Morgunblaðið - 08.12.1998, Page 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1998
MORGUNBLADIÐ
FRÉTTIR
18 milljóna
kr. kostnað-
arauki vegna
fangavarða
MEIRIHLUTI fjárlaganefndar
leggur til í áliti með frumvarpi til
fjáraukalaga ársins 1998 að Fang-
elsismálastofnun fái 8 milljóna
króna aukafjárveitingu til að standa
straum af auknum launakostnaði
vegna fangavarða.
Fram kemur að vegna kjara-
samninga við fangaverði hafi launa-
kostnaður ársins hækkað um 18
milljónir króna, en í ljósi styrkrar
fjárhagsstöðu Fangelsismálastofn-
unar beri hún sjálf 10 milljónir
króna af kostnaðinum.
Skipaður
í embætti
ríkis-
skattstjóra
• FJ ÁRMÁL ARÁÐHERR A
hefur skipað Indriða H. Þor-
láksson, skrifstofustjóra í fjár-
málaráðuneytinu, í embætti
ríkisskattstjóra frá 1. janúar
1999 að telja.
Indriði H. Þorláksson er
fæddur 28. september árið
1940 í Eyjarhólum í Mýrdal.
Hann lauk
stúdents-
prófi frá
MA 1960 og
hagfræði-
prófi frá
Freie Uni-
versitát,
Berlín, árið
1969. Ind-
riði hefur
lengi starf-
að innan stjórnsýslunnar, m.a.
í menntamálaráðuneytinu, ver-
ið skrifstofustjóri launaskrif-
stofu ríkisins, skrifstofustjóri
tekju- og lagaskrifstofu fjár-
málaráðuneytisins og var hag-
sýslustjóri í tvö ár. Þá starfaði
hann um tíma hjá Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum í Was-
hington.
Indriði hefur tekið þátt í
starfi ýmissa nefnda, stjóma
og starfshópa á vegum stjóm-
valda, m.a. við undirbúning
núverandi skattkerfa, kjara-
samninga, lífeyrismála, tví-
sköttunarsamninga o.fl. Þá
hefur hann einnig reynslu af
norrænu og evrópsku sam-
starfi í tengslum við skattaleg
málefni.
Skýrsla um fiármögnunarleiðir í heilbrigðisþjónustu
Föst Qárlög- einföld-
ust og frumstæðust
í SKYRSLU frá Hagfræðistofnun
Háskólans um fjármögnunarleiðir í
heilbrigðisþjónustu, sem skilað var
nýlega til samstarfsráðs sjúkra-
húsa, segir að núverandi kerfi
fastra fjárlaga sé einfaldasta og
kannski framstæðasta fjármögn-
unarleið heilbrigðisþjónustu. Það
krefjist ekld mikillar menntunar
eða þjálfunar starfsfólks í stjóm-
unarstöðum sem komi sér sérstak-
lega vel í vanþróuðum löndum. Það
hafi hins vegar marga ókosti sem
þróaðri og jafnframt ilóknari kerfi
hafi ekki.
Greint er í skýrslunni frá helstu
kostum og göllum mismunandi
leiða til að fjármagna rekstur
sjúkrahúsanna og þeim skilyrðum
sem þurfa að vera fyrir hendi til að
einstakar fjármögnunarleiðir geti
verið færar. Skýrsluna vann Marta
Guðrún Skúladóttir hagfræðingur
með hjálp dr. Gylfa Zoéga.
Eðlilegt að taka upp
þróaðra kerfi hér
í ágripi skýrslunnar segir m.a.
að starfsemi sjúkrahúsanna sé að
mestu leyti fjármögnuð með föst-
um fjárlögum en blikur séu á lofti
um að það kerfi hafi gengið sér til
húðar og nái ekki að fjármagna
starf sjúkrahúsanna á fullnægj-
andi hátt. Talið er líklegt að auka
megi hagkvæmni í heilbrigðiskerf-
inu hérlendis ef nýjar leiðir era
farnar. Bent er á að á Norðurlönd-
unum hafi verið teknar upp aðrar
leiðir samhliða föstum fjárlögum,
þar sé heilbrigðisþjónustan fjár-
mögnuð með föstum og breytileg-
um fjárveitingum. Fastur kostn-
aður við rekstur sé greiddur með
föstum fjárveitingum en síðan
gerðir þjónustusamningar sem
kveða á um fasta greiðslu fyrir
hvert sjúkdómstilvik og einkenn-
ist það kerfi því af afköstum
sjúkrastofnananna.
Bent er á að vegna þess hve vel
menntað vinnuafl sé í heilbrigðis-
kerfinu hér á landi sé eðlilegt að
lsland feti í fótspor nágrannaríkj-
anna og taki upp þróaðra kerfi en
fóst fjárlög eingöngu. „Kerfi sem
fæli í sér hvort tveggja, föst fjár-
lög og breytileg fjárlög á grand-
velli þjónustusamninga eins og
tekið hefur verið upp í mörgum
nágrannalöndum, myndi að öllum
líkindum auka hagkvæmni í heil-
brigðiskerfinu talsvert,“ segir í
skýrslunni. Þá hefðu stofnanir
ekki lengur hvata til að „fela“
lækkun útgjalda vegna væntan-
legra áhrifa á fjárveitingu næsta
árs og með því að fasttengja sjúk-
dómstilfelli og kostnað með þjón-
ustusamningnum skapist hvati
fyrir sjúkrastofnanir til að gæta
sparnaðar í meðferð hvers sjúk-
lings sem leiða myndi til lægri út-
gjalda. Því þyrftu stofnanir ekki
að halda að sér höndum við með-
ferð sumra sjúklinga til að ná end-
um saman þar sem þær fengju
greitt fyrir hvert tilfelli sam-
kvæmt þjónustusamningi og því
myndu aukast líkur á því að
biðlistar styttust.
Bent er á helsta ókost þjónustu-
samninga, þ.e. að gæði kunni að
versna. Gæti það annars vegar
stafað af því að verðið væri of lágt
og hins vegar að ekki væri tekið
nægilegt tillit til hjúkrunarþjón-
ustu. Onnur hætta væri sú að skrá
sjúklinga inn í flokka sem gæfu
stofnununum hærri greiðslur en
efni stæðu til.
‘V
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jólaljósin tendruð
á Austurvelli
MIKILL mannfjöldi var saraan-
kominn í mildu veðri á Austur-
velli sl. sunnudag þegar kveikt
var á jólatrénu sem Oslóarbúar
gefa Reykvíkingum. Fritz Huit-
feldt, forseti borgarstjórnar
Óslóar, afhenti tréð og flutti
stutta ræðu. Það var síðan Vé-
björn Fivelstad, drengur af
norsk-íslenskum ættum, sem
tendraði ljósin. Að athöfninni
lokinni brugðu jólasveinar á leik
og fluttu jólasöngva og gaman-
mál.
HOLTACARÐAR
OPIÐ I DAO TIL KU
Hringbrautin verður færð árin 2001 og 2002
Aætlaður kostnaður
580 milljónir króna
ÁKVEÐIÐ hefur verið að ráðast í
framkvæmdir við færslu Hring-
brautarinnar í suður árið 2001 og
2002 og er gert ráð fyrir að fram-
kvæmdirnar kosti 580 milljónir
króna. Málið var rætt á ríkisstjórn-
arfundi á laugardaginn var og verð-
ur gerður samningur milli ríkis og
Reykjavíkurborgar um fjármögnun
verksins að hluta til.
Halldór Blöndal, samgönguráð-
herra, sagði að með tilfærslum á
vegaáætlun verði útvegaðar um 380
milljónir króna og síðan sé gert ráð
fyrir að Reykjavíkurborg láni Vega-
gerðinni það sem upp á vantar eða
rétt um 200 milljónir króna sam-
kvæmt kostnaðaráætlun verksins.
Gert sé ráð fyrir að lánið verði end-
urgreitt á árinu 2003 að hluta til eða
140 milljónir króna og það sem á
vantar á eftirstöðarnar verði greitt
árið eftir, 2004. Lánið verður greitt
með verðbótum en án vaxta.
Innan ramma Ijárlaga
„Ég taldi nauðsynlegt að þetta
mál yrði kynnt í ríkisstjórninni áð-
ur en ég skrifaði undir eins og
venja er til þegar ráðist er í vega-
gerð og tekin skammtímalán sem
nema svo háum fjárhæðum," sagði
Halldór.
Hann sagði að allt væri þetta inn-
an þess ramma sem fjárlög settu
vegasjóði hverju sinni, en frá ári til
árs væru óhjákvæmilegar einhverj-
ar tilfærslur. Þetta mál væri
kannski öðru vísi en almennt gerð-
ist að því leyti að gert væri ráð fyr-
ir sérstakri lántöku hjá höfuðborg-
inni.
I