar
ef átök blossa upp. Fyrstu hersveit-
irnar voru sendar þangað á sunnu-
dag.
„Ef friður kemst á verður enginn í
hættu og það á einnig við um eftir-
litsmennina," sagði Tomislav
Nikolic, aðstoðarforsætisráðherra
Serbíu. „En ef albönsku hermdar-
verkamennirnir fá að spranga um,
fremja morð og mannrán, þá verð-
um við að grípa til sömu aðgerða og
í sumar en í þetta sinn verður þeim
haldið áfram allt til loka, hvað sem
öðrum kann að finnast um það.“
Javier Solana, framkvæmdastjóri
NATO, sagði að bandalagið myndi
ekki láta „slíkar yfirlýsingar við-
gangast".
Serbar andvígir íhlutun
NATO-liðsins
Talsmenn NATO hafa fullyrt að
Slobodan Milosevic, forseti Júgó-
slavíu, sambandsríkis Serbíu og
Svartfjallalands, hafi samþykkt í
október að NATO-liðið í Makedóníu
geti farið til Kosovo í neyðartilvik-
um án þess að leita samþykkis yfir-
valda áður. Milosevic lýsti því hins
vegar yfir á dögunum að litið yrði á
slíka íhlutun sem innrás.