Morgunblaðið - 08.12.1998, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1998 13
Sjö öku-
menn tekn-
ir ölvaðir
undir stýri
SJÖ ökumenn voru stöðvaðir
í Reykjavík aðfaranótt mánu-
dags vegna gruns um ölvun-
arakstur.
Fjórir þeirra voru sviptir
réttindum á staðnum en hinir
voru undir sektarmörkum og
var gert að skilja bíla sína
eftir og koma sér heim með
leigubíl. Að auki tók lögregl-
an tvo ökumenn, sem reynd-
ust réttindalausir í umferð-
inni.
Lögi-eglan segir að nokkuð
beri á því að ökumenn freist-
ist til að aka bflum sínum þótt
þeir hafí verið sviptir ökuleyfi
fyrir ýmiss konar yfirsjónir,
en sekt við slíku athæfi er 50
til 100 þúsund krónur auk
þess sem réttindalaus öku-
maður er ennfremur réttlaus
í umferðinni. Valdi réttinda-
laus ökumaður tjóni hefur
hann engan bakhjarl af
tryggingum og getur þar af
leiðandi setið uppi með
óheyrilegan kostnað vegna
athæfis sem hann taldi vera í
lagi.
Alvarlega
slasaður eftir
útafakstur
í háiku
BIFREIÐ fór út af veginum
á Hrútafjarðarhálsi í Húna-
vatnssýslu í fljúgandi hálku
rétt eftir kvöldmatarleytið á
sunnudagskvöld.
Hafnaði bifreiðin mikið
skemmd úti í skurði og þurfti
að klippa flakið í sundur til að
ná út ökumanni hennar.
Hann slasaðist alvarlega og
var fluttur með sjúkrabifreið
áleiðis til Reykjavíkur, en
beðið var um aðstoð TF-SIF,
þyrlu Landhelgisgæslunnar,
sem tók við sjúkraflutningn-
um í Borgarnesi og flutti hinn
slasaða á Sjúkrahús Reykja-
víkur. Hann fór í aðgerð á
heila- og taugaskurðdeild og
var lagður inn á gjörgæslu-
deild.
Að sögn vakthafandi lækn-
is á heila- og taugaskurðdeild
er maðurinn með mikla
áverka, m.a. á hálshrygg, en
líðan hans er eftir atvikum.
Farþegi, sem var með öku-
manni slapp ómeiddur úr
slysinu.
Þyrla sótti
slasaðan
sjómann
ÞYRLA Landhelgisgæslunn-
ar TF-LÍF var kölluð út um
klukkan 5 að morgni mánu-
dags til að sækja slasaðan
sjómann um borð í línubátinn
Tjald SH 270, sem staddur
var um 80 sjómílur vestur af
Snæfellsnesi.
Hafði sjómaðurinn dottið á
dekkinu og fengið höfuð-
högg. Hann var fluttur í
Sjúkrahús Reykjavíkur til
aðhlynningar. Meiðsli hans
reyndust ekki alvarleg og
fékk hann að fara heim að
loknum rannsóknum.
KRINCLUNNI
mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is
'T~TH\//\£) A/