Morgunblaðið - 08.12.1998, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 08.12.1998, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1998 11 Vinstrihreyfíng varar við því að reynt verði að koma aðild að ESB á dagskrá Ætlar sér að berjast fyrir eindreginni vinstristefnu VINSTRIHREYFINGIN - grænt framboð ætl- ar að brerjast fyi’ir emdreginni vinstristefnu, raunverulegu jafnrétti og skýi-um áherslum í um- hverfismálum. Þessar megináherslur voru sam- þykktar á landsráðstefnu hreyfingarinnar, sem lauk um helgina. Fast að 180 manns sóttu ráð- stefnuna víðsvegar að af landinu. A ráðstefnunni var fjallað um drög að stefnu- skrá og áherslum í einstökum málaflokkum, sem verða til áframhaldandi umfjöllunar fram að fyr- irhuguðum stofnfundi hreyflngarinnar í byrjun næsta árs. A fundinum var fjallað um drög að lög- um hreyfingarinnar og kosin nefnd til að undir- búa fm'irhugaðan stofnfund. I nefndinni eiga sæti: Anna Guðrún Þórhallsdóttir, Sigríður Stef- ánsdóttir, Stefanía Traustadóttir, Steingrímur J. Sigfússon, Svahildur Kaaber, Þorsteinn Olafsson og Þoivaldur Þorvaldsson. „Vinstrihreyfingin - grænt framboð vill skapa öflugt mótvægi gegn frjálshyggjustefnu ríkis- stjórnarinnar og þeirri misskiptingu og ranglæti sem hún hefur í för með sér. Mitt í svokölluðu góðæri búa fjölmennir hópar við hreina örbirgð. Heilsufar láglaunafólks og fjölskyldna þess er lakara en þeirra sem búa við betri efnahag. Ráð- stefnan skorar á Alþingi að tryggja á fjárlögum næsta árs nægjanlegt fjánnagn til að bæta veru- lega kjör aldraðra, atvinnulausra og lífeyrisþega. Það er óþolandi að einstökum hópum sé ætlað að draga fram lífið af launum eða bótum sem eru lægri en lágmarksframfærsla. Allir þegnar eiga rétt á launum sem duga til mannsæmandi lífs,“ segir orðrétt i upphafi stjórnmálaályktunar sem samþykkt var á ráðstefnunni. Kyoto-bókunin verði undirrituð strax I ályktuninni segir að stóriðja og stórvirkjanir í þágu mengandi iðnaðar fari ekki saman við sjálf- bæra orkustefnu, sem hér verði að marka. Þess er krafist að ísland undirriti nú þegar Kyoto-bók- unina og að lögformlegt mat fari fram á Fljóts- dalsvirkjun. Varað er við því að reynt sé að koma aðild að Evrópusambandinu á dagskrá á grund- Morgunblaðið/Árni Sæberg HELGI Seljan, fyrrverandi alþingismaður, sagði á fundinum, að þegar talsmenn samfylkingar fögnuðu skoðunum formanns Framsóknarflokksins á liugsanlegri aðild að ESB hefði hann fundið að skilin milli sín og Alþýðubandalagsins væru orðin alger. velli óraunsæwa hugmynda um undanþágur og sérsamninga fyrir Island. I ályktuninni segir að brottfór hersins sé lykilatriði í utanríkisstefnu flokksins. Vinstrihreyfingin varaði á fundinum eindregið við setningu laga um miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði. Ennfremur fagnaði hreyfingin niðurstöðu Hæstaréttar í máli sem varðar stjórn- kerfi fiskveiða. „Óumflýjanlegt er að gera grund- vallarbreytingar á kerfinu og stokka upp spilin," segir í ályktun um sjávarútvegsmál. Vantar aðhald frá vinstri I ræðu sem Ögmundur Jónasson alþingismað- ur flutti á fundinum lagði hann m.a. áherslu á að þörf væri fyrir aðhald frá vinstri. Hugsanleg samstjórn Framsóknarflokks og samfylkingar þyi-fti á slíku aðhaldi frá þeim sem væru reiðu- búnir til að standa í lappirnar gegn glórulausri virkjanastefnu, einkavæðingu og markaðshyggju, eins og hann komst að orði. Ef öflugur vinstri- sinnaður flokkur hefði átt aðild að samstarfi fé- lagshyggjunnar í Reykjavik væri óvíst að Reykjavíkurborg hefði ráðist í alla þá einkavæð- ingu, sem Viðskiptablaðið hefði á dögunum hrós- að borginni sérstaklega fyrir. Ogmundur sagði að Vinstrihreyfingin myndi. bjóða upp á skýran valkost og safna liði til að brjóta þjóðfélaginu nýjan og uppbyggilegri far- veg. „Við munum ekki spyrja auglýsingastofur um hvað borgi sig að segja, heldur segjum við það eitt sem sannfæring okkur býður.“ Kristinn H. Gunnarsson orðinn þingmaður Framsóknarflokks Morgunblaðið/Golli KRISTINN II. Gunnarsson tekur við lyklum að skrifstofu Framsókn- arflokksins á fsafirði úr liendi Gunnlaugs Sigmundssonar, oddvita flokksins á Vestfjörðum. Á kippuna er letrað „Þitt val - þín framtíð“, sem þóttu viðeigaudi skilaboð til hins nýja liðsmanns. í forgrunni sitja Valgerður Sverrisdóttir og Halldór Ásgrímsson. KRISTINN H. Gunnarsson alþing- ismaður er genginn í Framsóknar- flokkinn og þingflokk hans en Ki-istinn hefur verið óháður þing- maður frá því hann sagði sig úr Al- þýðubandalaginu fyrr í vetur. Kristinn kveðst stefna á áfram- haldandi þingsetu og sækist í því augnamiði eftir öðru af tveimur efstu sætum Framsóknarflokksins á Vestfjörðum fyrir kosningar í vor. Gunnlaugur Sigmundsson alþingis- maður, sem skipaði efsta sætið í síðustu kosningum, bauð Rristin í gær velkominn í hóp þingmanna Framsóknarflokksins og fagnaði liðsstyi'knum. Kristinn sagði á blaðamanna- fundi í gær þrennt hafa ráðið mestu um þá ákvörðun sína að ganga til liðs við framsóknarmenn. Fyrst og fremst bæri að nefna áhuga hans á byggðamálum og uppbyggingu at- vinnulífs. I öðru lagi hefði Fram- sóknarflokkurinn ábyrga stefnu í efnahagsmálum og sterka stöðu sem miðjuflokkur. Hann benti á að stjórnmálamenn í öðrum löndum væru víða að færa sig frá vinstri inn á miðjuna með góðum árangri og nefndi sem dæmi breska Verka- mannaflokkinn og sósíaldemókrata í Þýskalandi. „í þriðja lagi vil ég láta í Ijósi þá von að innkoma mín í Framsóknar- flokkinn muni styrkja félagsleg sjónai-mið innan hans, sem vissu- lega eru mjög öflug fyrir, og vænti þess að þau áhrif sem ég geti haft á flokkinn verði í þá veru,“ sagði Kristinn á blaðamannafundi í gær. Hann sagði ákvörðun sína hafa mælst vel fyrir meðal stuðnings- manna sinna fyrir vestan og kvað skýrast á næstu vikum hvort ein- hverjir úr þeirra hópi fylgdu hon- um inn í Framsóknarflokkinn. MikiII fengur fyrir flokkinn Halldór Ásgi'ímsson formaður Framsóknarflokksins bauð Kristin velkominn í hópinn á blaðamanna- fundinum. „Eg tel það mikinn feng fyrir Framsóknarflokkinn að fá hann til liðs við okkur, hann er öfl- ugur talsmaður margra málaflokka og góður þingmaður." Halldór gerði umrótið í íslensk- um stjórnmálum að umtalsefni og kvaðst finna fyrir áhuga margra á því að ganga til liðs við framsóknar- menn í kjölfar þess uppgjörs sem nú færi fram við fortíðina. Hann gerði lítið úr vangaveltum manna um hægri eða vinstri slagsíðu flokksins og sagði slíkar skilgrein- ingar í raun breytilegar eftir því hvaða mál væru í umræðunni. „Abyrg afstaða til allra mála er okkar stefna," sagði Halldór. Valgerður Sverrisdóttir, foi-mað- ur þingflokks Framsóknarflokks- ins, benti á að með tilkomu Kristins H. Gunnarssonar ætti Framsókn- arflokkurinn nú tvo þingmenn í öll- um kjördæmum landsins. Hann hefði fyllt upp í skarðið sem verið hafi í Vestfjarðakjördæmi, en Gunnlaugur Sigmundsson hefur frá kosningum verið eini fulltrúi Vest- firðinga í röðum framsóknarþing- manna. Gunnlaugur fagnaði liðsstyrkn- um og afhenti Rristni því til árétt- ingar lykla að skrifstofu flokksins á ísafirði. Hann sagði skoðanir þeirra Rristins liggja saman í mörgu og minnti á að þeir hefðu um árabil átt gott samstarf á ýmsum sviðum. „Eg vona að hann gefi kost á sér á lista á vori komanda, en það er auðvitað uppstillingarnefnd sem sér um uppröðunina," sagði Gunn- laugur, sem áður hefur lýst sig reiðubúinn að víkja fyi-ir „ungum og velmenntuðum einstaklingi“ eða öðrum sem erindi ættu efst á lista. Kristinn lýsti því yfii' að hann sæktist eftir áframhaldandi þing- mennsku og myndi í því augnamiði gefa kost á sér í annað af tveimur efstu sætum flokksins í kjördæm- inu. Hann hefði þó engin loforð um sæti upp á vasann. Framboðslisti um miðjan janúar Framboðslisti framsóknarmanna á Vestfjörðum mun að líkindum liggja fyrir í næsta mánuði, að sögn Kristins Jóns Jónssonar, formanns uppstillingarnefndar flokksins. „Við ráðgerum að halda kjördæm- isþing um miðjan janúar þar sem þetta verður ákveðið. Kristinn H. Gunnarsson hefur sagt mér að hann sækist eftir efstu sætum, jafnvel því fyrsta, og það verður skoðað eins og annað. Þetta er allt opið,“ sagði Kristinn Jón. Utandagskrár- umræða á Alþingi í dag Rætt um útboð á hlutafé í bönkum UMRÆÐA um útboð á hluta- fé í bönkum verður utandag- skrár á Alþingi í dag. Máls- hefjandi er Jóhanna Sigurð- ardóttir alþingismaður og Finnur Ingólfsson viðskipta- ráðherra verður til svara. Jóhann hefur lagt fram spurningar í fjórum liðum vegna þessa máls. Hún spyr viðskiptaráðherra hvaða álit hann hafi á því að stórir fjár- festar, m.a. fjármálastofnanir í meirihlutaeigu ríkisins, hafi náð til sín með kennitölusöfn- un hlutafé í Fjárfestingar- banka atvinnulífsins sem var langt umfram leyfilegt há- mark og hvort hann telji við- skiptin samrýmast eðlilegum viðskiptaháttum. Hún spyi' hvort raungengi FBA hafi verið hærra með til- liti til þess að hækkun á gengi bréfanna varð strax 30%. Hún spyr hvert áætlað tekju- tap ríkissjóðs sé vegna þessa. Hún spyr hvort ráðherra muni beita sér fyrir aðgerð- um til að koma í veg fyrir kennitölusöfnun í sölu hluta- fjár í Búnaðarbankanum og ef Alþingi heimilar frekari sölu á hlutafé í FBA. Loks spyr hún hvernig viðskiptaráðherra ætli að tryggja framgang á stefnu ríkisstjórnarinnar um dreifða eignaraðild. Fólk Nýr fram- kvæmda- stjóri SUS •JÓHANNA María Eyjólfs- dóttir tók nýlega við fram- kvæmdastjórastarfi Sam- bands ungra sjálfstæðis- manna. Jóhanna María lauk stúdents- prófi frá Verzlunar- skóla ís- lands árið 1987 og BA-prófi í sagnfræði með fjölmiðlafræði sem aukagrein frá Háskóla íslands árið 1993. Hún hefur starfað við dagskrárgerð og útgáfumál ýmiss konar. Var ritstjóri Stúdentablaðsins árið 1990-1991, vann síðar m.a. hjá Ríkissjónvarpinu, IM- Gallup og Stjómunarfélagi Islands. Jóhanna María var starfsmaður borgarstjórnar- flokks sjálfstæðismanna 1994-1998, ritstjóri Stefnis 1994-95 og hefur unnið að ýmsum verkefnum fyrir Sjálfstæðar konur og Sjálf- stæðisflokkinn undanfarin ár. Jóhanna María er gift Al- berti Pálssyni og eiga þau einn son. Jóhanna María Eyjólfsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.