Morgunblaðið - 08.12.1998, Síða 14

Morgunblaðið - 08.12.1998, Síða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eiginfjárhlutfall nýs orkufyrirtækis í eigu Reykjavíkurborgar verður fært niður í um 70% Arðgreiðslur lækka um 700 milljónir Reiknað er með að borgarsjóður muni fá um 3,5 milljarða króna í tekjur vegna lækk- unar á eigin fé nýs orkufyrirtækis Reykja- víkurborgar sem verður til um áramót við sameiningu Hitaveitu Reykjavíkur og Raf- magnsveitu Reykjavíkur í eitt fyrirtæki. Morgunblaðið/Árni Sæberg ORKUVER Reykvíkinga á Nesjavöllum. ÁFORM um lækkun eigin fjár nýs orkufyrirtækis Reykvíkinga gera ráð fyrir að fénu verði fyrst og fremst varið til niðurgreiðslu á skuldum borgarsjóðs sem námu á fímmtánda milljarð króna í árslok 1997. Jafnframt er gert ráð fyrir að arðgreiðslur orkufyrirtækjanna í borgarsjóð lækki um helming, eða úr um 1.400 milljónum króna á ári í 700 milljónir króna og að arðgreiðsl- an, að meðtalinni greiðslubyrði af lánum fyrirtækisins, nemi ekki sam- anlagt meira en 1.000-1.100 milljón- um króna. Alfreð Þorsteinsson, formaður stjórnar veitustofnana, sagði að meirihlutinn í borginni hefði ekki farið dult með það að með sama hætti og ríkið væri að afla sér tekna með beinni eignasölu, eins og til dæmis á Fjárfestingarbanka at- vinnulífsins, væri borgin að ná fé út úr veitufyrirtækjunum með þessum hætti, enda teidu þau að veitufyrir- tækin stæðu fyllilega undir því vegna sterkrar stöðu sinnar. Þarna sé um stigsmun að ræða en ekki eðl- ismun á því hvað ríkið og borgin séu að gera að þessu leyti. Alfreð sagði aðspurður að ekki hefði verið endanlega útfært hvern- ig þessu fé yrði varið, en stefnan væri sú að nýta það að mestu leyti til þess að greiða niður skuldir borg- arsjóðs. Heildareignir beggja orkufyrir- tækjanna, að meðtöldum eignar- hluta Rafmagnsveitu Reykjavíkur í Landsvirkjun, eru taldar nema um 38,6 milljörðum króna nú um ára- mótin og heildar eigið fé er talið nema um 32,3 milljörðum króna. Stefnt er að því að færa eignarhlut- ann í Landsvirkjun yfir til borgar- sjóðs, en hann nemur um 13,5 millj- örðum króna. Þá er unnið að endur- mati á eigin fé fyrirtækisins og talið að það hækki um 8 milljarða króna alls. Að viðbættu 3,5 milljarða króna skuldabréfi sem gefið verður út til borgarsjóðs er gert ráð fyrir að eig- ið fé nemi um 23,3 milljörðum króna eftir þessar breytingar og að eigin- fjárhlutfallið verði þá um 70%. Ileildargreiðslu- byrðin minni Alfreð sagði að stefnt væri að því að heildargreiðslubyrði nýja orku- fyrirtækisins yrði minni en hún væri nú, en síðustu þrjú ár hafa fyr- irtækin verið að greiða um 1.400 milljónir króna í borgarsjóð. Sagði Alfreð að reiknað væri með að arð- greiðslan til borgarinnar yi'ði um 700 milljónir króna á ári. Við bætt- ist síðan greiðslubyrði af lánum og samanlagt væri rætt um að greiðslubyrðin yrði á bilinu 1.000- 1.100 milljónir króna. Þarna væri því um raunverulega lækkun að ræða, en nokkuð hart hefði verið gengið að orkufyrirtækjunum með þessum arðgreiðslum eða afgjöld- um, sem svo væru kölluð. „Gjaldskrárbreytingay af þessum sökum verða engar. Ég get hins vegar ekki tekið fyrir að það verði einhverjar hækkanir einhvern tíma í framtíðinni vegna eðlilegrar verð- lagsþróunar," sagði Alfreð aðspurð- ur hvort fyrirtækið stæði undir þessum breytingum án þess að breyta gjaldskrá sinni. Alfreð sagði aðspurður að til væri samningur milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar annars vegar og Reykjavíkur og Garðabæjar hins vegar vegna hitaveitunnar, þar sem gert sé ráð fyrir að þessi sveitarfé- lög fái hluta af arðgreiðslum frá Hitaveitu Reykjavíkur, fari hagnað- ur fyrirtækisins fram úr ákveðnu marki. Ekki hafi komið til slíkra arðgreiðslna enn og það sé fremur ólíklegt að til þeirra komi vegna þess að hagnaður Hitaveitunnar þurfi þá að vera það mikill. Hins vegar hafi verið í gangi viðræður milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur í byrjun þessa árs um endurskoðun á þessum samningi og þær viðræður hafi verið vel á veg komnar þegar þær hafi fallið niður vegna sveitar- stjórnarkosninganna. Síðan hefðu menn ekki átt í viðræðum, en eigin- lega hafi legið á borðinu þá að Hafn- arfjörður og þá væntanlega Garða- bær líka fengju einhverjar greiðslur. „En síðan hafa þeir verið að tala við okkur í gegnum fjölmiðla með stór- yrðum, þannig að ég veit ekki hvort þeir hafa raunverulegan áhuga á því að taka þessar viðræður upp aftur,“ sagði Alfreð. Aðspurður hvort ekki mætti segja að Hafnfirðingar og Garðbæingar hefðu notið hagnaðar og afraksturs af Hitaveitu Reykjavíkur í lágum notendagjöldum í gegnum tiðina sagði Alfreð að sjálfsöðgu svo vera. Hann hefði sagt þegar því hefði ver- ið haldið fram að þessi sveitarfélög ættu eitthvað í þessum orkufy-ir- tækjum að þau gætu með sama hætti sent Landssímanum kröfur um arð eins og veitufyrirtækjunum. Hitaveita Reykjavíkur hefði auðvit- að lagt í gífurlegan stofnkostnað til að geta þjónað þessum suðurbyggð- um og í raun og veru hefði ekki þurft að byggja varmaorkuverið á Nesjavöllum ef ekki hefði komið til þessi þjónusta við Hafnarfjörð, Garðabæ og Kópavog. Lághitasvæð- in hefðu dugað. Hann sagði að sá átta milljarða stofnkostnaður sem Hitaveitan hefði lagt í þá vegna byggingar varma- orkuversins á Nesjavöllum, sem tek- ið hefði verið í notkun 1990, væri til- kominn þess vegna og auðvitað teldu Reykvíkingar að þeir þyrftu að fá einhverja vexti af þeirri fjár- festingu. Aðspurður sagði Alfreð að borgin væri tilbúin til að taka viðræðurnar frá því í vetur upp aftur hvenær sem er ef óskir kæmu fram um það. Gagnrýni Máls og menningar á nýja gjaldskrá Landmælinga íslands Engin svör borist við at- hugasemdum MAL og menning hefur engin svör fengið frá umhverfisráðuneytinu í kjölfar athugasemda vegna nýrrar gjaldskrár Landmælinga íslands sem fyrirtækið telur að eigi sér ekki stoð í lögum. Að sögn Arnar Sig- urðssonar hjá Máli og menningu tel- ur hann auk þess að Landmælingar eigi ekki höfundarrétt að þeim grunngögnum sem stofnunin hafi selt þar sem þau séu bandarísk að uppruna. I athugasemdum Máls og menn- ingar sem sendar voru umhverfis- ráðuneytinu fyrir hálfum mánuði segir m.a. að með nýrri gjaldskrá fyrir útgáfu og birtingu gagna frá Landmælingum íslands hafi verið girt fyrir frelsi einstaklinga og fyrir- tækja til kortagerðar og kortaútgáfu á Islandi. | nýjum lögum um Land- mælingar Islands sé hvergi talað um gjaldtöku fy-ir birtingu gagna, held- ur einungis tilskilið að uppruna þeirra sé getið, og því sé það skoðun Máls og menningar að hin nýja gjaldskrá eigi sér ekki stoð í lögum. Fram kemur í athugasemdunum að Mál og menning hafi keypt grunngögn af Landmælingum Is- lands og notað að hluta til við gerð sinna eigin korta. Önnur gögn frá stofnuninni hafi ekki verið notuð og því eigi kortagerðarmaður Máls og menningar höfundarrétt að langstærstum hluta kortanna. Bent er á það að í gjaldskránni séu lögð að jöfnu kort sem eru nákvæm eftir- gerð korta Landmælinga Islands og kort sem innihalda meira en 20% af gögnum stofnunarinnar. Mjög óeðli- legt sé að setja í sama flokk kort sem stofnunin á allan höfundarrétt að og kort sem eru allt að 80% í eigu annarra. Landmælingar íslands geti aldrei eignast höfundarrétt að því sem annar aðili hafi unnið að stærst- um hluta. Þá er bent á það að forsvarsmenn Landmælinga íslands hafi í fjölmiðl- um rætt um undanþágu frá gjald- skránni og að samið verði sérstak- lega við stærri útgefendur. Að mati Máls og menningar sé það brot á jafnræðisreglu stjórnvalda ef Land- mælingar íslands ætli sér að mis- muna viðskiptavinum sínum og semja sérstaklega við nokkra þeirra en ekki aðra. Þá er bent á að Land- mælingar íslands séu í samkeppni í kortaútgáfu og snerti gjaldskráin því samkeppnislög. Ef stofnunin ætli að innheimta slík leyfisgjöld af fyrirtækjum sem hún á í samkeppni við ætti hún sjálf að greiða slík gjöld, auk þess sem endurskoða og aðskilja þyrfti ýmsa þætti í rekstri stofnunarinnar. Grunngögnin bandarísk að uppruna Örn Sigurðsson sagði í samtali við Morgunblaðið að samkvæmt gjald- skrá Landmælinga íslands beri Máli og menningu að borga stofnuninni 65 krónur af hverju framleiddu korti, sem sé um 20% af heildsölu- verðmæti. Þessi innheimta sé sam- bærileg við það að kennslubókadeild Máls og menningar greiddi Náms- gagnastofnun nefskatt af hverri kennslubók eða að Stöð 2 greiddi hluta áskriftartekna sinna til Sjón- varpsins. Hann sagði að víðast hvar um heiminn væru grunngögn af þessu tagi að verða almannaeign, og þannig væri þessu t.d. farið í Banda- ríkjunum. Gögnin sem Mál og tnenning keypti frá Landmælingum Islands væru einmitt bandarísk að uppruna og samkvæmt höfundar- réttarlögunum kæmu erlend gögn ekkert nálægt íslenskum höfundar- rétti. Því mætti raunverulega segja að stofnunin væri að selja gögn sem hún ætti ekki höfundarrétt á. Magnús Guðmundsson, sem tekur við starfi forstjóra Landmælinga ís- lands um næstu áramót, sagði að sér væri kunnugt um að athugasemdir hefðu borist umhverfísráðuneytinu vegna gjaldskrár stofnunarinnar. Hann sagði að verið væri að vinna í heúdargjaldskrá fyrir Landmæling- ar íslands og það yrði skoðað með tilliti til athugasemdanna sem borist hefðu hvort ástæða þætti til að taka það í gjaldskránni til endurskoðunar sem gagnrýnt hefði verið. Sjálfstæðisflokkur Uppröðun á Vest- fjörðum KJÖRDÆMISRÁÐ Sjálf- stæðisflokksins á Vestfjörðum samþykkti með 19 atkvæðum á fundi síðastliðinn laugardag að fram færi uppröðun á framboðslista vegna alþingis- kosninganna í vor. Á fundin- um kom fram tillaga um að halda prófkjör og hlaut hún stuðning 15 fundarmanna. Að sögn Þóris Arnar Guð- mundssonar, formanns kjör- dæmisráðsins, lýsti Einar K. Guðfinnsson alþingismaður því yfir á fundinum að hann myndi sækjast áfram eftir fyrsta sætinu á listanum og Éinar Oddur Kristjánsson al- þingismaður lýsti því yfir að hann myndi áfram sækjast eftir öðru sætinu. Þrír menn sækjast eftir þriðja sætinu Þrír lýstu því yfir á fundin- um að þeir sæktust eftir þriðja sætinu, en það eru þeir Ólafur Hannibalsson, Guðjón A. Kristjánsson og Þórólfur Halldórsson. Þórir Öm sagði að vinna við uppröðun á framboðslistann hæfist upp úr áramótum og kjörnefndir kæmu síðan sam- an um miðjan janúar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.